Morgunblaðið - 03.12.2013, Side 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 2013
HEYRNARSTÖ‹IN
Þjónusta Heyrnarstöðvarinnar gengur út á aukin lífsgæði. Við bjóðum ókeypis
heyrnarmælingu, hágæða heyrnartæki og margvíslega sérfræðiþjónustu og ráðgjöf.
Kynntu þér þjónustu okkar á heyrnarstodin.is og vertu í sambandi.
Við tökum vel á móti þér. Heyrumst.
Kringlunni • Sími 568 7777 • heyrnarstodin.is
Malín Brand
malin@mbl.is
Það var árið 2004 sem HeimirPálsson gerði sér ljóst aðenn væru fjölmargar ráð-gátur óleystar í sögu Eddu.
Það var nefnilega þá sem hann tók að
sökkva sér í texta Uppsala-Eddu eða
DG 11 4to eins og handritið kallast.
Síðan þá hefur hann kynnst ritara
handritsins býsna vel þó ekki sé vita
hver það er. Stíllinn er afgerandi og
segir Heimir að mikill munur sé á
Uppsala-Eddu og öðrum handritum.
„Það er töluvert styttra, það er
með innskotum sem eru alls ekki
með í hinum handritunum. Það er
meðal annars þetta Skáldatal sem
bara er varðveitt hér og í einu hand-
riti af Heimskringlu líka þannig að
það hefur greinilega eitthvað með
Snorra að gera,“ segir Heimir þegar
hann er spurður að því hvað greini
handritin einna helst að. Það er
margt fleira sem má nefna, eins og
ættartala Sturlunga, Lögsögu-
mannatal. „Ættartala Sturlunga end-
ar á systurbörnum Snorra og Lög-
sögumannatal er greinilega skrifað
þegar hann er lögsögumaður í annað
skiptið, þannig að þetta eru allt sam-
an textar sem hafa eitthvað með
Snorra Sturluson að gera,“ segir
Heimir.
Galinn skrifari?
Ýmsir fræðimenn hafa, að sögn
Heimis, helst viljað henda Uppsala-
Eddu út af borðinu því hún er erfið
yfirferðar og þar er margt sem menn
hafa átt erfitt með að útskýra. Þá er
ritaranum gjarnan kennt um: „Þeir
segja að þetta sé bara galinn skrifari
Að láta sér vaxa
gott brageyra
Fáir ef nokkur af núlifandi fræðimönnum hafa rannsakað Uppsala-Eddu jafn-
ítarlega og Heimir Pálsson, dósent við Uppsalaháskóla. Út er komið mikið verk
eftir Heimi, Uppsala-Edda, Handritið DG 11 4to sem er tæpar 400 síður. Þetta
tiltekna handrit Eddu hefur verið varðveitt í Uppsölum í Svíþjóð og það eignar
Snorra Sturlusyni Eddu. Heimir flytur í kvöld fyrirlestur um rannsóknir sínar.
Morgunblaðið/Jim Smart
Uppsala-Edda Heimir Pálsson hefur varið síðasta áratug í rannsóknir á
handritinu. Afraksturinn má sjá í nýútkominni bók hans um verk Snorra.
Handrit Hér má sjá myndskreytt
handrit Snorra Eddu en þó ekki
sjálfa Uppsala-Eddu.
Á Facebook-síðu fyrir-
tækisins Cool Design er
að finna alls kyns hand-
gerðar íslenskar vörur.
Hönnunin og fram-
leiðslan er íslensk og
hefur vakið nokkra at-
hygli fyrir að vera býsna
þjóðleg og umhverfis-
væn.
Má þar nefna glasa- og
diskamottur sem gerðar
eru úr endurunnum
pappír og sérstök fugla-
hús sem einnig má nota
sem ljósker innandyra.
Litskrúðugir eggjabik-
arar og friðarskál ættu
að geta lífgað upp á
hvert einasta eldhús.
Cool Design hefur
einnig hannað húsgögn á
borð við kiljuhilluna en
það er hilla sem passar inn í horn,
til dæmis í sumarbústöðum eða
annars staðar þar sem kiljur vilja
hlaðast upp.
Á síðunni er að finna íslenskt
hugvit eins og það gerist skemmti-
legast og ekki síst litskrúðugt og
skrautlegt.
Vefsíðan www.facebook.com/cooldesign.is
Hönnun Gripir undir merkjum Cool Design hafa
komið skemmtilega á óvart.
Svöl íslensk hönnun
Árlegir jólatónleikar Flugfreyjukórs-
ins verða haldnir í Landakotskirkju.
Þeir hefjast klukkan 20.00 og er að-
gangur ókeypis.
Góðir gestir taka þar einnig þátt
og þetta árið eru það félagar í Lög-
reglukórnum.
Flugfreyjukórinn er skipaður fjölda
freyja sem æfa tvisvar sinnum í viku
undir stjórn Magnúsar Kjartanssonar.
Kórinn syngur gjarnan við hátíðleg
tilefni, til dæmis við úthlutanir úr
sjóði Vildarbarna og fleira tengt góð-
gerðarstarfsemi. Jólatónleikarnir eru
fastur liður í jólaundirbúningi margra
og allir velkomnir á þá.
Endilega …
… sjáið Flugfreyjukórinn
Morgunblaðið/Ómar
Þjáning og seigla – að lifa af eða ekki
er fyrirlestur sem geðlæknirinn
Högni Óskarsson flytur í Hann-
esarholti við Grundarstíg 10 í kvöld.
Hann mun fjalla um þjáninguna í
tengslum við þunglyndi, dauðaóskir
og sjálfsvígshættu. Tíðni sjálfsvíga
verður rædd, áhættuhópum gerð skil
auk þess sem fjallað verður um með-
ferð og forvarnir.
Í tilkynningu frá Hannesarholti
segir: Við leitumst stöðugt við að út-
rýma þjáningunni úr lífi okkar, en
dæmum okkur þannig til að viðhalda
henni. Sú stund getur komið í lífi
margra að þjáningin verður svo yf-
irþyrmandi að þeir sjá þá einu lausn
að taka skrefið út úr lífinu. Sumir
stíga skrefið, aðrir ekki. Aðdragand-
inn er oftast allnokkur en fram-
kvæmdin er oft gerð í skyndigeðs-
hræringu, stundum eftir langa
baráttu við þunglyndi og vonleysi,
sem endar í uppgjöf. Leiðarstefið er:
Sársauki er óumflýjanlegur, þjáningin
er valkostur.
Fyrirlesturinn hefst klukkan 20 og
er aðgangseyrir 1.000 krónur.
Síðasti fyrirlesturinn í röðinni Hvernig heilsast þjóðinni?
Að lifa af eða ekki – Þjáning,
dauðaóskir og þunglyndi
Morgunblaðið/Billi
Sjálfsvíg Högni Óskarsson geðlæknir mun fjalla um þjáninguna sem valkost.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.