Morgunblaðið - 03.12.2013, Blaðsíða 32
32 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 2013
✝ GuðbjörgMagnúsdóttir
fæddist á Kross-
árbakka í Bitru-
firði 29. nóvember
1927. Hún lést á
Dvalarheimilinu
Eir 26. nóvember
2013.
Foreldrar henn-
ar voru hjónin Vil-
borg Magn-
úsdóttir húsfreyja,
f. 11.7. 1901, d. 12.10. 1977 og
Magnús Sturlaugsson, f. 2.3.
1901, d. 2.1. 1979, bóndi á
Krossárbakka og Hvammi í
Dölum, síðan verkamaður í
Reykjavík.
Systkini Guðbjargar: Har-
aldur, f. 8.4. 1929, Ásta Svan-
laug, f. 13.12. 1932, Sigfríður
Dúfa, f. 18.12. 1933, d. 29.7.
1935, Ragnar, f. 19.6. 1935.
Hálfsystkini sammæðra: Knút-
ur, f. 21.4. 1924, d. 3.12. 1996
og Brynhildur, f.
24.9. 1925, d. 12.4.
2007.
Sonur Guð-
bjargar er Magnús
Sturla Stefánsson,
f. 12.8. 1952, sjó-
maður. Kona hans
er Lilja Kristín
Kristinsdóttir, f.
27.7. 1950. Synir
þeirra eru Kristinn
Guðjón, f. 5.8.
1969, kona hans er Linda Mae
Kirker, sonur hans er Illugi
Þór, f. 28.11. 1991. Stefán
Hrafn, f. 18.5. 1973 og Ágúst
Torfi, f. 22.4. 1980, sonur hans
er Sindri Robert, f. 21.8. 2004.
Árið 1972 giftist Guðbjörg
Jóni Gunnlaugssyni vélstjóra,
f. 25.9. 1908, d. 10.12. 1986.
Útför Guðbjargar fer fram
frá Fossvogskapellu í dag, 3.
desember 2013, og hefst at-
höfnin kl. 11.
Gugga, eins og ég kallaði
hana, kom inn í líf mitt árið
1972 er hún giftist Jóni Gunn-
laugssyni frá Klaufabrekkukoti
í Svarfaðardal. Hún hafði sleg-
ist við lungnaþembu frá barns-
aldri og kynntist Nonna, eins
og hann var kallaður, á Vífils-
stöðum þegar þau voru þar
bæði að slást við veikindin sín.
Nonni hafði áður verið
kvæntur föðursystur minni og
nöfnu, Ólafíu Pálínu Helgadótt-
ur, sem lést árið 1958 einungis
36 ára gömul. Þau eignuðust
tvö börn, Þóru sem giftist Har-
aldi Guðbergssyni og eignuðust
þau einn son. Þóra og Haraldur
eru bæði látin, og Hafliða
Helga, kvæntan Naremon
Jónsson frá Tælandi. Þau eiga
3 syni, Helga Þór, Jón Grímkel
og Arinbjörn. Þau hafa búið í
Bandaríkjunum frá árinu 1982.
Helgi og Naremon komu heim í
sumar og náðu að hitta Guggu
og voru fagnaðarfundir. Syn-
irnir þrír komu allir til Íslands
árið 2011 og fóru að sjálfsögðu
að hitta ömmu Guggu eins og
þeir kölluðu hana. Hún var svo
ánægð að hitta þá.
Gugga eignaðist einn son,
Magnús Sturlu Stefánsson.
Hann er kvæntur Lilju Krist-
insdóttur og eiga þau 3 syni,
Kristin Guðjón, Stefán Hrafn
og Ágúst Torfa. Barnabörnin
eru tvö, Illugi Þór og Sindri
Róbert. Maggi og Lilja hafa
búið á Seyðisfirði í tæp 40 ár
og því langt að fara ef eitthvað
kom uppá hjá Guggu.
Það var mikil blessun fyrir
Nonna að kynnast Guggu. Þau
voru ákaflega samrýnd og
miklir höfðingjar heim að
sækja.
Ég kom til Reykjavíkur árið
1978 í sjúkraliðanám og ætlaði
alltaf að snúa heim til Siglu-
fjarðar aftur en eftir námið fór
ég að vinna í Reykjavík og
sneri ekki aftur norður nema
sem gestur. Gugga og Nonni
tóku mér opnum örmum, um-
vöfðu mig ást og umhyggju og
gat ég alltaf leitað til þeirra og
treyst á þau. Þegar ég kynntist
manninum mínum, Björgvini
Sigurðssyni, tóku þau honum
líka opnum örmum.
Nonni lést 10. desember
1986. Gugga var hjá okkur öll
jól og aðra hátíðisdaga eftir
það. Þegar hún veiktist og fór á
spítala kynnti hún mig alltaf
sem stjúpdóttur sína.
Við vorum svo heppin að búa
fyrstu árin í Skipholti 44 og því
var stutt á milli okkar og
Guggu þar sem hún bjó áfram í
Hátúninu eftir að Nonni lést.
Við heyrðumst daglega í síma
og hittumst þess á milli.
Börnin mín Kata, Guðjón og
Sigrún þekktu hana sem ömmu
Guggu og var hún þeim sönn
amma. Kom færandi hendi með
nýbakaðar lummur, pönnukök-
ur og að sjálfsögðu færði hún
þeim handprjónaða vettlinga og
sokka sem hún gerði. Þau
munu sakna hennar sárt. Litlu
ömmustelpurnar mínar voru
farnar að kalla hana langömmu
Guggu.
Gugga fluttist í þjónustuíbúð
á Dalbraut 27 og bjó þar í tæp
10 ár en þá gaf heilsan sig al-
veg og eftir að hafa verið á
Landakoti í nokkra mánuði
fluttist hún á Eir hjúkrunar-
heimili þar sem hún lést þriðju-
daginn 26. nóvember.
Það verða tómleg jól án
ömmu Guggu. En ég veit að
hún er komin til Nonna og þau
eru ánægð saman.
Elsku Maggi, Lilja og fjöl-
skylda, ég votta ykkur mína
dýpstu samúð.
Elsku Gugga, þakka þér fyr-
ir allar þær stundir sem við
höfum átt saman. Guð blessi
minningu ykkar Nonna.
Þín stjúpdóttir,
Ólafía Ragnarsdóttir
(Didda).
Guðbjörg
Magnúsdóttir
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Atvinnuhúsnæði
Skrifstofuherbergi til leigu
Lítil og meðalstór skrifstofuherbergi
með aðgangi að interneti, kaffistofu
og wc, miðsvæðis í Reykjavík.
Upplýsingar í síma: 899-3760.
Verslunarhúsnæði til leigu
Laust strax! Húsnæði í Borgartúni.
Verslunargluggi og inngangur sem
snýr að götu. WC í sameign. Leiga
100.000 með hita og rafm. Uppl. í
síma 694 4166.
Sumarhús
Sumarhús - Gestahús
- Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla -
Endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892 3742 og 483 3693,
www.tresmidjan.is
Óska eftir
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum allt gull. Kaupum silfur-
borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar-
leg viðskipti. Aðeins í verslun okk-
ar Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
Kaupi silfur
Vantar silfur til bræðslu og endur-
vinnslu.
Fannar verðlaunagripir.
Smiðjuvegi 6, rauð gata,
Kópavogi. fannar@fannar.is
s. 551-6488.
KAUPI GULL!
Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða-
meistari, kaupi gull, gullpeninga og
gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt,
gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns og fáið góð ráð.
Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000
eða komið í Pósthússtræti 13 (við
Austurvöll).
Verið velkomin.
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
Ýmislegt
!
Skólavörðustíg 42 · 101 Reykjavík
Sími 861 4142 · www.coffee4you.org
ÍSLANDI
Nýtt frá BIRKENSTOCK
Teg. Santiago Nýkomnir hinir
frábæru inniskór frá BIRKENSTOCK.
Sérstaklega mjúkir. Tveir litir.
Stærðir: 36-42. Verð: 14.885.
Komdu og líttu á úrvalið
hjá okkur!
Sími 551 2070.
Opið mán. - fös. 10 - 18,
laugardaga 10-14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.mistyskor.is
Erum einnig á Facebook.
JÓLANÆRFÖTIN KOMIN
Teg. Vivienn - Nýr litur af þessum
frábæra haldara, fæst í
D,DD,E,F,FF,G skálum á kr. 10.990.
Teg. ELODIE - Glæsilegur í
D,DD,E,F,FF,G skálum á kr. 10.990.
Laugavegi 178, sími 551 3366.
Opið mán.-fös. 10-18.
Opið á lau. 10-14.
Þú mætir - við mælum
og aðstoðum.
www.misty.is
- vertu vinur
Bátar
Ferðaþjónusta – „Water-Taxi” –
hvalaskoðun
Hraðskreiðasti farþegabáturinn
á Íslandi, Technomarine Rib-bátur,
700 hestöfl, gengur 50 mílur. 12
metra Rib-bátur með öllum siglinga-
tækjum, 20 sæti, 20 gallar, tvær 350
hestafla Yamaha 2007, Saltwater
series XL V-8 four stroke, nýyfirfarnir,
aðeins 608 tímar á vélunum.
Til sýnis í Kópavogshöfn um
næstu helgi.
Uppl. í síma 820 5181.
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Húsviðhald
Glerjun og gluggaviðgerðir
Lása- og hurðaviðgerðir ásamt öðrum
smíðaverkefnum.
Kortaaðgangskerfi fyrir húsfélög/
sameignir - engir lyklar.
Glugga- og hurðaþjónustan,
s. 895 5511, smidi.is
Skráðu þig í iPad-áskrift á
www.mbl.is/mogginn/ipad/
Nú geta
allir fengið
iPad-áskrift
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda
Morgunblaðinu greinar eru vin-
samlega beðnir að nota inn-
sendikerfi blaðsins. Neðst á for-
síðu mbl.is má finna upplýsingar
um innsendingarmáta og skila-
frest. Einnig má smella á Morg-
unblaðslógóið efst í hægra horn-
inu og velja viðeigandi lið.
Skilafrestur | Sé óskað eftir
birtingu á útfarardegi þarf
greinin að hafa borist á hádegi
tveimur virkum dögum fyrr (á
föstudegi ef útför er á mánudegi
eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað get-
ur birting dregist, jafnvel þótt
grein hafi borist innan skila-
frests.
Lengd | Hámarkslengd minn-
ingargreina er 3.000 slög.
Lengri greinar eru eingöngu
birtar á vefnum. Hægt er að
senda stutta kveðju, Hinstu
kveðju, 5-15 línur.
Formáli | Minningargreinum
fylgir formáli sem aðstandendur
senda inn. Þar kemur fram hvar
og hvenær sá sem fjallað er um
fæddist, hvar og hvenær hann
lést og loks hvaðan og hvenær
útförin fer fram. Þar mega einn-
ig koma fram upplýsingar um
foreldra, systkini, maka og börn,
svo og æviferil. Ætlast er til að
þetta komi aðeins fram í formál-
anum, sem er feitletraður, en
ekki í minningargreinunum.
Undirskrift | Minningargreina-
höfundar eru beðnir að hafa
skírnarnöfn sín undir grein-
unum.
Myndir | Hafi mynd birst í til-
kynningu er hún sjálfkrafa not-
uð með minningargrein nema
beðið sé um annað. Ef nota á
nýja mynd skal senda hana með
æviágripi í innsendikerfinu. Hafi
æviágrip þegar verið sent má
senda myndina á netfangið
minning@mbl.is og gera um-
sjónarfólki minningargreina við-
vart.
Minningargreinar
Önnumst alla þætti útfararinnar
ÚTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA
Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is
Þegar andlát ber að höndum
REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST
✝
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
hlýhug og samúð við andlát og útför
ástkærrar eiginkonu minnar, móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
ARNHILDAR HELGU
GUÐMUNDSDÓTTUR,
Aratúni 32,
Garðabæ.
Gunnar Gunnlaugsson,
Gunnar Gunnarsson, Harpa Karlsdóttir,
Irma Mjöll Gunnarsdóttir, Guðjón G. Bragason,
Drífa Lind Gunnarsdóttir, Davíð Ketilsson,
Þuríður Elín Gunnarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Hjartans þakkir færum við öllum sem sýndu
okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og
útför eiginmanns míns, föður okkar, tengda-
föður og afa,
GUÐMUNDAR SIGURÐSSONAR,
Vallarbraut 6,
Reykjanesbæ.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk deildar 11G á
Landspítala og D-deildar Heilbrigðisstofnunar
Suðurnesja fyrir góða umönnun.
Sesselja (Stella) Ingimundardóttir,
Inga Benný, Azzan Kanan,
Sigurður J. Guðmundsson, Svanborg K. Magnúsdóttir,
Sigrún Guðmundsdóttir, Valdimar Sigurjónsson,
Einar M. Guðmundsson, Guðbjörg F. Guðmundsdóttir
og barnabörn.