Morgunblaðið - 03.12.2013, Blaðsíða 44
Tvö efstu liðin í úrvalsdeild karla í
körfubolta eru dottin út úr bik-
arkeppninni. KR féll á fyrstu hindrun,
gegn Njarðvík, og í gærkvöld beið
Keflavík lægri hlut fyrir Grindavík í
hörkuspennandi leik á heimavelli,
68:72. Þjálfari Grindavíkur, Sverrir
Þór Sverrisson, er kominn í átta liða
úrslit með tveimur liðum eftir þenn-
an sigur. »3
Tvö efstu liðin eru
fallin úr bikarnum
ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 337. DAGUR ÁRSINS 2013
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
1. Byssumaðurinn er látinn
2. Féll fyrir skotum lögreglu
3. Nafn mannsins sem lést
4. „Grét er ég heyrði fyrstu hvellina“
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Kvikmyndasafn Íslands sýnir í
kvöld kl. 20 kvikmyndir um tvær af
stærstu ballettstjörnum 20. ald-
arinnar, Galinu Ulanova og Maju Plis-
etskaja, í Bæjarbíói í Hafnarfirði. Ul-
anova og Plisetskaja voru báðar
aðaldansarar, „ballerina assoluta“,
við hinn heimskunna Bolshoj-ballett í
Moskvu og í myndunum er varpað
ljósi á líf þeirra og störf. Þá verður
einnig sýndur kafli úr kvikmynd um
fyrstu Alþjóðlegu ballettkeppnina í
Moskvu sem haldin var árið 1969 en í
henni hafnaði Helgi Tómasson í öðru
sæti, á eftir sjálfum Mikhaíl Bar-
isníkoff.
Morgunblaðið/Kristinn
Ballettstjörnur
Bolshoj í Bæjarbíói
ASA tríó kemur
fram á djasskvöldi
Kex Hostel á
Skúlagötu 28 í
kvöld kl. 20.30.
Tríóið skipa Agnar
Már Magnússon
sem leikur á Ham-
mond-orgel,
Andrés Þór Gunn-
laugsson gítarleikari og trommuleik-
arinn Scott McLemore.
ASA djassar á Kexi
Kærleikskúlur Styrktarfélags lam-
aðra og fatlaðra, frá árunum 2003 til
2013, verða sýndar í
þeim glugga Hafn-
arborgar sem snýr að
Strandgötu í Hafn-
arfirði fram að jólum.
Ragnar Kjart-
ansson hann-
aði kúluna í ár.
Kærleikskúlur í
glugga Hafnarborgar
Á miðvikudag Snýst í norðan 8-13 m/s og kólnar í veðri. Él um
landið norðanvert, stöku él vestanlands framan af degi, annars
bjartviðri. Frost 0 til 12 stig, kaldast norðaustan- og austantil.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðvestan og vestan 8-20 m/s, hvassast
við suðvesturströndina. Éljagangur en skýjað með köflum eða
léttskýjað eystra. Dregur heldur úr vindi nyrðra og eystra í kvöld.
VEÐUR
„Ég er búinn að vera frekar
óheppinn hvað meiðsli varðar
og svo er ég bara ekki í náð-
inni hjá blessuðum þjálf-
aranum. Það hafa verið nokk-
uð margir leikir sem ég hef
ekki einu sinni verið í hópnum.
Þetta er allt voðalega skrýt-
ið. Þjálfarinn gefur mér
undarleg rök fyrir því að
nota mig ekki,“ segir
Vignir Svavarsson, lands-
liðsmaður í handknattleik
og leikmaður Minden. »1
Vignir í vandræð-
um hjá Minden
„Ég er alveg heill heilsu en ég hef
verið geymdur á bekknum í síðustu
tveimur leikjum. Ég neita
því ekki að maður var
svolítið laskaður and-
lega og líkamlega eftir
umspilsleikina við
Króatíu.
Stjórinn
hefur
sjálfsagt
tekið eftir
því,“ segir Aron
Einar Gunnarsson,
landsliðsfyrirliði í
knattspyrnu, sem
hefur ekki spilað
tvo síðustu leiki
Cardiff í ensku úr-
valsdeildinni. »2
Svolítið laskaður
andlega og líkamlega
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Fyrir skömmu opnaði Haraldur
Hrannar Sólmundsson fiskbúðina
Sjávarhöllina í Hólagarði í Breiðholti.
„Ég feta í fótspor feðranna,“ segir
fisksalinn, sem er 33 ára smiður að
mennt, en Sólmundur Þormar Mar-
íusson, faðir hans, rak fiskbúð á
Akranesi og Maríus Arthúrsson, afi
hans, átti fiskbúð í Kópavogi.
„Ég var þriggja ára gamall þegar
pabbi byrjaði með fiskbúðina,“ rifjar
Haraldur Hrannar upp. „Hann tók
bílskúrinn heima í gegn, innréttaði
hann og breytti í fiskbúð. Ég ólst því
upp við fiskbúð í bakgarðinum og
fisksalan blundaði alltaf í mér.“
Skatan hans afa
Eftir bankahrunið var lítið um
störf hjá smiðum. Haraldur Hrannar
fór til Danmerkur í atvinnuleit sum-
arið 2011 en segir að hann hafi heldur
ekkert fengið þar að gera og því snúið
til baka og opnað fiskbúðina Sjáv-
arhöllina við Háaleitisbraut um
haustið. „Ég var blautur á bak við
eyrun en stakk mér strax í djúpu
laugina, þó að ég þekkti varla allar
fisktegundirnar, því ég hafði pabba
og afa á bak við mig. Ég hafði aldrei
unnið í fiskvinnslu og aðeins verið á
sjó, en þeir eru hoknir af reynslu og
hafa reynst mér vel.“
Haraldur Hrannar nefnir að mikl-
ar breytingar hafi orðið á fisksölunni
og rekstrarumhverfinu á liðnum ára-
tugum, þó að grunnurinn sé sá sami
sem og handtökin. „Þegar afi var
fisksali var allur fiskur hausaður og
seldur þannig en að litlu leyti í flök-
um. Þegar pabbi var með fiskbúðina
var fiskurinn flakaður að mestu leyti
og afgangurinn roðflettur. Nú er fisk-
urinn 99% roðflettur og útbúinn í
fiskrétti.“
Pabbi Haraldar Hrannars vinnur
hjá honum tvo daga í viku og Einar
Steindórsson, sem lengi rak fiskbúð á
Freyjugötu, er í fullu starfi, en þrjár
konur skipta með sér afgreiðslunni.
„Það vantaði fiskbúð í hverfið og
móttökurnar hafa verið mjög góðar,“
segir Haraldur Hrannar. „Ég hef bú-
ið í Breiðholtinu meira og minna í
rúm 20 ár og hef haft augastað á
þessu plássi lengi. Þegar ég ákvað að
reyna eitthvað nýtt og fara út í fisk-
söluna sótti ég um þetta rými en þeg-
ar það gekk ekki opnaði ég á Háaleit-
isbrautinni. Ég hafði áfram auga með
húsnæðinu og þegar það losnaði um
síðustu áramót sótti ég um og fékk.
Ég er því kominn á þann stað sem ég
vildi byrja á, flyt reynsluna með mér
frá Háaleitisbrautinni og er með
sama nafn og sömu kennitölu. Afi er
til staðar, hefur gaman af því að snú-
ast í kringum mig, tekur út saltmagn-
ið í saltfiskinum og kæsinguna á sköt-
unni enda kalla ég skötuna mína
skötuna hans afa.“
Fisksali í fótspor feðranna
33 ára maður
með Sjávarhöllina
í Breiðholtinu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ungur fisksali Haraldur Hrannar Sólmundsson í fiskbúðinni Sjávarhöllinni í Hólagarði í Breiðholti.
Í viðtali Haraldar Johannessen,
ritstjóra Morgunblaðsins, við
Sigmund Davíð Gunnlaugsson
forsætisráðherra og Bjarna
Benediktsson fjármálaráðherra í
beinni útsendingu á mbl.is á
sunnudag kom meðal annars
fram að regluverkið væri mikið
vandamál á Íslandi og það
þyrfti að einfalda. „Reglugerðin
og kerfið eru það þung í snið-
um að það tók mig tvo og hálf-
an mánuð að fá útgefið bygg-
ingarleyfi til þess að byrja á
einföldum framkvæmdum,“ seg-
ir Haraldur Hrannar Sólmunds-
son í þessu sambandi. „Það
þurfti mikið til að fá pabba
samþykktan sem bygging-
arstjóra,“ heldur hann áfram.
„Hann þurfti að fá uppáskrift
frá byggingarfulltrúa í Skorra-
dal, þar sem hann var síðast
skráður fyrir verki, en það er
enginn miðlægur gagnagrunnur,
fulltrúinn var í fríi og enginn
staðgengill. Oddvitinn gafst á
endanum upp á mér og skrifaði
upp á staðfestinguna sem hann
hefði getað gert strax.“
Tók tvo og hálfan mánuð
ÚTGÁFA BYGGINGARLEYFIS ÞUNG Í VÖFUM