Morgunblaðið - 03.12.2013, Side 13
FRÉTTIR 13Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 2013
Rúmlega tólf hundruð ökumenn
voru stöðvaðir á höfuðborgarsvæð-
inu um helgina í sérstöku umferð-
areftirliti sem lögreglan heldur nú
úti í umdæminu.
Fimm ökumenn reyndust ölvaðir
við stýrið og eiga þeir ökuleyf-
issviptingu yfir höfði sér. Fjórum til
viðbótar var gert að hætta akstri
sökum þess að þeir höfðu neytt
áfengis en voru þó undir refsimörk-
um, segir í tilkynningu frá lögregl-
unni.
Við umferðareftirlitið um
helgina naut lögreglan á höf-
uðborgarsvæðinu aðstoðar félaga
sinna frá embætti ríkislög-
reglustjóra. Eftirlitinu verður
framhaldið til jóla.
Morgunblaðið/Júlíus
Eftirlit Flestir ökumenn voru allsgáðir.
Fimm voru ölvaðir
Borgþór Magnússon, plöntuvist-
fræðingur hjá Náttúrufræðistofn-
un Íslands, flytur erindi sitt,
Framvinda gróðurs og þróun vist-
kerfis í Surtsey, á Hrafnaþingi
miðvikudaginn 4. desember kl.
15.15.
„Hið unga vistkerfi Surtseyjar
gefur færi á áhugaverðum sam-
anburði við aðrar úteyjar Vest-
mannaeyja sem eru þúsundum ára
eldri. Surtsey leysti gátuna um
hvernig úteyjarnar mynduðust og
lífverur námu þar land. Úteyj-
arnar sýna hins vegar hver örlög
Surtseyjar verða er ár og aldir
líða,“ segir í kynningu á erindinu.
Hrafnaþing er haldið í húsa-
kynnum Náttúrufræðistofnunar að
Urriðaholtsstræti 6-8 í Garðabæ.
Framvinda gróðurs í
Surtsey síðustu 50 ár
Bresk-íslenska viðskiptaráðið efnir
til morgunverðarfundar á Hótel
Nordica kl. 8.15 á morgun, mið-
vikudag.
Paul Johnson, sérfræðingur hjá
National Grid, mun þar fjalla um
möguleg kaup Breta á raforku í
gegnum sæstreng. Fyrirtækið er
eitt helsta raforkufyrirtæki Bret-
lands og hefur áratuga reynslu af
lagningu og rekstri sæstrengja.
Einnig flytja erindi Ragnheiður
Elín Árnadóttir, Hörður Arnarson
og Ásgeir Jónsson.
Kaup á raforku
Þórður Árni
Hjaltested hefur
verið endurkjör-
inn formaður
Kennarasam-
bands Íslands til
ársins 2017.
Hann hlaut 2.883
atkvæði eða
43,2% en mót-
frambjóðandi
hans, Einar Þór
Karlsson, kennari við Austurbæj-
arskóla, hlaut 2.700 atkvæði eða
40,4%. Á kjörskrá voru 10.185. Af
þeim greiddu 6.680 atkvæði eða
66,6%. Auðir seðlar voru 1.006
(15%) og ógildir 91 (1,4%).
Framboðsfrestur vegna for-
mannskjörsins rann út þriðjudag-
inn 15. október. Kosningin fór fram
skriflega meðal félagsmanna KÍ.
Þórður var endur-
kjörinn formaður KÍ
Þórður Árni
Hjaltested
STUTT
Tilraunum til að smala síld út úr Kolgrafafirði með
því að henda smásprengjum í fjörðinn verður að
óbreyttu ekki haldið áfram næstu daga. Súrefn-
ismettun í firðinum er talin vera næg fyrir þau 60
þúsund tonn af síld sem áætlað er að séu þar.
Bjarni Sæmundsson, skip Hafrannsóknastofn-
unar, er nú í leiðangri þar sem verkefnið er að mæla
stærð og útbreiðslu síldarstofnsins. Komi í ljós að
síldin hafi að stærstum hluta fundið sér vetr-
arstöðvar fyrir sunnan og suðaustan land er vand-
inn ekki talinn eins bráður og áður var óttast. Stofn
íslenskrar sumargotssíldar er nú talinn vera um 450
þúsund tonn og í fyrra mældust um 270 þúsund
tonn í Breiðafirði, mest í Kolgrafafirði, þar sem yfir
50 þúsund tonn drápust í tveimur umhverfisslysum.
Þorsteinn Sigurðsson, sviðsstjóri nytjastofna hjá
Hafrannsóknastofnun, segir að eigi að síður verði
áfram haldið áfram að þróa þær aðferðir sem not-
aðar voru í síðustu viku við smölun síldar með smá-
sprengjum. Þær hafi að mörgu leyti reynst vel, en
sníða þurfi af þeim nokkra hnökra. Komi í ljós að
grípa þurfi til slíkra kostnaðarsamra aðgerða aftur
verði menn væntanlega betur tilbúnir til slíks.
aij@mbl.is
Beðið eftir niðurstöðum úr mælingum á magni og
útbreiðslu síldar Sníða þarf hnökra af aðferðum
Síldinni ekki smalað næstu daga
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Kolgrafafjörður Áfram er haldið að þróa aðferð-
ir til að smala síld í firðinum með sprengjum.