Morgunblaðið - 03.12.2013, Page 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 2013
Viðhaldsfríar
hurðir
Hentar mjög vel
íslenskri veðráttu
Viðhaldsfríir sólskálar og svalalokanir
Við höfum framleitt viðhaldsfría
glugga og hurðir í 29 ár
Nánari upplýsingar á www.solskalar.is
Yfir 40 litir í boði!
Smiðsbúð 10 • 210 Garðabær • Sími: 554 4300 • Fax: 564 1187
Svarið við spurningu dagsins
Fylgifiskar - Suðurlandsbraut 10, 108 Rvk - Sími 533 1300 - fylgifiskar.is
tilbúnar í pottinn heima
Fiskisúpur í Fylgifiskum
Verð 1.790 kr/ltr
Súpan kemur í fötu en fiskinum er pakkað sér.
Eldunaraðferð þegar heim er komið: Súpan er hituð upp að suðu, fiskinum er jafnað út milli súpudiska
eða settur í pottinn um leið og súpan er borin fram.
Hvað þarftu mikið?
Súpa sem aðalréttur – 0,5 ltr/mann Súpa sem forréttur – 0,25 ltr/mann
Meðalhiti í Reykjavík fyrstu 11 mánuði ársins 2013 er 5,44 stig og er það
er 0,7 stigum ofan meðaltals árin 1961 til 1990 samkvæmt yfirliti Trausta
Jónssonar.
Ef tíðarfar verður skaplegt í desember ætti árið að geta fengið góð eft-
irmæli.
Árið, það sem af er, er í 30. til 32. sæti hlýrra ára í Reykjavík (af 143),
en það þriðja kaldasta á þessari öld (af 13). Á Akureyri er meðalhitinn á
sama tíma 4,57 stig og er það 0,5 stigum ofan meðallagsins 1961 til
1990, það fimmta kaldasta á þessari öld.
Miklar hitasveiflur
Tíð hefur verið býsna breytileg fyrstu tvo haustmánuðina, október og
nóvember, samkvæmt yfirliti Trausta.
Þurrt var á Suður- og Vesturlandi í október en úrkoma í nóvember var yfir
meðallagi. Hiti var ekki fjarri meðallagi en hitasveiflur voru miklar. Með-
alhiti í Reykjavík var 3,22 stig og er það 0,5 stigum ofan meðaltals árin
1961 til 1990 en 0,3 undir meðalhausti síðustu tíu ár.
Á Akureyri var meðalhitinn í haust 1,6 stig og er það 0,3 stigum ofan
meðaltals árin 1961 til 1990, en 0,4 undir meðallagi síðustu tíu ár.
Er í 30. sæti hlýrra ára í höfuð-
borginni af 143 mælingum
FYRSTU 11 MÁNUÐIR ÁRSINS 2013
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Tíð var rysjótt í nýliðnum nóvember.
Venju fremur kalt var í kringum
miðjan mánuð en síðasta vikan var
mjög hlý og hífði upp meðalhita
mánaðarins. Úrkoma var yfir með-
allagi um meginhluta landsins, en
náði þó ekki meðallagi sums staðar
fyrir norðan.
Þetta kemur fram í yfirliti Trausta
Jónssonar veðurfræðings. Fram
kemur hjá Trausta að meðalhiti í
Reykjavík var 2,2 stig í nóvember.
Það er 1,1 stigi ofan meðallags árin
1961 til 1990 en 0,1 stigi undir með-
allagi síðustu tíu ár. Nokkru kaldara
var í nóvember í fyrra heldur en nú.
Meðalhiti á Akureyri var 0,5 stig, 0,8
stigum ofan meðallagsins 1961 til
1990 og 0,2 stigum ofan meðallags
síðustu tíu ára. Í Stykkishólmi var
meðalhiti 1,6 stig, 0,7 stigum ofan
meðallags 1961 til 1990. Á Höfn í
Hornafirði var meðalhitinn 1,9 stig
og -4,0 á Hveravöllum.
Hæstur var meðalhiti mánaðarins
í Surtsey, 4,4 stig, og 3,9 á Garð-
skagavita. Lægstur var meðalhitinn
í Sandbúðum, -6,1. Í byggð var með-
alhitinn lægstur í Möðrudal, -3,6
stig. Hæsti hiti mánaðarins mældist
á sjálfvirku stöðinni á Dalatanga
þann 26., 20,2 stig. Á mannaðri stöð
mældist hitinn hæstur 19,0 stig hinn
27. á Dalatanga.
Met sett á Dalatanga
Lægsti hiti mánaðarins mældist
-22,5 stig á Brúarjökli hinn 9. Í
byggð mældist lægsti hiti -20,0 stig
við Mývatn og á Grímsstöðum á
Fjöllum hinn 18. og á Grímsstöðum
hinn 10. Lægsti hiti á mannaðri stöð
mældist -19,5 stig í Stafholtsey hinn
9. og 10.
Hitinn á Dalatanga hinn 27. er
nýtt landsdægurmet (hæsti há-
markshiti 27. nóvember). Eldra met
var frá Skjaldþingsstöðum árið 1994,
14,5 stig svo bætingin er umtalsverð.
Úrkoma var yfir meðallagi um
mestallt land nema á Norðurlandi
austanverðu þar sem hún var heldur
minni en í meðallagi. Úrkoma mæld-
ist 92,7 millimetrar í Reykjavík og er
það um 28 prósent umfram með-
allag. Þetta er svipað og í nóvember í
fyrra og hittiðfyrra. Í Stykkishólmi
mældist úrkoman 87,3 mm og er það
30 prósent umfram meðallag. Á Ak-
ureyri mældist úrkoma í nóvember
51,1 mm og er það í rétt tæpu með-
allagi. Úrkoman á Höfn í Hornafirði
mældist 136,7 mm.
Sólskin í Reykjavík mældist í 35,4
stundir, 3 stundum færri en í með-
alári.
Alhvítt var fimm daga í Reykjavík
og er það tveimur dögum undir með-
allagi árin 1971 til 2000. Á Akureyri
voru alhvítu dagarnir 23 og er það 7
dögum fleiri en að meðaltali í nóv-
ember 1971 til 2000.
Morgunblaðið/Golli
Nóvember Mikið rigndi í höfuðborginni í nýliðnum mánuði og dimmt var yfir marga daga.
Síðasta vikan hífði upp
meðalhita mánaðarins
Tíð var rysjótt í nýliðnum nóvember Úrkoma víða mikil