Morgunblaðið - 03.12.2013, Page 15

Morgunblaðið - 03.12.2013, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 2013 Óðinn Jónsson, fréttastjóri Ríkis- útvarpsins (RÚV), hyggst ræða við lögregluna um hvers vegna frétta- stofa RÚV og aðrir fjölmiðlar voru ekki látnir vita af umsátursástand- inu í Hraunbæ í gærmorgun. „Mér finnst það mjög umhugs- unarvert,“ sagði Óðinn. Ljóst er að fólki stafaði þar hætta af vopnuðum manni. Mbl.is birti fyrstu frétt af málinu klukkan 05.19 í gærmorgun og þá næstu kl. 05.58. Vísir.is var með sína fyrstu frétt kl. 06.21 og fréttavefur RÚV kl. 06.29. Þetta kveikti spurningu um öryggis- hlutverk RÚV. „Ríkisútvarpið er liður í öryggis- kerfi landsins. Það tekur í öllum til- vikum mið af því sem til þess bær yf- irvöld, lögregla, almannavarnir og aðrir slíkir, láta vita af vá eða öðru sem varðar almannahagsmuni,“ sagði Óðinn. „Við tökum það ekki upp hjá sjálfum okkur að vara fólk við, sé það ekki staðfest eða til þess bær yfirvöld fara ekki fram á það.“ Hann sagði að fréttastofa RÚV hefði reynt að fá staðfestingu lög- reglunnar snemma í gærmorgun en ekki fengið hana. Óðinn nefndi að fréttastofunni hefði borist tölvu- póstur frá lögreglunni klukkan 05.12. Þar voru tíunduð hefðbundin verkefni næturinnar en ekki minnst á ástandið Hraunbæ. „Morgunblaðið skúbbaði þarna, en enginn lét okkur vita, hvorki íbúi né til þess bær yfirvöld,“ sagði Óð- inn. Hann sagði að fréttamaður á vakt hefði verið kominn á vettvang í Hraunbæ um sexleytið. Í kjölfarið hóf RÚV að segja fréttir af málinu. Óðinn sagði að mbl.is hefði verið helsta heimild fréttastofu RÚV í fyrstu fréttum auk fréttamanns RÚV á staðnum. gudni@mbl.is Lögreglan lét fjölmiðla ekki vita af umsátrinu  RÚV fékk ekki staðfestingu Óðinn Jónsson Um 3.500 til 4.000 ferðamenn, lang- flestir útlendingar, lögðu leið sína niður í Þríhnúkagíg á þessu ári, að sögn Björns Ólafssonar, fram- kvæmdastjóra Þríhnúka ehf. Ferð- irnar voru í boði frá miðjum maí og fram í byrjun september. Tímabilið var það lengsta í sögu Þríhnúka ehf. Um 24-25 starfsmenn unnu við ferðaþjónustuna í sumar. „Sumarið var mjög erfitt vegna veðurs. Við lærðum margt á fyrsta starfsárinu 2012 og ennþá meira á síðasta sumri,“ sagði Björn. Hann segir að í Bláfjöllum hafi suðaust- anáttir verið mjög ríkjandi. „Þær eru mjög slæmar þarna uppfrá, bæði hvassar og mikil úrkoma. Við þurft- um að fella niður allt of margar ferð- ir vegna veðurs,“ sagði Björn. Hann segir að svo hvasst geti orðið við hnúkinn að ekki sé hægt að koma fólki þar upp til að fara í lyftuna. Ferðamennirnir þurfa að ganga 3 km leið að og frá hnúknum. Í mikilli úrkomu og vindi getur þeim orðið mjög kalt, þrátt fyrir að þeim séu út- veguð hlífðarföt. „Við getum ekki teflt öryggi gest- anna í tvísýnu. Það er langt frá því að þetta fólk sé vant íslensku sumar- veðri – eins og það birtist þarna,“ sagði Björn. Hann vonast til þess að hægt verði að hefja ferðaþjónustuna á ný um miðjan maí næsta vor. Það er þó háð ýmsum leyfum. „Við höfum óskað eftir leyfi til að leggja rafstreng úr Bláfjöllum að gígnum,“ sagði Björn. Rafmagnið verður notað til að knýja lyftur sem ganga niður í gíginn og ljós sem lýsa gímaldið upp. Hugmyndin er að leggja strenginn ofan á snjó í vetur og láta svo bráðna undan honum. Unnið er að undirbúningi þess að gera göng inn í Þríhnúkagíg. Skipu- lagsstofnun afgreiddi mat á um- hverfisáhrifum um síðustu áramót. Hún setti tvö skilyrði fyrir fram- kvæmdum: Að vegur sem lagður yrði frá Bláfjöllum hefði 70 km há- markshraða og að heildarendurskoð- un á skipulagi vatnsverndarsvæðis höfuðborgarsvæðisins yrði lokið. Henni lýkur væntanlega á næsta ári, að sögn Björns. Eins þarf að breyta svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðis- ins og aðalskipulagi Kópavogs. Hvort tveggja þarf að bera undir Skipulagsstofnun til samþykktar. Þá þarf framkvæmdaleyfi hjá Umhverf- isstofnun. gudni@mbl.is Morgunblaðið/Golli Þríhnúkagígur Ferðamenn síga niður í dýpstu hraunhvelfingu í heimi í lyftu. Gígurinn hefur vakið mikla athygli víða erlendis undanfarin ár. Þúsundir ferða- manna í gíginn  Vilja leggja rafstreng að Þríhnúkagíg

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.