Morgunblaðið - 03.12.2013, Qupperneq 16
16 Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 2013
Jólaskreytingar
Við seljum og setjum
upp jólaseríur
10% afsláttur af uppsetningu ef
þú kaupir seríurnar af okkur.
Sími 571 2000 | hreinirgardar.is
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Lögreglan taldi almannahættu vera í
Árbæjarhverfi í fyrrinótt vegna
manns sem skaut með haglabyssu út
um glugga íbúðar sinnar við
Hraunbæ. Lögreglumenn urðu fyrir
skotum mannsins þegar þeir reyndu
að ná tali af honum og yfirbuga hann.
Atburðarásinni lauk með því að sér-
sveitarmenn svöruðu skotum manns-
ins og var hann úrskurðaður látinn á
sjúkrahúsi.
Aðgerð lögreglunnar í Hraunbæ á
sér enga hliðstæðu hér á landi. Tveir
lögreglumenn slösuðust þegar þeir
urðu fyrir skotum byssumannsins.
Þá hefur það ekki gerst fyrr að ís-
lenskir lögreglumenn hafi skotið til
bana mann sem þeir eiga í höggi við.
Skaut út um glugga
Tæplega sextugur maður bjó einn
í íbúð við Hraunbæ. Nágrannar urðu
varir við að maðurinn kom heim með
látum í fyrrakvöld. Einhverjir þeirra
heyrðu hljóð um klukkan hálfeitt um
nóttina sem þeir tengja við að fyrsta
skotinu hafi verið hleypt af í íbúð
mannsins. Þá vakti hundur eins ná-
grannans eiganda sinn og fleiri vökn-
uðu um svipað leyti.
Lögreglan segist hafa fengið til-
kynningu um háværa hvelli um
klukkan þrjú um nóttina. Almennir
lögreglumenn voru sendir á staðinn
til að kanna málið og þeir biðu eftir
aðstoð sérsveitarmanna.
Ekki tókst að ná sambandi við
manninn og opnuðu lögreglumenn
íbúðina sem er á annarri hæð í fjöl-
býlishúsi. Tilgangurinn var að sögn
lögreglu að kalla til hans. Maðurinn
skaut á þá. Skotið lenti á skildi sér-
sveitarmanns sem kastaðist við það
aftur á bak og niður stigann. Mun
hann hafa rotast. Tveir almennir lög-
reglumenn leituðu skjóls uppi á
þriðju hæð.
Lögreglan dró sig til baka og öll
sérsveitin var kölluð út. Almennu
lögreglumönnunum var komið út og
stigagangurinn rýmdur.
Lögreglan náði ekki sambandi við
manninn en taldi að fólk sem væri á
ferli í nágrenni íbúðar hans væri í
hættu. Ákveðið var að reyna að yfir-
buga hann með beitingu gasvopna.
Um klukkan sex var reykhylkjum
skotið inn um glugga á svefn-
herbergi og eldhúsi í íbúð mannsins.
Ekki tókst að svæla hann út því hann
hóf þess í stað að skjóta út um
glugga íbúðarinnar, að því er fram
kom hjá Stefáni Eiríkssyni, lög-
reglustjóra á höfuðborgarsvæðinu, á
blaðamannafundi í gær. Skotin
dundu yfir bílastæðið og í gær voru
lögreglumenn að leita að ummerkj-
um á öllu svæðinu.
Þegar sérsveitarmenn ruddust inn
í íbúðina til að yfirbuga manninn
skaut hann nokkrum skotum að
þeim. Hann hitti hjálmklætt höfuð
lögreglumanns sem féll við og skot
fóru fram hjá höfðum annarra, sam-
kvæmt upplýsingum lögreglunnar.
Sérsveitin skaut þá á móti og særði
manninn. Hann var úrskurðaður lát-
inn þegar komið var með hann á
sjúkrahús. Ekki fengust í gær nánari
upplýsingar um aðstæður í íbúðinni
eða hvernig byssumaðurinn féll. Í
fréttatilkynningu ríkislögreglustjóra
og lögreglustjórans á höfuðborgar-
svæðinu segir að við fyrstu sýn verði
ekki betur séð en sérsveitarmenn-
irnir hafi farið eftir verklagsreglum.
Harma atburðinn
„Lögreglan harmar þennan at-
burð og vill koma á framfæri inni-
legum samúðarkveðjum til fjöl-
skyldu mannsins,“ sagði Haraldur
Johannessen ríkislögreglustjóri á
fundinum í gær.
Meiðsli lögreglumannanna reynd-
ust ekki alvarleg, að sögn Stefáns.
Hann telur ljóst að hlífðarbúnaður
þeirra og þjálfun hafi komið í veg
fyrir að ekki fór verr. Þá telur lög-
reglan að almennir lögreglumenn
sem fyrstir fóru á staðinn hafi verið í
mikilli hættu. 15 til 20 lögreglumenn,
auk sérsveitarmanna, tóku þátt í að-
gerðinni sem lauk um klukkan sjö í
gærmorgun.
Lögreglan tilkynnti atburðinn til
innanríkisráðherra og ríkissaksókn-
ara en embætti ríkissaksóknara fer
með rannsókn málsins.
Lögreglan felldi byssumann
Almenningur og lögreglumenn í hættu þegar reynt var að yfirbuga mann sem skaut af haglabyssu
úr íbúð í Árbæjarhverfi í fyrrinótt Tveir sérsveitarmenn urðu fyrir skotum hans
Morgunblaðið/Rósa Braga
Umsátur Mikill viðbúnaður var hjá lögreglu í Árbæjarhverfi. Sérsveitarmenn mættu með búnað sinn og tóku fram hlífar og vopn til að takast á við byssumann.
Morgunblaðið/Júlíus
Farið yfir málið Egill Bjarnason yfirlögregluþjónn, Stefán Eiríksson lög-
reglustjóri, Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri og Jón Bjartmarz,
yfirmaður sérsveitar ríkislögreglustjóra.
Atburðarás
við Hraunbæ
Um kl. hálf eitt:
Nágranni manns í íbúð við Hraunbæ
vaknar við gelt í hundi sínum
sem hann tengir við það að fyrsta
skotinu hafi verið hleypt af.
Um kl. 3:
Lögreglu tilkynnt um háværa hvelli
frá íbúðinni.
Almennir lögreglumenn sendir á
staðinn til að kanna málið. Sérsveit-
armenn þeim til aðstoðar.
Lögreglan opnar hurðina inn í
íbúðina þegar íbúinn svarar þeim
ekki.
Maðurinn skýtur með haglabyssu á
sérsveitarmenn semætluðu að kalla
inn í íbúðina. Skotið lendir á skildi
sérsveitarmanns sem kastast aftur
á bak og niður stiga og rotast.
Um kl. 5:
Lögreglan dregur sig til baka og
kallar eftir liðsstyrk.
Íbúðir í stigaganginum rýmdar.
Sjúkrabílar kallaðir á vettvang.
Um kl. 6:
Enn næst ekki samband við
manninn.
Lögreglan reynir að yfirbuga hann
með því að skjóta gashylkjum inn
um glugga íbúðarinnar.
Maðurinn skýtur margsinnis út um
glugga.
Sérsveitarmenn fara inn.
Maðurinn skýtur nokkrum skotum
að þeim.Hittir í hjálmklætt höfuð
sérsveitarmanns.
Sérsveitarmenn skjóta manninn og
særa.
Lögreglumenn hefja lífsbjargandi
aðgerðir og bráðatæknar úr
sjúkrabílum eru kallaðir til.
Maðurinn fluttur á sjúkrahús þar
sem hann er úrskurðaður látinn.
Um kl. 7:
Aðgerðum lögreglu lokið.
Ríkissaksóknari tekur við rannsókn
málsins.
Umsátur í Árbæjarhverfi