Morgunblaðið - 03.12.2013, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 03.12.2013, Blaðsíða 34
34 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 2013 Ég er búinn að halda upp á afmælið, hélt upp á það á sunnu-daginn, ásamt strákunum mínum tveimur sem voru fimm ogátta ára í nóvember. Það var mikið fjör,“ segir Ómar Líndal Marteinsson tannlæknir sem verður fertugur í dag. Fyrir ári flutti hann í Melahverfi við Akranes ásamt fjölskyldu sinni; eiginkonu sinni Ingibjörgu Maríu, dótturinni Maríu Björk og sonunum Mattíasi Bjarma og Mikael Bjarka. Segja má að hann sé fluttur aftur á heimaslóðir en hann ólst upp á Vestri-Leirárgörðum sem eru í ná- grenninu. Ómar keypti nýverið tannlæknastofu á Akranesi. „Það er æðislegt að vera kominn aftur heim þó okkur hafi liðið mjög vel á Fáskrúðsfirði en við bjuggum þar síðustu sjö árin.“ Ómar er fjölskyldumaður og ver miklum tíma með henni. Á vet- urna stundar hann skotveiði og skíði en alla jafna er badminton hans helsta áhugamál. Þá er hann meðlimur í Íslensku Kristskirkj- unni og tekur virkan þátt í kirkjustarfinu. Ómar ólst upp við mikla hestamennsku á heimilinu. Hann fékk þó ekki „bakteríuna“ sem systir hans og faðir eru með. „Ég á einn þriðja í graðhesti og læt það nægja í bili,“ segir Ómar kíminn. Jólaundirbúningurinn er kominn á fullt og mikil tilhlökkun ríkir á heimilinu. „Ég tek alla vega þátt í að borða afraksturinn af jóla- bakstrinum.“ thorunn@mbl.is Ómar Líndal Marteinsson er 40 ára í dag Aftur heim Ómar Líndal ásamt eiginkonu sinni, Ingibjörgu Maríu. Hann segir það æðislegt vera kominn aftur á heimaslóðirnar. Sameiginleg veisla með sonunum Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Egilsstaðir Reynir Leo fæddist 19. mars. Hann vó 4.275 g og var 56 cm langur. Foreldrar hans eru María Go- mez og Ragnar Már Reynisson. Nýir borgarar Hafnarfjörður Karítas Ósk fæddist 7. mars kl. 7.17. Hún vó 4.042 g og var 52 cm löng. Móðir hennar er Guðrún Olga Haraldsdóttir. B Bjarni fæddist í Túni í Flóahreppi 3.12. 1963 og ólst þar upp við öll almenn sveitastörf á blönduðu búi foreldra sinna. Hann var í barnaskóla í Þing- borg, Gagnfræðaskólanum á Selfossi, stundaði nám við Bændaskólann á Hvanneyri og lauk þaðan búfræði- prófi 1985, stundaði framhaldsnám í búfræði við Nordisk Landboskole í Óðinsvéum á Fjóni og lauk þaðan prófum í bútæknifræði og lauk sér- námi í loðdýrarækt í Finnlandi 1989. Bjarni kenndi við Bændaskólann á Hvanneyri 1989-92 og var yfirkenn- ari þar 1990-92. Hann hóf minka- búskap í Langholti 1992 en bjó þó í Túni og var loðdýraræktarráðunaut- ur í hálfu starfi 1992-93. Bjarni festi kaup á jörðinni Tún ár- ið 1993, tók þar við kúabúskapnum og hefur stundaði þar loðdýrarækt síðan. Auk þess er hann með 45 mjólkandi kýr. Bjarni Stefánsson, bóndi í Túni í Flóahreppi – 50 ára Fjölskyldan í Túni: Stefán Narfi, Guðmundur, Birgitta Kristín, Jórunn Fríða, Bjarni og Veronika. Fimmti bóndinn í Túni í beinan karllegg Hjónin Bjarni og Veronika fá sér eftirmiðdagskaffi í eldhúsinu í Túni. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.isMOSFELLSBAKARÍ Háholti 13-15 Mosfellsbæ | Háaleitisbraut 58-60 Reykjavíks. 566 6145 | mosfellsbakari.is Ekta íslenskt handgert konfekt. Kemur í glæsilegum gjafapakkningum. Gangtu frá jólagjöfunum í dag, hringdu og pantaðu í síma 566 6145 eða á mosbak@mosbak.is Bragðgóða r jólagjafir Fyrir starfsfólk og viðskiptavin i

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.