Morgunblaðið - 03.12.2013, Síða 35
ÍSLENDINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 2013
Bjarni hefur starfað mikið að mál-
efnum loðdýrabænda. Hann var for-
maður Sambands íslenskra loð-
dýrabænda um árabil, formaður
Fagráðs í loðdýrarækt 2000-2012, sat
nokkur Búnaðarþing fyrir loð-
dýrabændur og hefur starfrækt Fóð-
urstöð Suðurlands fyrir sunnlensk
minkabú frá 2008 og er nú stjórn-
arformaður hennar. Þá er hann for-
maður Nautgriparæktarfélags
Hraungerðishrepps og stjórn-
armaður í Búnaðarfélagi Hraungerð-
ishrepps.
Íslensk minkaskinn þau næst-
bestu á heimsmælikvarða
En hvað segja loðdýrabændur?
„Ég held þeir segi bara allt gott
þegar á heildina er litið. Staðan er
bara mjög góð um þessar mundir. En
hún hefur nú ekki alltaf verið það. Af-
koma í minkabúskap fer að verulegu
leyti eftir heimsmarkaðsverði skinn-
anna hverju sinni og það er hreinn og
klár uppboðsmarkaður. Verðið hefur
verið gott en það getur breyst mikið
á skömmum tíma og hefur oft gert
það.
En það er líka mjög jákvætt við
þennan rekstur að íslenskir loð-
dýrabændur hafa verið að bæta sig
gríðarlega á undanförnum árum,
hvað varðar gæði skinnanna.
Fyrir 15 árum eða svo rákum við
lestina hvað varðar gæði skinna en
nú eru íslensku skinnin þau næstu
bestu á heimsmælikvarða.
Þetta eru gríðarlegar framfarir á
ekki lengri tíma enda hefur metn-
aður íslenskra loðdýrabænda aukist
mjög og við höfum borið gæfu til að
vinna saman að kynbótum og á öðr-
um faglegum sviðum greinarinnar.“
Bjarni hefur starfað með Leik-
félagi Selfoss frá 1992 og leikið í
fjölda uppfærslna hjá félaginu, nú
síðast í fyrra í leikritinu Þrek og tár,
eftir Ólaf Hauk Símonarson:
„Ég hef afskaplega gaman af að
stússast í þessu en svona leikhússtarf
er mjög tímafrekt. Þess vegna er ég
nú ekki alltaf með á hverju ári.
Ég les líka töluvert þegar næði
gefst en það eru þá aðallega reyfarar
og ljóð í yngri kantinum. Ætli Steinn
Steinarr sé ekki sá elsti af ljóð-
skáldum sem ég hef gaman af.“
Fjölskylda
Eiginkona Bjarna er Veronika
Narfadóttir, f. 12.7. 1969, bóndi í
Túni. Hún er dóttir Narfa Kristjáns-
sonar, bónda í Hoftúnum í Stað-
arsveit á Snæfellsnesi, og Jófríðar
Sigurðardóttur húsfreyju.
Börn Bjarna og Veroniku eru Guð-
mundur, f. 16.3. 1994, nemi; Birgitta
Kristín, f. 9.6. 1996, nemi; Stefán
Narfi, f. 12.4. 2000, nemi, og Jórunn
Fríða, f. 23.9. 2008, nemi.
Systkini Bjarna: Jóhann, f. 30.8.
1946, vélstjóri við Búrfellsvirkjun,
búsettur á Selfossi; Ragnheiður, f.
14.12. 1947, ritari hjá Garðabæ, þar
búsett; Guðmundur, f. 19.12. 1948,
bóndi í Hraungerði í Flóahreppi;
Hafsteinn, f. 25.10. 1953, húsasmiður
og bóndi í Túni II; Vernharður, f.
31.3. 1956, bílstjóri á Selfossi, og Jón-
ína Þrúður, f. 18.5. 1957, matvæla-
fræðingur hjá Matvælastofnun.
Foreldrar Bjarna voru Stefán
Guðmundsson, f. 14.6. 1919, d. 28.3.
2013, bóndi og oddviti í Túni, og k.h.,
Jórunn Jóhannsdóttir, f. 1.12. 1920,
d. 13.11. 2000, húsfreyja í Túni.
Úr frændgarði Bjarna Stefánssonar
Bjarni
Stefánsson
Valgerður Vernharðsdóttir
húsfr. í Stóru-Sandvík II
Hannes Steindórsson
b. í Stóru-Sandvík II
Jónína Hannesdóttir
húsfr. í Sölkutóft
Jóhann Bjarni Loftsson
form. í Sölkutóft á Eyrarbakka
Jórunn Jóhannsdóttir
húsfr. í Túni
Jórunn Markúsdóttir
húsfr. á Ketilsstöðum
Loftur Jónsson
b. á Ketilsstöðum í Mýrdal
Guðrún Bjarnhéðinsdóttir
húsfr. á Skeggjastöðum
Jón Guðmundsson
b. á Skeggjastöðum í Flóa,
bróðursonur Björns, langafa
Ágústar Þorvaldssonar alþm.
á Brúnastöðum, föður Guðna
fyrrv. ráðherra
Ragnheiður Jónsdóttir
húsfr. í Túni
Guðmundur Bjarnason
b. í Túni
Stefán Guðmundsson
b. og oddviti í Túni
Guðfinna Guðmundsdóttir
húsfr. í Túni
Bjarni Eiríksson
b. í Túni
Þórunn
Jóhannsdóttir
húsfr. í
Hafnarfirði
Hallgrímur
Jónasson
fyrrv.
forstöðum.
Iðntækni-
stofnunar
Ásgeir Örn
Hallgrímsson
landsliðsmað-
ur í handbolta
Bjarni Guðmundsson
öræfabílstjóri og sérleyfishafi
Guðfinna
Guðmundsdóttir
húsfr. í Vorsabæ
Unnur Stefánsdóttir
skólastjóri og frum-
kvöðull heilsuleikskóla
Guðrún
Guðmundsdóttir
húsfr. í
Hraungerði
Svavar Sigmundsson
íslenskufræðingur
Afmælisbarnið Með mink í fanginu.
Thor Jensen fæddist í Kaup-mannahöfn fyrir hundrað ogfimmtíu árum, sonur Jens
Christians Jensens byggingameist-
ara, og Andreu Louise Jensens, f.
Martens, húsfreyju.
Thor átti 11 systkini og fjórar
hálfsystur. Hann var níu ára er hann
missti föður sinn, fór í heimavist-
arskóla fyrir verðandi versl-
unarsveina og var síðan sendur til
Borðeyrar um fermingaraldur.
Thor lærði íslenskuna hratt og
drakk í sig Íslendingasögurnar. Á
Borðeyri kynntist hann Margréti
Þorbjörgu Kristjánsdóttur, sem var
eiginkona hans í rúm 60 ár en þau
eignuðust 12 börn.
Thor stundaði verslunarrekstur í
Borgarnesi og síðan á Akranesi en
eftir að skip með vörum hans fórust í
hafi varð hann gjaldþrota. Hann
flutti þá með fjölskyldu sína til
Hafnarfjarðar, gerði ítarlega verð-
könnun á ýmsum útgerðarvörum,
stofnaði Godthaabs verslun og kom
aftur undir sig fótunum með hjálp
tveggja gildra útvegsbænda, Guð-
mundar Einarssonar í Nesi og Þórð-
ar Jónassonar í Ráðagerði. Á örfáum
árum varð Thor einn ríkasti maður á
Íslandi, byggði sér glæsilegt íbúðar-
hús að Fríkirkjuvegi 11 við Tjörnina,
kom að stofnun Milljónafélagsins
1907, sá um kaup á Jóni forseta,
fyrsta togara Íslendinga og var einn
af forystumönnum um stofnun Eim-
skipafélags Íslands.
Thor stofnaði útgerðarfyrirtækið
Kveldúlf 1912 sem bar höfuð og
herðar yfir önnur útgerðarfyrirtæki
á millistríðsárunum. Á efri árum
reisti Thor stærsta mjólkurbú á Ís-
landi að Korpúlfsstöðum, og það full-
komnasta á Norðurlöndum.
Afkomendur Thors urðu margir
landsfrægir, s.s. synir hans Ólafur
forsætisráðherra, Richard, forstjóri
Kveldúlfs og Thor sendiherra. Thor
Vilhjálmsson rithöfundur var dótt-
ursonur Thors og Björgólfur Thor
athafnamaður er langafabarn hans.
Valtýr Stefánsson ritstjóri skrif-
aði ævisögu Thors og Guðmundur
Magnússon sendi frá sér bókina
Thorsararnir, auður, völd, örlög, ár-
ið 2005. Thor lést 12.9. 1947.
Merkir Íslendingar
Thor
Jensen
90 ára
Helga Sigurðardóttir
Jónína Hjartardóttir
85 ára
Einar Þorbjörn Jónsson
Eydís Bjarnardóttir
Kristín Hauksdóttir
Sigurbjörg Guðmundsdóttir
Svandís Hannesdóttir
80 ára
Ásgrímur Geirs Gunn-
arsson
Fjóla Sigríður Tómasdóttir
Ingunn Hjördís Jónasdóttir
75 ára
Hreiðar Anton
Aðalsteinsson
Karl Sighvatsson
70 ára
Paul Newton
Sigríður Lilja Guðjónsdóttir
60 ára
Guðríður K. Magnúsdóttir
Haraldur Óskar Haraldsson
Helgi Óskar Óskarsson
Hörður Vilhjálmur
Sigmarsson
Jónína Stefánsdóttir
Karen Eberhardtsdóttir
Margrét Gunnarsdóttir
Reynir Matthíasson
Samúel Ágústsson
Sigrún Hólm Jónsdóttir
Sigurður Geir Marteinsson
Svanlaug J. Bjarnadóttir
Úlfar Samúelsson
50 ára
Agnar Jónsson
Chandrika Gunnur
Gunnarsson
Eiríkur Óli Árnason
Elísabet Rósa
Matthíasdóttir
Guðrún Sigurjónsdóttir
Hrafnhildur S.
Stígsdóttir
Hrönn Þorsteinsdóttir
Ingibjörg Hinriksdóttir
Ingimar Baldvinsson
Jóna Guðrún Jónsdóttir
40 ára
Árbjörg Anna Gísladóttir
Ásgerður Eyþórsdóttir
Edna María Jacobsen
Friðbjörn Eiríkur
Garðarsson
Friðrik Daníelsson
Guðbjörg Skjaldardóttir
Hanna Birna
Jónasdóttir
Helga Margrét Arnardóttir
Kristinn Gylfason
Ómar Líndal
Marteinsson
Ragnheiður Ásta
Guðnadóttir
Snorri Kristjánsson
Tryggvi Freyr Harðarson
30 ára
Elfar Steinn Karlsson
Grétar Óli Ingþórsson
Hildur Björg Jónsdóttir
Hugrún Bjarnadóttir
Til hamingju með daginn
30 ára Jónas Atli ólst
upp á Akureyri, er þar bú-
settur, lauk sveinsprófi í
húsasmíði frá VMA og
stundar húsasmíðar.
Maki: Eydís Eva Ólafs-
dóttir, f. 1988, skólaliði.
Dóttir: Ragna Dóra, f.
2012.
Foreldrar: Kristján Jón-
asson, f. 1958, húsa-
smíðameistari á Akureyri,
og Ragna Dóra Ragn-
arsdóttir, f. 1959, d. 2002,
hjúkrunarfræðingur.
Jónas Atli
Kristjánsson
30 ára Anna Lilja ólst
upp í Mosfellsbæ, lauk
BS-prófi í hjúkrunarfræði
frá HÍ og er hjúkr-
unarfræðingur við LSH.
Maki: Atli Viðar Jóhanns-
son, f. 1985, grafíker.
Sonur: Daníel Ómar, f.
2008.
Foreldrar: Guðmundur
Ómar Óskarsson, f. 1952,
tónmenntakennari, og
Rósa María Guðmunds-
dóttir, f. 1959, hjúkr-
unarfræðingur.
Anna Lilja
Ómarsdóttir
30 ára Guðmundur ólst
upp í Keflavík, býr í Njarð-
vík og er bílamálari þar.
Maki: Ingibjörg Sveins-
dóttir, f. 1984, hjúkr-
unarfræðingur.
Börn: Viktoría Sif og
Petra Dögg, f. 2002, Jóel
Helgi, f. 2003, og Telma
Líf, f. 2011.
Foreldrar: Magnús Jóns-
son, f. 1960, bílamálari í
Reykjanesbæ, og Hrönn
Guðmundsdóttir, f. 1961,
leikskólakennari.
Guðmundur Ingi
Magnússon
Hægt er að senda
mynd og texta af
nýjum borgara eða
brúðhjónum af slóðinni
mbl.is/islendingar
eða á netfangið
islendingar@mbl.is
Börn og
brúðhjón
PAPPÍR HF • Kaplahrauni 13 • 220 Hafnarfirði • Sími 565 2217 • pappir@pappir.is • www.pappir.is
Íslensk
framleiðsla
í miklu úrvali
Sérprentanir í minni eða stærri upplögum
Vertu tímanlega fyrir jólin
og pantaðu pokana hjá okkur.
Fallegar umbúðir gefa vörunni meira gildi.