Morgunblaðið - 03.12.2013, Síða 38
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 2013
Framúrskarandi jólaplata
Jólakveðja bbbbm
Sigríður Thorlacius syngur og henni til fulltingis
eru Bjarni Frímann Bjarnason á píanó og fiðlu,
Guðmundur Óskar Guðmundsson leikur á bassa,
Helgi Svavar Helgason á trommur og slagverk
og Ómar Guðjónsson á gítar. Sena gefur út.
Hér er komin sannkölluð jólaplötuperla sem
víst má telja að þegar hafi tekið sér stöðu meðal
sígildra íslenskra jólaplatna því hún á ekkert
annað skilið. Þeir Bjarni Frímann og Guð-
mundur Óskar hafa samið ný og ákaflega falleg
lög við átta jóla- og vetr-
arljóð, samin meðal ann-
ars af Þorsteini Erlings-
syni, Jóhannesi úr
Kötlum, Jakobínu Sigurð-
ardóttur og Davíð Stef-
ánssyni. Kvæðin hafa
flest stöðu sígilds kveð-
skapar og gaman er frá
því að segja að lagasmíðarnar sýna hinum
klassíska kveðskap fullan sóma og eru heilt yfir
framúrskarandi fínar. Útsetningarnar eru létt-
djassaðar og þægilegar, en um leið er einfald-
leikinn hafður að leiðarljósi. Er það vel því þeg-
ar svona fín músík er annars vegar þarf engin
trix á borð við sleðabjöllur eða kirkjuklukkur til
að snúa jólastemninguna í gang. Enda er þess
getið í plötuumslaginu að í jólakvæðunum á
plötunni sé ekki ort um jólapakka og annað
prjál af því taginu heldur eigi ljóðin það sam-
eiginlegt að endurspegla hugmyndina um hið
einfalda og hið sanna. Skal það segjast að svo
mikið hefur heppnast og rúmlega það. Hönnun
albúmsins er í takt við það, einföld blýants-
teikning af þriggja bursta torfbæ þar sem hinn
hefðbundni ameríski myndheimur er víðs
fjarri. Það eina sem gæti falið í sér skírskotun í
jólin eru tvö grenitré á kantinum og tvær hvítar
rjúpur sem halda sig til hlés úti á hlaði.
Að endingu skal vitaskuld minnst á þátt Sig-
ríðar Thorlacius, þó í raun þurfi ekki að fjölyrða
þar um. Hún hefur hin síðari ár verið í fremstu
röð íslenskra flytjenda og fer hér á lág-
stemmdum kostum enda rödd hennar sama
óviðjafnanlega dýrindið og ávallt. Hljóð-
vinnslan hefur blessunarlega sett röddina á
hárréttan stað svo blæbrigði söngsins skila sér
fullkomlega í öllum sínum fínleika. Erfitt er að
tína ákveðin lög til sem dálæti, því þau eru öll
frábær. Undirrituðum þykir þó lagið „Frostrós
á gleri“, við ljóð Höllu Eyjólfsdóttur, kannski
það alfallegasta. Þar helst í hendur dásamlegt,
fallegt kvæði, haganlega samið lag og síðast en
ekki síst áreynslulaus og um leið óaðfinn-
anlegur söngur Sigríðar, svo fullkomlega af-
greiddur að hlustendur setur hljóða. Og þannig
eiga sjálfsagt allir sem þessa plötu heyra hver
sitt eftirlætislagið, sem vekur sömu tilfinningar
með þeim. Þessi jólaplata er sannarlega það
góð.
Allskonar jól
Æsku minnar jól bbmnn
Bubbi leikur á kassagítar og syngur tíu frum-
samin jólalög og eitt gamalt. Með honum spila
Börkur Hrafn Birgisson á rafgítar, Daði Birgisson
á píanó, Hammond, harpsichord, Rhodes og
trommur, Ingi Björn Ingason á bassa og Kristinn
Snær Agnarsson á bassa. Sena gefur út.
Útgáfusaga Bubba Morthens spannar á
fjórða tug ára og þessi vinsælasti tónlistar-
maður þjóðarinnar um árabil hefur loks bætt
jólaplötu á býsna tilkomumikinn verkefnalista
sinn. Öll lögin og textar
eru eftir hann, utan „Há-
tíð í bæ“, sem Vilhjálmur
Vilhjálmsson og Egill
Ólafsson hafa fyrir margt
löngu gert að sínu. Lagið
virkar fyrir bragðið svo-
lítið utangátta innan um
allt frumsamda efnið auk
þess sem útsetningin bætir litlu við gömlu út-
gáfurnar. Eiginlega hefði bara mátt sleppa því.
Í frumsamda efninu bregður Bubbi svo fyrir
sig allra handa stílum og hrynjandi, allt frá
hugljúfum strengjaballöðum upp í sprækan
balkandjass með dixieland-ívafi. Dæmi um hið
síðarnefnda eru lögin „Snjór“ og „Gjöfin í ár
(Pakkakvíði)“ þar sem ofvirkt og galsafengið
klarinettið veður upp og niður tónstigann.
Söngurinn er líka á breiðu sviði, allt frá kæru-
leysislegu sjálfsöryggi (í áðurnefndu lagi,
„Snjór“, gæti hann eins verið að syngja um að
hrognin séu að koma og tímabært að gera kerin
klár) yfir í tilfinningaríkan flutning í efri þrep-
um raddsviðsins, eins og í laginu „Gleðileg jól“
þar sem Bubbi er upp á sitt allra meyrasta. Þar
af leiðir að jólastemningin virkar svolítið sund-
urlaus, eins og flytjandinn viti ekki alveg hvort
hann eigi að vera í iðandi kátum jólafíling ell-
egar á hátíðlegum nótum. Þá eru textarnir
stirðbusalegir á stundum og í þeim efnum hefur
Bubba oft tekist betur upp. Ástaróðurinn
„Jólarósin“ er dæmi um þetta. Það breytir þó
engu um það að aðdáendur Bubba – sem eru
helft þjóðarinnar, trúi ég – munu eftir sem áður
fagna þessari útgáfu og taka jólaplötu kóngsins
höndum tveim.
Hátíðleg jól
Þar ljós inn skein bbbbn
Kammerkórinn Hymnodia flytur jólalög ásamt
Láru Sóleyju Jóhannsdóttur fiðluleikara og Hjör-
leifi Erni Jónssyni. Eyþór Ingi Jónsson stjórnar
og leikur á harmóníum. Hymnodia gefur út.
Hymnodia er kammerkór Eyþórs Inga Jóns-
sonar, organista og söngstjóra við Akureyrar-
kirkju, í hvern hann hefur valið einvalalið söng-
fólks til þess að flytja metnaðarfulla kórtónlist,
bæði kirkjuleg verk og veraldleg. Á þessum
diski er að finna íslensk
lög jafnt sem erlend, í
bland við nokkra stutta
og vel heppnaða spuna-
kafla. Yfirlýst markmið
Eyþórs Inga og félaga er
hér að láta þjóðlegan
anda haldast í hendur við
sígildar hefðir, nútíma-
lega sköpun og tilrauna-
mennsku. Hvort sem hlustandinn er meðvit-
aður um það upplegg eður ei þá er hér um
frábærlega vel heppnaða plötu að ræða og þeir
sem óska sér hljómþýðrar jólaskífu þar sem
kyrrlátur hátíðleiki er ríkjandi þurfa ekki að
leita lengra. Kórsöngurinn er gullfallegur, út-
setningar allar til stakrar fyrirmyndar og
hljóðfæraleikur einkar smekklega afgreiddur,
en lögin eru á víxl sungin, leikin á hljóðfæri eða
hvorttveggja.
Í það heila eru 24 lög á plötunni sem renna
ljúflega í gegn á tæpum 70 mínútum og eins og
er um góðar jólaplötur hentar Þar ljós inn
skein jafnt til hlustunar og til að hafa í bak-
grunninn meðan samverustunda er notið yfir
jólin. Þá er vert að hrósa fyrir einfalt, látlaust
en ákaflega fallegt albúmið sem rímar vel við
stemninguna á plötunni án allrar tilgerðar. Há-
tíðlegri jólaplata verður trauðla gefin út á þess-
ari aðventu.
Veglegur jólatónleikapakki
Jólatónleikar (DVD) bbbbn
Upptaka af aðventutónleikum KK & Ellenar
Kristjánsdóttur í Hörpu 12. desember 2012. Með
þeim leikur einvalalið tónlistarmanna, þar á
meðal Eyþór Gunnarsson, Elín, Sigríður og El-
ísabet Eyþórsdætur, Mugison, Guðmundur Pét-
ursson og Magnús Eiríksson. Sena gefur út.
Það færist í vöxt hin seinni ár að ný útgáfa á
jólatónlist leiti í upprunann og einfaldleikann.
Sér þessa ríkuleg merki í jólaplötuútgáfu þessa
árs. Útsetningar eru oftar en ekki mínimalískar
og flutningur lágstemmdur. Systkinin KK &
Ellen eiga að miklu leyti heiðurinn af þessari
bylgju eins og glöggt má heyra á jólaplötum
þeirra Jólin eru að koma
frá 2005 og Jólin frá 2011.
Hér flytja þau úrval laga
af plötunum tveim, í lag-
legum útsetningum Ey-
þórs, við hóp þekktra tón-
listarmanna sem inn á
milli flytja eigin lög í
bland. Flutningurinn er
fumlaus eins og þessa fagfólks er von og vísa og
sú notalega kvöldstund sem tónleikagestir í
Eldborgarsal Hörpunnar áttu með þeim fyrir
ári skilar sér afskaplega vel heim í stofu.
Myndatakan er ljómandi góð og klipping efnis-
ins sömuleiðis fyrirtak. Hljóðið er þá prýðilegt
og tónleikarnir, alls 20 lög, einfaldlega hin
besta hátíðarskemmtun.
Með í pakkanum er hljómdiskur með tónleik-
unum og annar til með úrvali jólalaga af áð-
urnefndum jólaplötum KK og Ellenar, svo
óhætt er að fullyrða að hlustendur fá hér ríf-
lega jólastemningu – notalega og hátíðlega –
fyrir snúð sinn. Það er því í alla staði óhætt að
mæla með þessum veglega jólatónlistarpakka,
ekki hvað síst fyrir þá örfáu sem enn eiga eftir
að uppgötva jóladiska systkinanna.
Jólastemning
af öllu tagi
Yfirlit yfir nýútkomnar íslenskar jólaplötur
Jón Agnar Ólason
jonagnar@mbl.is
Jólatónar Sigríður Thorlacius og félagar eiga það sameiginlegt með systkinunum KK & Ellen
að gefa út jólaplötu sem er í hópi þess besta sem kemur út af því taginu fyrir þessi jól.
Mýrargull nefnist sýning sem opn-
uð var í Norræna húsinu föstudag-
inn sl. Þar sýna myndlistarkon-
urnar Steinunn Gunnlaugsdóttir,
Ósk Vilhjálmsdóttir og Hildur Há-
konardóttir afrakstur fjársjóðs-
leitar í Vatnsmýrinni. „Hvað kemur
í ljós ef farið verður að grafa, grafa
í holdinu, grafa í huganum, grafa í
lifandi mýrinni blautri og kaldri,
súrefnislausri og oft fyrirlitinni?
Vellur upp olía eða glitrar á gull?
Er leyndarmál lífsins dulkóðað í
tvítali kynjanna, hringrás vaxtarins
og flæði mjólkurinnar? Af hverju er
mýrarrauðinn rauður?“ eru nokkr-
ar þeirra spurninga sem myndlist-
arkonurnar leita svara við í verkum
sínum, að því er segir í tilkynningu.
Meðal verka á sýningunni er
„Pumpa“ eftir Ósk og er hluti af því
gullbor sem fluttur var til landsins
árið 1905 og settur upp í Vatnsmýri
til gullleitar.
Gullbor á sýningu
í Norræna húsinu
Gull Gullbor og gullleitarmenn í Vatns-
mýri árið 1907. Hluti ljósmyndar eftir
Magnús Ólafsson.
Áskrifendur Morgunblaðsins eru sjálfkrafa meðlimir í Moggaklúbbnum og njóta ýmissa fríðinda og tilboða.
Hægt er að fylgjast með hvað er í boði hverju sinni á moggaklubburinn.is og fá tilboðin send í tölvupósti með því að skrá sig á póstlistann.
Hafðu samband í síma 569 1100 eða askrift@mbl.is hafi Moggaklúbbskortið ekki borist þér.
Tímar án ráða er fyrsta breiðskífa Einars
Lövdahl, 22 ára tónlistarmanns. Platan
inniheldur 10 lög og texta eftir Einar.
„Platan fær 8,1 en textarnir fá 10.“
Andrea Jónsdóttir, Rás 2
„Með bestu poppskífum sem ég hef heyrt á árinu.“
Árni Matthíasson, Mbl.
20% AFSLÁTTUR AF
PLÖTUNNI „TÍMAR ÁN
RÁÐA“ Í 12 TÓNUM
FRAM AÐ JÓLUM
Almennt verð: 2.500 kr.
Moggaklúbbsverð: 2.000 kr.
FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á EÐA Í SÍMA
Tilboðið gildir í verslunum 12 tóna
á Skólavörðustíg og í Hörpu.