Morgunblaðið - 07.12.2013, Blaðsíða 7
FRÉTTIR 7Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 2013
Aðeins munaði 2,5 milljónum á
lægsta tilboði og því næstlægsta í
smíði fangelsis og gerð fangelsis-
lóðar á Hólmsheiði.
Þegar tilboð voru opnuð hjá Ríkis-
kaupum á fimmtudag kom í ljós að
Íslenskir aðalverktakar hf. höfðu
boðið rúmlega 1,8 milljarða í verkið,
samtals 1.819.963.591 kr., svo allrar
nákvæmni sé gætt. Jáverk ehf. bauð
á hinn bóginn 1.822.496.000 kr. sem
er 2,5 milljónum hærra, nánar til-
tekið er munurinn 2.532.409 krónur.
Munurinn er aðeins 0,13% af kostn-
aðaráætlun fyrir fangelsið sem var
rúmlega 1,9 milljarðar.
97,4 millj. undir áætlun
Lægsta tilboð var 97,4 milljónum
undir kostnaðaráætlun en það jafn-
gildir 5,1%. Þrjú tilboð bárust og átti
Ístak hf. hæsta boðið, upp á ríflega
tvo milljarða, um 127,6 milljónum yf-
ir kostnaðaráætlun. Fram-
kvæmdasýsla ríkisins fer nú yfir til-
boðin.
Nokkuð er síðan vinnu við jarð-
vinnu og heimlagnir innan lóðar
lauk. Vinnu við heimlagnir utan lóð-
ar er nýlega lokið.
Smíði fangelsisins á að vera lokið í
síðasta lagi 1. desember 2015.
Fangelsið verður 3.700 fermetrar
að stærð og í því verður rými fyrir 56
fanga. Það á að koma í staðinn fyrir
Hegningarhúsið við Skólavörðustíg
og kvennafangelsið í Kópavogi.
Einnig er gert ráð fyrir að gæslu-
varðhaldsdeild á Litla-Hrauni, þar
sem eru sex klefar, verði lögð niður
og klefarnir nýttir fyrir afplánun.
runarp@mbl.is
Munaði 2,5 milljónum
Á heiðinni Vinningstillaga Arkís gerði ráð fyrir að fangelsið yrði klætt stáli.
Lægsta tilboð í nýja fangelsið liðlega 1,8 milljarðar
JÓLAGJÖF SEM
ALLIR GETA NOTAÐ
Gjafakort Arion banka er hægt að nota hvar
sem er. Þú velur fjárhæðina, þiggjandinn
velur gjöfina.
Gjafakortið fæst í öllum útibúum
Arion banka.
Slökkvilið
Fjarðabyggðar
var kallað út um
klukkan átta í
gærkvöldi vegna
elds sem hafði
kviknað í íbúðar-
húsnæði í Nes-
kaupstað. Um var
að ræða tvíbýli en
ekki var búið í þeim hluta hússins
þar sem eldurinn kom upp.
Slökkvilið Fjarðabyggðar náði
tökum á eldinum upp úr tíu í gær-
kvöldi. Mikill eldur logaði um tíma
og náðu eldtungurnar marga metra
upp í loft. Að sögn Guðmundar Sig-
fússonar, slökkviliðsstjóra í Fjarða-
byggð, er húsið tvíbýli en ekki er bú-
ið í þeim hluta hússins þar sem
eldurinn kom upp. Nágrannarnir
voru heimavið og tilkynntu eldinn
eftir að hann kom upp. Guðmundur
segir að á tímabili hafi verið tvísýnt
hvort bjarga mætti þeim hluta húss-
ins sem búið er í og á milli íbúðanna
sé einungis tréveggur.
Það hafi tekist en þónokkurt tjón
varð í þeim hluta hússins sem búið
er í vegna vatns og reyks.
vidar@mbl.is
Eldtungur
í margra
metra hæð
Tvíbýlið logaði
Hæstiréttur staðfesti í gær úrskurð
Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis
að Stefán Logi Sívarsson, Stefán
Blackburn, Davíð Freyr Magnús-
son, Hinrik Geir Helgason og Gísli
Þór Gunnarsson víki úr dómsal á
meðan fórnarlamb þeirra gefur
skýrslu við aðalmeðferð í máli á
hendur þeim, sem hefst eftir helgi.
Fórnarlambið krafðist þess að
mönnunum yrði vikið úr salnum þar
sem það væri honum afar þungbært
að gefa skýrslu að þeim viðstöddum.
Hann lagði fram vottorð sálfræðings
sem hann hefur gengið til vegna
andlegrar vanlíðunar, sem hann
rekur til ákæruefnisins. Þá kvaðst
hann hafa fengið áfallahjálp í kjölfar
þess sem um getur í ákærunni.
Hæstiréttur vísaði til forsendna
héraðsdóms en samkvæmt ákær-
unni sé ákærðu gefið að sök að hafa
svipt brotaþola frelsi, beitt hann
ólögmætri nauðung og staðið að sér-
staklega hættulegri líkamsárás á
hann.
Í úrskurðinum segir að þess verði
gætt við aðalmeðferð að ákærðu
geti fylgst með skýrslutökunni af
brotaþola um leið og hún fer fram
og spurningar verði lagðar fyrir
hann eftir því sem þeim þyki tilefni
til.
Ákærðu
munu víkja
úr dómsal