Morgunblaðið - 07.12.2013, Side 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 2013
Dr. Gunni og vinir hans munu á
sunnudag skemmta gestum Þjóð-
minjasafnsins ásamt Grýlu og
Leppalúða.
Skemmtunin hefst klukkan 14,
aðgangseyrir er enginn og eru allir
velkomnir meðan húsrúm leyfir, að
því er kemur fram í tilkynningu frá
safninu.
Löng hefð er fyrir því, að Grýla
og fjölskylda komi í Þjóðminjasafn-
ið fyrir jólin. Í tilkynningunni segir,
að jólaskemmtun Þjóðminjasafns-
ins á sunnudag sé upphitun fyrir
komu jólasveinanna. Sá fyrsti,
Stekkjarstaur, kemur til byggða 12.
desember og mun koma við í Þjóð-
minjasafninu þann dag klukkan 11.
Í kjölfarið koma bræður hans hver
af öðrum en þeir heimsækja Þjóð-
minjasafnið klukkan 11 alla daga til
jóla eftir að hafa um nóttina dreift
góðgæti eða kartöflum í skó
barnanna.
Grýla og Dr. Gunni í Þjóðminjasafninu
Morgunblaðið/Kristinn
Ófrýnileg Grýla er ekki sérlega frýnileg en
hefur mildast í skapi með árunum.
Jólakort SOS barnaþorpanna fyrir 2013 eru komin
út. Um er að ræða tvö ný kort sem eru hönnuð af
Maríu Möndu.
Í tilkynningu segir, að kortin séu frábrugðin
flestum öðrum jólakortum að því leyti að þau geti
staðið upprétt og því sé hægt að hafa þau sem
skraut eftir notkun. Hvert kort kostar 450 krónur.
Einnig eru samtökin með eldri jólakort til sölu,
meðal annars kort eftir Huldu Ólafsdóttur, sem
eru seld á 200 krónur stykkið, Ingibjörgu Eldon
Logadóttur, á 300 krónur stykkið, og Hrafnhildi
Bernharðsdóttur, á 220 krónur stykkið. Hægt er
skoða úrvalið og panta kortin á vefnum sos.is.
Í desember verða SOS barnaþorpin með tilboð á
gömlum jólakortum í Hamraborg 1 í Kópavogi.
SOS barnaþorpin gefa út tvö jólakort
Borðkort SOS barnaþorpa.
Skógræktarfélag Reykjavíkur opn-
ar jólaskóginn í Hjalladal í Heið-
mörk í dag. Mun Jón Gnarr borg-
astjóri fella fyrsta tréð kl. 11. Auk
borgarstjóra hefur jólasveinn boð-
að komu sína á svæðið.
Fjölskyldur geta komið í Heið-
mörk á aðventunni og höggvið sitt
eigið jólatré. Í ár verður opið í
Hjalladal næstu helgar klukkan 11-
16 báða dagana. Allur ágóði af sölu
jólatrjáa rennur til skógræktar í
Reykjavík.
Þá verður opinn jólamarkaður
um helgar á aðventunni við bæinn á
Elliðavatni á milli kl. 11 og 16. Í
kjallaranum í Elliðavatnsbænum er
opið kaffihús þar sem rithöfundar
lesa upp úr jólabókum. Um helgina
munu höfundarnir Sigríður Þor-
grímsdóttir og Yrsa Sigurðardóttir
lesa þar og hefst upplesturinn
klukkan 13.
Klukkan 14 í dag verður barna-
stund í rjóðrinu við markaðinn. Þar
munu barnabókahöfundarnir Elías
S. Jónsson og Jóna Árnadóttir lesa
úr bókum sínum. Klukkan 14:30
verður kveikt á jólatré við Elliða-
vatnsbæinn.
Morgunblaðið/Kristinn
Jólaskógur Fjölskyldur geta höggvið
jólatré í Heiðmörk fyrir jólin.
Jólaskógur Heið-
merkur opnaður
Jólafundur mannúðarsamtakanna
Handarinnar verður haldinn í Ás-
kirkju miðvikudaginn 11. desember
kl. 20:30.
Á fundinum mun Brokkkórinn
syngja undir stjórn Magnúsar
Kjartanssonar og hljómsveitin Upp-
lyfting leikur. Ari Eldján verður
með uppistand og lesið verður upp
úr nýjum bókum. Eyjólfur Magn-
ússon Scheving, fráfarandi formað-
ur Handarinnar, flytur ávarp og
Sigurður Jónsson, sóknarprestur í
Áskirkju, fer með hugvekju.
Jólafundur Hand-
arinnar í Áskirkju
Verslunin PopUp heldur árlegan jólamarkað í Hörpu í
samstarfi við Epal um helgina og stendur markaðurinn
yfir frá klukkan 12 til 18 bæði laugardag og sunnudag.
Fram kemur í tilkynningu, að ferskustu hönnuðir
landsins taki þátt í markaðnum og bjóði upp á gæðavör-
ur, þar á meðal tískuvörur, skartgripi, heimilisvöru,
leikföng, barnaföt, jólakort og margt fleira. Hönn-
uðahópurinn er fjölskrúðugur og ættu allir að finna eitt-
hvað íslenskt og fallegt í jólapakkann.
Fram kemur í tilkynningunni, að PopUp sé far-
andverslun stofnuð sem vettvangur fyrir hönnuði til að
selja og kynna vörur sínar.
Jólamarkaður PopUp í Hörpu um helgina
Jólamarkaður
Pop-Up er í Hörpu.
Aðventuhátíð Bergmáls verður
haldin í Háteigskirkju á sunnudag
kl. 16. Þar munu Kolbeinn Ket-
ilsson og Hildur Eva Ásmundsdóttir
syngja. Allir eru velkomnir og eng-
inn aðgangseyrir er.
Bergmál er vina- og líknarfélag
sem byggt hefur Bergheima á Sól-
heimum og heldur þar hvíldarvikur
fyrir krabbameinssjúklinga og
langveika. Húsið er leigt út til hlið-
stæðrar starfsemi.
Bergheimar á Sólheimum.
Aðventuhátíð Berg-
máls á sunnudag
ÚR BÆJARLÍFINU
Svanhildur Eiríksdóttir
Reykjanesbæ
Reykjanesbær verður jólalegri
eftir því sem lengra líður á desem-
bermánuð. Síðastliðinn laugardag
voru ljósin tendruð á vinarbæj-
arjólatrénu frá Kristiansand í 51.
sinn og framundan er val á Ljósa-
húsi bæjarins svo ljóst er að húsa-
skreytingum mun fjölga á næstu
dögum. Það eru íbúar sjálfir sem
velja Ljósahúsið, en sérstök jóla-
nefnd mun útnefna 10 best skreyttu
hús bæjarins til rafkosningar á vef
Víkurfrétta 12. – 15. desember.
Leikfélag Keflavíkur slær ekki
slöku við þessa dagana og flytur nú
jólaleikritið „Hamagangur í hell-
inum“ eftir Maríu Guðmundsdóttur í
Frumleikhúsinu. Verkið, sem er
stytt og staðfært af leikfélaginu, var
frumsýnt liðna helgi. Tvær sýningar
verða í dag og á morgun og einnig
tvær sýningar laugardaginn 14. des-
ember, sem jafnframt eru síðustu
sýningar. Leikritið hefur fengið góð-
ar viðtökur og miðaverði er stillt í
hóf, 1000 krónur.
Kaffihús hafa sprottið upp í
Reykjanesbæ á undanförnum mán-
uðum og miðað við aðsókn bæjarbúa
hefur greinilega verið full þörf á
fjölgun kaffihúsa. Knús Caffé við
Hafnargötu 90 er heimilislegt og
mjög barnvænt kaffihús sem
mömmuhópar hafa nýtt sér mikið.
Cafe Petite við Framnesveg 23 hef-
ur einnig þetta heimilislega yf-
irbragð með kráarstemmningu á
kvöldin, gjarnan með lifandi tónlist.
Þar er einnig hægt að spila ballskák.
Ráðhúskaffi er staðsett í Ráðhúsi
bæjarins við Tjarnargötu 12 og
starfar í samvinnu við bæjarskrif-
stofur og bókasafn bæjarins.
Bæjarbúum gefst nú tækifæri til
að taka þátt í mannréttindabaráttu
Amnesty International á einfaldan
en áhrifaríkan hátt. Bókasafn
Reykjanesbæjar tekur þátt í bréfa-
maraþoni samtakanna til 16. desem-
ber og geta áhugasamir farið á safn-
ið og undirritað póstkort sem komið
verður áleiðis til áhrifa. Baráttu-
málin eru mörg og margvísleg og
hverjum og einum er frjálst að
skrifa undir eins mörg kort og vilji
er til.
Njarðvík, Keflavík og Grindavík
hafa verið ofarlega í körfuboltanum í
vetur. Liðin eru í 8 liða úrslitum bik-
arkeppninnar, voru dregin saman
fyrir skemmstu, Keflavík b í karla-
flokki. Liðið dróst á móti ÍR og
Njarðvík og Grindavík munu etja
kappi í karlaflokki. Í kvennaflokki
drógust Njarðvík og Keflavík saman
og Grindavíkurstúlkur munu keppa
við KR. Nágrannaslagir eru alltaf
skemmtilegir og mikil stemmning
myndast í íþróttahúsunum. Körfu-
knattleiksáhugafólk getur þó haldið
ró sinni yfir jólahátíðina því slag-
urinn hefst 18. janúar.
Morgunblaðið/Svanhildur Eirík
Vinsælt hús Jólin eru hátíð barnanna. Það veit Hallbjörn Sæmundsson, íbúi
við Túngötu í Reykjanesbæ og hefur hann fengið viðurkenningu fyrir jóla-
hús barnanna. Húsið er vinsæll viðkomustaður barna á aðventu og jólum.
Jólalegt í Reykjanesbæ
Morgunblaðið birtir fram til jóla upplýsingar um einhverja þeirra
viðburða sem eru á dagskrá vítt og breitt um landið.
17 dagar til jóla
Vertu vinur okkar á Facebook
www.facebook.com/WeledaÍsland
Gleðileg jól með Granatepla húðvörum
Granateplin tilheyra hinum svokölluðu ”ofurávöxtum” vegna þess að
þau innihalda óvenju mikið af vítamínum, mikilvægum fitusýrum og
andoxunarefnum sem styrkja líkaman og er góð vörn gegn utanaðkomandi
áhrifum. Núna í mesta skammdegi ársins þarf líkaminn á því að halda.
Notalegur Granatepla ilmur. Fæst í apótekum og heilsubúðum um allt land.
− Í samhljómi við mann og náttúru. www.weleda.is
Since 1921