Morgunblaðið - 11.12.2013, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 11.12.2013, Qupperneq 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 2013 Malín Brand malin@mbl.is Jana María stundaði leiklist-arnám í Glasgow í Skotlandi.Sönginn lærði hún bæði hérheima og úti og hefur gjarn- an tvinnað leik og söng saman í störfum sínum. Stuttu eftir útskrift lék hún hlutverk Janet í Rocky Hor- ror sem sýnt var margoft fyrir fullu húsi hjá Leikfélagi Akureyrar. Því næst fór hún með hlutverk Sheilu í Hárinu sem Silfurtunglið setti upp í Hörpu. Jólahugur í Jönu Það sem færri vita er að Jana María beinlínis elskar jólin og þar að auki hefur hún sérstakt dálæti á gamalli tónlist. Rúsínan í pylsuend- anum er að Jana María er djass- geggjari og allt getur þetta nú vel farið saman. Jólin, djass og gömul tónlist. Þetta kristallast í tónleikum hennar í kvöld en þeir bera yfir- skriftina Jólahugur. „Að búa til jólahug er meðal annars fólgið í því að halda tónleika þar sem við erum að upphefja þessi gömlu jólalög frá sjötta og sjöunda áratug síðustu aldar. Það er í raun mín leið til að finna jólaandann og ég tengi mjög vel við gamla tímann,“ segir Jana María sem nýtur þess að koma öðrum í jólaskap. „Til viðbótar við lögin sem við flytjum og sögurnar sem við segjum er smá góðgæti fyrir bragðlaukana og kannski eitthvað fyrir lyktar- skynið líka þannig að fólk geti upp- lifað gamaldags jólaanda gegnum skynfærin,“ segir Jana María en sjálf byrjaði hún að hlusta á jólalög í Byrjar að hlusta á jólalög á haustin Söng- og leikkonan Jana María Guðmundsdóttir veit fátt betra en að hlusta á jólalög og undirbúa jólahátíðina í rólegheitum. Sjálf laumast hún til að hlusta á jólalög á haustin en gerir það þó oftast þegar aðrir heyra ekki til. Í uppáhaldi eru gömul bandarísk jólalög, gjarnan útsett fyrir stórsveit. Hún ætlar að flytja mörg þessara laga ásamt hljómsveit á Café Rósenberg í kvöld í sannkölluðu jólaskapi. Ljósmynd/Héðinn Eiríksson Jólasöngfugl Jana María byrjar oft að hlusta á jólalögin, gjarnan gömul amerísk, í september og lætur ekki á sig fá þótt fólk hneykslist á henni. Aldrei er of oft minnt á hann Júlla á Dalvík sem heldur úti vefsíðunni julli- .is, en þar má finna sérstakan jólavef sem heitir Jólavefur Júlla. Júlli hefur sankað að sér miklu efni um jólin, þarna er mikill fróðleikur og skemmt- un, m.a. jólasöngtextar, saga jóla- sveinsins, jólaminningar, margar jóla- sögur, jólauppskriftir, saga jólakorta, fjölmargar myndir af gömlum kort- um, allt um Grýlu, jólaköttinn og svo mætti lengi telja. Sannarlega gull- kista sem hægt er að leita í á aðvent- unni við undirbúning jólanna. Tilvalið að lesa jólasögur fyrir börnin. Vefsíðan www.julli.is/jol/jolayfirlit Morgunblaðið/Eggert Grýla Hún er skrautleg en skemmtileg kerling og Júlli veit margt um hana. Allt um jólin á jólavef Júlla Hvað á að gera við afa? nefnist fyrirlestur sem fluttur verður í dag kl. 12-13 í Þjóðminjasafninu við Suðurgötu í Reykjavík. Þetta er síðasti fyrirlestur Félags þjóðfræðinga á þessu ári en hann flytur sjálfur formaðurinn, Kristín Einars- dóttir, aðjunkt í þjóðfræði. Hún ætlar að fjalla um hlátur, húmor og tengsl þeirra fyrirbæra við samfélagið. Allir er velkomnir á meðan húsrúm leyfir. Endilega … … fræðist um hlátur og húmor Morgunblaðið/Ernir Í tengslum við jólasýninguna í Lista- safni Árnesinga í Hveragerði verður efnt til dagskrár á morgun, fimmtu- dag, kl. 17-18 fyrir börn á öllum aldri. Jólasýningin er unnin út frá kvæða- kverinu Jólin koma, eftir Jóhannes úr Kötlum. Stekkjarstaur verður nýkom- inn til byggða og líklegt að hann komi við, einkum ef hann fréttir af því að þar geti hann skoðað teikn- ingar af foreldrum sínum, sjálfum sér og átt spjall við góða gesti. Anna Jór- unn Stefánsdóttir syngur jólasveina- vísur Jóhannesar úr Kötlum við lag tengdamóður sinnar, Ingunnar Bjarnadóttur, og ungur afkomandi þeirra, Pétur Nói Stefánsson, bregð- ur á leik. Fjallað verður um skáldið Jóhannes úr Kötlum, teiknarann Tryggva Magnússon og tónskáldið Ingunni Bjarnadóttur. Í fjöldasöng verða önnur ljóð úr kverinu sungin. Boðið verður upp á heitt súkkulaði og piparkökur. Föstudag 13. des. og helgina 14. og 15. des. má líka búast við jólasveinum hvers dags í heim- sókn upp úr kl. 17. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Jólafjör í Listasafni Árnesinga Jólasveinar skoða myndir af sjálfum sér og gantast Teikning /Tryggvi Magnússon úr kvæðakverinu Jólin koma. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. Þegar Jana María er spurð út í hvað jólaandinn sé stendur ekki á svörum. Þegar hún hlustar á gömlu góðu jólalögin fer hún gjarnan að dunda við eitthvað jóla- tengt eins og að búa til jólakort og skrifa á þau. Hún segir mikilvægt að njóta hvers augnabliks: „Bara það að sitja og finna ilminn af kan- il og negul og jafnvel mandarínum og njóta stundarinnar.“ Í huga Jönu Maríu eru jólin ekki bara há- tíðin sjálf heldur vikurnar fyrir og eftir. „Mér finnst undirbúningurinn jafnmikilvægur og jólin. Aðventan og tíminn á undan jólunum finnst mér jafnmikil jól og hátíðin sjálf. Þess vegna reyni ég að vera komin í jólaskapið fyrr af því mig langar að lengja upplifunina á jólunum,“ segir hún og minnir á að aðal- atriðið sé að gera sitt besta til að gleðja aðra á þessum árstíma. Það er andi jólanna. Kanill, negull og mandarínur SKILGREINING JÖNU MARÍU Á JÓLAANDANUM

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.