Morgunblaðið - 11.12.2013, Qupperneq 11
Morgunblaðið/Ómar
Jólastemning Hljómsveitin sem kemur fram með Jönu Maríu í kvöld er skipuð miklum djassgeggjurum.
lok október sem er ívið seinna en
vanalega. „Stundum hef ég stolist til
að hlusta í september. Kannski einu
sinni eða tvisvar og við látum það nú
alveg duga,“ segir Jana María sem
hefur fengið ákúrur fyrir frá vinum
og fjölskyldu.
Dásamleg lög
Þau lög sem Jana María mun
flytja eru mörg vel þekkt en sum
minna þekkt og verða þau kynnt fyr-
ir áheyrendum með dálitlum fróð-
leik. „Þetta eru lögin sem Frank Si-
natra, Bing Crosby og Dean Martin
sungu. Svo flytjum við lög á borð við
A Christmas Heart sem söngkonan
June Christy flutti á sjöunda ára-
tugnum. Svo ætlum við að lauma
einu íslensku jólalagi inn sem er eft-
ir Samúel Samúelsson, hljómsveit-
arstjóra og básúnuleikara. Hann
sagði eitt sinn að sér þætti áhuga-
vert að semja lag á borð við White
Christmas. Lag sem allir þekkja og
allir syngja á jólunum. Hann samdi
lag fyrir fimm árum og við ætlum að
flytja það í kvöld,“ segir hún.
Það verður dálítið „swing“ í tón-
listinni en eins og Jana María út-
skýrir þá voru jólalögin flest ball-
öður á þessum árum.
„Á þessum tíma voru þetta
mest ballöður en svo spiluðu stór-
sveitir stundum með og það er verð-
ug áskorun fyrir okkur í kvöld því
sum lögin sem við völdum voru oft-
ast í Big Band-útsetningum og þá er
auðvitað áskorun að einfalda þær
svo fjögurra manna hljómsveit og
einn söngvari geti flutt tónlistina,“
segir Jana María.
Hljómsveitin sem Jana María
hefur fengið með sér er skipuð ein-
valaliði tónlistarmanna. Magnús
Tryggvason Eliassen trommuleikari
og Andri Ólafsson bassaleikari eru
báðir í hljómsveitinni Moses High-
tower, Högni Magnússon er gítar-
leikari hljómsveitarinnar Valdimar
og við þennan góða hóp bætist
trompetleikarinn Eiríkur Rafn Stef-
ánsson. Tónleikarnir hefjast klukk-
an 21 í kvöld á Café Rósenberg við
Klapparstíg þar sem angan jólanna
mun eflaust finnast í næsta ná-
grenni.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 2013
Glerárgata 7, Akureyri, sími 462 1415
www.tonabudin.is
Síðumúla 20, Reykjavík, sími 591 5340
www.hljodfaerahusid.is
Presonus heimastúdíó
39.990
FenderCD60
þjóðlagagítarm. stillitæki
DVDo.fl. frá 26.990
Klassískir gítarar
frá 18.990
Landsinsmesta úrval
af trommusettumYAMAHAHljómborð
frá 39.990
Blásturshljóðfæri fráYAMAHAogOdyssey
Næsta föstudag, 13. des., ætla nem-
endur úr fyrsta bekk Stóru-Vogaskóla
og börn af Staðarborg, elstu deild
leikskólans Suðurvalla, að opna sýn-
inguna Hafið bláa hafið kl. 10 í Hlöð-
unni við Egilsgötu 8 í Vogum við
Vatnsleysuströnd.
Í nóvember komu börnin saman í
hópum og unnu hlið við hlið að báta-
smíði. Rætt var við börnin um fisk-
veiðar við ströndina í Vogunum og á
Vatnsleysuströndinni og þeim sýndar
myndir af bátum fyrr á tímum. Þau
sáu einnig myndir af ýmsum farkost-
um á hafi við strendur Íslands og
rætt var um hlutverk hvers og eins;
skútur, trillur, skuttogarar, farþega-
ferjur, flutningaskip, hvalveiðiskip og
varðskip. Útgáfur skipanna voru eins
margar og börnin sem tóku þátt.
Nú þegar bátasmíðinni er lokið
bjóða þátttakendur og aðstandendur
til sýningar á bátunum í Hlöðunni.
Allir þeir sem tóku þátt í verkefn-
inu og forstöðumenn stofnananna
munu hittast við opnun sýning-
arinnar. Boðið verður upp á veitingar
fyrir gesti, þátttakendur og aðstand-
endur þeirra.
Að endingu munu bátarnir síðan
rata aftur í hendur þeirra sem smíð-
uðu þá og munu vonandi vekja góðar
minningar um þær stundir sem þau
vörðu saman við gerð þeirra.
Verkefnið var unnið með það í huga
að styrkja sambandið milli grunn- og
leikskóla í Vogunum og er styrkt af
Menningarsjóði Sambands sveitarfé-
laga á Suðurnesjum.
Ungir báta- og skipasmiðir opna sýningu
Skipasmiðir Börnin voru niðursokkin í verkefnið og allir tóku þátt í því.
Hafið bláa hafið í Hlöðunni
Vanda sig Flottur við skipamálun.