Morgunblaðið - 11.12.2013, Síða 14

Morgunblaðið - 11.12.2013, Síða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 2013 Aðeins 2 hitaeiningar og 0,5 g kolvetni í 100 ml. Koffín, guarana og ginseng... virkar strax! 15 kraftmiklar freyðitöflur í einum stauk. Skellt út í vatn nákvæmlega þegar þér hentar – heima, í vinnunni, skólanum, í ræktinni, í golfinu... Handhægt, bragðgott og frábært verð Vertu alltaf með orkuna við höndina og gríptu einn stauk af FOCUS í næstu verslun . Fæst í Fjarðarkaup og helstu apótekum um land allt brokkoli.is FOCUS Kraftmikill og frískandi orkugefandi drykkur án sykurs! Vantar þig aukna orku fyrir jólin? „Þetta hófst ekkert, það var bara fyll- erí, þetta var í marga daga. Þetta var neyslufyllerí.“ Svona svaraði Stefán Logi Sívarsson þegar hann var spurður hvenær samkvæmi sem fór fram í íbúð í Breiðholti hófst. Þangað má rekja upphaf málsins á hendur Stefáni Loga, Stefáni Blackburn og þremur öðrum en þeim er gefið að sök að hafa svipt tvo menn frelsi sínu og misþyrmt þeim. Þar frétti Stefán Logi af því að barnsmóðir hans og fv. kærasta hefði hitt annan karlmann. Og samkvæmt ákæru hófst ofbeldið þar. Annar dagur aðalmeðferðar í Stokkseyrarmálinu fór fram í gær. Fyrir dóminn kom m.a. barnsmóðir Stefáns Loga, foreldrar hennar og yngri systir. En einnig ung kona sem stödd var í nefndu samkvæmi í Breið- holtinu 30. júní síðastliðinn. „Þeir fóru að rífast um þessa stelpu og þennan vin hans sem átti að hafa sofið hjá henni,“ sagði hún um upphafið að málinu og ástæðu þess að ofbeldið hófst. „Það voru allir búnir að vera á djamminu í viku. Hann [Stefán Logi] var bara að tuska hann til, aðeins að taka í hann.“ Þar er átt við karlmann sem var í samkvæminu á sunnudagskvöldi og greindi frá því að annar maður, kunn- ingi hans, hefði sofið hjá barnsmóður Stefáns Loga. Var sendiboðinn svipt- ur frelsi og beittur ofbeldi vegna þess að Stefán Logi taldi að hann hefði átt að vera búinn að greina honum frá þessu áður. Samkvæmt því sem kom- ið hefur fram í málinu gerðist það fjórum mánuðum áður að kunninginn hitti barnsmóðurina. „Hélt að ég væri að deyja“ Nánar spurð út í atvik sagði konan: „Hann [Stefán Logi] sleit af honum gullkeðju og sló hann með henni. […] Hann var aðeins að slá hann til. Þetta voru ekki alvarlegar barsmíðar,“ sagði hún og bar til baka svo gott sem allt sem hún hafði sagt hjá lögreglu, m.a. um að hafa séð manninn stung- inn með sprautunálum og að hann hefði verið skorinn með dúkahníf. „Þeir voru að þvinga mig til að segja meira en var. Þeir komu illa fram við mig og gerðu mig að skotmarki.“ Spurð hvort hún hefði verið undir áhrifum fíkniefna þegar hún gaf skýrslu í nokkur skipti hjá lögreglu sagði konan: „Já já, nóg af þeim.“ Stefán Logi er einnig ákærður fyr- ir að hafa vafið belti af baðslopp um háls barnsmóður sinnar og dregið hana um íbúð hennar á beltinu þann- ig að henni lá við köfnun. Sagt er að hann hafi losað takið þegar hún var að kafna en hert svo aftur að. „Hann leyfði mér að anda í smátíma, þegar hann hélt að ég væri að deyja. Svo hélt hann áfram. Ég grátbað hann um að fara en hann fór ekki. […] Ég var mjög hrædd við hann. Hann hót- aði að drepa hana líka á meðan hann var að reyna að drepa mig,“ sagði konan og átti þar við að Stefán Logi hefði hótað því að drepa barnunga dóttur þeirra. Drifnir áfram af taumlausri vímuefnaneyslu  Samkvæmi sakborninga hafði engan upphafspunkt og gekk í raun látlaust Morgunblaðið/Rósa Braga Í járnum Komið með Stefán Loga. Framhald aðalmeðferðar » Aðalmeðferðin hófst í Hér- aðsdómi Reykjavíkur á mánu- dag. Reiknað var með að hún stæði í þrjá daga og lyki í dag með málflutningi. » Það hefur breyst og er ljóst að henni lýkur ekki fyrr en eftir miðjan mánuð. » Meðal annars er það vegna vitna sem stödd eru erlendis og þarf að bíða þar til þau skila sér til landsins. Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Illugi Gunnarsson mennta- málaráðherra tók í gær við undir- skriftalista sem rúmlega 10 þúsund manns höfðu skrifað undir. Var þess krafist að horfið yrði frá nið- urskurði og uppsögnum starfs- manna í nýjum fjárlögum. Einnig kom stjórn RÚV saman á fundi í gær. Að sögn Ingva Hrafns Óskarssonar, formanns stjórn- arinnar, fengu stjórnarmenn kynn- ingu á nýjum dagskrárramma á Rás 1 sem er í vinnslu sem og á framkvæmd hagræðingartillagna. Hann segir engar ákvarðanir hafa verið teknar á fundinum og engar tillögur hafa verið settar fram. Ingvi segir að næsti stjórnarfundur verði eftir rúma viku. Morgunblaðið/Rósa Braga Rúm 10 þúsund skrifuðu- nafn sitt undir listann  Vilja að hætt verði við niðurskurð og uppsagnir á RÚV Snjór Unnendur RÚV létu snjókomu ekki aftra sér og mættu fyrir utan Stjórnarráðshúsið, vopnaðir regnhlífum og hlýjum fatnaði. Listi Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra tekur við undirskriftalista við Stjórnarráðshúsið í gær.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.