Morgunblaðið - 11.12.2013, Side 21
FRÉTTIR 21Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 2013
Vertu vinur okkar á Facebook
www.facebook.com/WeledaÍsland
Weleda óskar öllum gleðilegra jóla!
Láttu þér líða vel um jólin, og þeim sem þér þykir vænt um með vörunum frá Weleda.
Weleda vörurnar veita vellíðan og eru fyrir alla fjölskylduna. Þær innihalda engin
gervi ilm-litar eða rotvarnarefni. Fæst í apótekum og heilsubúðum um allt land
− Í samhljómi við mann og náttúru. www.weleda.is
3. Hafþyrnis jólapakki sem inniheldur
Body lotion og sturtusápu(án sápu).
Hafþyrnirinn verndar og nærir
húðina, frískandi ávaxtailmur.
1. Lavender jólapakki sem inniheldur
húðolíu og sturtusápu(án sápu).
Slakandi lavender dekrar við húðina
og kemur ró á líkama og sál.
2. Granatepla jólapakki sem
inniheldur Body lotion og handáburð.
Granateplin eru andoxunarrík
og styrkja líkamann gegn
utanaðkomandi áhrifum.
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
– Afslátt eða gott verð?
Dreglar og mottur
á frábæru verði!
Reykjavík - Reykjanesbæ
Akureyri - Húsavík
Vestmannaeyjum
Margar
stærðir
og gerðir
Breidd: 1 metri
Verð pr. lengdarmeter
1.795
Ódýrar mottur
40x60 cm frá kr.
399
PVC mottur 50x80 cm
1.490
Breidd: 66 cm
Verð pr. lengdarmeter
1.495
Sýslumanninum í Kópavogi ber að
færa heiti dánarbús Sigurðar Krist-
jáns Lárussonar Hjaltested sem eig-
anda á blað í fasteignabók fyrir jörð-
ina Vatnsenda í Kópavogi á grund-
velli þinglýsingar á dómi Hæsta-
réttar 3. maí 2013. Þetta er niður-
staða Hæstaréttar í fjölskyldudeilu
sem hefur staðið um jörðina árum
saman.
Þorsteinn Hjaltested er því ekki
þinglýstur eigandi jarðarinnar líkt
og Héraðsdómur Reykjaness komst
að í byrjun nóvember sl.
Það var niðurstaða héraðsdóms að
staðfesta ákvörðun sýslumannsins í
Kópavogi frá því í júní um að hafna
beiðni skiptastjóra dánarbús Sigurð-
ar Hjaltested um að dánarbúið yrði
skráður þinglýstur eigandi jarðar-
innar Vatnsenda í Kópavogi. Var
Þorsteinn því áfram þinglýstur eig-
andi Vatnsenda samkvæmt niður-
stöðu héraðsdóms. Þessari niður-
stöðu hefur Hæstaréttur nú snúið
við og er dómurinn endanlegur. Þrír
dómarar dæmdu í málinu.
Úrskurður Héraðsdóms Reykja-
ness frá 7. nóvember var kærður til
Hæstaréttar 20. nóvember sl.
Sóknaraðilarnir kröfðust þess að
sýslumanninum í Kópavogi yrði gert
að afmá eignarheimild Magnúsar
Sigurðar Hjaltested úr þinglýsinga-
bók vegna jarðarinnar Vatnsenda á
grundvelli dóms Hæstaréttar frá 30.
maí 1969 í máli nr. 99/1968 og leyfi
Kristrúnar Ólafar Jónsdóttur frá 19.
janúar 2000 til setu í óskiptu búi.
Sóknaraðilar fóru einnig fram á að
sýslumanni yrði gert annars vegar
að afmá úr þinglýsingabók vegna
sömu jarðar eignarheimild Þorsteins
Hjaltested samkvæmt skiptayfirlýs-
ingu 21. nóvember 2000 og hins veg-
ar að færa dóm Hæstaréttar 3. maí
2013 í máli nr. 701/2012 sem eign-
arheimild dánarbús Sigurðar Hjalte-
sted að jörðinni.
Í dómi Hæstaréttar kemur m.a.
fram að í dómi réttarins frá 3. maí
2013 hafi verið kveðið á um að dán-
arbú Sigurðar Hjaltested nyti beins
eignarréttar yfir jörðinni Vatns-
enda. Við þinglýsingu endurrits af
þeim dómi hafi sýslumanni borið að
gæta að þeirri meginreglu 1. mgr.
25. gr. þinglýsingalaga nr. 39/1978 að
sá njóti þinglýstrar eignarheimildar,
sem þinglýsingabók nefnir eiganda á
hverjum tíma, og færa þannig heiti
dánarbúsins í reit fyrir nöfn eigenda
á blaði fyrir jörðina í fasteignabók.
Það var því niðurstaða Hæstarétt-
ar að sýslumanni bæri að breyta
færslu í fasteignabók jafnhliða því að
gera þar að eigin frumkvæði nauð-
synlegar leiðréttingar samkvæmt 1.
mgr. 27. gr. þinglýsingalaga á eldri
færslum um eignarheimildir yfir
jörðinni, þannig að ekki orkaði tví-
mælis að réttindi á grundvelli dóms
réttarins frá 30. maí 1969 væru óbein
eignarréttindi og sá sem færi með
þau væri ekki þinglýstur eigandi
hennar í skilningi 1. mgr. 25. gr. lag-
anna.
Ber að skrá dánarbúið
sem eiganda Vatnsenda
Dómur Hæstaréttar er endanlegur Margra ára deilur
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vatnsendasvæði Hart hefur verið deilt um eignarréttinn á Vatnsenda.
Enginn árangur varð af fundi strandríkja um veiðar á norsk-íslenskri síld á
næsta ári, en fundurinn var haldinn í London í gær. Til næsta fundar verð-
ur boðað í janúar, að því er fram kemur í frétt frá sjávarútvegsráðuneyt-
inu.
Færeyingar juku verulega síldarkvóta sinn á þessu ári og síðsumars
tóku gildi viðskiptaþvinganir af hálfu Evrópusambandsins gagnvart Fær-
eyingum. Í dag ræðir Maria Damanaki, sjávarútvegsstjóri ESB, síldar- og
makríldeiluna við færeysk stjórnvöld í Þórshöfn í Færeyjum.
Fjallað verður um veiðar á kolmunna á næsta ári á fundi strandríkja í
London í dag. aij@mbl.is
Enginn árangur af síldarfundi í London