Morgunblaðið - 11.12.2013, Page 24
Minntust Mandela í rigningunni
Tugir þúsunda Suður-Afríkumanna létu rigningu ekki
stöðva sig í að fjölmenna á minningarathöfn um Nelson
Mandela, fyrrverandi forseta landsins, á íþrótta-
leikvangi í Jóhannesarborg í gær. Á meðal þeirra sem
fluttu ávörp voru Barack Obama, Bandaríkjaforseti, og
Ban Ki-moon, aðalritari Sameinuðu þjóðanna.
Minningarathöfn um fyrrverandi forseta Suður-Afríku
EPA
24 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 2013
Brasilísk rannsóknarnefnd hefur
fundið vísbendingar um að Juscelino
Kubitschek, fyrrverandi forseti
landsins, hafi verið myrtur af herfor-
ingjastjórninni á 8. áratug síðustu
aldar.
Sao Paulo-sannleiksnefndin sem
sett var á fót til að rannsaka dauða
Kubitscheks, sem var forseti Bras-
ilíu frá 1956 til 1961, kynnti skýrslu
sína um málið í gær. Hún fór yfir um
90 sönnunargögn sem nefndin telur
sýna fram á að um pólitískt samsæri
hafi verið að ræða.
Kubitschek lést hinn 22. ágúst árið
1976 í kjölfar þess sem talið var bíl-
slys á hraðbraut á milli Rio de Jan-
eiro og Sao Paulo. Upp frá því hefur
verið orðrómur um að hann hafi ver-
ið fórnarlamb tilræðis en hann hafði
verið vinsæll leiðtogi stjórnarand-
stöðunnar í landinu á miðju stjórn-
málanna.
Í skýrslu rannsóknarnefndarinnar
kemur fram að hún hafi fundið fölsuð
skjöl, mistök við meðferð málsins og
misræmi.
„Við velkjumst ekki í vafa um að
Juscelino Kubitschek var fórnar-
lamb samsæris, leynimakks og póli-
tísks glæps. Það eru skjalfestar
sannanir og veigamiklir vitnisburðir
á fleiri en 29 blaðsíðum skýrslunn-
ar,“ sagði Gilberto Natalini, einn
nefndarmannanna, við fjölmiðla.
Á meðal sönnunargagnanna er
frásögn bílstjóra rútunnar sem ók á
bíl Kubitscheks. Hann sagði rann-
sóknarnefndinni að sér hefði verið
boðið fé gegn því að gangast við
ábyrgð á slysinu.
Sannleiksnefnd á vegum brasil-
íska þingsins rannsakar nú einnig
dauða Kubitscheks og ýmis mann-
réttindabrot sem framin voru í tíð
herforingjastjórnarinnar í Brasilíu
frá 1964 til 1985.
Fórnarlamb póli-
tísks samsæris
Fv. forseti Brasilíu var myrtur
Samsæri? Kubitschek (fyrir miðju)
var 73 ára gamall þegar hann lést.
Stofnandi franska fyrirtækisins Poly Implant Prothese
(PIP) sem framleiddi svikna brjóstapúða var dæmdur í
fjögurra ára fangelsi fyrir fjársvik. Hinn 74 ára gamli
Jean-Claude Mas var auk þess dæmdur af dómstóli í
Marseille til að greiða sekt að jafnvirði rúmra tólf millj-
óna króna og honum bannað að starfa að nýju í heil-
brigðisþjónustu og að reka fyrirtæki.
Fjórir aðrir fyrrverandi forsvarsmenn fyrirtækisins
voru einnig dæmdir en fengu styttri dóma. PIP-
brjóstapúðarnir komust í heimsfréttirnar fyrir tveimur
árum þegar upplýst var að fyrirtækið hafði notað iðn-
aðarsílíkon í þá. Þeir voru líklegri til þess að springa og þurftu þúsundir
kvenna að leita til læknis af þeim sökum.
FRAKKLAND
Í fangelsi vegna PIP-brjóstapúðanna
Jean-Claude Mas
Bandaríski líffræðingurinn Randy Schekman, sem tók
við Nóbelsverðlaunum í læknisfræði í gær, hefur lýst
því yfir að hann ætli að hætta að senda greinar í vís-
indatímaritin Nature, Cell og Science. Hann telur að
tímaritin hafi skaðleg áhrif á vísindaleg vinnubrögð
þar sem þrýstingur á að fá greinar birtar í svo nafn-
toguðum ritum leiði til þess að víndamenn slái slöku
við í rannsóknum sínum og sinni aðeins þeim vís-
indum sem séu í tísku í stað þess að verja tíma sínum
í mikilvægari störf. Þar við bættist að ritstjórar tíma-
ritanna væru ekki starfandi vísindamenn og þeir
hygluðu greinum sem væru líklegar til að vekja athygli. „Líkt og Wall
Street verður að losna úr viðjum bónusgreiðslnamenningarinnar verða
vísindin að losna undan harðræðisstjórn lúxustímaritanna,“ segir
Schekman.
VÍSINDI
Losni undan harðstjórn vísindatímaritanna
Randy Schekman
Grænn markaður ehf. | Réttarhálsi 2, 110 Reykavík | www.flora.is | Sími 535 8500 | info@flora.is
Allt til gjafainnpökkunar
Eingöngu sala til fyrirtækja
Auðbrekku 3 ~ 200 Kópavogur ~ Sími: 564 1660 ~ oreind.is
Þar sem gervihnattabúnaðurinn fæst
YFIR 100 FRÍAR
SJÓNVARPSSTÖÐVAR
25ÁRA
1988-2013