Morgunblaðið - 11.12.2013, Side 30

Morgunblaðið - 11.12.2013, Side 30
30 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 2013 ✝ Halldóra Berg-þórsdóttir fæddist í Reykjavík 10. febrúar 1948. Hún lést á heimili sínu 30. nóvember 2013. Foreldrar henn- ar eru Ólafía Sig- urðardóttir, f. 1922 og Bergþór E. Þor- valdsson heildsali, f. 1914, d. 1976. Halldóra er elst þriggja systkina. Bróðir, Eyjólfur, f. 1950 og systir Nanna, f. 1958, eiginmaður Ólafur Kjartansson, f. 1959. Eiginmaður Halldóru er Andrés Andrésson, f. 1951. Þau gengu í hjónaband 28. apríl 1973. Foreldrar Andrésar voru Andrés Andrésson klæðskeri, f. Erla soninn Erlend, f. 1998. Halldóra fæddist á Lindargötu 42 í húsi afa síns Sigurðar Ólafssonar rakara. Hún ólst upp á Grettisgötu 4 fyrstu ævi- árin og gekk í Miðbæjarskól- ann. Halldóra fluttist 11 ára gömul í Sólheima 22 og bjó þar þangað til hún hóf sinn búskap árið 1973. Hún gekk í Voga- skóla og útskrifaðist þaðan sem gagnfræðingur. Halldóra vann í Útvegsbank- anum og síðar Fiskveiðasjóði áður en hún helgaði sig börnum og heimili. Eftir að hún snéri aftur á vinnumarkaðinn starf- aði hún sem skrifstofustjóri hjá Fimleikadeild Ármanns, sem móttökuritari á Læknastöðinni Mjódd og Heilsugæslunni í Hlíð- unum. Halldóra starfaði á skrif- stofu Tónmenntaskóla Reykja- víkur um níu ára skeið áður en hún lét þar af störfum. Síðustu árin var hún heimavinnandi. Útför Halldóru fer fram frá Dómkirkjunni í dag, miðviku- daginn 11. desember 2013, og hefst athöfnin kl. 15. 1887, d. 1970 og Ingibjörg Stef- ánsdóttir, f. 1915, d. 1987. Börn Halldóru og Andrésar eru: 1. Andrés, f. 1974, 2. Íris, f. 1979 , kona, Anna Rut Guð- mundsdóttir, f. 1976. Þær eiga saman Katrínu Lóu, f. 2012. Fyrir á Anna Guðrúnu Perlu, f. 2001, Snædísi Blæ, f. 2004 og Róbert, f. 2008, 3. Bergþór, f. 1980, kona, Erla Björk Tryggvadótt- ir, f. 1983. Sonur þeirra er Alex Bjarki, f. 2012. 4. Fyrir á Andr- és Jón Þór, f. 1969, kona, Erla Erlendsdóttir, f. 1974. Þeirra börn eru Nikulás Dagur, f. 2009 og Þórdís Lilja, f. 2011 Fyrir á Nú ríkir kyrrð í djúpum dal, þótt duni foss í gljúfrasal, í hreiðrum fuglar hvíla rótt, þeir hafa boðið góða nótt. Nú saman leggja blómin blöð, er breiddu faðm mót sólu glöð, í brekkum fjalla hvíla hljótt, þau hafa boðið góða nótt. Nú hverfur sól við segulskaut og signir geisli hæð og laut, en aftanskinið hverfur fljótt, það hefur boðið góða nótt. (Magnús Gíslason) Með ástar- og saknaðarkveðju. Guð blessi þig. Mamma. Við köllumst á, þögnin og ég, við köllumst á, tómið og ég. Það er ekki mitt að efast um máttarverkið stóra, um vilja Hans sem öllu ræður. En þráin og sorg- in toga mig til sín og tárin brjótast fram í örvæntingu þess sem ekki skilur, sem máttvana bíður þinna líknandi handa og blíðra orða. Ég bið aðeins um eitt andartak, eina örlitla stund, til að tjá þér orðlaust það sem hjarta mitt geymir, elsku mamma mín. Móðir mín var tilbúin að berjast og faðir minn stóð eins og klettur henni við hlið. Tvisvar áður, fyrir meira en aldarfjórðungi, hafði læ- víst og illvígt mein gert sig heima- komið en verið hrakið út af þeim krafti og æðruleysi sem móðir mín bjó yfir. Móðir mín komst til fullr- ar heilsu og fékk notið þess að sjá börnin sín vaxa úr grasi, þrjár tengdadætur auðga fjölskylduna, börnin sem þeim fylgdu og börnin sem inn í hana fæddust. Móður sína, bróður og systur elskaði hún af heitu hjarta og var ávallt um- hugað um velferð þeirra og ham- ingju. Minningu föður síns hafði hún alltaf í heiðri. Systurbörnin voru sem hennar eigin. Yngstu móðursystur sinni var hún sem dóttir. Það fór sér að engu óðslega, það bjó um sig, óx og dafnaði í ár- anna rás. Það nærðist á lífsþrótti og þreki. Það laug og blekkti, bærði burt hugsunum um sig uns sannleiksstundin rann loksins upp. Áfallið var mikið. Það var að- eins í örmum föður míns sem móð- ir mín lét hugfallast. Fyrir okkur hinum beygði hún aldrei af. Það var ekki sjúkdómurinn illvígi sem kallaði fram tár frammi fyrir mér, heldur hlýja, kærleikur, og stuðn- ingur föður míns: „Hann er svo góður við mig.“ Eins og ástfang- inn unglingur bar faðir minn móð- ur mína á höndum sér í þeim erf- iðleikum sem við blöstu. Ég hljóp eins hratt og fæturnir gátu borið mig upp stigana og inn í hjónaherbergið. Síðast þegar ég hafði litið þar inn hafði faðir minn verið með móður mína í fanginu og strokið henni ljúflega. Lyfja- meðferðin var farin að taka sinn toll, þótt nýhafin væri, og faðir minn reyndi að hlúa að móður minni eins og honum var einum lagið. Móðir mín sat upp við dogg, bróðir minn studdi við hana og sagði henni grátklökkur að berj- ast. Faðir minn var í símanum að ítreka að um bráðatilfelli væri að ræða. Ég tók um axlir hennar og undir örvæntingafullt ákall bróð- ur míns. Faðir minn birtist. Síð- asta andvarpið. Við reyndum allt hvað við gátum, en móðir mín var horfin inn í ljósið meðan rökkrið lagðist yfir líf okkar. Móðir mín var hlý, fögur og góð. Hún var kærleikur og hún var birta, ekki einungis í mínu lífi, heldur allra þeirra sem nutu þeirrar blessunar að kynnast henni. Góður Guð hefur kallað móður mína til sín, í náðarfaðm sinn og til nýrra verka. Ég minnist hennar með þökk, engilsins sem bar mig inn í þetta líf og bar mig á vængj- um sér út sína jarðnesku tilveru. Elsku besta mamma mín, ég kveð þig, fullur sorgar og trega. Minningarnar ylja mér og gæska þín er mér smyrsl á sálartetrið. Það er svo erfitt að missa þig, svo ósköp sárt að hafa þig ekki nærri. Guð blessi þig og varðveiti um alla eilífð. Andrés. Elsku mamma mín. Venjulega myndi ég hringja í þig og spyrja hvað þér fyndist um orðavalið en nú get ég það ekki. Við töluðum saman á hverjum degi. Ég stóð mig oft að því að vera með símann í hendinni tilbúin að svara því ég vissi að ég ætti von á hringingu frá þér. Eftir að þú veiktist snérist það við, ég hringdi í þig. Mig langar svo elsku mamma að fá að heyra röddina í þér einu sinni enn til að fylla hjarta mitt á ný. Ég get ekki sætt mig við að þú sért farin. Þó þrek þitt hafi minnkað síðustu vikur þá var aldrei inni í myndinni að þú myndir kveðja okkur. Þú hlakk- aðir svo til að hafa alla ungana þína hjá þér á aðfangadag og litlu ömmugullin þín. Nú verða jólin aldrei aftur eins, aldrei verður neitt eins án þín. Við munum reyna að raða jólaskrautinu eins og við vitum að þú myndir vilja hafa það en það mun aldrei standa eins. Þú hafðir nefnilega sérstakt lag á að hafa hlutina akkúrat eins og þeir áttu að vera. Við skulum ekki einu sinni byrja að ræða jóla- tréð. Þegar pabbi þóttist viss um að ekki væri hægt að koma serí- unni og skrautinu betur fyrir á trénu þá gekkst þú alltaf nokkra aukahringi í kringum það og lag- færðir aðeins hér og þar. Ég er viss um að gráu hárunum hafi fjölgað hjá pabba á Þorláksmessu ár hvert. Það var svo auðvelt að gleðja þig, elsku mamma, og þú gladdist svo innilega yfir velgengni og hamingju annarra. Þú varst alltaf fyrsta manneskjan sem ég hringdi í ef mér hafði gengið vel í ein- hverju því einhvern veginn varð allt gott margfalt betra við gleðina og hamingjuóskirnar frá þér. Það var líka einstakt hvernig þú lýstir upp allt í kringum þig. Þú varst svo glæsileg og ungleg, svo björt og geislandi. Allir sem kynntust þér höfðu orð á því. Fyrir rúmum 15 árum, á afmælisdaginn þinn, var ég spurð út í systur mína, „já systir þín eða frænka“ endurtók viðkomandi þegar hún sá svipinn á mér. Ég svaraði því til baka að þetta væri mamma mín og hún væri fimmtug í dag. Ég man bros- ið sem kom á þig þegar ég sagði þér frá þessu og þú lyftist öll upp og sagðir: „Ohh Íris, þetta er besta afmælisgjöfin mín.“ Við átt- um eftir að brosa oft yfir þessu. Mér finnst lífið svo ósann- gjarnt, elsku mamma, og skil ekki af hverju það var lagt svona mikið á þig. Tvisvar reyndi meinið að hafa betur en þú varst svo mikil baráttukona og leyfðir því ekki að sigra þig. Þriðja meinið reyndist þér of erfiður andstæðingur þó að þú hafir ætlað að sigra það líka. Ekkert getur sefað sorgina og söknuðinn en það er huggun harmi gegn að þú fékkst að fara á þeim stað þar sem þér leið best, heima og umvafin ást. Missir pabba er ólýsanlegur því þú varst akkerið í lífi hans. Ömmugullin þín munu alast upp við dásamlegar sögur og minningar sem þú skilur eftir í hjörtum okkar. Ég minnist þín, elsku mamma mín, sem fal- legustu, björtustu og yndislegustu mömmu sem barn getur átt. Ég er svo þakklát fyrir allt sem þú gafst mér og verð ríkari fyrir lífstíð að hafa átt þig að. Þú lýstir upp líf allra sem þekktu þig og nú er him- inninn bjartari því stjarna þín skín skærust. Þín dóttir, Íris. Það er svo undarlegt að fá ekki hringingu frá þér, mamma. Ég bíð og vona að síminn hringi og það sért þú að athuga hvernig Alex Bjarki hafi það, hvort hann sé far- inn að gera eitthvað nýtt, hvort ný tönn sé komin og auðvitað segja mér fréttir af Katrínu Lóu, Írisi, pabba og Andrési. Þetta var það sem þú gerðir, mamma, passaðir upp á að við vissum allt það helsta sem var að gerast hjá okkur. En ég veit að þú hringir ekki aftur. Mig langar ekki að trúa því og á ofboðslega erfitt með að sætta mig við það. Hvernig á ég að geta bara kvatt þig og haldið áfram? Kvatt konuna sem kenndi mér á kopp- inn, kenndi mér að reima skóna mína, kenndi mér að lesa og skrifa? Kvatt þig sem var svo annt um börnin þín að þú gerðir allt sem þú mögulega gast til að hlífa okkur þegar þú barðist við þennan andstyggilega sjúkdóm í fyrsta og annað skiptið. Og tókst þér það svo vel að við, þín tvö yngstu, viss- um ekki af veikindunum fyrr en áratugum seinna. Við vorum á átt- unda og níunda aldursári í seinna skiptið og þér hafði ekki verið hugað líf. Það er í raun og veru kraftaverk að við fengum 24 ár með þér til viðbótar. Ég á erfitt með að sætta mig við að barnabörnin þín, börnin sem þú ert búin að vera að bíða svo lengi eftir, fái ekki að alast upp með ömmu sinni, þessari einstöku konu sem gaf svo mikið af sér, hefði veitt þeim svo mikla ást og alúð og hlýju. Mér finnst svo sárt, mamma, að þú fáir ekki að njóta litlu gullmolanna þinna. Ég sé það fyrir mér að hefðir verið fyrst til þess að mæta á íþróttakeppnir þeirra, eins og þú varst alltaf hjá okkur systkinunum, og verið stolt- asta amman á svæðinu. En maður má ekki bara hugsa um það sem aldrei verður. Minn- umst heldur allra þeirra yndislegu stunda sem við áttum saman. Þá er hugurinn fljótur að reika í Þjórsárdalinn, paradísina okkar, þaðan eigum við svo ofboðslega margar og góðar minningar, þar leið öllum svo vel. En það eru líka litlu hlutirnir sem koma upp í hugann á mér. Hvernig þú varst vön að taka sængina mína og breiða yfir þig þegar þú varst að horfa á sjón- varpið á kvöldin. Ég man hvað mér fannst alltaf notalegt að hafa „mömmulykt“ af sænginni minni. En það eru líka orð sem koma upp í hugann þegar ég hugsa til þín, mamma, skrítin orð sem bara fjölskyldan fattar, gubbugæng, múlú púlú og bebe, en eru svo dýr- mætur partur af fjölskyldusög- unni. Það berst svo um í mér, mamma, hvað ég hefði viljað hafa lengri tíma með þér. Þú ætlaðir að sigrast á þessu, alveg eins og í hin skiptin. En jafnvel þótt sú barátta hefði verið vonlaus, þá hélt ég að við ættum lengri tíma eftir, þú varst bara nýbyrjuð í lyfjameð- ferð. En hugsanlega var þetta besta leiðin fyrir þig að fara, bæði fyrir okkur og þig, heima í faðmi okkar feðga, kannski var þetta al- veg eins og þú hefðir viljað sjálf. Það orð sem kemur hvað oftast upp í hugann á mér þegar ég hugsa um þig mamma er „fegurð“. Þú ert fegursta manneskja sem ég hef kynnst, svo björt og falleg og mun ég hafa það að leiðarljósi þeg- ar ég lýsi þér fyrir barnabörnun- um þínum. Takk fyrir mig, mamma. Bergþór. Ástkær systir og mágkona er látin, allt, allt of snemma. Dóra Halldóra Bergþórsdóttir ✝ Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR ÁRNÍNA ÁRNADÓTTIR, Skarðshlíð 13c, Akureyri, lést á Dvalarheimilinu Hlíð fimmtudaginn 28. nóvember. Útför hennar fer fram frá Glerárkirkju föstudaginn 13. desember kl. 13.30. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Heimahlynningu á Akureyri og Dvalarheimilið Hlíð. Ingvi Rafn Flosason, Árni Guðnason, Amalía Guðnason, Anna Guðrún Guðnadóttir, Rúnar Egilsson, Berglind S. Guðnadóttir, Indriði Jóhannsson, Jóhannes Rafn Guðnason, Karlína Sigríður Ingvadóttir, Marinó Marinósson, ömmu- og langömmubörn. ✝ Okkar áskæra systir, mágkona, frænka og vinkona, SESSELJA ELÍSABET JÓNSDÓTTIR frá Seljanesi, Reykhólasveit, lést að heimili sínu Skálatúni fimmtudaginn 28. nóvember. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey. Innilegar þakkir til Skálatúnsheimilisins fyrir frábæra umönnun og ást. Fyrir hönd aðstandenda, Sveinn, Magnús Viggó og Jón Hjálmar Jónssynir. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ERNA HREINSDÓTTIR frá Hrísey, lést á Droplaugarstöðum laugardaginn 30. nóvember. Útförin fór fram föstudaginn 6. desember, í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Guðrún Svansdóttir, Sigurður Svavarsson, Geir Svansson, Irma Erlingsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐLAUG RÓSA GUNNLAUGSDÓTTIR, Hornbrekkuvegi 12, Ólafsfirði, lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri 7. desember. Útför hennar fer fram frá Ólafsfjarðarkirkju laugardaginn 14. desember kl. 14.00. Ingi Vignir Gunnlaugsson, Ása Jóhanna Ragnarsdóttir, Róslaug Gunnlaugsdóttir, Helgi S. Þórðarson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, PÉTUR JÓHANNSSON, Lindarbraut 10, Seltjarnarnesi, lést á Landakotsspítala föstudaginn 6. desember. Útför hans fer fram frá Seltjarnarneskirkju miðvikudaginn 18. desember kl. 15.00. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Slysavarnarfélagið Landsbjörg. Kristín M. Guðmundsdóttir, Auður Pétursdóttir, Jóhann Pétursson, Margrét Lilja Magnúsdóttir, Brynja Pétursdóttir, Baldvin Búi Wernersson. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐNÝ S. SIGURÐARDÓTTIR, Goðheimum 26, Reykjavík, lést á Landakotsspítalanum sunnudaginn 1. desember. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Við þökkum innilega fyrir auðsýnda samúð og hlýhug. Þórhallur Björnsson, Anna Janyalert, Karl Björnsson, Katrín I. Karlsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.