Morgunblaðið - 11.12.2013, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 11.12.2013, Qupperneq 34
34 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 2013 11 -12-13 er óskastund Unnar Guðrúnar Pálsdóttur sem er43 ára í dag. Hún er af flestum kölluð Lukka og rekurveitingastaðinn Happ á Höfðatorgi í Reykjavík. Þar er hollustumatur á borðum, en að mati Lukku er óæskilegt hráefni rót margra nútímasjúkdóma, svo sem bólgna, meltingartruflana, hjarta- og æðasjúkdóma og krabbameins. „Vitund fyrir heilbrigði og góðu mataræði verður sífellt sterkari. Uppistaðan í okkar mat- seðli er grænmeti sem og hnetur og fræ – og svo hreinar og ferskar afurðir svo sem fiskur og kjöt,“ segir Lukka sem ýtti starfsemi Happs úr vör fyrir sex árum. „Þetta verður væntanlega góður afmælisdagur. Maðurinn minn, Magnús Stefánsson, er flugstjóri hjá Icelandir og ég ætla með hon- um síðdegis til Boston. Það er alltaf gaman að fara til Bandaríkj- anna, þar sem foreldrar mínir búa stóran hluta ársins, en nú förum við skötuhjúin til að eiga skemmtilega stund saman. Svo er mikill plús að bæta fjórum klukkustundum við sólarhringinn og vera í fluginu utan þjónustusvæðis, hvorki tengd síma né tölvu. Þegar maður er með eigin rekstur eru það nánast hlunnindi og þú getur með vísan til nafnsins míns kallað þetta lukkustundir,“ segir Lukka – Unnur Guðrún Pálsdóttir, sem með eiginmanni sínum á tvo syni. Þeir eru Páll Stefán, fimmtán ára, og Jakob Þór, þremur árum yngri. sbs@mbl.is Unnur Guðrún Pálsdóttir er 43 ára í dag Happ „Vitund fyrir heilbrigði og góðu mataræði verður sífellt sterk- ari,“ segir Lukka sem fer í frí vestur um haf síðdegis í dag. Lukkustundir í Bandaríkjaflugi Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Ólafsfjörður Óli Björn fæddist 8. apríl kl. 13.41. Hann vó 4.074 g og var 55 cm langur. Foreldrar hans eru Björk Óladóttir og Þorvaldur Sveinn Guð- björnsson. Nýir borgarar Grindavík Jóhann Jakob fæddist 20. apríl kl. 23.27. Hann vó 3.010 g og var 51 cm langur. Móðir hans er Sigríður Jóhannsdóttir. I ngimar Erlendur fæddist á Akureyri 11.12. 1933 en flutti með fjölskyldunni til Reykjavíkur er hann var fimm ára. Hann var í Mið- bæjarskólanum, Austurbæjarskól- anum, lauk landsprófi frá Ingi- marsskóla og prófum frá Kennaraskóla Íslands 1957. Ingimar Erlendur var blaðamað- ur við Morgunblaðið 1959-62, var ritstjóri og ábyrgðarmaður Frjálsrar þjóðar 1962-63 en hefur helgað sig ritstörfum síðan. Ritverk Ingimars Erlendar Rit Ingimars Erlendar: Sunnan- hólmar, ljóð, 1959; Hveitibrauðs- dagar, smásögur, 1961; Borgarlíf, skáldsaga, 1965; Íslandsvísa, skáldsaga, 1967; Ort á öxi, ljóð, 1973, 2. útg. 1978; Undirheimur, skáldsaga, 1974; Fiskar á fjalli, ljóð, 1974; Íslandsvísa, norsk út- gáfa, 1975; Grasið hefur grænar hendur, ljóð, 1975; Veruleiki draumsins, ljóð, 1976; Göngustafur vindsins, sögur, 1977; Fjall í þúfu, ljóð, 1978; Núvist, ljóð, 1980; Helgimyndir í nálarauga, ljóð, 1982; Ljóð á Lúthersári, 1983; Ljósahöld og myrkravöld, ljóð, 1985; Hvítamyrkur, ljóð, 1993, 2. útg. 1997; Hvítvoðungar, ljóð, 1997, 2. prentun 1998; Hvítblinda, ljóð, 2000; Hvítalogn, ljóð, 2001; Hvítu- vötn, ljóð, 2002; Hvítelfur I., ljóð, 2003; Hvítelfur II., ljóð, 2003, Hvítakista, ljóð, 2008. Á afmælisdaginn fær Ingimar Erlendur í hendur fyrstu eintök nýrrar ljóðabókar sem ber heitið Ljóðdómur – einskonar ævisaga, Ingimar Erlendur Sigurðsson rithöfundur – 80 ára Gömul fjölskyldumynd Ingimar Erlendur og Margrét með börnum sínum, Sigríði Freyju og Sigurði Vífli, árið 1985. Ljóðskáld við Elliðavatn Skáldið við vatnið Ingimar býr við Elliðavatn en á sumarhús í Hvalfirði. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is MIKIÐ ÚRVAL AF SMUREFNUM OG OLÍUM FYRIR ALLAN IÐNAÐ. KÍKTU Í KEMI OG SKOÐAÐU ÚRVALIÐ! SMUROLÍUR OG SMUREFNI Kemi • Tunguhálsi 10, 110 Reykjavík • www.kemi.is • Sími: 544 5466 Opið: Mánudag - fimmtudags: Frá kl. 8.00-17.30. Föstudaga: Frá kl. 8.00-17.00.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.