Morgunblaðið - 17.12.2013, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBER 2013
Kvarnir/Brimrás/Pallar ehf | Akralind 8 | 201 Kópavogur | sími 564 6070
Fax 564 6071 | kvarnir@kvarnir.is | www.kvarnir.is | www.pallar.is
STIGAR OG TRÖPPUR Á
20% AFSLÆTTI*
ÁLHJÓLA
PALLAR
OG
-VEGGJA
PALLAR
AFSLÁTTUR*
25%
*
Sorpkvarnir
AF BRIMRÁSAR STIGUM OG TRÖPPUM
*Tilboðin gilda til áramóta eða á meðan birgðir endast
Styrmir Gunnarsson segir á Evr-ópuvaktinni:
Dellan í kringumIPA-styrkina
leiðir hugann að því
að það er ekki stjórn-
arandstaðan, sem er
að gera ríkisstjórn og
stjórnarflokkum erf-
itt um vik.
Það eru stjórnarflokkarnir sjálfir,sem eru að gera vitleysur, sem
koma þeim í koll.
Stjórnarandstaðan reynir svo einsog hún mögulega getur að not-
færa sér þær vitleysur.
Hugmyndir um skerðingu barna-bóta eru skýrt dæmi um þetta.
Annað og jafn skýrt dæmi er sú fá-ránlega hugmynd, að ríkis-
stjórn, sem segist ætla að ljúka aðild-
arferlinu, taki upp á því að „skoða
réttarstöðu sína“ vegna þeirrar
ákvörðunar Evrópusambandsins að
hætta greiðslum IPA-styrkja.
En þeir styrkir eru eins og kunn-ugt er ætlaðir til að greiða fyr-
ir aðlögun regluverks umsóknar-
ríkja að kerfi Evrópusambandsins.
Nú nærist stjórnarandstaðan einsog skiljanlegt er á vitleysis-
gangi af þessu tagi.
Hvað verður næst?“
Deila má um kenninguna um aðhætta skuli leik þá hæst fram
fer. En síður um að hverfa skuli frá
leik sem lokið er. ESB-umsókn var
úr sögunni á kosninganótt.
Styrmir
Gunnarsson
Einfalt stórmál
gert flókið
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 16.12., kl. 18.00
Reykjavík -3 skýjað
Bolungarvík -1 skýjað
Akureyri -9 léttskýjað
Nuuk -7 skýjað
Þórshöfn 6 skýjað
Ósló 7 skýjað
Kaupmannahöfn 7 súld
Stokkhólmur 7 skýjað
Helsinki 5 súld
Lúxemborg 6 heiðskírt
Brussel 10 heiðskírt
Dublin 5 skýjað
Glasgow 6 skúrir
London 12 léttskýjað
París 8 heiðskírt
Amsterdam 11 léttskýjað
Hamborg 10 léttskýjað
Berlín 7 heiðskírt
Vín 0 þoka
Moskva -6 alskýjað
Algarve 16 léttskýjað
Madríd 16 heiðskírt
Barcelona 12 skýjað
Mallorca 16 skýjað
Róm 12 heiðskírt
Aþena 10 skýjað
Winnipeg -11 snjókoma
Montreal -18 skafrenningur
New York -2 heiðskírt
Chicago -9 alskýjað
Orlando 12 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
17. desember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 11:19 15:30
ÍSAFJÖRÐUR 12:06 14:53
SIGLUFJÖRÐUR 11:51 14:34
DJÚPIVOGUR 10:58 14:50
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
Farbanni af hrossum í þjálfunar-
miðstöðinni á Hólaborg á Suðurlandi
verður aflétt á morgun. Hrossin hafa
verið undir sérstöku eftirliti héraðs-
dýralæknis og þurftu að lúta sér-
stökum smitvörnum til 18. desember.
„Ekki hefur borið á neinu óeðli-
legu hjá hrossunum og ekki hefur
orðið vart við að neitt hafi borist til
landsins. Því verður farbanninu af-
létt,“ segir Sigríður Björnsdóttir
dýralæknir.
Flutti inn notuð áhöld
Ástæðan er sú að 18. nóvember
sl. járnaði Steven O. Grady, dýra-
læknir og járningameistari, hest sem
var á stöðinni og notaði til verksins
notuð járningaáhöld, hanska, svuntu
og vinnuskó, sem innflutningur er
bannaður á.
Bannað er að flytja inn notuð
járningaáhöld og annan búnað sam-
kvæmt íslenskum lögum um dýra-
sjúkdóma og varnir gegn þeim.
Þar af leiðandi voru allir hestar
settir undir aukið eftirlit og kröfur
gerðar um sérstakar smitvarnir á
þjálfunarstöðinni sem í hlut átti. Eng-
inn hestur mátti fara frá stöðinni án
samþykkis héraðsdýralæknis og gilti
sú ráðstöfun í að minnsta kosti fjórar
vikur eða þar til hægt var að staðfesta
að smit hefði ekki borist í hestana.
Farbanni verður aflétt af hrossunum
Ekki borið á neinu óeðlilegu hjá
hrossunum, að sögn dýralæknis
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Smitvarnir Farbanni aflétt.
Færeysk stjórnvöld hafa hafnað til-
boði sem Maria Damanaki, sjávar-
útvegsstjóri Evrópusambandsins,
lagði fram í síðustu viku til lausnar
makríldeilunni í heimsókn sinni til
Færeyja. Fram kemur á fréttavefn-
um Portal.fo að greint hafi verið frá
því í fjölmiðlum að Damanaki hafi
boðið Færeyingum 11,9% makríl-
kvótans sem er það sama og hún
mun hafa boðið íslenskum stjórn-
völdum.
Fram kemur á fréttavefnum að
Jacob Vestergaard, sjávarútvegs-
ráðherra Færeyja, hafi krafist þess
að Færeyingar fengju stærri hlut-
deild en Íslendingar. Hann segir í
svarbréfi til Damanaki sem sent var
í gærkvöldi samkvæmt fréttinni að
hann geti ekki samþykkt lausn í
makríldeilunni sem þýði að Fær-
eyjar fái sömu framtíðarhlutdeild og
Ísland. Þá ítrekar hann fyrri kröfu
um að Færeyingar fái 15% makríl-
kvótans.
Þess má geta að Færeyingar hafa
áður hafnað því að fá sömu hlutdeild
og Íslendingar. Þá hermdu fréttir í
haust að Evrópusambandið ætlaði
að bjóða Færeyingum 12% makríl-
kvótans en Íslendingum 11,9%.
Færeyingar
höfnuðu til-
boði ESB
Vilja fá meira
en Íslendingar