Morgunblaðið - 17.12.2013, Page 10

Morgunblaðið - 17.12.2013, Page 10
10 DAGLEGT LÍFÚtivist og hreyfing MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBER 2013 Upplifðu4Gmeð iPhone5s Verð frá 6.790 kr. á mánuði* Vodafone Góð samskipti bæta lífið * Samkvæmt 18 mánaða raðgreiðslusamningi. Staðgreiðsluverð 109.990 kr. Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Þegar ég var að leggja ífyrstu atrennuna í ísklifr-inu sagði ég við krakkanasem voru með mér: „Ég gæti verið heima að horfa á Love actually, en nei, hér er ég í ísklifri, mér er kalt á tánum og ég er með kökk í hálsinum,“ segir Alfífa Ket- ilsdóttir, alltaf kölluð Fífa, en hún fór í jólaísklifursferð með Íslenska Alpaklúbbnum um liðna helgi og fannst það ekki sérlega auðvelt. Fífa á vini sem eru í ísklifri og þeg- ar henni var boðið með í jólaklif- ursferðina hafði hún enga afsökun til að segja nei. „Ég var ekki búin að plana að kaupa jólagjafir eða höggva jólatré og ég hafði fengið allar græjurnar að láni, svo ég gat ekki skýlt mér á bak við neitt og þá sagði ég bara já, enda vissi ég að ég yrði mjög hamingjusöm ef ég yrði úti allan daginn.“ Klifrið sjálft ekki hræðilegt Fífa segist hafa orðið frekar kvíðin við tilhugsunina, en þegar Jómfrúarferð Fífu í ísklifri tók nokkuð á Hún var ekki búin að plana að kaupa jólagjafir eða höggva jólatré og hafði fengið allar græjurnar að láni, svo hún hafði enga ástæðu til annars en segja já, þegar henni var boðið í ísklifursjólaferð um síðustu helgi. Erfiðast fannst henni að ganga upp brekkuna að fossunum, þar sem voru skriður, snjór yfir öllu og mjög hált. En þegar hún var komin í sigbeltið, með brodda á fótum og ísexi í hönd, var gaman. Til í slaginn Fífa komin með ísexi í hönd og allt klárt. Sundgreining er eitt af því sem fólk getur nýtt sér til að ná betri tökum á tækninni í skriðsungi. Þeir Jakob Jó- hann Sveinsson og Ólafur Marteins- son ætla að bjóða upp á sundgrein- ingu næsta laugardag 21. desember frá klukkan 14. Í sundgreiningunni er notast er við myndavélar undir og yf- ir vatnsyfirborði. Eftir nokkrar ferðir í lauginni er svo sest niður yfir mynd- bandinu og farið yfir tæknina og hvað má betur fara. Greiningin tekur um hálftíma og innifalið í verði er að- gangur að sundlauginni og USB-lykill með upptökunum á. Áhugasamir geta haft samband á tölvupóst- fangið: sundgreining@gmail.com eða sent skilaboð á Facebook-síðu Sund- greiningar: www.facebook.com/ sundgreiningar. Þeir félagarnir segja að í tilefni jólanna verði hægt að kaupa gjafabréf í sundgreiningu fyrir þá sem eiga allt nema fullkomna skriðsundstækni. Eftir stórhátíðirnar er fólk jú frekar áhugasamt um að taka sig á í hreyfingunni og þá gæti verið gaman að prófa skriðsundið, eitthvað sem allir kunna en vilja kannski bæta sig. Vefsíðan www.facebook.com/sundgreiningar Morgunblaðið/Golli Skriðsund Anton Sveinn McKee sló nýlega Íslandsmet í 400 m skriðsundi. Sundgreining í skriðsundi Skátarnir senda gömlum félögum og velunnurum styrktarpinna skáta ár hvert og gefa þannig fjölda eldri skáta kost á að styðja við bakið á skátastarfi ungmenna í landinu. Skátafélög landsins eru að taka í notkun nýja skátadagskrá sem gerir skátastarfið bæði öflugra og skemmtilegra og eykur möguleika til að koma á fót skátastarfi enn víðar en nú er. Góðar undirtektir við sölu styrkt- arpinnans síðustu daga gefa okkur von um að hægt verði að gera sér- stakt átak til þess að efla skáta- starf á landsbyggðinni og stofna ný skátafélög eða skátasveitir á þeim fjölda staða þar sem ekkert skáta- starf er í dag. Með þessum stuðningi vonast skátarnir til að geta veitt börnum og ungmennum víða um land tæki- færi til að taka þátt í skátastarfi og bjóða upp á vandaða þjálfun fyrir leiðtoga og skátaforingja til þess að leiða það starf. ,,Það er virkilega gaman að sjá hve margir hugsa ennþá hlýtt til skátanna, borga pinnann og bera hann stoltir,“ segir Hermann Sig- urðsson, framkvæmdastjóri skát- anna. Sala á styrktarpinnum til að efla skátastarf um allt land Margir hugsa hlýtt til skátanna Kátir skátar Það er heldur betur skemmtilegt að vera í skátunum. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.