Morgunblaðið - 17.12.2013, Page 12
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Nokkur einkafyrirtæki og sveitar-
félög vinna nú í sameiningu að hag-
kvæmnisathugun á háhraðalest frá
Keflavíkurflugvelli til Reykjavíkur.
Fyrsta áfanga, eða frumkönnun,
verkefnisins er lokið og hefur fyrir-
tækið Ráðgjöf og verkefnastjórnun,
undir forystu Runólfs Ágústssonar,
forgöngu um 2.
áfanga athugunar-
innar. Lýkur hon-
um með birtingu
skýrslu um verk-
efnið í lok janúar.
Að sögn Run-
ólfs áttu Reitir
fasteignafélag
frumkvæðið að
málinu.
„Við skiluðum
þeim frumskýrslu
í lok október. Niðurstöðurnar voru
það jákvæðar að menn ákváðu að
skoða þetta frekar, að fá fleiri að mál-
inu. Þetta mál er núna drifið áfram af
fjórum fyrirtækjum: Reitum, fyrir-
tækjasviði Landsbankans, Eflu og Ís-
taki, ásamt Reykjavíkurborg og Sam-
bandi sveitarfélaga á Suðurnesjum,
Isavia og Kadeco – Þróunarfélagi
Keflavíkurflugvallar.
Síðan höfum við kynnt þetta fyrir
nágrannasveitarfélögunum og fengið
góðar viðtökur ásamt Vegamála-
stjóra og fleiri aðilum. Einnig er
fyrirhugaður fundur með innan-
ríkisráðherra um málið. Við erum á
kafi í þessari vinnu núna, mönnum
fannst rétt að reikna sig í gegnum
þetta og svo kemur í ljós í janúar
hvort það er eitthvert vit í þessu eða
ekki. Það liggur fyrir mjög gróf
kostnaðaráætlun vegna framkvæmd-
arinnar upp á 106 milljarða en nú er
verið að reikna rekstrarkostnaðinn.
Þegar þessir tvær þættir eru komnir
saman er hægt að fara að skoða hvort
það er eitthvað vit í arðseminni í
einkaframkvæmd.“
Á skipulagi hjá Reykjanesbæ
„Sú leið sem við erum að skoða
núna sem valkost A er um 47 km leið
frá Leifsstöð og að endastöð í mið-
borg Reykjavíkur. Lestarleið er á
skipulagi hjá Reykjanesbæ, sem hef-
ur sýnt mikla framsýni í þeim málum.
Það er tiltölulega einföld leið frá flug-
stöðinni út fyrir bæjarmörk Reykja-
nesbæjar og að Hafnarfirði. Leiðin
snýst um að lágmarka umhverfis-
röskun með því að leggja hana sam-
síða til að mynda Reykjanesbraut eða
annarri sambærilegri leið. Þessi hluti
leiðarinnar er mjög þægilegur út frá
lestarsamgöngum, þ.e.a.s. þetta er
tiltölulega slétt og að mestu leyti
óbyggt land.
Þegar kemur til Hafnarfjarðar
skapast hins vegar ýmis vandamál.
Þá eru tvær útfærslur mögulegar
ofanjarðar. Sú fyrri felst í að draga
verulega úr hraðanum niður í 80 km á
klst. Það myndi lengja ferðatímann
mikið. Sá kostur að fara með hraðlest
í gegnum byggð er ekki góður hvað
skipulag varðar. Lestir kljúfa byggð-
ina nánast í sundur.
Síðari kosturinn sem við erum að
skoða er að fara í göngum frá
Straumsvík og að endastöð. Það eru
nokkrar leiðir í skoðun og ekki tíma-
bært að nefna þær. Það eru fyrst og
fremst þrjár leiðir sem við höfum
skoðað. Það er auðvitað bein leið und-
ir sjóinn eða undir flóana. Hún er
styst en henni fylgir hætta á leka.
Síðan eru mögulegar leiðir með-
fram landinu. Það eru ákveðin tæki-
færi í því fólgin að geta lagt göng
þannig að þau gætu nýst sem stofn-
kerfi fyrir almenningssamgöngur á
höfuðborgarsvæðinu til að mynda
með línu undir Strandgötuna í
Hafnarfirði, miðbæ Garðabæjar og
Hamraborgina í Kópavogi, svo eitt-
hvað sé nefnt. Umferðarásinn
Reykjavík/Hafnarfjörður er mjög
þungur. Eitt er hvað er tæknilega
hægt og annað hvað er hagkvæmt.
Það er tæknilega mögulegt að ná
ferðatíma frá Keflavíkurflugvelli í
Vatnsmýri niður undir 15 mínútur.
Það eru hins vegar tengsl milli hraða
og kostnaðar og eitt af því sem er ver-
ið að skoða er hvar sá skurðpunktur
liggur,“ segir Runólfur en ef lestin
færi 47 km leið á 15 mínútum væri
meðalhraðinn 188 kílómetrar á
klukkustund.
Horft til fjölgunar ferðamanna
– Af hverju ætti lest að borga sig
þegar flugrútan getur flutt fólk?
„Það er framundan og hefur verið
mikil fjölgun á erlendum ferðamönn-
um til og frá landinu. Þessi sam-
göngumáti þekkist auðvitað víða í
kringum okkur. Margir ferðamenn
sem koma á alþjóðaflugvelli vilja
komast sem fyrst í miðborg. Núver-
andi ferðatími er tæp klukkustund.
Það eru auðvitað verðmæti í því fólg-
in að vera 15-20 mínútur í lest í stað-
inn fyrir að sitja klukkutíma í rútu.
Við þetta má bæta að framkvæmd
sem þessi yrði afar þýðingarmikil fyr-
ir Suðurnes og myndi tengja
suðvesturhornið saman sem eitt
atvinnusvæði. Þá myndi slíkt einnig
skapa veruleg sóknarfæri fyrir innan-
landsflugið með styttri tengitíma
milli innan- og millilandaflugs.“
Háhraðalest fari í jarðgöng
Hugmyndir um nokkurra kílómetra jarðgöng frá Straumsvík í Vatnsmýri eða á Kringlusvæðið
Háhraðalest gæti flutt farþega frá Keflavíkurflugvelli til miðborgar Reykjavíkur á um 20 mínútum
AFP
TGV-háhraðalest Úr innanrými fyrstu háhraðalestarinnar milli Frakklands og Spánar. Hún var vígð í vikunni.
Hraðlest milli Keflavíkurflugvallar
og Reykjavíkur*
Leiðin yrði um 40-50 km eftir útfærslu og ferðatíminn 20 mín.
Grunnkort/Loftmyndir ehf.
Straumsvík
Gangamunni
Valkostur 1:
Endastöð
Vatnsmýri
Lest gengur
neðanjarðar
Valkostur 2:
Endastöð
Kringlan
Hafnarfjörður
Álftanes
Garðabær
Kópavogur
Reykjavík
*Dæmi um hvernig leiðin gæti litið út samkvæmt grófri lýsingu aðstandenda verkefnisins.
Lest gengur ofanjarðar
Keflavíkurflugvöllur
Reykjavík
Runólfur
Ágústsson
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBER 2013
Guðjón Auð-
unsson, forstjóri
Reita – fasteigna-
félags, sem er
stærsta félagið
sinnar tegundar á
markaðnum, seg-
ir félagið hafa
ákveðnum skyld-
um að gegna
varðandi hugmyndavinnu um
framtíðarskipulag byggðar. Með
því að stuðla að hagkvæmnis-
athugun á háhraðalest leggi fé-
lagið lóð á þær vogarskálar.
„Það er ekki gefið að slík
endastöð verði í Vatnsmýri. Á
hún að vera í Kringlunni á svæði
sem Reitir eru stórir eigendur
að? Auðvitað myndi umferð
gesta í Kringluna aukast mikið.
Þá eru ónefnd óbein áhrif á virði
nýrra eigna ef það yrði byggt
hótel eða skrifstofubyggingar
með góðu aðgengi að slíkum
samgöngum … Ef það væri ger-
legt að komast milli Keflavíkur
og Reykjavíkur á 15 og 20 mín-
útum eru engar rekstrarlegar
eða pólitískar forsendur fyrir því
að halda úti rekstri á innanlands-
flugvelli í Reykjavík. Hann færi
þaðan og yrði hugsanlega sér-
stök innanlandsflugstöð á Kefla-
víkurflugvelli,“ segir Guðjón.
Reykjavíkur-
flugvöllur færi
ÁHRIF LESTAR YRÐU MIKIL
Guðjón
Auðunsson
VIRB Elite
Hasarmyndavél
Innbyggður skjár, 2000mAh
rafhlaða, 16Mp myndflaga,
GPS skráir hraða og hæð, WiFi
tenging við síma og margt annað
setur Garmin hasarmyndavélarnar
í sérflokk.
VIRB FRÁ
54.900
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
Forerunner 620
Hlaupaúr
Hvíldartími, súrefnisupptaka,
skrefafjöldi, skreftími og
sendir þráðlaust á Garmin
Connect með WiFi.
HLAUPAÚR FRÁ
23.900
Monterra
Útivistartæki
Android, Vídeó, FM útvarp,
netvafri, tölvupóstur, myndavél
og margt annað spennandi.
ÚTIVISTARTÆKI FRÁ
29.900
Ögurhvarfi 2, 203 Kópavogi | S: 577 6000 | www.garmin.is | Opið kl. 10-18 fram að jólum. Kl. 10-12 á aðfangadag.