Morgunblaðið - 17.12.2013, Side 17

Morgunblaðið - 17.12.2013, Side 17
FRÉTTIR 17Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBER 2013 Halldór Gíslason arki- tekt og prófessor í hönnunarfræðum við KunstHögskolen í Ósló er látinn, 61 árs að aldri. Hann lést 8. desember eftir að hafa glímt við krabbamein frá 2011. Halldór lætur eftir sig eiginkonu og þrjú börn. Halldór fæddist í Reykjavík 25. ágúst 1952. Foreldrar hans voru Theodóra Thor- oddsen bankaútibús- stjóri og Gísli Hall- dórsson leikari. Halldór útskrifaðist með lokapróf í arkitektúr 1979 frá háskólanum í Portsmouth í Englandi og stundaði nám í heim- speki, listasögu og táknfræði við há- skólann í Bologna á Ítalíu 1979-1980. Hann nam heimspeki við Háskóla Ís- lands 1980-1982. Halldór var sjálf- stætt starfandi arkitekt í Reykjavík til 1993 og stofnaði arkitekta- vinnustofuna Glámu með félögum sínum og rak hana allt þar til hann flutti til Englands og starfaði sem lektor í arkitektúr við Háskólann í Portsmouth. Halldór varð fyrsti deildarforseti hönnunar- og arkitektúrdeildar Listaháskóla Íslands árið 2001 en hann hafði leitt undir- búningsvinnu að stofn- un hennar. Halldór varð deildarforseti hönnunardeildar Kuns- högskolen í Ósló frá 2005 til 2010. Frá 2010 gegndi Halldór starfi prófessors í hönn- unarfræðum við sama skóla, allt til dauða- dags. Hann undirbjó og mótaði með Sóleyju Stefánsdóttur eig- inkonu sinni uppbygg- ingu hönnunarnáms á háskólastigi í Mósam- bík. Saman skrifuðu Halldór og Sóley ritið „Hönnun – auðlind til framtíðar“ en ritið greinir frá stöðu og þróun hönnunar í nútímanum og bendir á þá möguleika sem greinin býr yfir í breyttum heimi einkum frá sjón- arhóli sjálfbærni. Halldór var for- maður Cirrus-samtakanna (samtök hönnunarháskóla á Norður- og Eystrasaltslöndunum) í sjö ár. Hann var virkur í fjölda félagasamtaka, m.a. Jöklarannsóknafélaginu og Bif- reiðaíþróttaklúbbi Reykjavíkur. Útför Halldórs fer fram frá Dóm- kirkjunni fimmtudaginn 19. desem- ber kl. 13.00. Andlát Halldór Gíslason Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is „Ég sat og var að velta því fyrir mér hvort að ég gæti ekki gert eitthvað til að hjálpa,“ segir Styrmir Barkar- son, kennari í Reykjanesbæ, sem hefur undanfarna daga staðið fyrir söfnun til þess að gera jólasvein- unum okkar kleift að gefa þeim börnum, sem tilheyra fátækum fjöl- skyldum, í skóinn. Hann hefði hugsað mikið um hvað hann gæti gert til að gera tilveru þeirra sem eru í erfiðleikum eilítið betri. „Og ég komst að því að þó að ég gæti ekki gert allt, gæti ég þó reynt að milda höggið, þannig að þó að foreldrar barnanna væru að glíma við fjárhagsvandræði og lífið virtist vera grátt og erfitt, gætu þau samt borið höfuðið hátt í skólanum,“ segir Styrmir. Frábærar undirtektir Fyrsta daginn sem Styrmir stóð fyrir söfnuninni komu 15.000 krónur í hús. „Það kom aðallega frá fólki sem þekkir mig,“ segir Styrmir. Hann varð mjög glaður við að sjá það. „Mér fannst ég hafa lagt það sem ég gat af mörkum til samfélagsins, og rauk beint í bæinn, keypti fimm sett af pökkum og fór með þá í Keflavíkurkirkju,“ segir Styrmir, en kirkjan liðsinnir jólasveinunum í að útdeila gjöfunum á rétta staði. „Svo þegar ég kíkti aftur í heimabankann minn daginn eftir hafði upphæðin tí- faldast,“ segir Styrmir. Styrmir áætlar að í heildina hafi verið lagðar til 300.000 krónur í söfnunina. Sú upphæð hefur meðal annars dugað fyrir 79 pokum af gjöfum, sem Styrmir hefur afhent Keflavíkurkirkju. Í heildina eru það um eitt þúsund litlar gjafir, og segir Styrmir að hann hafi einnig fengið gefins gjafir frá fólki auk peninga, sem fari þá líka í söfnunina. „Úr þessu gat ég útvegað gjafir í skóinn, gjafir fyrir litlu jólin og líka jólagjafir,“ segir Styrmir. „Það er nefnilega mikið af börnum sem fá engar jólagjafir, nema með aðstoð okkar.“ Styrmir bætir við að sumar af litlu gjöfunum verði þá hugsan- lega jólagjafir. „Það er svo skemmti- legt að fá að opna marga pakka, og þó að það sé til dæmis bara litakrít eða eitthvað smálegt, þá er það frá- bær gjöf.“ Ekki bara gjafir í skóinn Þar með er þó ekki öll sagan sögð, því að söfnunin hefur einnig hjálpað börnunum að koma með eitthvert góðgæti þá daga sem frjálst nesti er í skólanum. „Þetta er hlutur sem okkur fullorðna fólkinu finnst ekkert mál, en fyrir börnin er þetta stór- mál,“ segir Styrmir. Hann er þegar byrjaður að hugsa næstu skref. „Allt frá því að ég var barn hefur mér þótt fátt jólalegra en mandarínur, en það hafa ekki allir efni á þeim, þannig að ætli ég fari ekki næst og reyni að útvega nokkra kassa.“ Styrmir segir að nokkur fyrirtæki hafi hjálpað til við söfnunina. Sam- bíóin hafi til dæmis gefið bíómiða og Forlagið hafi gefið kassa af bókum. Þá hafi fleiri komið að málum, eins og Penninn í Reykjanesbæ og Diplo ehf. sem gaf þrjú hundruð gjafir í söfnunina. „Það eru allir að hjálpast að við þetta, það er það sem er svo frábært.“ Enn hægt að taka þátt „Ég er enn að safna fyrir jólagjöf- um, þær skipta hundruðum sem þarf,“ segir Styrmir og bætir við að áhugasamir geti nálgast reiknings- upplýsingar fyrir söfnunina á face- book-síðu hans. Bókhaldið er opið, svo að þeir velunnarar sem óska geta fengið að sjá. „Ég tók það fram, því að mér finnst það svo magnað að fólk sem ég hef aldrei hitt á ævinni treysti mér til þess að fara með pen- ingana sína. Þannig að þetta er það minnsta sem ég get gert á móti.“ – En getur þessi söfnun ekki talist vera jólakraftaverk? „Ég myndi ekki kalla þetta kraftaverk, því að þetta er ekkert yfirnáttúrulegt. Þetta er allt það sem er svo mannlegt í okkur, að hugsa um hvert annað. Þetta er því falleg jólasaga um það hvað við er- um öll yndisleg,“ segir Styrmir að lokum. Hlaupið undir bagga með jólasveinunum  Um 300.000 krónur hafa safnast fyrir fátæk börn Morgunblaðið/Árni Sæberg Gefðu mér gott í skóinn Jólasveinarnir koma víða við á ferðum sínum. Safnast hafa 300.000 kr. í Reykjanesbæ til að sveinarnir geti gefið öllum. Fjölskipaður héraðsdómur hefur komist að þeirri niðurstöðu að Garðabæ beri að greiða eiganda fasteignar í bænum 35 milljónir í skaðabætur vegna skemmda á fast- eigninni sem raktar eru til fram- kvæmda bæjarins þar í grennd. Þá var bænum gert að greiða rúmar tvær milljónir króna í málskostnað. Um er að ræða hús við Goðatún í Garðabæ. Það var byggt árið 1955 á steyptri botnplötu og sökklum sem ekki eru grundaðir niður á klöpp, á þekktu mýrarsvæði í Garðabæ. Í lok júní 2008 réðst Garðabær í endurnýjun götunnar Silfurtúns, sem liggur við Goðatún, og var meðal annars grafið upp úr götunni, lagnir endurnýjaðar og komið fyrir gangstéttum. Var ráð- ist í þessar framkvæmdir í kjölfar lagningar nýs safnræsis í vest- anverðu Silfurtúni. Þrjár matsgerðir voru lagðar fram og í þeirri sem dómendur töldu grundvallargagn segir að við framkvæmdirnar 2008 hafi tæplega þriggja metra djúpur skurður verið grafinn niður í mýrlendið um tíu metra frá húsinu. Framkvæmdir hafi óneitanlega haft áhrif á grunn- vatnsstöðu næsta nágrennis og því viðbúið að hús sem reist sé á sökkli, sem flýtur á mýrlendi, taki að síga. Dómurinn féllst á það með eig- anda hússins að Garðabær hefði ekki kannað ástand svæðisins nægi- lega áður en ráðist var í fram- kvæmdirnar. Upplýst og alkunna hefði verið að hverfið væri byggt í mýri og Garðabæ mátti því vera ljóst að gæta þyrfti varúðar. Garðabær greiði 35 milljónir í bætur Skeifunni 10, Reykjavík Hafnarstræti 91-93, Akureyri Hafnarstræti 2, Ísafirði Sími 540 2330 husgogn@penninn.is www.penninn.isHúsgögn DSW

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.