Morgunblaðið - 17.12.2013, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 17.12.2013, Qupperneq 20
20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBER 2013 BAKSVIÐ Rúnar Pálmason runarp@mbl.is Ef iðnaðar- og viðskiptaráðherra veitir Landsneti heimild til að taka land eignarnámi gætu framkvæmdir við Suðurnesja- línu 2 hafist sum- arið 2014 og línan risið árið 2015. Von er á úrskurði ráðherra á fyrri hluta næsta árs. Landsnet hef- ur samið við 129 af 144 landeig- endum sem eiga um 75% lands á leið línunnar. Ekki hafa náðst samningar við eig- endur þriggja jarða og hluta af eig- endahópi þriggja jarða til viðbótar, samtals 15 eigendur, samkvæmt upplýsingum frá Landsneti. Rétt er að taka fram að ekki er verið að taka jarðirnar eignarnámi, einungis rétt- inn til að fara með línuna um svæðið. Nú þegar nemur kostnaður Landsnets vegna samninga við land- eigendur um 150 milljónum króna. Suðurnesjalína 2 verður 32,4 km löng og mun að mestu liggja sam- síða Suðurnesjalínu 1, þ.e. frá Hafn- arfirði að Rauðamel, sunnan Njarð- víkur. Nýja línan verður með 220 kV spennu og er áætlað að heildar- kostnaður við hana nemi 2,2 millj- örðum króna. Taka tillit til pólitískrar stefnu Línulögnin hefur verið umdeild og hafa andstæðingar hennar lýst yfir miklum vonbrigðum með ákvörðun Orkustofnunar 5. desem- ber sl. um að veita Landsneti leyfi fyrir framkvæmdinni. Það var mat Orkustofnunar að af- hendingaröryggi á Suðurnesjum yrði ekki aukið nema með því að tengja Suðurnesin með annarri línu en þeirri sem er fyrir. Deilan um lín- una snýst þó ekki um hvort þörf sé á nýrri línu heldur frekar um hversu burðarmikil línan á að vera; hvort hún eigi að geta borið 220 kV spennu eða hvort 132 kV spenna nægi og hvort hægt sé að leggja hana í jörðu. Til að byrja með verður Suður- nesjalína 2 rekin á 132 kV spennu og slík lína myndi duga lengi, ef ekki stæði til að reisa virkjanir og álver á Suðurnesjum. Orkustofnun tekur í ákvörðun sinni frá 5. desember fram að taka þurfi tillit til langtímasjónarmiða við línulagnir. „Þó að ekki sé fyrirséð að þörf sé fyrir alla þá flutningsgetu sem felst í Suðurnesjalínu 2, þ.e. 220 kV loftlínu, á allra næstu árum nema til komi orkufrekur iðnaður, ber að hafa í huga að slíkur orku- frekur iðnaður hefur verið pólitískt stefnumarkaður til atvinnuuppbygg- ingar á Suðurnesjum af þar til bær- um stjórnvöldum auk aukinnar orkuframleiðslu á Reykjanesi sam- kvæmt rammaáætlun,“ segir í ákvörðun Orkustofnunar. Þórður Guðmundsson, forstjóri Landsnets segir að verði ekki af orkufrekum iðnaði suður með sjó verði hægt að reka línuna lengi á 132 kV en um árafjöldann sé ekki hægt að segja. „Það getur í sjálfu sér verið ansi lengi. Það ræðst af því hvernig mál þróast. Stefna Landsnets hefur allt- af verið sú að byggja færri línur með meiri flutningsgetu til að ekki þurfi að byggja fleiri línur en nauð- synlegt er,“ sagði hann í samtali við Morgunblaðið. Um leið væri mikil- vægt að hafa hugfast að öll mann- virki í flutningskerfinu væru byggð til að sinna hlutverki sínu, fyrir alla raforkukaupendur, um áratuga skeið. Í gögnum sem Landsnet lagði fram hjá Orkustofnun er minnt á að samkvæmt rammaáætlun séu á Reykjanesi virkjanakostir með 280 MW uppsett afl sem falla í nýting- arflokk og virkjunarkostir með 100 MW uppsett afl í biðflokki, auk nú- verandi virkjana sem eru með 175 MW afl. „Landsnet verður í áætl- unum sínum að gera ráð fyrir að þessir kostir komi til framkvæmda í framtíðinni og í ljósi langrar end- ingar háspennulína og óverulegs kostnaðarmunar á 132 kV og 220 kV er skynsamlegt að byggja 220 kV línu,“ segir í ákvörðun Orkustofn- unar. Óhagkvæmari hér á landi Landsnet benti fyrir sitt leyti á að ekki væri hægt að gera kröfu um að fyrirtækið leggi fram fullnægjandi og raunhæfan samanburð á lagn- ingu loftlína og jarðstrengja. Ekkert í löggjöf eða aðstæðum að öðru leyti krefjist þess að slíkt liggi fyrir. „Þá er vandséð hvaða tilgangi það þjóni að gera grein fyrir kostnaði við lagningu 132 kV línu í jörð þegar fyrir liggur að slík framkvæmd myndi ekki uppfylla markmið um framtíðarflutningsgetu,“ segir í gögnum Landsnets. Orkustofnun féllst á rök Lands- nets. Um jarðstreng segir Orku- stofnun að hagkvæmni jarðstrengs á Íslandi út frá endingarkostnaði virðist ekki jafn mikil og í öðrum Evrópulöndum, þar sem orkuverð á Íslandi væri lágt en vaxtastig hátt. Þá hefðu útreikningar jarð- strengjanefndar frá janúar á þessu ári staðfest að verulegur kostn- aðarmunur væri á jarðstrengjum og loftlínum með 220 kV spennu. Greiða 150 milljónir vegna lands  Landsnet fær leyfi til að reisa Suðurnesjalínu 2 fyrir 220 kV  Reka línuna á 132 kV til að byrja með  Orkustofnun bendir á að pólitísk stefnumótun geri ráð fyrir orkufrekum iðnaði og virkjunum Heimild: Landsnet 50 m 132 kV - SN1 Stálröramastur, stagað 220 kV - SN2 Stálröramastur, stagað Suðurnesjalína 2 Lengd: 32,4 km Spenna: 220 kV Kostnaður: 2,2 milljarðar Munur á 132 kV og 220 kV línu Kostnaður á km vegna 132 kV línu 41milljón Kostnaður á km vegna 220 kV línu 59milljónir Landsnet með leyfi Orkustofnunar fyrir Suðurnesjalínu 2 220 kV lína er 44%dýrari en 132 kV lína Meðalhæð: 16,5 m Meðalhæð: 23 m Þórður Guðmundsson Helena Mjöll Jóhannsdóttir, formaður Náttúruverndar- samtaka Suðvesturlands, seg- ir líklegt að samtökin kæri niðurstöðu Orkustofnunar til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Um það hafi þó ekki verið tekin endanleg ákvörðun. Náttúruverndarsamtök Suð- vesturlands og landeigendur sem ekki vilja fá línuna um land sitt hafa mótmælt áformum Landsnets um Suð- urnesjalínu 2 harðlega. Náttúruverndarsamtökin hafa m.a. bent á að sjónræn áhrif hafi verið verulega vanmetin og að ekki sé þörf á 220 kV línu, enda fullnægi 132 kV lína kröfum um afhendingaröryggi til almennings. Þá krefjast samtökin þess að línan verði lögð í jörðu og hafa gagnrýnt Landsnet fyrir að meta ekki kostnaðinn við lagningu 132 kV strengs, enda sé í raun ekki þörf fyrir burðarmeiri línu. Í yfirlýsingu sem Nátt- úruverndarsamtökin sendu frá sér um helgina segir að Orku- stofnun hafi ekki sinnt eftir- litshlutverki sínu og látið Landsnet mata sig á upplýs- ingum sem henti markmiðum fyrirtækisins. Stofnunin hafi m.a. það hlutverk að gæta þess að ekki séu reist flutn- ingsmannvirki sem ekki sé þörf á. Stofnunin hafi ekki lagt sjálfstætt mat á þörfina og þar með hafi hún ekki sinnt lögbundnu eftirlits- hlutverki sínu. Brugðist hlutverki sínu GAGNRÝNA ORKUSTOFNUN HEYRNARSTÖ‹IN Þjónusta Heyrnarstöðvarinnar gengur út á aukin lífsgæði. Við bjóðum ókeypis heyrnarmælingu, hágæða heyrnartæki og margvíslega sérfræðiþjónustu og ráðgjöf. Kynntu þér þjónustu okkar á heyrnarstodin.is og vertu í sambandi. Við tökum vel á móti þér. Heyrumst. Kringlunni • Sími 568 7777 • heyrnarstodin.is Kletthálsi Reykjavík Reykjanesbæ Akureyri Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is Bráðum koma blessuð jólin... 14cm 4 stk. 695 Jólatré 120 cm 750 Einnig til 150 cm 1.250 7cm 12 stk. 498 10cm 6 stk. 290 Margir litir 10cm 6 stk. 390 Margir litir 10cm 6 stk. 290 Margir litir Jólakrans 30 cm 295 ALLAR JÓLAKÚLUR =ÞRÍR FYRIR EINN Þú tekur 3 pakka og greiðir fyrir 1

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.