Morgunblaðið - 17.12.2013, Blaðsíða 31
Umræðan
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBER 2013
www.forlagid.is – alvöru bókaverslun á netinu
HÁRBEITT
SKEMMTISAGA
„Ný Íslendingasaga.
Launfyndin og víða
sprenghlægileg
samfélagsskoðun, uppfull
af gæsku og gamansemi ...“
PÁLL BALDVIN
BALDVINSSON
HHHH
FRÁSAGNARGLEÐI,
NÆMI, GRÁGLETTNI.
„SÖGUSVIÐIÐ ER
HLÍÐARDALUR
... DALURINN ER
UNDARLEGA LÍKUR
FLJÓTSHLÍÐINNI.“
SKAFTI Þ. HALLDÓRSSON /
MORGUNBLAÐIÐ
Eftir að ákveðið var
að loka alla vetrar-
mánuðina veginum
milli Skriðdals- og
Berufjarðar, sem er í
530 m hæð á ill-
viðrasömu og snjó-
þungu svæði, hníga öll
rök að því að fram-
kvæmdir við tvíbreið
Norðfjarðargöng eigi
fullan rétt á sér og við
Dýrafjarðargöng 2014.
Á meðan fyrirhuguð veggöng norð-
an Reyðarfjarðar og á Vestfjörðum
hafa forgang skiptir líka miklu máli
að undirbúningsrannsóknum á
jarðgangagerð milli Seyðisfjarðar
og Egilsstaða verði flýtt vegna
hafnaraðstöðunnar fyrir Norrænu
og fiskflutninganna yfir Fjarðar-
heiði eftir að Alþingi samþykkti á
síðasta ári tillögu Arnbjargar
Sveinsdóttur. Það snýst um að við-
komustaður ferjunnar fái allt árið
um kring öruggari vegasamgöngur
við Egilsstaðaflugvöll og stóra
Fjórðungssjúkrahúsið í Neskaup-
stað eftir að Seyðfirðingar voru án
nokkurs tilefnis sviptir allri lög-
gæslu í þeim tilgangi að drukknir
ökumenn mættu fara eftirlitslaust
út í umferðina til að auka slysa-
hættuna. Jarðgöng undir Lónsheiði
verður líka að setja í samgöngu-
áætlun til þess að vegfarendur losni
endanlega við hætturnar á grjót-
hruni, aurskriðum og snjóflóðum
sem verða aldrei til friðs í Hvalnes-
og Þvottárskriðum. Þar hafa alltof
margir flutningabílstjórar og ferða-
menn hvað eftir annað lent í sjálf-
heldu án þess að þeir hafi verið
varaðir við þessum hættum. Í aust-
anverðum Berufjarðardal getur
sama vandamálið líka
komist í fréttirnar ef
ákveðið yrði að fara
með nýjan veg sem
Kristján Láru, þáver-
andi samgöngu-
ráðherra, lofaði Djúpa-
vogsbúum upp í bratta
fjallshlíðina fyrir neð-
an Miðhjalla og
Mannabeinahjalla. Þar
breytist slysahættan
ein og sér ekkert,
hvort sem þetta veg-
stæði í fjallshlíðinni
fyrir ofan Beitivelli
verður valið eða vegurinn í brekk-
unni upp Háuöldu yrði endur-
byggður alla leið að brúnni á
Hemru. Í næstu brekku fyrir ofan
sleppur nýi vegurinn aldrei við
mikla veðurhæð, grjóthrun, snjó-
dýpt og hálku sem fimmfaldar
slysahættuna. Þessi vegur, sem
sveitarstjórn Djúpavogs var lofað
fyrir sex árum, lendir áfram á ill-
viðrasömum og snjóþungum svæð-
um þar sem reynt er að komast
fram hjá Vagnabrekku, Hænu-
brekku, Háubrekku og Þrívörðu-
hálsi. Stuðningsmenn Axarvegar
vita ósköp vel að eltingaleikurinn
við snjólétt svæði í meira en 500 m
hæð á Öxi snýst fyrirvaralaust upp
í andhverfu sína þegar fárviðri
minnir óvænt á sig þvert á allar
veðurspár. Seint á síðasta ári bár-
ust fréttir af því að veðurhæð í
Hamarsfirði og á Öxi hefði náð 70
metrum á sekúndu. Yfirmenn
Vegagerðarinnar og fulltúar fjár-
veitingavaldsins voru í fullum rétti
þegar þeir settu hnefann í borðið
og tóku rétta ákvörðun um að veg-
inum á stystu leiðinni milli Beru-
fjarðar og Skriðdals yrði lokað alla
vetrarmánuðina til að forðast alltof
háan kostnað við samfelldan snjó-
mokstur. Spurningin er hvað það
kostar að senda út björgunarsveitir
til að leita að erlendum ferðamönn-
um sem geta sett sig í sjálfheldu án
þess að þekkja íslenskt veðurfar.
Sjálfgefið er það ekki að
björgunarsveitarmenn finni týnda
ferðamenn á illviðrasömum og snjó-
þungum svæðum í 500-600 m hæð
þegar erfitt er að treysta veð-
urspánum. Best væri fyrir sveit-
arstjórn Djúpavogs að svara því
fyrst hvort ekki sé skynsamlegra
að ljúka framkvæmdum við nýjan
veg og tvíbreiða brú í botni Beru-
fjarðar áður en röðin kemur að nýj-
um vegi um Öxi. Í Framkvæmda-
fréttum frá Vegagerðinni var því
slegið föstu 30. júní 2008 að ráðist
yrði í framkvæmdir við þennan veg
árið 2009 og að þeim yrði lokið
2011. Enn hefur ekkert gerst. Eng-
ar fréttir berast af því hvort útboð
vegarins sé í sjónmáli. Enginn veit
hver stefna þingmanna Norðaustur-
kjördæmis er í þessu máli. Auð-
veldara væri að minnka slysahætt-
una með því að skoða möguleika á
öðru vegstæði í 100-200 m hæð
undir Víðineshjalla í vestanverðum
Berufjarðardal í stað þess að fara
með þennan veg upp í bratta fjalls-
hlíðina fyrir ofan Beitivelli.
Ákveðum Lónsheiðargöng strax.
70 metra veðurhæð á Öxi
Eftir Guðmund
Karl Jónsson » Stuðningsmenn
Axarvegar vita
ósköp vel að eltingaleik-
urinn við snjólétt svæði
í meira en 500 m hæð á
Öxi snýst fyrirvaralaust
upp í andhverfu sína.
Guðmundur Karl
Jónsson
Höfundur er farandverkamaður.
HÁGÆÐA ÚTIVISTARÚR
SEM PASSA VEL Í PAKKA
Útsölustaðir:
ARC-TIC Iceland Laugavegi 18b, Gilbert úrsmiður Laugavegur 62,
Gullbúðin Bankastræti 6, Epal Harpa, Meba Kringlan/Smáralind,
Guðmundur Hannah Akranesi, Karl úrsmiður Selfossi og Bláa Lónið Grindavík.
www.arc-tic.com - www.facebook.com/ArcticIceland - info@arc-tic.com - Sími: 571 1177