Morgunblaðið - 17.12.2013, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 17.12.2013, Blaðsíða 43
ingar. Hann var bókavörður við Hér- aðsbókasafnið í Mosfellsbæ til 2000 en hefur síðan sinnt ritstörfum. Ritverk Jóns Kalmans Bækur Jóns: Með byssuleyfi á ei- lífðina, ljóðabók, 1988; Úr þotu- hreyflum guða, ljóðabók, 1989; Hún spurði hvað ég tæki með mér á eyði- eyju, ljóðabók 1993; Skurðir í rign- ingu, skáldsaga, 1996; Sumarið bak- við brekkuna, skáldsaga, 1997; Birtan á fjöllunum, skáldsaga, 1999; Ýmislegt um risafurur og tímann, skáldsaga, 2001; Snarkið í stjörn- unum, skáldsaga, 2003; Sumarljós, og svo kemur nóttin, skáldsaga, 2005; Himnaríki og helvíti, skáld- saga (trílógía), 2007; Harmur engl- anna, skáldsaga (trílógía), 2009; Hjarta mannsins, skáldsaga (trí- lógía), 2011, og Fiskarnir hafa enga fætur, skáldsaga, 2013. Þýðingar Jóns eru Charles Buk- owski, ljóð eftir Charles Bukowski, útg. 1996; Paradísareplin, níu smá- sögur eftir danska skáldið Martin A. Hansen, útg. 2000; Umskipting- urinn, Bortbytingen eftir Selmu Lagerlöf, útg. 2002; Loftskeytamað- urinn, skáldsagan Sværmere, eftir Knut Hamsun, útg. 2007; Undir vernd stjarna, ljóð átján skálda úr ýmsum heimshornum, útg. 2913. Verðlaun og viðurkenningar Verk Jóns hafa m.a. verið þýdd á þýsku, ensku og Norðurlandamál. Þrjár af bókum hans hafa verið til- nefndar til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs, 2001, 2004 og 2007. Hann hlaut Íslensku bók- menntaverðlaunin 2005 fyrir skáld- söguna Sumarljós, og svo kemur nóttin, og Hjarta mannsins var til- nefnd til Íslensku bókmenntaverð- launanna 2011. Þá fékk hann verð- laun Rithöfundasjóðs Ríkisútvarps- ins 2006, Bókmenntaverðlaun starfs- fólks bókaverslana fyrir Himnaríki og helvíti sem bestu skáldsögu árs- ins 2007, og Per Olov Enquist- bókmenntaverðlaunin í Svíþjóð fyrir Himnaríki og helvíti, 2011. Fjölskylda Kona Jóns Kalmans er María Kar- en Sigurðardóttir, f. 12.4. 1969, safn- stjóri Ljósmyndasafns Reykjavíkur. Hún er dóttir Sigurðar Vésteins- sonar, f. 28.1. 1944, fyrrv. starfs- manns Járnblendiverksmiðjunnar á Grundartanga, og Hafdísar Karvel- sdóttur, f. 6.2. 1946, sjúkraliða. Börn Jóns og Maríu eru Bekan Sigurður Kalmansson, f. 14.11. 1998, og Védís Kalmansdóttir, f. 16.6. 2003. Albróðir Jóns er Þráinn Stefáns- son, f. 29.11. 1961, símvirki og bú- fræðingur í Reykjavík. Hálfsystkini Jóns, samfeðra, eru Bergljót Sif Stefánsdóttir, f. 8.5. 1971, húsfreyja í Reykjavík, og Kristvin Stefánsson, f. 28.11. 1975, búsettur í Reykjanesbæ. Foreldrar Jóns voru Stefán Frí- mann Jónsson, f. 5.4. 1938, d. 27.3. 2011, múrari í Reykjavík, og Berg- ljót Kristín Þráinsdóttir, f. 28.11. 1938, d. 19.10. 1969, húsfreyja í Reykjavík. Úr frændgarði Jóns Kalmans Jón Kalman Stefánsson Sigurbjörg Helgadóttir húsfr. Hulda Einarsdóttir Markan húsfr. í Rvík Sveinbjörn Hannes Þráinn Sigfússon málari í Rvík Bergljót Kristín Þráinsdóttir húsfr. í Rvík Kristín Jónsdóttir húsfr. Sigfús Guðmundur Sveimbjörnsson prentari og fasteignasali í Rvík María Hallgrímsdóttir húsfr. á Steinnesi Sveinbjörn Sveinsson b. á Steinnesi í Mjóafirði Margrét Jóhanna Sveinbjörnsdóttir húsfr. í Nesi Jón Benjamínsson útvegsb. og skipstj. í Nesi í Norðfirði Stefán Frímann Jónsson múrari í Rvík Ólöf Stefánsdóttir húsfr. á Ímastöðum Gréta Sigfúsdóttir skáld og rithöfundur Einar Einarsson Markan söngvari og listam. í Rvík María Markan óperusöngkona Pétur Östlund tónlistarmaður Benjamín Jónsson b. á Ímastöðum í Vöðlavík Björn Jónsson b. á Ímastöðum Guðjón Björnsson rennismiður Réttarholti í Garði Þóranna Guðjónsdóttir húsfr. í Rvík Eiður Guðnason fyrrv. alþm., ráðherra og sendiherra Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Afmælisbarnið Jón Kalman. ÍSLENDINGAR 43 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBER 2013 Baldur fæddist í Köldukinn áÁsum 17.12. 1919, en ólstupp á Blönduósi og ná- grenni. Foreldrar hans voru Pálmi Jónsson, bóndi á Álfgeirsvöllum í Skagafirði, og Margrét Kristófers- dóttir, saumakona á Blönduósi og í Reykjavík. Baldur kvæntist 1950 Guðnýju Sesselju Óskarsdóttur, f. 1925, d. 1990, húsfreyju. Sambýliskona hans var síðan Guðrún A. Jónsdóttir, f. 1916, d. 2008. Hann var barnlaus og einbirni. Baldur lauk verslunarskólaprófi 1938. Hann var bókari hjá G. Helga- syni og Melsteð hf. 1939-45 og rit- stjóri Frjálsrar verslunar 1946-49. Baldur varð fulltrúi á skrifstofu útvarpsráðs 1947 og starfaði síðan við Ríkisútvarpið til 1981. Hann var lengst af fulltrúi í dagskrárdeild og dagskrárgerðarmaður en hann sá lengi um barnatíma Ríkisútvarpsins og síðan um kvöldvökur og bók- menntaþætti. Hann varð síðar vara- dagskrárstjóri og dagskrárstjóri Ríkisútvarpsins. Margir útvarpshlustendur sem komnir eru yfir miðjan aldur muna eflaust eftir upplestrum Baldurs úr nýútgefnum bókum fyrir jól. Hann var áhugamaður um skáldskap, fjallaði um ljóðagerð og tók saman ljóðaþætti. Þá sendi hann frá sér eft- irfarandi ljóðabækur: Hrafninn flýg- ur um aftaninn, útg. 1977; Björt mey og hrein, útg. 1979, og Á laufblaði einnar lilju (til minningar um föður hans, Pálma Jónasson), útg. 2000. Auk þess þýddi hann og orti söng- texta og þýddi m.a. Æskuminningar Alberts Schweitzers, læknis og trú- boða, 1965. Baldur sat í stjórn Versl- unarmannafélags Reykjavíkur,var fyrsti ritstjóri Ásgarðs, blaðs BSRB, söng í kór Hallgrímskirkju frá upp- hafi, 1941-87, söng allmörg ár í Tón- listarfélagskórnum, sat í stjórn beggja kóranna og var formaður Kirkjukórasambands Reykjavík- urprófastsdæmis. Hann var gjald- keri Skáksambands Íslands, formað- ur Starfsmannafélags Ríkisútvarps– ins og heiðursfélagi þess. Baldur lést 11.9. 2010. Merkir Íslendingar Baldur Pálmason 101 árs Elísabet Reykdal 90 ára Aðalbjörg Magnúsdóttir Jón Geirmundur Krist- insson 85 ára Bjarney Guðrún Ólafsdóttir Esther Jósefsdóttir 80 ára Einar Grétar Þórðarson Guðrún J. Valgeirsdóttir Inga Magnúsdóttir Svanhildur Guðmunds- dóttir 75 ára Eyþór Þórisson Finna Ellý Bottelet Magnús Bjarnason Sveinn Sigurgeir Guð- mundsson Valgerður Guðmundsdóttir Vífill M. Magnússon Þórður Þórðarson 70 ára Ásgeir Kristjánsson Bergljót Hermundsdóttir Katrín Eyjólfsdóttir Ragnar Thoroddsen Ragnheiður Brynjólfsdóttir Valgeir J. Rögnvaldsson 60 ára Anna Ólafsdóttir Ásdís Þórarinsdóttir Guðrún Jónsdóttir Rakel Pétursdóttir Sigrún Sigríðardóttir Þórður Guðni Sigurvinsson 50 ára Bryndís Erlingsdóttir Elín Dóra Elíasdóttir Erla Lárusdóttir Hugrún Jónsdóttir Jóhann Hjaltason Katrín Guðbjartsdóttir Kjartan Þór Guðmundsson Libor Pechmann Matthildur Birgisdóttir Ólafur Þór Guðjónsson Petrína Hallgrímsdóttir Steindór Valur Reykdal Þóra Árnadóttir 40 ára Alma Sigríður Gylfadóttir Carla Suzanne Evans Heimir Líndal Sveinsson Helga Þórdís Jónsdóttir Hlöðver Helgi Sigurðsson Óskar Júlíus Bjarnason Óskar Rúnar Harðarson Páll Erlingsson Sólveig Hrönn Gunnarsdóttir 30 ára Davíð Jóhannsson Freyja Þórsdóttir Gunnar Ingiberg Guð- mundsson Hai Anh Thi Nguyen Helga Hrönn Gunnarsdóttir Ingunn Ósk Árnadóttir Íris H. Klein Til hamingju með daginn 30 ára Herdís ólst upp á Dalvík og stundar nú nám í lögfræði við HÍ. Maki: Brynjar Smári Þor- geirsson, f. 1972, fram- kvæmdastjóri. Stjúpbörn: Alexander, f. 1993; Halla Margrét, f. 2004, og Harpa Lind, f. 2006. Foreldrar: Brynjar Að- alsteinsson, f. 1959, bif- vélavirki, og Guðrún Hrönn Tómasdóttir, f. 1962, starfsm. á leikskóla. Herdís Björk Brynjarsdóttir 40 ára Kristján ólst upp á Vopnafirði, er þar búsett- ur og starfar við uppsjáv- arfrystingu hjá H.B. Granda á Vopnafirði. Maki: Elísa Joensen, f. 1977, starfsmaður við frystihúsið. Börn: Almar Logi, f. 1998, og Ásta Ísfold, f. 2000. Foreldrar: Guðjón Jós- efsson, f. 1946, og Ísfold Helga Kristjánsdóttir, f. 1953, bændur í Strand- höfn. Kristján Eggert Guðjónsson 40 ára Linda ólst upp á Ólafsfirði, er búsett á Ak- ureyri og er iðþjálfi frá Heilsuháskólanum í Jön- köping í Svþjóð. Maki: Arnar Friðriksson, f. 1974, starfsm. hjá Nor- landair. Börn: Tinna, f. 1999; Bjarki, f. 2002, og Emma, f. 2007. Foreldrar: Hulda Gerður Jónsdóttir, f. 1948,og Að- alsteinn Gunnar Frið- þjófsson, f. 1941. Linda Aðalsteinsdóttir Hægt er að senda mynd og texta af nýjum borgara eða brúðhjónum af slóðinni mbl.is/islendingar eða á netfangið islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón Keilulegur Flans- og búkkalegur Hjólalegusett Nála- og línulegur LEGUR Í BÍLA OG TÆKI www.falkinn.is Það borgar sig að nota það besta! th or ri@ 12 og 3. is /3 1. 31 3 TRAUSTAR VÖRUR ...sem þola álagiðKúlu- ogrúllulegur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.