Morgunblaðið - 17.12.2013, Síða 52
ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBER 351. DAGUR ÁRSINS 2013
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
1. Ásdís Rán breytir um stíl
2. Interpol leitar til almennings
3. Ekkja skömmu eftir brúðkaupið
4. Samtals 426 milljóna gjaldþrot
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Myndlistarmaðurinn Ragnar Kjart-
ansson er einn tíu myndlistarmanna
frá átta löndum sem eru tilnefndir til
hinna virtu bresku myndlistar-
verðlauna Artes Mundi. Listamenn-
irnir tíu, þar af eitt tvíeyki, voru vald-
ir úr hópi 800 tilnefndra frá 70
löndum og er þetta því mikil upphefð
fyrir Ragnar. Hinir listamennirnir sem
komust á stuttlista tilnefndra eru
Carlos Bunga frá Portúgal, Karen
Mirza og Brad Butler frá Englandi,
Omer Fast frá Ísrael, Theaster Gates
frá Bandaríkjunum, Sanja Ivekoviæ
frá Króatíu, Sharon Lockhart frá
Bandaríkjunum, Renata Lucas frá
Brasilíu og Renzo Martens frá Hol-
landi. Verðlaunin eru veitt á tveggja
ára fresti og verður sýning á verkum
hinna tilnefndu opnuð í National
Museum of Art í Cardiff hinn 25.
október á næsta ári og stendur hún
fram í febrúar 2015. Verðlaunin verða
afhent 22. janúar 2015 og fær verð-
launahafi 40.000 sterlingspund,
jafnvirði um 7,6 milljóna króna.
Morgunblaðið/Eggert
Ragnar tilnefndur
til Artes Mundi
Íslensk-
austurríski kvik-
myndatökumað-
urinn Birgit Guð-
jónsdóttir hlaut 6.
desember sl. heið-
ursverðlaun
stofnunarinnar
Women’s int-
ernational Film &
Television Showcase, WIFTS, fyrir
bestu kvikmyndatöku. Birgit hefur
búið í Þýskalandi sl. 12 ár og m.a.
unnið við kvikmyndirnar The Bourne
Supremacy og Our Grand Despair
sem tilnefnd var til Gullbjarnarins á
kvikmyndahátíðinni í Berlín 2011.
Hlaut verðlaun fyrir
kvikmyndatöku
Á miðvikudag Suðvestan 10-18 m/s, hvassast syðst, en lægir síð-
degis. Éljagangur og vægt frost víða á landinu, en bjart með köfl-
um norðaustanlands.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Vaxandi austanátt, 13-20 m/s, og slydda
eða snjókoma, en síðar rigning sunnanlands, en hægara og þurrt
norðanlands fram undir kvöld. Frost yfirleitt 1 til 12 stig.
VEÐUR
Lærimeyjar Selfyssingsins
Þóris Hergeirssonar í
heims- og ólympíu-
meistaraliði Noregs áttu
ekki í vandræðum með að
slá út Íslandsbanana í Tékk-
landi í 16 liða úrslitum HM í
handknattleik í Serbíu í
gærkvöld. Noregur vann tíu
marka sigur, 31:21, og alls
skoruðu þrettán af fjórtán
útileikmönnum liðsins í
leiknum. Norðmenn mæta
Serbíu í 8 liða úrslitum. »1
Þórir með Noreg á
flugi í 8 liða úrslit
Guðjón Valur Sigurðsson, landsliðs-
fyrirliði í handknattleik, segir að
hann sé ekki undir neinni pressu að
semja við nýtt félag eftir að hann
ákvað að hætta hjá Kiel eftir þetta
tímabil. „Í þeim efnum er ljóst að
peningarnir skipta ekki öllu máli
heldur
frekar
hvar
ég telji
að fjöl-
skyldu minni
líði vel,“ segir
Guðjón Valur. »2
Skiptir mestu máli hvar
fjölskyldunni líður vel
Íslendingaliðin þrjú sem voru í pott-
inum þegar dregið var í 32 liða úrslit,
sem og 16 liða úrslit Evrópudeild-
arinnar í knattspyrnu í gær voru öll
nokkuð heppin með drátt og sluppu
við leik gegn stærstu liðunum. Gylfi
Þór Sigurðsson og félagar í Tottenham
mæta Dnipro Dnipropetrovsk frá
Úkraínu en þyrftu svo líklega að kljást
við Benfica í 8 liða úrslitum. »3
Greiðfært fyrir Íslend-
ingana í 8 liða úrslitin
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Núna erum við að draga kæstu
stykkin – eitt af öðru – upp úr kör-
unum og skötuveislurnar eru raunar
þegar hafnar. Eru fjarri því bundn-
ar við Þorláksmessu, þótt flestar
séu þær á þeim degi. Þessu fylgja
svo ýmsir siðir og ákveðin stemning.
Margir koma hingað í búðina aðeins
á aðventunni til að verða sér úti um
skötu og mörgum finnst þá tilheyra
að ég finni til bitana,“ segir Stein-
grímur Ólason, fisksali í Fiskbúð-
inni við Sundlaugaveg í Reykjavík.
Leyfa sér mátulega mikið
Eitt helsta inntak jólaföstunnar
er samkvæmt gömlum siðum að
leyfa sér mátulega mikið í mat, fyrir
veisluhald jólanna. Fiskurinn fylgdi
föstunni og lakasta fiskmetið skyldi
vera á Þorláksmessu. Fyrr á tíð var
gjarnan bitið í horaðan harðfisk á
Þorláksmessu á sunnanverðu land-
inu en í skötu fyrir vestan enda
veiddist hún helst á miðunum þar.
Vestfirðingum tókst hins vegar að
matbúa skötuna þannig að lystug
þætti og því breiddist siðurinn út –
og nær nú til landsins alls.
„Maður byrjar strax í janúar að
draga að sér skötu fyrir Þorláks-
messuna og fær hana víða frá, en
fyrir desembervertíðina þarf ég
rúmlega eitt tonn. Gráskata veiðist
frá Reykjanesi og austur að Vest-
mannaeyjum, tindabikkjan fyrir
vestan og náskatan er úti fyrir
Norðurlandi. Þegar skatan er
komin í hús er hún sett í frost
og geymd þar fram í sept-
ember. Er þá þídd upp, sett í
kör og látin kæsast í eigin
safa sem er nokkurra vikna
ferli,“ segir Steingrímur sem
hefur rekið Fiskbúðina
við Sundlaugaveg í
bráðum þrjátíu ár.
„Margir taka salt-
fisk jafnhliða skötunni. Ég fæ alltaf
hnoðmör vestan úr Bolungarvík og
raunar kemur skatan alltaf að veru-
legu leyti að vestan.“
Rammur þefur
Ýmsar hefðir sem fylgja skötunni
lifa fólks á meðal. Margir miðla
fróðleik til fisksalans sem segir
marga nefna það húsráð að strá
kanil á eldvélarhelluna meðan skat-
an mallar í potti. Sjálfur segist fisk-
salinn ekki hafa mikla trú á slíkum
kúnstum, kanilsykur brenni við á
hellunni og slái síður en svo á þá
stæku lykt sem skötunni fylgi. Til
að losna við hana gildi að láta
suðuna rétt koma upp og taka þá
stykkin úr pottinum og þrífa hann
strax.
Fær náskötu að norðan
Þorláksmessu-
stemning við
Sundlaugaveg
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Skötumaður „Maður byrjar strax í janúar að draga að sér skötu fyrir Þorláksmessuna,“ segir fisksalinn góðkunni,
Steingrímur Ólason, sem útvegað hefur borgarbúum soðningu og margvíslegt annað fiskmeti í bráðum þrjátíu ár.
„Ammoníakslykt af kæstri skötunni er sterk, það er frekar þröngt í þessu
timburhúsi og hér fyrir utan eru bensíntankar. Nei, ég tek ekki þá áhættu
að vera með skötu á Þorláksmessu því færi allt á versta veg myndi loga
hér stafna á milli,“ segir Stefán Þormar Guðmundsson, veitingamaður í
Litlu Kaffistofunni í Svínahrauni.
Kaffistofugestir ganga að kjötsúpunni vísri í hádeginu. „Já, það hef-
ur sannarlega gerst að fólk hafi samband á Þorláksmessu og spyrji
hvort kjötsúpunni sé nokkuð sleppt þann daginn. Aðrir spyrja hins veg-
ar eftir skötunni svo þú heyrir að þetta er alveg sitt á hvorn veginn.
Sjálfum líkar mér hins vegar skatan alveg ljómandi vel, ólst
upp við að hún væri á borðum á Þorláksmessu og hef haldið
í þann sið fram til þessa dags.“
Myndi loga stafna á milli
TEKUR EKKI ÁHÆTTU MEÐ SKÖTU
Stefán Þormar
Guðmundsson