Morgunblaðið - 23.01.2014, Side 24
24 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 2014
VIÐTAL
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
„Við eigum tvö fullkomin heimili
en getum á hvorugum staðnum átt
lögheimili,“ sagði Heiðar P. Breið-
fjörð. Hann býr ásamt Svein-
björgu Gunnarsdóttur, konu sinni,
í íbúð sem er á rishæð hesthúss
þeirra hjóna í Almannadal ofan við
Reykjavík. Hitt heimilið er frí-
stundahús með gestahúsi austur í
sveit. Sú eign er á svæði sem er
skipulagt fyrir frístundabyggð og
þar má ekki heldur skrá lögheimili.
Félag hesthúsaeigenda í Almanna-
dal hefur óskað eftir því að skipu-
lagsyfirvöld í Reykjavík heimili
lögheimilisskráningu á efri hæð
hesthúsa í Almannadal.
Heiðar og Sveinbjörg keyptu
fokhelt hesthús með rishæð í Al-
mannadal. Það er byggt samkvæmt
nýjustu kröfum. Hjónin fluttu inn í
íbúðina um áramótin 2012 og 2013.
Íbúðin mælist vera um 70 fermetr-
ar en gólfflöturinn er um 90 fer-
metrar. Á húsinu framanverðu er
sérinngangur inn í íbúðina og er
gengið upp stiga á efri hæðina. Þar
hafa hjónin komið sér vel fyrir.
Vilja eiga lög-
heimili í hesthúsi
Hjón eiga tvö heimili en mega á hvorugu þeirra skrá lög-
heimili Húsbóndinn telur núgildandi reglur vera út í hött
Morgunblaðið/RAX
Hesthús með íbúð Þrír eignarhlutar eru í húsinu sem Sveinbjörg og Heið-
ar búa í. Húsið er vandað og líkist fremur raðhúsi en hesthúsi.
Gengið er inn í hesthúsið bakatil
og þar er einnig gerði fyrir hest-
ana. Hestarnir komu í húsið í apríl
og maí í fyrra. Þar er rúm fyrir tíu
hesta. Hesthúsið er mjög snyrtilegt
og hestarnir una sér vel í rúmgóð-
um stíum. Innstu stíunni hefur ver-
ið breytt í kaffikrók. Taðið fer í
safnstíu eða gám. Ekki vottaði fyr-
ir lykt úr hesthúsinu í íbúðinni,
enda er lokað þar á milli. En
hvers vegna ákváðu þau að flytja í
hesthúsið?
„Við erum dýrafólk,“ sagði
Sveinbjörg. Auk hesta eiga þau
lassie-tík sem heitir Búska og áttu
lengi kött. „Ég gæti ekki hugsað
mér betra umhverfi. Það er bæði
rólegt og svo er svo mikið líf
hérna. Fólk að ríða út alla daga.“
Heiðar sagði að Sveinbjörg þekkti
nú orðið flesta hestana í hverfinu
með nafni og einnig reiðmennina.
Þau hafa útsýni yfir Rauðhólana
og Heiðmörkina til suðurs.
Hjónin segja það vera mjög
þægilegt hvað stutt er í hesthúsið.
Gegningarnar útheimta ekki neina
bensíneyðslu. Þau bentu á að
þetta væri mjög umhverfisvænt
samanborið við að margir ækju
tugi kílómetra tvisvar á dag til að
fara í hesthús. Hestum á fóðrum
er gefið tvisvar á dag og eins þarf
að hleypa þeim út, kemba og
hreyfa svo þeir hlaupi ekki í spik.
Vilja fá lögheimilisrétt
Heiðar og Sveinbjörg hafa bar-
ist fyrir því að geta skráð lög-
heimili sitt á efri hæð hesthússins.
Þau sáu möguleika á að sameina
tómstundaiðjuna og heimili þegar
þau skoðuðu kaup á húsinu í Al-
mannadal. Hjónin ræddu við
skipulagsyfirvöld í Reykjavík
haustið 2012 og fengu þau svör að
þetta gæti verið sniðug lausn, en
fengu ekki nein fyrirheit um að fá
að skrá lögheimilið þarna. Um-
sókn þess efnis er nú til með-
ferðar í borgarkerfinu. Hjónin fá
póstinn sinn í pósthólf og segjast
ekki gera kröfur um meiri þjón-
ustu en veitt er nú þegar í hverf-
inu fái þau lögheimili þar. Heiðar
kvaðst telja að núgildandi reglur
um skráningu lögheimila væru út í
hött. Fólk ætti að geta átt lög-
heimili þar sem það svæfi! Hann
benti á að allt í kring byggi fólk í
húsum sem voru byggð sem sum-
arbústaðir. Svæðið væri ekki
skipulagt sem frístundabyggð og
því væri hægt að skrá lögheimili í
þeim húsum.
SKJARINN.IS | 595 6000
SKRÁÐU ÞIG Í ÁSKRIFT NÚNA
OG VIÐ OPNUM STRAX!
ARNFINNUR DANÍELSSON
44 ára viðskiptafræðingur
úr Kópavogi.
#AframFinni
AÐALHEIÐUR BRAGADÓTTIR
43 ára þroskaþjálfi og grunn-
skólakennari úr Garðabæ.
#AframAdalheidur
ANNA LÍSA FINNBOGADÓTTIR
28 ára hjúkrunarfræðingur
úr Kópavogi.
#AframAnnaLisa
INGA LÁRA GUÐLAUGSDÓTTIR
31 árs félagsfræðinemi
frá Akranesi.
#AframIngaLara
ÓÐINN RAFNSSON
37 ára sölumaður
frá Hafnarfirði.
#AframOdinn
SIGURÐUR JAKOBSSON
19 ára nemi við Mennta-
skólann á Egilsstöðum.
#AframSiggi
BARÁTTAN HEFST
Í KVÖLD KL.20.40