Morgunblaðið - 23.01.2014, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 23.01.2014, Blaðsíða 26
26 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 2014 Sölustaðir: Hagkaup Kringlunni, Garðabæ og Smáralind, apótek Lyfju, Askja og Fríhöfnin. Kaupaukar í takmörkuðu magni í tilefni Bóndadagsins, m.a. tölvutöskur. SVIÐSLJÓS Þorsteinn Ásgrímsson thorsteinn@mbl.is Stefnt er að því að framkvæmdir við nýtt hótel við hliðina á Hörpu og íbúðarhúsnæði á nærliggjandi lóð hefjist á þessu ári og ljúki á fyrri- hluta ársins 2017. Heildarfjárfesting verkefnisins er áætluð um 14 millj- arðar, en í heild verða rúmlega 250 herbergi í hótelinu og 90 íbúðir auk verslana í þeim fimm byggingum sem verða reistar næst hótelinu. Í viðtali við Morgunblaðið fara þeir Bala Kamallakharan fjárfestir, Tryggvi Jónsson, framkvæmdastjóri mannvirkja hjá Mannviti, og Ásgeir Ásgeirsson, arkitekt hjá T-Ark arki- tektastofunni, yfir framvindu verk- efnisins, upphaf þess og framtíðar- horfur. Þá eru í fyrsta sinn sýndar myndir af útliti fyrirhugaðra íbúða á lóðinni, en gert er ráð fyrir bili á milli þeirra. Þremenningarnir eru í forsvari fyrir Auro Investments, sem er í eigu indverskra fjárfesta hjá Auro Investment Partners LLC, Mannvits og T-Ark. Upphafið að samstarfinu nær aft- ur til ársins 2009, en þá var Bala í samskiptum við Ásgeir og T-Ark vegna annars verkefnis. Á þeim tíma ræddu þeir möguleikann á hótelupp- byggingu á þessum reit, en stuttu áður hafði öllum áformum sem sett voru upp fyrir hrun verið frestað. T- Ark sá um hönnun á Hilton-hótelinu og segir Ásgeiri að félagið hafi feng- ið nokkra reynslu af hóteluppbygg- ingu með því verkefni. Mannvit hafi svo verið fengið að borðinu, en fyrir- tækið sá meðal annars um hönnun Hörpu. Þegar Sítus, fyrrverandi eigandi lóðarinnar, bauð hana til sölu árið 2011 ákváðu þeir að leggja inn til- boð. Alþjóðlegir fjárfestar undir merkjum World Leisure Investment var hinsvegar boðið til samninga. Þær viðræður leiddu ekki til niður- stöðu og Tryggvi segir að í apríl árið 2013 hafi Auro Investments verið kallað að borðinu. Í lok sumars var svo gengið frá samningi við Sítus og í september greiddi Auro Invest- ments fyrir lóðina. Upphaflegar hugmyndir um hót- elið gengu út á að það væri 30 þús- und fermetrar með 450 herbergjum, en Tryggvi segir að þeir hafi fljót- lega séð að þær hugmyndir væru of stórtækar. Því var ákveðið að minnka hótelið töluvert og byggja íbúðir og verslunarhúsnæði á um helmingi lóðarinnar. Íbúðirnar verða 90 samtals, en verslunar- og þjónustuhúsnæði verður á neðstu hæðinni. Ásgeir bendir á að sam- kvæmt aðalskipulagi er það mark- mið að fjölga íbúðum á efri hæðum miðsvæðis í Reykjavík. „Við vissum að við gætum nýtt þetta í annað en hótel,“ segir hann. Hótelið 16.400 fermetrar Þrátt fyrir að hótelið verði minnk- að segjast þeir alltaf hafa viljað hafa það í hæsta gæðaflokki. Tryggvi segir að þarna sé besta staðsetning- in í borginni fyrir hótel og því kjörið að nýta tækifærið og reisa fimm stjörnu hótel þar. Herbergin verða rúmlega 250 á 16.400 fermetrum, en þar af verða nokkrar stórar svítur. Venjuleg herbergi verða 30 fermetr- ar, en algengt er að herbergi hér á landi á stærri hótelum séu 18 til 24 fermetrar. Ásgeir segir að auk þess verði 25 svítur, en áætlað er að þær verði 45 fermetrar. Þá verða þrjár stórar svítur upp á 90 fermetra og ein forsetasvíta sem verður 150 fer- metrar að stærð. Í fyrra var tilkynnt að viðræður stæðu yfir við tvær stórar alþjóð- legar hótelkeðjur um rekstrarsamn- ing (e. management agreement). Valið stendur á milli Marriott og W Hotels en endanlegt val verður til- kynnt á næstunni þegar búið verður að semja við kjölfestufjárfesta um fjármögnun verkefnisins. Tryggvi segir svona rekstrarsamning vera tímamót í hótelrekstri hér á landi. Hann er frábrugðinn einkaleyfis- samningi á þann veg að fjárfestirinn á reksturinn og hótelið, en keðjan kemur að rekstrinum, t.d. með því að útvega hótelstjóra. Þá eru ekki greidd leyfisgjöld, heldur skipta fjárfestar og keðjan hagnaðinum á milli sín eftir því hvernig afkoman er af rekstrinum. Þannig sé hagur beggja að vel gangi. Hótelið er svo tekið inn í alþjóðlegt markaðs- og sölukerfi keðjunnar og segir Bala að ef lítið sé að gera geti þeir beint því til markaðsstofu keðjunnar að draga að stórar ráðstefnur. Óhræddir við sveiflur Nokkur umræða hefur verið uppi um það hvort bólumyndun sé í hót- elgeiranum, en Bala segir að þótt alltaf komi sveiflur séu þeir ekki hræddir að takast á við slíkt. Hann bendir á að ekki hafi verið byggt nýtt hótel frá grunni í Reykjavík í langan tíma. Síðustu ár hafi ákveðin leiðrétting átt sér stað og markaður- inn jafnað mikla vöntun á hótel- rýmum. Enn sé framboðið ekki nægjanlegt, sem sjáist t.d. með vin- sældum heimasíðna á borð við Airbnb. Tryggvi bendir á að fimm stjörnu hótel sé allt önnur vara held- ur en fjögurra stjörnu hótel. Segir hann að með fimm stjörnum sé verið að styrkja núverandi hótelmarkað en ekki taka af sömu sneið og aðrir. Tölvumynd/T.ark Nýja hótelið Hörpureiturinn mun vissulega breyta um svip þegar hótelið og íbúðabyggingarnar hafa risið. Sex byggingar rísa á Hörpureit  Framkvæmdir við hótel og íbúðarhúsnæði eiga að hefjast á þessu ári  250 herbergja hótel og 90 íbúðir  Forsetasvítan 150 fermetrar  Heildarfjárfesting verkefnisins er áætluð um 14 milljarðar Bala Kamallakharan segir að ekki sé verið að skuldsetja hótelið of mikið eins og svo oft vill verða þeg- ar mikil uppbygging á sér stað, heldur sé stefnan sett á að afla nægjanlegs eiginfjár. Með rekstr- arsamningnum fái þeir einnig að- gang að mjög öflugu hótelneti þar sem það er hagur keðjunnar að reksturinn verði sem allra bestur. „Erum við hræddir við bólu? Já, en við teljum okkur geta unnið á henni,“ segir Bala. Næsta verkefni, meðfram því að ganga frá nokkrum tæknilegum at- riðum í rekstrarsamningnum, er að finna kjölfestufjárfesta. Bala segir að nú þegar séu þeir í viðræðum við áhugasama fjárfesta um aðkomu að verkinu, en Arionbanki hefur um- sjón með fjármögnun verkefnisins. Segir Bala að bæði innlendir og er- lendir fjárfestar hafi sýnt verkefn- inu áhuga. Gangi áform eftir segir hann að haldið verði áfram að tala við nokkra hópa á næstunni, en að svo verði samið við einn eða tvo um að koma með fjármagn. Segir hann að Auro Investments vilji áfram vera hluti af verkefninu og nýta þekkingu sína og reynslu til þess að klára uppbygginguna, en að horft sé til þess að nýr fjárfestir verði meirihlutaeigandi. Töluverð hönnunarvinna er enn eftir, en Tryggvi segir að ef allt gangi samkvæmt áætlun gætu framkvæmdir hafist fyrir lok þessa árs. Hann segir að reiknað sé með því að framkvæmdin skapi jafnvel yfir 200 ný störf og að á milli 100 og 150 starfsmenn vinni svo á hótelinu sjálfu þegar það er tilbúið. „Þetta er gott verkefni fyrir Reykjavík, byggingargeirann, efnahagslífið og hótelgeirann á Ís- landi,“ segir Tryggvi, en heildar- kostnaður við byggingu hótelsins og íbúðanna er áætlaður rúmlega 14 milljarðar. Stefnt er að því að hótelið verði ráðstefnuhótel með tengingu við Hörpu, en ráðstefnugestir eyða að jafnaði hæstu fjárhæðunum á ferðalögum. Aðspurður hvort horft verði á náið samstarf við ferðaþjón- ustufyrirtæki segir Bala að gestir hótelsins muni eins og gestir ann- arra hótela sækja í afþreyingu og upplifun og því sé slík tenging nauðsynleg. „Þarna eru mörg tæki- færi fyrir frumkvöðla að ná til vel efnaðra ferðamanna,“ segir hann. Hörpureitur Hótelbyggingin rís næst Hörpu og við hlið hennar verða fimm byggingar með íbúðum og verslunum. Reiknað með að framkvæmdin skapi allt að 200 ný störf
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.