Morgunblaðið - 23.01.2014, Qupperneq 32
32 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 2014
BAKSVIÐ
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Þessi fundur er upphafið að sam-
ráðsferli, nokkurskonar ferðalagi
sem bærinn fer í með íbúum. Mikil-
vægt er að fá fram skoðanir bæjar-
búa, þetta er dýrmætt svæði sem
flestir hafa skoðanir á,“ segir Regína
Ásvaldsdóttir, bæjarstjóri á Akra-
nesi. Bærinn efndi til íbúafundar um
nýtingu Sementsreitsins sem verður
endurskipulagður í kjölfar þess að
bærinn hefur eignast meginhluta
mannvirkja verksmiðjunnar.
Kanon arkitektar voru fengnir til
að setja fram ýmsar hugmyndir til
að koma af stað umræðum meðal
bæjarbúa. Þar á meðal voru hug-
myndir um að nýta mannvirkin sem
þarna eru. Ein þeirra var að innrétta
sementstankana sem íbúðir og koma
upp útsýnisveitingastað ofan á þeim.
Verðmæti í mannvirkjum
„Þetta var hugsað sem kveikja að
nýjum hugmyndum og umræðum en
ekki útfærðar tillögur,“ segir Hall-
dóra Bragadóttir, arkitekt hjá Kan-
on arkitektum.
Hún segir að Sementsreiturinn sé
mikilvægt svæði sem liggi á milli
gamla bæjarins, hafnarinnar og
Langasands. „Möguleikarnir felast
meðal annars í því, hann er hlekkur
sem tengir svæðin saman.“
Halldóra segir hægt að fara marg-
ar leiðir við skipulag og uppbygg-
ingu. Hún nefndi í kynningu sinni að
ein nálgunin væri að nýta þau miklu
mannvirki sem eru á Sements-
reitnum og sýndi dæmi frá öðrum
löndum hvernig verksmiðjuhús og
tankar hafi verið endurnýtt. „Við er-
um að hvetja fólk til þess að velta
fyrir sér hvaða verðmæti felast í
þessum mannvirkjum, ekki endilega
steypunni heldur verðmætum í víð-
um skilningi svo sem umhverfi,
byggðamynstri og atvinnusögu.
Fara verður í gegn um þá hugsun
áður en ákveðið er að rífa,“ segir
Halldóra.
Veitingastaður á sementstönkum?
Rætt um möguleika á nýtingu mannvirkja Sementsverksmiðjunnar í umræðum um
framtíðarskipulag Sementsreitsins á Akranesi Leitað eftir skoðunum bæjarbúa á íbúaþingi
Tölvumyndir/Kanon arkitektar
Mannvirki Hugmynd um hvernig nýta megi sementstankana fyrir íbúðir og útsýnisveitingahús vakti athygli á íbúa-
fundi á Akranesi. Gamalkunnugt tákn Akraness, strompur Sementsverksmiðjunnar, er látinn halda sér.
Göngugata Dæmi um nýtingu eldri mannvirkja. Svæðið á milli ofnhúss og
kvarnarhúss Sementsverksmiðjunnar gæti orðið að göngugötu.
Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri tel-
ur að niðurstöður íbúaþingsins muni
nýtast vel við undirbúning að vinnu
við skipulag svæðisins. Um 160 íbúar
sóttu þingið. Þátttakendum var
skipt niður í tíu vinnuhópa sem skil-
uðu niðurstöðum.
„Mér fannst vera samhljómur með
niðurstöðum hópanna. Hann er að
við flýtum okkur hægt, vöndum
vinnuna og skoðum notagildi þeirra
mannvirkja sem fyrir eru,“ segir
Regína.
Hún bætir því við að einhverjir af
þeim sem komið hafi á fundinn með
ákveðnar skoðanir um að öll mann-
virki yrðu að víkja svo hægt yrði að
skipuleggja frá grunni hafi séð
möguleika á að kannski yrði hægt að
nýta eitthvað af verksmiðjunni.
Hún segir að áfram verði unnið í
samstarfi við íbúana. Sett verður
upp sérstakt svæði á vefnum um
Sementsreitinn. Þar verða birtar
hugmyndir um nýtingu svæðisins og
íbúar munu geta sent inn hugmyndir
og fyrirspurnir. Þá segir Regína að
reynt verði að virkja fleiri til sam-
starfs, til dæmis skólana á Akranesi
og háskólana á Vesturlandi.
Fundað Hugmyndirnar voru ræddar í hópum á íbúafundi.
Skilaboð um að við
flýtum okkur hægt
Bæjarstjóri ánægður með íbúaþing
Ekki hefur verið ákveðið hvernig
staðið verður að skipulagningu
Sementsreitsins.
Regína Ásvaldsdóttir bæjar-
stjóri segir að farið verði yfir
niðurstöður íbúaþingsins sem
haldið var um helgina og hug-
myndirnar flokkaðar og greind-
ar. Eftir það verði næst skref
ákveðin.
Regína segir ekki ákveðið
hvort farið verði í almenna sam-
keppni um skipulag svæðisins
eða hvort leitað verði til ákveð-
inna arkitekta um að skipu-
leggja svæðið. Þá er verið að
skoða hvaða form henti best til
að stýra verkefninu, hvort
stofnað verði þróunarfélag eða
unnið að því eingöngu á vegum
bæjarins.
Rætt um
næstu skref
SKIPULAG UNDIRBÚIÐ
Við sjóinn Fiskmarkaður gæti komið á svæðið sem liggur frá Sementsverk-
smiðjunni að Faxabraut. Þetta er tenging við gamla atvinnuhætti staðarins.
Laugarásvegi 1 • 104 Reykjavík
Sími: 553 1620 • laugaas.is
KÓNGABORGARI
(120 g safaríkt nautakjöt)
með osti, iceberg,
sósu, frönskum og
kokkteilsósu
Árin segja sitt