Morgunblaðið - 23.01.2014, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 23.01.2014, Blaðsíða 34
34 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 2014 20% afsláttur af öllu garni dagana 23.janúar - 1.febrúar Þönglabakka 4, sími 571-2288, www.gauja.is AFMÆLISDAGAR AFSLÁTTARDAGAR SJÓN ER SÖGU RÍKARI! Í tilefni 4 ára afmælis okkar þann 30.janúar verður... Þórður A. Þórðarson thordur@mbl.is Helgi Rafnsson, flugvirki og spilmað- ur hjá Landhelgisgæslunni, hefur unnið að því undanfarið að gera upp gamla flugvél. Nefnist flugvélin TF- MEY og er af gerðinni Piper PA-28- 180 Cherokee. Alls hafa 37 Piper PA-28 verið skráðar á Íslandi og kom sú fyrsta ár- ið 1964. TF-MEY var fyrst smíðuð ár- ið 1966, en hún kom til landsins árið 1974. Henni var flogið mikið í kennslu- flugi fram til ársins 1988, er henni hlekktist á í flugtaki við Dagverðará, þar sem hún rann fram af flugbraut- inni. Helgi segir að það hafi tekið hann um fjögur ár í hjáverkum að gera flugvélina upp. Meðal annars var skipt um botn á vélinni og annar vængur- inn smíðaður frá grunni auk flapsa og hallastýris. Einnig var mótorinn gerður upp, en hann er 180 hestöfl. Ný innrétting og mælaborð voru svo sett í vélina. Helgi hefur flogið flugvélinni í um klukkutíma eftir að endursmíð- inni lauk en nú taka við flugprófanir í 25 tíma áður en að vélin fær fullt leyfi. Fyrstu fimm tímana verður Helgi að fljúga vélinni einn, en næstu 20 tíma má flugréttindamaður koma með. Eftir það má hver sem er þiggja far. Flugvélin er skráð sem „experi- mental“ sem mætti þýða sem heima- smíði. Til þess að flugvél fái slíka flokkun þarf að endursmíða 51% af henni eða meira. Er þetta í fyrsta skipti á Íslandi að vél sem er hálf skellaga og úr áli, er smíðuð upp að svo miklu leyti. Algengara er að vélar með svonefndri turnlaga byggingu séu gerðar upp. Það eru dúklagðar flugvélar og er sú algengasta Piper Cub sem margir þekkja. Helgi var mjög ánægður með fyrsta flugið eftir endursmíðina og sagði hann að það kæmi á óvart hversu hratt vélin gæti flogið. Nærri fimmtug flugvél orðin eins og ný Morgunblaðið/Þórður Nýuppgerð vél Helgi Rafnsson, flugvirki, við flugvélina TF-MEY, sem hefur verið endurbyggð.  Viðgerðin tók fjögur ár  Fer nú í 25 stunda flugprófun Nýtt Innrétting og mælaborð eru ný. SVIÐSLJÓS Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is Það má alltaf gera betur í nefndum Alþingis en þeim er ætlað ákveðið sjálfstæði og það er ekki hlutverk for- seta þingsins að segja fyrir um með hvaða hætti ein- staka þingnefndir nálgast viðfangs- efni sín. Þetta segir Einar K. Guðfinnsson, for- seti Alþingis, að- spurður um vinnubrögð efna- hags- og við- skiptanefndar, þegar nefndin fjallaði um svokallaðan bankaskatt á fjármálafyrirtæki. Enn liggur ekki fyrir hver átti hugmyndina að því að miðað yrði við 50 milljarða króna frí- skuldamark né hvernig sú tala var rökstudd af viðkomandi aðila eða að- ilum. „Ég hef litið á að það sé orðin nið- urstaðan af allri þessari umræðu að þessi tala eigi uppruna sinn í efna- hags- og viðskiptanefnd og það er auðvitað hún sem ber ábyrgð á mál- inu eftir að það er komið inn í þingið,“ segir Einar. „Þannig að ég hef gert ráð fyrir því að það séu ákveðnar for- sendur sem liggja þar að baki, sem nefndin hefur metið þannig að væru efnislegar,“ segir hann. Málið hefur vakið spurningar um vinnulag nefnda og afgreiðslu mála í þinginu. Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, vakti máls á því í Kastljósi á mánudag að fjárlagafrum- varp hefði verið lagt afar seint fram og gagnrýndi að skattlagningin hefði verið aukin um tíu milljarða milli ann- arrar og þriðju umræðu, degi fyrir þinglok. Einar segir að til að koma í veg fyrir að mál séu afgreidd í flýti, sé fyrst og fremst mikilvægt að þau séu lögð tímanlega fram. „Það væri mjög fljótlegt að finna til dæmi þar sem stórar tölur eru af- greiddar í gegnum þingið á skömm- um tíma. Ég er ekki að mæla því bót, ég hef þvert á móti kallað eftir því að mál séu lögð nægilega snemma fram þannig að hægt sé að vinna þau gaumgæfilega,“ segir Einar. „Hins vegar vil ég segja að það gefur ekki rétta mynd af störfum þingsins að fjölmörg mál eru afgreidd á stuttum tíma fyrir jól og að vori. Mörg þess- ara mála hafa verið unnin mánuðum saman í þingnefndum en lokapunkt- urinn er síðan settur á afgreiðslu málsins áður en haustþinginu eða vorþinginu lýkur,“ segir hann. Einar segir að síðustu tvö þing hafi komið fram um 160-170 þingmál frá ríkisstjórn á hvoru þingi, en þeim sé ekki öllum lokið. Það gefi augaleið að hversu klárir eða snjallir sem þing- menn séu, muni engir þeirra verða í færum til að þekkja hvert einasta mál til hlítar. „Þess vegna er þessi verka- skipting í þinginu, þess vegna eru flokkarnir með fulltrúa sína í ein- stökum nefndum, og það er eðlilegt við slíkar aðstæður að menn reiði sig á þær upplýsingar og þær forsendur sem félagar þeirra hafa unnið eftir,“ segir hann. Jón Þór Ólafsson, formaður Pírata, hefur lagt til að fundir þingnefnda verði teknir upp til að tryggja gegn- sæi og að upptökurnar verði aðgengi- legar almenningi en Einar kveðst hafa um það efasemdir, þar sem það gæti haft áhrif á að þar fari fram nægjanlega opinskáar umræður. Hann tekur undir það að æskilegt hefði verið ef talan 50 milljarðar hefði komið fram í formlegu erindi efna- hags- og viðskiptanefndar til fjár- málaráðuneytisins en segir aðalatriði það að tillaga nefndarinnar liggi fyrir í þingskjölum, þ.e. sú niðurstaða að þessi tiltekna tala hafi verið það frí- skuldamark sem nefndarmenn vildu miða við. Einar segir ráðuneytin hafa ríka upplýsingaskyldu gagnvart þing- mönnum og að þeir geti kallað eftir þeim upplýsingum sem þeir telja sig vanta. „Það er síðan verkefni þing- nefndanna að fara yfir þær upplýs- ingar sem koma frá ráðuneytunum,“ segir Einar. „Og leita eftir sérfræði- legu áliti úr öðrum áttum ef þeir telja það nauðsynlegt.“ Ábyrgðin á höndum nefndarinnar  Forseti Alþingis segir þingnefndir sjálfráðar um vinnulag  Fljótlegt að finna dæmi um að stórar tölur séu afgreiddar á skömmum tíma  Upptaka nefndarfunda ekki fýsileg  Rík upplýsingaskylda Morgunblaðið/Ómar Í eldlínunni Frosti Sigurjónsson, formaður efnahags- og viðskiptanefndar, hefur sagt að talan 50 milljarðar hafi komið frá meirihluta nefndarinnar. Frískuldamarkið » „Háttvirtur formaður nefndarinnar hefur svarað hvernig þessi tala varð til, held ég. Hún varð til í samtali milli fjármálaráðuneytisins og hátt- virts formanns nefndarinnar,“ sagði Vilhjálmur Bjarnason, þingmaður Sjálfstæðisflokks- ins og fulltrúi í efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis, á þinginu í gær. » Var hann að svara fyrirspurn frá Kristjáni L. Möller, þing- manni Samfylkingarinnar. Einar K. Guðfinnsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.