Morgunblaðið - 23.01.2014, Side 38
38 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 2014
Verndaðu frumurnar þínar !
Í Cognicore Daily eru áhrifaríkustu efnin úr brokkolí safnað saman eina í töflu. Það inniheldur
sulforaphane úr lífrænt ræktuðum brokkolí spírum að viðbættu túrmeric og selenium.
Cognicore er afrakstur rannsókna um einstök áhrif sulforaprhane úr brokkolí til verndar frumum
líkamans – það getur haft stórkostleg heilsufarsleg áhrif og verndað gegn ótímabærri öldrun og
hrukkumyndun.
Brokkolítöflurnar - Cognicore® Daily fást nú í Fræinu Fjarðarkaupum.
Sérstakt kynningartilboð – 15% afsláttur.
Aðeins kr. 3.869 – fram til 28. janúar.
brokkoli.is
TILBOÐ
í FJARÐARKAUP
Kr. 3.869
VIÐTAL
Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Þrátt fyrir einstaka uppákomur hefur
sambúðin við ungmennin sem koma
til dvalar á vistheimilinu Hamarskoti
í Flóahreppi gengið mjög vel. Þau
hafa aldrei veist að starfsfólki með of-
beldi. Einu sinni hefur drengur af
heimilinu brotist inn hjá nágranna og
einu sinni hefur komið til slagmála á
milli tveggja pilta sem þar dvöldu.
„Og það var í miðjum Manchester-
leik! Það var skelfilegt,“ segir Sig-
urður Ingi Sigurðsson, annar eigandi
Hamarskots.
Sigurður styður nefnilega Eng-
landsmeistarana í Manchester Unit-
ed af heilum hug, eins og stór fé-
lagsmerki í gluggum og á veggjum
Hamarskots bera vitni um. Tímasetn-
ingin á slagsmálunum hefði sem sagt
getað verið betri.
Búa þar með fjögur börn
Sigurður og Gerður Hreiðars-
dóttir, eiginkona hans, hafa rekið
vistheimilið frá árinu 2006. Morgun-
blaðið tók hús á þeim í vikunni og
ræddi við Sigurð en Gerður var upp-
tekin við annað.
Ungmennin sem koma til dvalar í
Hamarskoti hafa öll glímt við eitur-
lyfjafíkn, kvíða eða geðraskanir en
ástand þeirra og lífsreynsla er væg-
ast sagt misjöfn. Þau sem eru í verstu
málunum hafa verið í mikilli fíkni-
efnaneyslu. „Og í miklu meiri neyslu
en samfélagið gerir sér grein fyrir,“
segir Sigurður. Þessi ungmenni hafi
reynt flestöll efni sem hægt sé að láta
sér detta í hug. „Þau hafa sprautað
sig með fíkniefnum og selt sig eða
brotist inn til að eiga fyrir efnunum. Í
mörgum tilfellum hafa þau verið
heimilislaus.“
Sigurður og Gerður byrjuðu fyrir
ellefu árum að taka við börnum, sem
höfðu lent út af sporinu, í tímabundið
fóstur, 2-3 börnum í senn. Þau fundu
fljótt að þörfin væri mun meiri og árið
2006 reistu þau Hamarskot á jarðar-
skika sem þau höfðu keypt. Vistheim-
ilið var fyrir börn á aldrinum 16-18
ára.
Þegar þau sáu að lítið var í boði fyr-
ir ungmenni sem höfðu náð árangri í
meðferð en voru að nálgast 18 ára
aldurinn, var tveimur smáhýsum
bætt við, hvoru með tveimur 35 fer-
metra íbúðum. Þau eru ætluð ung-
mennum á aldrinum 18-20 ára.
Hamarskot getur nú tekið við allt
að sex ungmennum og sum hafa dval-
ið þar í hátt í þrjú ár. Einnig tekur
Hamarskot við ófrískum konum í
neyslu og þá er ekkert aldurstak-
mark. Þrjár konur í þessari stöðu
hafa komið í Hamarskot.
Þetta eru þó ekki einu ungmennin í
Hamarskoti því börn Sigurðar og
Gerðar búa þar líka, átta ára tvíbu-
rastrákar og tvær dætur þeirra; 11
ára og 19 ára.
Fyrstu fimm árin var Hamarskot
nær eingöngu fyrir stúlkur en síðan
hefur heimilið verið fyrir bæði kyn.
Áður en þau hófu þessa starfsemi
hafði Sigurður unnið í um 1½ ár í
Götusmiðjunni sem tók á móti ung-
mennum sem höfðu lokið meðferð,
líkt og Hamarskot gerir nú. „Þá átt-
aði ég mig á því hvað þörfin væri mik-
il fyrir krakka sem eru að koma úr
meðferð. En það var mikið grín gert
að okkur þegar við byggðum Ham-
arskot því fólk hélt að þetta myndi
aldrei fyllast. En við fluttum inn 16.
desember 2006 og 21. desember var
allt orðið fullt. Og ég held að nýtingin
sé búin að vera 91 eða 92 prósent síð-
an.
Sigurður lifir enn svolítið á hug-
myndafræði Götusmiðjunnar; að líta
á baráttuna við eiturlyfjaneyslu ung-
menna sem „rosalegt“ langtímaverk-
efni. Nokkrir mánuðir í meðferð eða á
vistheimili hafi oft lítið að segja.
Árangur um tvítugt
Á þessum tíma hefur Sigurður séð
mörg kraftaverk gerast. Margir
krakkar hafi náð sér á strik – aðrir
ekki. Hann segir erfitt að mæla ár-
angur af dvölinni í Hamarskoti eða
annars staðar. Sjaldnast sjáist raun-
verulegur árangur fyrr en eftir að tví-
tugsaldri er náð, þá sé eins og heilinn
hafi loks náð nægum þroska til að
ungmennin geti snúið af þessari
ógæfubraut. „Okkar starf felst mikið
til í því að vernda þau fyrir sjálfum
Neyslan er
harðari en
flestir vita
Sáu þörfina og opnuðu vistheimili
Skelfilegt að slást í Man-Utd. leik
Í Hamarskoti geta ungmennin unn-
ið við að hreinsa timbur sem er
síðan bútað niður og selt sem eldi-
viður. Einnig eru þar ræktaðar
landnámshænur og eggin seld í
Fjarðarkaupum í Hafnarfirði undir
vöruheitinu Geggjun.
Sigurður segir að eggjasala úr
landnámshænum sé „mínusrekstur
dauðans“ enda verpi þær bara
annan hvern dag – kannski. Þegar
hann var að því kominn að gefast
upp á rekstrinum fréttu eigendur
Fjarðarkaupa af stöðunni. „Þeir
voru svo hrifnir af þessu að þeir
sögðu bara: Siggi, hvað þarftu
mikið til að gera þetta almenni-
legt. Og ég krassaði bara eitthvað
niður á blað og þeir lögðu fram
peningana.“
Sigurður og Gerður hafa áhuga
á að reisa skemmu við húsið til að
hægt sé að bjóða ungmennunum
fleiri möguleika á atvinnu. Þar
mætti vera með 2-3 hesta og koma
fyrir gömlum bílum og gera þá
upp. Þar fengist líka betri aðstaða
fyrir timburvinnsluna. Sigurður
áætlar að skemman kosti 15 millj-
ónir. Byggingin er búin að fá
200.000 krónur í styrk úr minning-
arsjóði Sigrúnar Mjallar Jóhannes-
dóttur, sem lést af völdum fíkni-
efna 3. júní 2010, aðeins 17 ára
gömul.
Óhapp sem varð í fyrra þrengir
aðeins að atvinnurekstrinum. Þá
brann allt innvolsið í bílskúrnum.
Bruninn varð með þeim hætti að
unglingspilti sem var þar í vist var
falið að hreinsa litlar járnstyttur af
verndarenglum sem til stóð að
selja í fjáröflunarskyni. Nota þurfti
þynni til að hreinsa stytturnar og
var piltinum ítrekað gert ljóst að
alls ekki mætti reykja við þessa
vinnu. Reykingabannið gleymdist,
glóð datt ofan í þynninn og mikill
eldur varð af. Gerður segist fegn-
ust því að pilturinn hafi ekki
meiðst illa. „Svona fer þetta stund-
um,“ segir hún.
Morgunblaðið/Golli
Ung Bóka- og kvikmyndakosturinn segir sína sögu um þá sem þangað koma
til dvalar. AA-bókin við hlið bókar eftir Þorgrím Þráinsson; Svalasta 7an.
Hreinsa timbur og
selja geggjuð egg
Nú geta allir fengið iPad-áskrift
Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/