Morgunblaðið - 23.01.2014, Síða 39
FRÉTTIR 39Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 2014
BEINSKIPTUR FRÁ 4.490.000 KR.
SJÁLFSKIPTUR FRÁ 4.790.000 KR.
Mazda6 sameinar glæsilega hönnun, framúrskarandi akstursánægju og ótrúlega sparneytni. SKYACTIV spartækni
Mazda skapar fádæma sparneytni fyrir stóran fjölskyldubíl. Þar sameinast ný vélar- og sjálfskiptitækni ásamt léttum
en ofursterkummálmum sem létta bílinn. Eldsneytisnotkun SKYACTIV bensínvélarinnar með sjálfskiptingu er
einungis 6,0 lítrar í blönduðum akstri. Fæst einnig með dísilvél.
MAZDA. DEFY CONVENTION.
Nýir og notaðir bílar: Söludeildir eru opnar alla virka daga frá kl. 9-17 og laugardaga frá kl. 12-16.
Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 8, sími 515 7040 I Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 515 7050 I mazda.is
Brimborg og Mazda áskilja sér rétt til að breyta verði og búnaði án fyrirvara. Útbúnaður getur verið frábrugðinn mynd í auglýsingu.
zo
om
- z
oo
m
Mazda6
kynntu þérskyactiv spartækni mazda
KOMDU Í REYNSLUAKSTUR
sér og öðrum þangað til þau hafa náð
aldri og þroska til að hugsa þetta
rétt,“ segir hann.
Krakkar sem hafi farið frá Ham-
arskoti og haldið áfram neyslu eftir
það, hafi hringt í hann mörgum árum
seinna og sagt að í dag séu þau edrú
og þakki það dvölinni í Hamarskoti
fyrir löngu síðan. Oft haldast tengslin
svo árum skipti og gamlir vistmenn
kíkja stundum í mat um helgar.
Hann segir lykilatriði að vistheim-
ilið sé í sveit því barátta við fíkn og
óreglu sé mun erfiðari í þéttbýli. Þeg-
ar Hamarskot var opnað hafi ung-
menni gjarnan sótt nám eða vinnu inn
á Selfoss. Nú eru þau hætt því og
vinna aðallega heima í Hamarskoti.
„Nálægðin við margmenni og sam-
félagið er oft erfið. Ef þig langar að
detta í það og þú ert einhvers staðar
fastur uppi í sveit, þá er kannski hægt
að tala þig til. En ef þig langar að
detta í það og ert kominn í fíkniefni
fjórum mínútum seinna, þá er erfiðara
að eiga við það,“ segir hann.
Sigurður leggur mikla áherslu á að í
Hamarskoti sé ekki meðferðarheimili
heldur vistheimili og enginn sé neydd-
ur til að vera þar. „Ef þeir vilja ekki
vera hérna þá koma þeir bara til mín
og segja: „Siggi, ég get þetta ekki, ég
er farinn.“ Og þá stend ég ekki í dyr-
unum og slæst við þá. Ég reyni auðvit-
að að tala um fyrir þeim og í níutíu og
eitthvað prósentum tilfella virkar
það.“ Stundum virkar það ekki.
Stærstu áföllin verða í kringum jól
og páska, þegar ungmennin fara í frí
og koma oft tætt til baka. Verslunar-
mannahelgin er líka erfið. „Það er
stanslaust hamrað á því í útvarpinu
hvar þú eigir að vera og hversu ölv-
aður.“ Þessi „upphitun“ byrji mánuði
fyrir sjálfa helgina og um leið aukist
spenna á heimilinu. „Þá er dálítið mik-
ið um strok og oft eru börnin ekki jafn
geðgóð, við skulum orða það þannig.“
Dapurt dómskerfi
Sigurður segir barnavernda-
rkerfið virka ágætlega, í flestum til-
fellum. Það sé helst ef fíkniefna-
neysla bætist ofan á geðraskanir
sem málin flækist. Einnig sé þörf á
einhvers konar úrræðum fyrir
krakka sem eru með greiningar, séu
t.d. einhverfir. Þá vanti peninga inn í
kerfið en það er gömul saga og ný.
Dómskerfið sé hins vegar voða-
lega dapurt. Dómsmál taki of langan
tíma. „Það er erfitt að brjóta af sér
16 ára en þurfa ekki að taka ábyrgð á
því fyrr en þú ert orðinn 18 ára,“
segir hann. Þá mætti taka krakka
sem byrja ungir í afbrotum fyrr úr
umferð. „Ég sé ekki stórkostlegan
mun á því hvort 17 ára eða 18 ára
drengur stelur bílnum mínum.“
Þessi aldursmunur skipti dóms-
kerfið hins vegar miklu máli.
Neyðarvistunin á Stuðlum sé
gagnleg en hún geti í mesta lagi
staðið í 14 daga. Það þurfi að bæta
við einhvers konar unglingameðferð,
sem sé lokuð að einhverju leyti, sem
standi lengur. „Ef krakki er búinn að
fara inn á mörg meðferðarheimili og
ekkert gengur, öll leyfi eru notuð til
neyslu og innbrota, þá þarf að hjálpa
þeim einstaklingi að ná því að verða
20 ára án þess að eyðilagt líf sitt og
rústað öllu í kringum sig.“
Hér kemur Gerður inn í samtalið
og bætir við að það vanti meðferðar-
úrræði fyrir krakka sem eru í neyslu.
Þau geti reyndar fengið pláss á Vogi,
þegar aðstæður séu þannig, en þau
geti líka gengið þaðan út þegar þeim
hentar, jafnvel samdægurs. Þá sé
ekkert endilega hringt í foreldra,
jafnvel þótt börnin séu ekki orðin 18
ára, og foreldrarnir haldi jafnvel að
þau séu enn á Vogi.
Rekstur Hamarskots er greiddur af
Barnaverndarstofu og sveitarfélögum
sem senda ungmenni þangað. Auk
Gerðar og Sigurðar eru þar tveir
starfsmenn. Sigurður drýgir tekjurnar
með því að aka skólabíl í sveitinni.
Vinnutíminn er langur, unnið flest-
ar helgar og í raun alltaf verið á bak-
vakt. Launin eru ekki há og starfið
erfitt.
Hvers vegna stendur hann í þessu?
„Ætli maður sé ekki bara að borga
fyrir gamlar syndir,“ segir Sigurður
og lítur í átt til himins. „Ég var samt
aldrei á þessum stað sem krakkarnir
eru á,“ bætir hann við.
Og hversu lengi ætlar hann að
halda áfram?
„Þangað til ég fæ skilaboð um að
allt sé orðið í lagi,“ segir hann og lítur
til himins og brosir. „Annars er ég
Jósepstrúarmaður. Ég trúi á Jósep,
fósturföður Jesú. Hitt verður allt svo
flókið.“
Morgunblaðið/Golli
Morgunblaðið/Golli
Húsakostur Sigurður segir að þótt mörgum þyki gott að leita í trúna þegar tekist er á við fíkn séu engin trúarbrögð boðuð í Hamarskoti. Hann reyni að
nota húmorinn og vera skemmtilegur. Þess má geta að Sigurður var valinn skemmtilegasti maður Suðurlands 2011. Myndin er af Hamarskoti.
Sigurður segir að það sé eins og samfélagið sé far-
ið að samþykkja ákveðna fíkniefnaneyslu, eins og
að reykja kannabisefni. „Krakkarnir koma hingað
og segja kannski: „Vinkona mín, hún er edrú.“
Og ég spyr hvort hún drekki ekki. „Jú, jú, hún
drekkur og reykir gras.“
Og þetta flokkast undir að vera edrú! Þetta hefur
verið að breytast,“ segir hann.
„Við tökumst á við eftirköstin af grasreyking-
unum; kvíða, og ótta við allt. Þau þora ekki í skóla.
Lenda rosalega oft inni á geðdeild. Þau sjá djöfla og púka og þá er ver-
öldin öll í steik.“
Eftir hrun hafi neyslan breyst, m.a. þannig að meira beri á lyfseðils-
skyldum lyfjum sem auðvelt sé að nálgast.
Veröldin fer öll í steik
BREYTT VIÐHORF
Vistheimili Gerður
Hreiðarsdóttir og
Sigurður Ingi Sig-
urðsson í Hamarskoti.