Morgunblaðið - 23.01.2014, Síða 42
42 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 2014
Kringlunni 4 | Sími 568 4900
ÚTSALA
N
í fullum
gangi
Vorum að taka upp nýjar vörur
Guðrún Nína Petersen er nýr veður-
fræðingur í fréttum hjá Sjónvarp-
inu. Hún kom fyrst fram á skjánum í
fyrrakvöld og verður næst með veð-
urfréttirnar annað kvöld.
„Einhvern tíma verður allt fyrst,“
segir Guðrún Nína, sem útskrifaðist
með doktorspróf í veðurfræði 2004
og hefur verið í fullu starfi hjá Veð-
urstofunni síðan 2008. Hún segist
hafa áhuga á veðri og veðurfræði,
hafa lengi miðlað þekkingu um
fræðin í fyrirlestrum og öðru og veð-
urfréttamennskan sé af sama meiði.
„Þetta er vinna eins og hvað annað,“
segir hún.
Guðrún Nína vinnur einkum við
veðurfræðirannsóknir. Hún er önn-
ur konan sem bætist í hóp veður-
fréttamanna hjá Rúv á skömmum
tíma, en hún bendir á að tveir veð-
urfræðingar hafi dottið út úr veð-
urfréttunum að undanförnu og fylla
hafi þurft í skörðin til að veita áfram
sömu þjónustu. „Þetta er samvinna
margra,“ segir hún en sex veður-
fræðingar sjá nú um veðurfréttirnar
hjá Rúv. steinthor@mbl.is
Guðrún Nína nýtt
andlit í veðurfréttum
Segir starfið samvinnu margra
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sjónvarp Guðrún Nína er byrjuð í veðurfréttum Sjónvarpsins.
SVIÐSLJÓS
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Menn mæta með reynda keppn-
ishesta og nýjar stjörnur. Knapar
eru að prófa nýja hesta fyrir mót og
sýningar komandi tímabils, ekki síst
á landsmótsári,“ segir Linda Björk
Gunnlaugsdóttir, úr stjórn Meist-
aradeildar í hestaíþróttum. Móta-
röðin hefst í kvöld í endurbættri að-
stöðu í Ölfushöllinni í Íslenska
hestagarðinum Fákaseli í Ölfusi.
Átta fjögurra manna lið keppa í
meistaradeildinni, þau sömu og á
síðasta ári. Hins vegar hafa orðið
talsverðar mannabreytingar. Nefna
má að ungar og efnilegar konur
koma nýjar inn í tvö lið, þær Að-
alheiður Anna Guðjónsdóttir í lið
Ganghesta / Málningar og Eyrún Ýr
Pálsdóttir í lið Hrímnis / Export
hesta. Aldursforseti deildarinnar í ár
verður Erling Ó. Sigurðsson, 71 árs
gamall skeiðmeistari, sem kemur
nýr inn í lið Gangmyllunnar.
Lengi langað að taka þátt
Meistaradeildin er liða- og ein-
staklingskeppni. Lið Top Reiter /
Ármóta sigraði í fyrra og liðsstjór-
inn, Guðmundur Björgvinsson, vann
einstaklingskeppnina. Liðið keppir
nú undir merkjum Top Reiter / Sóln-
ingar og kemur sigurstranglegt til
leiks. Verðugir áskorendur eru í öðr-
um liðum auk þess sem þrír öflugir
knapar hafa gengið til liðs við Spón-
.is / Heimahaga. Það eru Guðmar
Þór Pétursson sem lengi hefur starf-
að í Ameríku, Ísólfur Líndal Þór-
isson og Leó Geir Arnarson.
„Mig hefur langað til þess í mörg
ár að taka þátt. Nú er ég kominn
með fleiri góða hesta og er með fína
hesta í öllum greinum,“ segir Ísólfur
Líndal sem tekur nú í fyrsta skipti
þátt í meistaradeildinni. Hann hefur
tekið þátt í KS-deildinni fyrir norðan
frá upphafi.
„Mér finnst áhugavert að kynnast
nýju fólki og skemmtileg tilbreyt-
ing,“ segir Ísólfur. Hann rekur
hestabúgarð á Lækjarmóti í Víðidal
með fjölskyldu sinni og þarf því að
aka suður með hestana. „Ég er með
stóran vagn og tek marga hesta með
mér og þjálfa hérna fyrir sunnan.
Það þarf margt að koma til svo dæm-
ið gangi upp. Guðmar staðarhaldari
lánar mér pláss og konan mín þjálfar
hestana sem eftir eru heima.“
Keppnin verður með svipuðu fyr-
irkomulagi og áður. Keppt verður á
fimmtudagskvöldum með hálfs mán-
aðar millibili, nema hvað skeið-
keppnin fer fram á laugardegi og
lokakvöldið á föstudegi. Bein út-
sending verður frá allri keppninni á
Stöð 2 sport og á Netinu.
Liðin verða kynnt til leiks klukkan
hálf sjö í kvöld og keppni í fjórgangi
hefst klukkan sjö.
Reyndir hestar og nýjar stjörnur
Mótaröðin Meistaradeild í hestaíþróttum hefst í kvöld í hestagarðinum Fákaseli Sjötugur skeið-
meistari og ungar konur bætast í hópinn Þrír öflugir knapar ganga til liðs við Spón.is / Heimahaga
Ljósmynd/Magni
Æfing Miklar breytingar hafa verið gerðar á Ölfushöllinni í Íslenska hestagarðinum Fákabóli, ekki síst veitinga-
staðnum. Þar er verið að setja upp mikla sýningu, hestaleikhús, sem draga á ferðafólk á staðinn.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Sigurvegari Guðmundur Friðrik Björgvinsson sigraði í meistaradeildinni í
fyrra og þá lagði Hrímnir frá Ósi sitt af mörkum.
„Þetta er skap-
andi og um leið
gefandi verk-
efni sem
skemmtilegt
hefur verið að
takast á við,“
segir Guðmar
Þór Pétursson,
höfundur og
leikstjóri hestasýningarinnar
sem verið er að undirbúa í Ís-
lenska hestagarðinum Fákaseli í
Ölfusi. Fyrsta sýningin verður í
byrjun næsta mánaðar og er
stefnt að fimm sýningum í viku.
Aðstaðan á Ingólfshvoli hefur
verið að taka breytingum frá því
nýir eigendur tóku þar við. Með-
al annars hefur veitingastaður-
inn verið tekinn í gegn og
stækkaður og eldhúsið jafn-
framt endurnýjað. Þá er Kron-
Kron að setja þar upp minja-
gripaverslun. Risaskjá hefur
verið komið fyrir á vegg reið-
hallarinnar, á móti áhorfenda-
svæðinu, og sett upp betri lýs-
ing og aðstaða til að stýra
tækninni.
Guðmar hefur notið aðstoðar
leikhúsfólks og kvikmyndagerð-
arfólks til að setja upp hesta-
sýninguna enda segist hann
vera að búa til fyrsta hestaleik-
húsið á Íslandi. „Íslenski hest-
urinn verður í aðalhlutverki og
er markmiðið að draga fram
sem flestar hliðar hans.“
Guðmar Þór er jafnframt að-
stoðarframkvæmdastjóri Ís-
lenska hestagarðsins. Hann
vonast til að Fákasel verði góð-
ur áningarstaður fyrir ferðafólk,
jafnt innlent sem erlent.
Hestaleikhús
sett á fót
BREYTINGAR Í ÖLFUSHÖLL
Guðmar Þór
Pétursson