Morgunblaðið - 23.01.2014, Page 66

Morgunblaðið - 23.01.2014, Page 66
66 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 2014 Sjöfn Gunnarsdóttir er 35 ára í dag og ætlar af því tilefni að haldaskvísupartí fyrir vinkonurnar á laugardaginn. Partíið verður„gefandi gleði“, eins og Sjöfn orðar það, en hún hefur verið dugleg við að fagna heils- og hálfstugar afmælum. Á öðrum, aðeins minna merkilegum, afmælisdögum er nánustu boðið í kaffi. „Ég á tvö börn og mann, sem er að vísu mikið erlendis,“ segir Sjöfn um fjölskylduhagi sína, en maðurinn, Björn Vigfús Metúsalemsson, er smiður og starfar um þessar mundir í Nuuk á Grænlandi. Fjölskyldan flutti í nýtt og stærra húsnæði í október síðastliðnum og síðan hefur verið nóg að gera við að taka upp úr kössum og gera klárt. „Kallinn var bara heima í tíu daga þegar við vorum að flytja og ég var ein eftir með krakka og fullt af kössum,“ segir Sjöfn. „En to-do listinn bíður þegar hann kemur heim,“ segir hún og hlær. Sjöfn segist hafa öðlast ákveðið sjálfstæði sem grasekkja og að hún sé orðin bara hreint býsna laghent. Hún starfar við skrifstofustörf hjá Heilsuborg í Faxafeni og segist sjálf stunda líkamsrækt þegar hún getur. „Ég reyni að fara þrisvar í viku; reyni að vera góð fyrirmynd,“ segir hún en utan hreyfingarinnar nýtur hún þess að verja frístund- unum með fjölskyldu og vinum. Hún segir huggulega stemningu bíða gestanna á laugardag. „Ég er ennþá með jólaseríu úti á runna. Það er fínt að hafa ljósin þegar maður heldur upp á afmælið,“ segir hún. holmfridur@mbl.is Sjöfn Gunnarsdóttir er 35 ára í dag Ljósmynd/larus.is Falleg fjölskylda Sjöfn og Björn Vigfús og börnin Dagur Örn og Sunna á brúðkaupsdeginum 13. október 2012. Býður vinkonunum í „gefandi gleði“ Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Reykjavík Ólöf Yrja fæddist 21. apríl kl. 9.05. Hún vó 3.390 g og var 50,5 cm löng. Foreldrar hennar eru Lísa Kjartansdóttir og Einar Baldvin Ara- son. Nýir borgarar Kópavogur Kristjana Malen fæddist 18. apríl kl. 2.34. Hún vó 4.145 g og var 53 cm löng. Foreldrar hennar eru Þóra Marý Arnórsdóttir og Páll Janus Þórðarson. Þ óra fæddist í Reykjavík 23.1. 1939 og ólst þar upp í foreldrahúsum, fyrst við Laufásveginn og síð- an við Sóleyjargötuna: „Afi og amma áttu upphaflega húsið á Sóleyjargötu 3. Ég man að pabbi og mamma fóru ferð til Bandaríkjanna á stríðs- árunum en ég var þá hjá afa og ömmu á meðan. Mér er það minnisstætt að þegar þau komu aftur heim og gengu upp að húsinu, var ég svo feimin að ég ætlaði varla að þora að heilsa.“ Þóra var í Ísaksskóla og síðan í glænýjum Melaskólanum: „Melaskól- inn þótti afar glæsileg skólabygging sem var nú reyndar ekki alveg tilbúin þegar við hófum þar nám. Í næsta ná- grenni voru svo stór braggahverfi sem stungu óneitanlega í stúf við þennan fallega skóla og nýleg íbúðar- húsin á Melunum.“ Þóra lauk stúdentsprófi frá MR 1959, Fil.kand.-prófi í lista- og menn- ingarsögu frá Stokkhólmsháskóla 1971 og MA-prófi í sagnfræði við HÍ 1999. Þóra var starfsmaður Listasafns Íslands 1965-67, fréttamaður RÚV 1968-74, listráðunautur Norræna hússins 1974-79, listráðunautur Kjar- valsstaða 1979-86 og sérfræðingur hjá Þjóðminjasafni Íslands um árabil Þóra Kristjánsdóttir, sagnfræðingur og listráðunautur – 75 ára Morgunblaðið/Ómar Menningar- og leikhúsfólk Þóra og Sveinn á frumsýningu á Þingkonunum, ásamt Agli Ólafssyni, leikara og söngv- ara, og Tinnu Gunnlaugsdóttur Þjóðleikhússtjóra. En Sveinn var einmitt Þjóðleikhússtjóri á árunum 1972-83. Íslensk list á fyrri tímum Nöfnurnar Afmælisbarnið með nöfnu sína og fyrsta barnabarnið. Guðmundur Elías Knudsen ballettdansari og leikari er 40 ára í dag, 23. janúar. Amma hans, Guðmunda Elíasdóttir söngkona, á einnig afmæli í dag og er 94 ára. Þau halda upp á afmælið saman með því að fara út að borða með allri fjölskyldunni. Árnað heilla AfmæliMAURICE LACROIX EITT FREMSTA ÚRAMERKI Í HEIMINUM Í DAG Frá stofnun árið 1976 hafa vinsældir Maurice Lacroix aukist hraðar en nokkurs annars svissnesks úramerkis og fæst það nú hjá yfir 4.000 úrsmíðameisturum í 45 löndum. Maurice Lacroix úrin eru heimsfræg fyrir fágaða hönnun, fullkomna tækni og gæði í gegn. Maurice Lacroix fæst hjá Jóni og Óskari. PI PA R\ TB W A • SÍ A www.jonogoskar.is Sími 5524910 / Laugavegi 61 / Kringlan / Smáralind

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.