Morgunblaðið - 07.02.2014, Side 1
Um 86% af öllum fast-
eignaviðskiptum utan höf-
uðborgarsvæðisins árið
2012 voru á vegum banka
og sparisjóða. Eru þeir
nánast allsráðandi á mark-
aði miðað við Íbúðalána-
sjóð. Ef Reykjanesið er
skilið undan námu lán
banka og sparisjóða til
fasteignakaupa á lands-
byggðinni um og yfir 90% af öllum veittum
íbúðalánum árið 2012. Þetta hlutfall er hærra
en á höfuðborgarsvæðinu þar sem hlutdeild
banka og sparisjóða er um 70%. »16
Bankar veita flest íbúða-
lán á landsbyggðinni
Fasteignir
Morgunblaðið/Ómar
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Útlit er fyrir að hlutfall Reykvíkinga af íbúa-
fjölda höfuðborgarsvæðisins haldi áfram að
lækka á þessu ári, sé litið til nýbygginga. Sam-
kvæmt talningu Samtaka iðnaðarins (SI) verð-
ur lokið við um 1.400 nýjar íbúðir á höfuðborg-
arsvæðinu á þessu ári. Af þessum 1.400
íbúðum eru um 320 áætlaðar, óstaðsettar,
íbúðir og er það byggt á reynslu SI. Að sögn
Friðriks Á. Ólafssonar, forstöðumanns bygg-
ingarsviðs hjá SI, má ætla að þær íbúðir skipt-
ist eins milli sveitarfélaganna og þær sem
taldar voru.
Af 1080 nýjum íbúðum sem voru taldar eru
263 í Reykjavík, 410 í Kópavogi og 207 í Hafn-
arfirði. Miðað við að 2,4 séu í heimili, sam-
kvæmt skilgreiningu Hagstofunnar, mun 631
búa í nýju íbúðunum í Reykjavík, 984 í Kópa-
vogi og 497 í Hafnarfirði. Hlutfall nýrra tal-
inna íbúða í Reykjavík er 19%.
Mikil fjölgun innflytjenda í Reykjavík
Sé litið til íbúaþróunar á höfuðborgarsvæð-
inu árin 2000 til 2013 kemur í ljós að Reykvík-
ingum fjölgaði um 9.877. Til samanburðar
fjölgaði innflytjendum í borginni um 9.360 á
þessum árum. Innflytjendur hafa því haldið
uppi íbúafjölda Reykjavíkur, sem hefur aukist
um 9% á öldinni. Til samanburðar er aukn-
ingin 39,9% í Hafnarfirði og 39,8% í Kópavogi.
MReykvíkingum fjölgar » 6
Lítið byggt í borginni
Aðeins 19% nýrra íbúða í smíðum á höfuðborgarsvæðinu eru í Reykjavík
Innflytjendur hafa haldið uppi íbúafjölda höfuðborgarinnar á öldinni
Í Stakkholti Reykjavík vex hægar en hin
stóru sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu.
• AFSLÁTTUR AF FLUGI INNANLANDS
• SÉRÞJÓNUSTA OG FRÍÐINDI
• VIÐSKIPTAYFIRLIT
FYRIR FYRIRTÆKI OG ATHAFNAFÓLK.
Sæktu um á flugfelag.is eða
sendu póst á flugkort@flugfelag.is
FLUGKORTIÐ HAGKVÆMT GREIÐSLU-OG VIÐSKIPTAKORT
F Ö S T U D A G U R 7. F E B R Ú A R 2 0 1 4
Stofnað 1913 32. tölublað 102. árgangur
LOFA ÞVÍ AÐ
FÓLK GAPI
AF UNDRUN
FRÆÐA
UNGLINGA
UM KYNLÍF
MEÐVITAÐ
AÐ BRJÓTA
REGLURNAR
PÖRUPILTAR 10 BLÁSKJÁR FRUMSÝNDUR 38BUBBI OG BÓ 43
Jón Gnarr, borgarstjóri Reykjavíkur, setti Vetrarhátíð Reykjavíkur
formlega í gær í garði Listasafns Einars Jónssonar. Kveikti hann á tíu
ljósalistaverkum sem eru staðsett í miðborginni.
Samspil ljóss, gleði og myrkur er í aðalhlutverki á Vetrarhátíðinni
en yfirskrift hátíðarinnar í ár er Magnað myrkur. Ljósalistaverk
verða á fjölsóttum stöðum um alla Reykjavík.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Samspil ljóss og myrkurs í aðalhlutverki
Magnað myrkur á Vetrarhátíð í Reykjavík dagana 6. til 15. febrúar
Réttarhöld yfir þremur stjórnendum Anglo Ir-
ish Bank hófust í fyrradag. Þeim er gefið að
sök að hafa staðið á bak við lán til kaupa á
hlutabréfum í bankanum árið 2008. Er gert ráð
fyrir að um hundrað vitni verði kölluð fyrir
dóminn.
Að sögn saksóknara málsins vildu stjórn-
endur bankans fá 660 milljón pund frá við-
skiptavinum sínum í suðurhluta Frakklands og
Portúgal. Var takmarkið með því að vinda ofan
af leynilegum fjárfestingum nokkurra efnuð-
ustu kaupsýslumanna Írlands, en þeir höfðu
fengið lán til kaupa á hlutabréfum í bankanum.
Átti Sean Quinn, sem eitt sinn var ríkasti mað-
ur Írlands, um eitt skeið fjórðung allra hluta-
bréfa í bankanum.
Málið er hið fyrsta sem rekið er gegn stjórn-
endum fjármálafyrirtækis í Írlandi í tengslum
við efnahagshrunið þar. »18
Með flóknari
fjársvika-
málum Íra
Réttarhöld í máli
Anglo Irish Bank
Þeim fækkar stöðugt starfsheitum yfir-
manna hjá hinu opinbera sem hafa -stjóri í
síðasta orðlið og forstjóri hefur orðið til eða
viðkomandi starf verið lagt niður. Við sam-
runa Flugmálastjórnar, Siglingastofnunar og
Umferðarstofu í Samgöngustofu duttu út
starfsheitin flugmálastjóri og siglingamála-
stjóri og Hermann Guðjónsson, sem hafði
verið siglingamálastjóri, varð forstjóri Sam-
göngustofu. Um leið var lögum breytt þannig
að yfirmaður Vegagerðarinnar varð for-
stjóri. Vegagerðin heldur þó áfram í titil
vegamálastjóra, þannig að Hreinn Haralds-
son er bara „forstjóri“ að lögum. »4
Forstjórum fjölgar á
kostnað gamalla heita