Morgunblaðið - 07.02.2014, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2014
Ungur kampselur úr Norður-Íshafinu heimsótti Húsavíkurhöfn á mánudag
og þriðjudag. „Hann var rosalega spakur og var innan við metra frá okkur.
Hann lék sér og reyndi að klifra upp á flotbryggju í smábátahöfninni,“
sagði Yann Kolbeinsson, líffræðingur hjá Náttúrustofu Norðausturlands.
Kampselir heimsækja Íslandsstrendur á hverju ári. gudni@mbl.is
Ljósmynd/Yann Kolbeinsson
Kumpánlegur kampselur
Kampselur norðan úr höfum heimsótti Húsvíkinga
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Með sameiningum ríkisstofnana og
tilheyrandi lagabreytingum hafa
ýmis starfsheiti yfirmanna sömu
stofnana verið lögð niður. Þannig
lögðust flugmálastjóri og siglinga-
málastjóri af við samruna Flugmála-
stjórnar, Siglingastofnunar og Um-
ferðarstofu í Samgöngustofu á
síðasta ári. Vegagerðin tók til sín
hluta af verkefnum Siglingastofn-
unar en með lagabreytingu varð til
starfsheiti forstjóra Samgöngustofu
og forstjóra Vegagerðarinnar.
G. Pétur Matthíasson, upplýs-
ingafulltrúi Vegagerðarinnar, segir
að þrátt fyrir þessar lagabreytingar
verði áfram notast við orðið „vega-
málastjóri“. Innanríkisráðuneytið
hafi lagt blessun sína yfir það. „For-
stjóri Vegagerðarinnar“ er því að-
eins til á pappírnum. G. Pétur bendir
á að allar tilkynningar frá Vegagerð-
inni um lokanir vega séu auglýstar
undir nafni vegamálastjóra, ekki for-
stjóra Vegagerðarinnar. „Við ætlum
að halda í þetta vígi,“ segir G. Pétur,
sem lögformlega er orðinn deild-
arstjóri samskiptasviðs en vill frekar
kalla sig upplýsingafulltrúa!
Vegamálastjóri er þó ekki eini
embættismannstitill yfirmanns eða
stjórnanda sem lifir enn með stjóra-
heitinu. Ferðamálastjóri stýrir
Ferðamálastofu og fiskistofustjóri
stýrir Fiskistofu. Síðan eru enn í
gildi titlar eins og tollstjóri, ríkislög-
reglustjóri, ríkisskattstjóri og skatt-
rannsóknarstjóri,
sem ómögulegt er
að segja til um
hvort haldist um
ómunatíð. Að
öðru leyti eru yf-
irmenn rík-
isstofnana orðnir
að forstjórum eða
forstöðumönnum.
Magnús Guð-
mundsson, for-
maður Félags forstöðumanna rík-
isstofnana, segir umræðu um
starfsheitin ekki hafa farið fram inn-
an félagsins en vissulega geti verið
tilefni til þess. „Það er missir að
þessum heitum,“ segir Magnús en
bendir réttilega á að félagið hafi
meira verið að fjalla um fækkun for-
stöðumanna hjá ríkinu, nú síðast í
umræðunni um fækkun sýslumanns-
embætta.
Lýsandi, stutt og góð heiti
Jóhannes Bjarni Sigtryggsson,
ritari Íslenskrar málnefndar, segir
þessi starfsheiti mörg hver vera ára-
tugagömul og hafa skapað sér ríka
hefð í tungumálinu. Þess vegna þurfi
mjög góðar og gildar ástæður til að
breyta þeim. „Það er eftirsjá að
þessum nöfnum. Þau eru yfirleitt
mjög lýsandi heiti, stutt og góð, og
draga nafn sitt af heiti upprunalegu
stofnunarinnar. Alltaf er þetta
spurning um hve mikið vægi hefðin á
að hafa í tungumálinu og í þessum
tilvikum ætti hefðin að hafa mikið
vægi,“ segir Jóhannes.
Hreinn forstjóri á pappírnum
Vegagerðin heldur áfram í titilinn „vegamálastjóri“ þrátt fyrir breytt lög
Ferðamálastjóri og fiskistofustjóri eru einnig með síðustu stjóraheitunum
Hreinn
Haraldsson
Taka má nokkur dæmi um
starfsheiti yfirmanna stofnana
sem hafa lagst af á undan-
förnum árum. Nokkuð er um lið-
ið síðan vitamálastjóri hætti,
sem og verðlagsstjóri. Póst- og
símamálastjóri lagðist af við
sölu ríkisins á Símanum um árið
og með breytingu á lögum um
Veðurstofuna árið 2008 varð
veðurstofustjóri ekki lengur til.
Brunamálastjóri breyttist í
forstjóra Mannvirkjastofnunar
og flugmálastjóri og siglinga-
málastjóri hættu á síðasta ári
með stofnun Samgöngustofu.
Hjá Reykjavíkurborg eru ekki
lengur notuð heiti eins og
vinnumálastjóri, garðyrkjustjóri
og gatnamálastjóri.
Aflögð heiti
stjórnenda
OPINBERAR STOFNANIR
Bæjarlind 4, 201 Kópavogur S: 554 6800
Njarðarnesi 9, 603 Akureyri S: 466 3600
www.vidd.is
Öðruvísi fl ísar
Olil Amble, liðsstjóri Gangmyll-
unnar, sigraði í gæðingafimi á
móti Meistaradeildar í hestaíþrótt-
um sem fram fór í Ölfushöllinni í
Fákaseli í gærkvöldi. Hún átti
glæsilega sýningu á Álfhildi frá
Syðri- Gegnishólum í úrslita-
keppninni. Þær fengu 8,77 í með-
aleinkunn og stungu keppinauta
sína af.
Sylvía Sigurbjörnsdóttir á
Héðni Skúla frá Oddhóli sem
keppir fyrir Auðsholtshjáleigu var
efst eftir forkeppnina og hélt sinni
einkunn í úrslitum en Olil og Þor-
valdur Árni Þorvaldsson gerðu
betur. Þorvaldur varð í öðru sæti
á Stjörnu frá Stóra-Hofi með ein-
kunnina 8,09. Þorvaldur keppir
fyrir Top Reiter / Sólningu. Sylvía
varð í þriðja sæti með 7,87.
Guðmundur Björgvinsson varð
fjórði í gæðingakeppninni á
Hrímni frá Ósi og Árni Björn
Pálsson á Stormi frá Herríðarhóli
í fimmta sæti. helgi@mbl.is
Stakk keppinautana af í úrslitum
Morgunblaðið/Eyþór
Sigurvegari Gæðingakeppni er
uppáhaldsgrein Olil Amble.
Olil Amble sigr-
aði í gæðingafimi
„Hluti félagsmanna er óánægður
með valið á fulltrúa Íslands á
Feneyjatvíæringinn í myndlist
2015,“ segir Hrafnhildur Sigurð-
ardóttir, formaður Samtaka ís-
lenskra myndlistarmanna, SÍM.
Vegna óánægjunnar var ákveðið
að halda opinn fé-
lagsfund með
Listfræðafélagi
Íslands í lok febr-
úar. Á þeim fundi
mun Kynningar-
miðstöð íslenskr-
ar myndlistar,
KÍM, greina frá
starfsemi mið-
stöðvarinnar og
nánar frá ákvörð-
un sinni um valið;
Christoph Buchel, sem hvorki er ís-
lenskur ríkisborgari né fæddur hér á
landi.
Spurð hvað henni finnist um að
senda fulltrúa sem ekki er íslenskur
svarar hún: „Mín persónulega skoð-
un er sú að það komi ekki málinu við.
Valið á ekki að snúast um hvar þú
ert fæddur. Ég á stundum erfitt með
hugtakið þjóð, því það er oft fín lína
yfir í þjóðarrembinginn. Við þurfum
að passa að fara ekki út í hann en á
Íslandi búa mörg þjóðarbrot.“
Í þessu samhengi bendir Hrafn-
hildur á að valið á fulltrúa fyrir Ís-
lands hönd hafi breyst eftir að KÍM
fékk umsjón með vali á listamanni. Í
fyrsta skipti í ár var valið úr inn-
sendum tillögum eftir auglýsingu.
„Tíminn verður að leiða í ljós hvort
það var skynsamlegt,“ segir Hrafn-
hildur og bendir á að valið endur-
spegli þróunina síðustu 10 til 15 ár.
„Áður var meira gert úr því að senda
þjóðarstolt Íslendinga. Oftar en ekki
var valinn listamaður af eldri kyn-
slóðinni sem hafði sannað sig. Síð-
ustu ár hafa þeir sem yngri eru orðið
fyrir valinu. Þeir sem eru mest í
sviðsljósinu og eru að gera eitthvað
nýstárlegt.“
Mörkin að mást út
Þá bendir hún á að mörkin séu að
mást út í listaheiminum. Í dag vinni
listamenn þvert á greinar og unnið
sé markvisst í því að sprengja
rammana. Hrafnhildur veltir því upp
að jafnvel sé þessi nýstárlega nálgun
KÍM í umsóknarferlinu hluti af þess-
um tíðaranda.
Spurð hvort henni þyki eðlilegt að
maki Buchels, Nína Magnúsdóttir,
sem vissulega er íslensk, skuli vera
sýningarstjóri bendir Hrafnhildur á
að innan SÍM séu um tíu pör. „Á að
útiloka þau frá því að vinna saman,“
spyr Hrafnhildur. thorunn@mbl.is
Félagsmenn
SÍM óánægðir
KÍM greinir frá valinu á fundi
Hrafnhildur
Sigurðardóttir
Á fundi borg-
arráðs í gær-
morgun var sam-
þykkt að fela
ÍTR að ganga til
samninga við
fyrirtækið Þrek
ehf., sem rekur
líkamsrækt-
arstöðvar World
Class, um að
vinna áfram að
þróun hugmyndar um líkamsrækt-
arstöð við Breiðholtslaug.
Í samtali við fréttavefinn mbl.is
sagði Kjartan Magnússon, borg-
arfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, að
þetta væri stór áfangi fyrir Breið-
holtshverfi.
Kjartan sagði að málið hefði ver-
ið í undirbúningi frá árinu 2009
þegar ÍTR samþykkti tillögu sjálf-
stæðismanna um að líkamsrækt-
araðstöðu yrði komið fyrir við
Breiðholtslaug.
Kjartan sagði jafnframt að þetta
væri mikilvægur áfangi við að ráð-
ast í uppbyggingu fullkominnar lík-
amsræktarstöðvar í fjölmennasta
hverfi landsins. Engin slík stöð er
starfandi í Efra-Breiðholti.
sgs@mbl.is
Líkams-
rækt í
Breiðholti
Kjartan
Magnússon
Staðan í viðræðum strandþjóðanna
um stjórnun makrílveiða á árinu
2014 skýrðist ekki í gær, sam-
kvæmt upplýsingum Sigurgeirs
Þorgeirssonar, formanns samn-
inganefndar Íslendinga. Samninga-
nefndir Íslands, Færeyja, Noregs
og Evrópusambandsins áttu einn
sameiginlegan fund síðdegis í gær
en annars ræddu nefndirnar saman
tvær og tvær. Ákveðið var að halda
áfram í dag.
Staðan í makríl-
viðræðum enn óljós