Morgunblaðið - 07.02.2014, Side 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2014
Malín Brand
malin@mbl.is
Þær Alexía Björg Jóhann-esdóttir, María Pálsdóttirog Sólveig Guðmunds-dóttir eru leikkonur sem
farið hafa ótroðnar slóðir í leiklist.
Þær hafa farið í gervi pilta þar sem
þeim leyfist eitt og annað.
Þær kalla sig Pörupilta og ætla
nú í samstarfi við Borgarleikhúsið
að bjóða 10. bekkingum í Reykjavík
á uppistand þar sem viðfangsefnið
er kynfræðsla.
Leikhúsið til kennslu
Árið 2006 prófuðu leikkonurnar
þrjár að leika karlmenn, fóru í drag
og skrifuðu sketsa. Þær skemmtu
víða og í framhaldi af því voru þær
með uppistandið Homo Erectus í
Þjóðleikhúskjallaranum. „Það
fjallaði um samskipti kynjanna og
samskiptaleysi kynjanna, hvernig
strákar líta á stelpur og stelpur á
stráka. Það gekk glimrandi vel og
við fórum með sýninguna til Finn-
lands og í Hof á Akureyri,“ segir
leikkonan Sólveig Guðmundsdóttir.
Í Hof komu nokkrir hópar ung-
linga í kynjafræðinámskeiðum á
sýninguna og líkaði vel. Það varð
kveikjan að því að nota leikhúsið
meira til kennslu og úr varð uppi-
stand um kynlíf sem sýningar hefj-
ast á hinn tólfta þessa mánaðar.
„Okkur var bent á að nem-
endur í fyrsta bekk í menntaskóla
væru of gamlir fyrir þetta svo við
fengum styrk til að bjóða öllum
nemendum tíunda bekkjar í
10. bekkur lærir um
kynlíf með Pörupiltum
Sennilega þykir mörgum unglingum það óbærileg tilhugsun að fara í kynfræðslu
með foreldrum sínum en leikkonurnar þrjár sem skipa Pörupilta ætla sér að
brjóta ísinn í þeim málum. Þær verða með uppistand í Borgarleikhúsinu næstu
vikurnar þar sem kynlíf og kynfræðsla verður í forgrunni. Verkið er hugsað fyrir
nemendur tíunda bekkjar grunnskóla en á þó erindi við þá fullorðnu líka.
Pörupiltar Vel meinandi en svolítið ólukkulegar týpur. Þroski þessara pilta
er kannski örlítið minni en sjálfur lífaldur þeirra gefur til kynna.
Viðburðurinn Milljarður rís 2014 hef-
ur verið stofnaður á Fésbókinni og er
full ástæða til að hvetja alla til að
taka þátt í honum í dag kl. 12 í Hörpu.
Þar á að koma saman og dansa gegn
ofbeldi á konum um allan heim,
dansa af krafti fyrir allar þær konur
og stúlkur sem upplifað hafa ofbeldi
og sýna í verki að okkur stendur ekki
á sama. Þennan sama dag í fyrra kom
saman einn milljarður manna í 207
löndum og dansaði í tilefni af Millj-
arður rís. Íslendingar létu sitt ekki
eftir liggja og 2.100 karlar, konur og
börn á öllum aldri komu saman í
Hörpu og dönsuðu af lífi og sál. Ís-
lendingar tóku þátt í femínískri flóð-
bylgju og létu jörðina hristast með
samtakamætti sínum.
Í ár ætlar UN Women í samstarfi
við Lunch Beat og tónlistarhátíðina
Sónar að endurtaka leikinn og er
markmiðið að fá 3.000 manns um
allt land til þess að mæta.
Yfir 600 milljónir kvenna búa í
löndum þar sem heimilisofbeldi er
ekki refsivert. Helsta dánarorsök evr-
ópskra kvenna á aldrinum 16-44 ára
er heimilisofbeldi. Konu er nauðgað á
26 sekúndna fresti í Suður-Afríku.
Í Brasilíu deyja 10 konur daglega,
eingöngu vegna heimilisofbeldis.
Ein af hverjum þremur konum
verður fyrir ofbeldi á lífsleiðinni.
Mætum og látum að okkur kveða.
Sýnum samstöðu, dönsum fyrir
mannréttindum kvenna, fyrir heimi
þar sem konur og stúlkur þurfa ekki
að líða ofbeldi vegna kyns síns. Hægt
verður að leggja frítt í Hörpu á með-
an viðburðurinn stendur yfir.
Vefsíðan Milljarður rís á facebook
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Samstaða Í fyrra mættu rúmlega tvö þúsund manns í Hörpu til að dansa.
Allir með í femínískri flóðbylgju
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.