Morgunblaðið - 07.02.2014, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2014
Valið verður á framboðslista fyrir
sveitarstjórnarkosningarnar í
prófkjörum í fimm sveitarfélögum
hjá Sjálfstæðisflokknum um
helgina og flokksvali samfylking-
arfólks fyrir borgarstjórnarkosn-
ingarnar sem hófst með netkosn-
ingu á miðnætti í gær lýkur.
Fimmtán bjóða sig fram í flokks-
vali Samfylkingarinnar í Reykja-
vík. Félagsmenn kjósa bindandi
kosningu um fjögur efstu sætin á
listanum og geta raðað frambjóð-
endum í sæti 5 til 8 án þess að það
sé bindandi fyrir valnefnd sem
stillir upp á listann.
Listi Samfylkingarinnar verður
paralisti. Í tveimur efstu sætum
verður einn einstaklingur af hvoru
kyni og svo í hverjum tveimur
sætum þar á eftir og niður listann.
Frambjóðendur eru í stafrófsröð:
Anna María Jónsdóttir, Björk Vil-
helmsdóttir, Dagur B. Eggertsson,
Dóra Magnúsdóttir, Guðni Rúnar
Jónasson, Heiða Björg Hilmisdótt-
ir, Hjálmar Sveinsson, Kristín
Erna Arnardóttir, Kristín Soffía
Jónsdóttir, Magnús Már Guð-
mundsson, Natan Kolbeinsson,
Reynir Sigurbjörnsson, Skúli
Helgason, Sverrir Bollason og
Þorgerður L. Diðriksdóttir.
18 í framboði hjá Sjálfstæð-
isflokknum í Kópavogi
Sálfstæðisflokkurinn verður með
prófkjör í Kópavogi morgun, laug-
ardag. 18 einstaklingar bjóða sig
fram í prófkjörinu og stendur
kosningin sem fram fer í Hlíða-
smára yfir frá kl 8 til 18. Þeir sem
greiða atkvæði í prófkjörinu eiga
að kjósa sex fram bjóðendur,
hvorki fleiri né færri og merkja við
þá með tölustöfunum 1 til 6, eftir
því í hvaða sæti frambjóðendur
eru kosnir. Í framboði eru Að-
alsteinn Jónsson, Andri Steinn
Hilmarsson, Anný Berglind Thor-
stensen, Ármann Kr. Ólafsson,
Ása Inga Þorsteinsdóttir, Áslaug
Thelma Einarsdóttir, Guðmundur
Gísli Geirdal, Gunnlaugur Snær
Ólafsson, Hjördís Ýr Johnson, Jó-
hann Ísberg, Jón Finnbogason,
Karen Elísabet Halldórsdóttir,
Kjartan Sigurgeirsson, Lárus Axel
Sigurjónsson, Margrét Björnsdótt-
ir, Margrét Friðriksdóttir, Sigurð-
ur Sigurbjörnsson og Þóra Mar-
grét Þórarinsdóttir.
Ellefu frambjóðendur eru í kjöri
í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á
Akureyri sem haldið verður á
morgun. Þeir eru Ármann Sig-
urðsson, Baldvin Valdemarsson,
Bergþóra Þórhallsdóttir, Elías
Gunnar Þorbjörnsson, Eva Hrund
Einarsdóttir, Gunnar Gíslason,
Hjörtur Narfason, Kristinn Frí-
mann Árnason, Njáll Trausti Frið-
bertsson, Sigurjón Jóhannesson og
Svanhildur Dóra Björgvinsdóttir.
Kosið er í Oddeyrarskóla frá kl.
10-18 og í Brekku í Hrísey frá kl.
12-15.30.
Sjálfstæðismenn í Ísafjarðarbæ
halda einnig prófkjör á morgun,
laugardag, og eru sex frambjóð-
endur í kjöri. Þeir eru Daníel Jak-
obsson, Jónas Þór Birgisson,
Kristín Hálfdánsdóttir, Martha
Kristín Pálmadóttir, Sif Huld Al-
bertsdóttir og Steinþór Bragason.
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í
Mosfellsbæ um val á framboðslista
flokksins fyrir sveitarstjórnar-
kosningarnar fer fram á morgun.
Þar eru fimmtán frambjóðendur í
kjöri. Þau eru: Eva Magnúsdóttir,
Fjalar Freyr Einarsson, Hafsteinn
Pálsson, Haraldur Sverrisson,
Hreiðar Örn Zoëga Stefánsson,
Karen Anna Sævarsdóttir, Kol-
brún G. Þorsteinsdóttir, Ólöf A.
Þórðardóttir, Rúnar Bragi Guð-
laugsson, Sigurður Borgar Guð-
mundsson, Sturla Sær Erlendsson,
Theodór Kristjánsson, Örn Jónas-
son, Bryndís Haraldsdóttir og
Dóra Lind Pálmarsdóttir.
Níu einstaklingar eru í kjöri í
prófkjöri um val frambjóðenda
Sjálfstæðisflokksins í Grindavík
fyrir sveitarstjórnarkosningar sem
haldið verður á morgun.
Eftirtaldir eru í framboði: Guð-
mundur Pálsson, Gunnar Ari
Harðarson, Hjálmar Hallgrímsson,
Jón Emil Halldórsson, Jóna Rut
Jónsdóttir, Klara Halldórsdóttir,
Ómar Davíð Ólafsson, Sigurður
Guðjón Gíslason og Þórunn Svava
Róbertsdóttir.
Prófkjör og
flokksval
á sex stöðum
Sjálfstæðismenn með fimm prófkjör
og Samfylkingin flokksval í Reykjavík
Morgunblaðið/Ómar
Kjör Stjórnmálaflokkar eru í óða-
önn við val á framboðslista fyrir
sveitarstjórnarkosningarnar.
Bæjarráð Kópavogs ákvað í gær að fela um-
hverfissviði bæjarins, fjármálastjóra og félags-
málastjóra að gera tillögu að því með hvaða hætti
best væri að standa að kaupum á félagslegum
íbúðum og byggingu leiguíbúða í samræmi við
umdeilda tillögu fulltrúa minnihlutans í bæjar-
stjórn Kópavogs.
Fulltrúar meiri- og minnihluta segja þetta
góða niðurstöðu.
Litið verður til þess hvort og með hvaða hætti
kaup félagslegu íbúðanna rúmist innan svigrúms
fjárhagsáætlunar. Áætla á heildarverð þeirra og
í framhaldi af því hvort þörf sé á viðauka við fjár-
hagsáætlun. Bæjarráðið felur sviðsstjóra um-
hverfissviðs og deildarstjóra lögfræðideildar
bæjarins að gera tillögu um staðsetningu lóða
vegna byggingar fjölbýlis-
húsa sem hugsuð eru fyrir
leiguíbúðir. Einnig á að kanna
hvort sveitarfélagið geti haft
frumkvæði að stofnun leigu-
félags með fleiri aðilum og
myndi framlag bæjarins þá
vera í formi lóða. Þessum út-
tektum á að skila 1. mars.
Komið í faglegri farveg
Ólafur Þór Gunnarsson,
bæjarfulltrúi VG, var einn þeirra sem lögðu fram
upphaflegu tillöguna. „Það sem við lögðum fram
nú er í raun nánari útfærsla á tillögunni sem við
lögðum fram 14. janúar. Það er ánægjulegt að
það náðist ágætis samstaða um þessa tillögu og
ég hlakka til að vinna þetta áfram.“
Guðríður Arnardóttir, oddviti Samfylking-
arinnar, bar á fundinum í gær upp tillögu um við-
auka við fjárhagsáætlun bæjarins, en hún var
felld. Guðríður hafði áður lagt fram tillöguna á
fundi bæjarstjórnar í síðustu viku, en þá var hún
ekki tekin fyrir. „Ég mun óska eftir því að hún
verði tekin fyrir á fundi bæjarstjórnar í næstu
viku,“ segir hún.
Spurð hvort hún telji, líkt og Ármann og Ólaf-
ur Þór, að sátt hafi náðst um málið segir hún þá
sátt aðallega hafa beinst að ýmsum þáttum sem
embættismenn bæjarins muni fara yfir og al-
mennt um aðkomu Kópavogsbæjar að húsnæðis-
málum. annalilja@mbl.is
Ólafur Þór
Gunnarsson
Sátt náðist um húsnæðismálin
Skeifunni 8 | Kringlunni | sími 588 0640 | casa.is
BOURGIE
Hönnun: Ferruccio Laviani
Svartur 49.000,-
Glær 49.000,-
Verslunarrými
Brautarholt 26-28 | 105 Reykjavík
Sími 511 1100 | www.rymi.is | www.riverslun.is
Verslunarhillur
Verðmerkilistar
Gínur
Útiskilti
Fataslár
Ármann Kr. Ólafsson bæjar-
stjóri segir að í gær hafi
menn í fyrsta skipti nálgast
málið með faglegum hætti.
„Það er ljóst að minnihlut-
inn hefur fallið frá þeim
vinnubrögðum sem lagt var
upp með og ég gagnrýndi
harðlega. Nú verður málið
sett í annan og faglegri far-
veg, eins og markmiðið var með skipan þver-
pólitískrar nefndar. Ákvarðanir verða því
ekki teknar fyrr en fyrir liggja greinargerðir
um fjárhagsleg áhrif tillagnanna.“
ÁRMANN KR. ÓLAFSSON
Í faglegri farveg