Morgunblaðið - 07.02.2014, Síða 17
FRÉTTIR 17Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2014
Amtmannsstíg 1 sími: 561·3303
101 Reykjavík · humarhusid@humarhusid.is
Hádegistilboð
Hagnaður Marels dróst saman um
42 prósent milli ára. Í fyrra nam
hann 20,6 milljónum evra, jafnvirði
um 3,2 milljarða króna, en árið 2012
nam hann 35,6 milljónum evra, sem
jafngildir 5,6 milljörðum króna.
Fyrirtækið birti uppgjör sitt í
fyrradag.
Þar kemur fram að tekjur þess
hafi dregist sam-
an um 7,3% milli
ára og nemi nú
661,5 milljónum
evra, jafnvirði
um 104 milljarða
króna. Í tilkynn-
ingu frá Marel
segir að tekjur af
stórum verkefn-
um hafi verið lág-
ar en tekjur af
varahlutum og þjónustu hafi haldið
áfram að vaxa.
Rekstrarhagnaður (EBIT) fyrir-
tækisins var 42,9 milljónir evra en í
tilkynningunni segir að fyrirtækið
geri ráð fyrir að leiðréttur rekstr-
arhagnaður á þessu ári verði 55
milljónir evra.
Langtímahorfur séu góðar og fyr-
irtækið stefni á að vaxa hraðar en
markaðurinn.
Pantanabókin stóð í 132,4 millj-
ónum evra í árslok 2013 en hún stóð
í 125,4 milljónum evra í árslok 2012.
Staðan sterk í
öllum heimsálfum
Árni Oddur Þórðarson, sem var
skipaður forstjóri Marels í byrjun
nóvembermánaðar í fyrra, segir að
staða Marels, sem leiðtoga í þróun
og framleiðslu á háþróuðum búnaði
og kerfum til vinnslu á fiski, kjöti og
kjúklingi, sé sterk í öllum heims-
álfum.
„Marel hefur vaxið að meðaltali
um 4% á ári undanfarin fimm ár á
sama tíma og hagvöxtur á heims-
vísu hefur verið í sögulegu lág-
marki. Undanfarin ár hafa verið erf-
ið fyrir matvælaframleiðendur sem
hafa gengið í gegnum miklar hækk-
anir á bæði korn- og orkuverði.
Markaðsaðstæður fara batnandi og
á síðasta ári högnuðust matvæla-
framleiðendur og fjárhagssaða
þeirra styrktist. Þörf framleiðenda
er að aukast eftir endurnýjun og
stækkun,“ er haft eftir Árna Oddi í í
fréttatilkynningu.
Ekki í samræmi
við getu félagsins
Hann segir að rekstrarhagnaður
fyrirtækisins á síðasta ári hafi ekki
verið í samræmi við samkepppn-
isstöðu og getu félagsins.
„Stefnan er skýr, verkefnið fram-
undan er að aðlaga rekstur að
stefnu félagsins. Einfaldara skipu-
lag Marels mun gera okkur kleift að
auka þjónustu við viðskiptavini okk-
ar. Við munum taka varfærin skref í
þá átt að samþætta einingar sem
þjóna sömu þörfum viðskiptavina og
byggja á samskonar grunntækni,“
segir hann jafnframt.
Markmiðið sé að ná yfir 100 millj-
ónum evra í rekstrarhagnað árið
2017.
Hagnaður Marels
dróst saman um 42%
Marel hefur vaxið að meðaltali um 4% á ári sl. fimm ár
Marel Fyrirtækið stefnir að því að ná 100 milljóna evra hagnaði árið 2017.
Verkefnið framundan sé að aðlaga rekstur Marels að stefnu félagsins.
Marel setur markið hátt
» Hagnaður Marels nam 20,6
milljónum evra, jafnvirði um
3,2 milljarða króna í fyrra, en
árið 2012 nam hann 35,6 millj-
ónum evra, sem jafngildir 5,6
milljörðum króna.
» Árni Oddur segir að
rekstrarhagnaður fyrirtækisins
á síðasta ári hafi ekki verið í
samræmi við samkepppn-
isstöðu og getu félagsins.
» Fyrirtækið stefnir að 100
milljóna evra hagnaði á árinu
2017.
Árni Oddur
Þórðarson
Alls ferðuðust 125 þúsund far-
þegar með Icelandair í milli-
landaflugi í janúar og fjölgaði
þeim um 15% miðað við janúar á
síðasta ári. Framboð í millilanda-
fluginu var aukið um 15%. Sæta-
nýtingin var 70,5% og jókst um
1,6 prósentustig í mánuðinum á
milli ára.
Í tilkynningu kemur fram að
fjöldi farþega í innanlands- og
Grænlandsflugi var 20 þúsund í
janúar og fækkaði um 5%.
Framboð í janúar var 7%
minna en í janúar á síðasta ári og
sætanýting var 68,2% samanborið
við 66,1% í janúar 2012.
Seldir blokktímar í leiguflugi
voru 8% færri en í janúar á síð-
asta ári.
Herbergjanýting var 51,4%
Fragtflutningar jukust um 7% á
milli ára. Seldar gistinætur hjá
Flugleiðahótelunum jukust um
10% á milli ára. Herbergjanýting
var 51,4%, eða 4,8 prósentustig-
um hærri en í janúar 2013.
Morgunblaðið/Kristinn
Icelandair Alls ferðuðust 125 þúsund farþegar með Icelandair í millilanda-
flugi í janúar og fjölgaði þeim um 15% miðað við janúar á síðasta ári.
Farþegum Icelandair
fjölgaði um 15% í janúar