Morgunblaðið - 07.02.2014, Side 32
32 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2014
✝ Guðrún JónaGísladóttir
fæddist í Suðureyr-
arhreppi 12. ágúst
1957. Hún lést á
krabbameinsdeild
Landspítalans 2.
febrúar 2014.
Foreldrar henn-
ar voru Gísli Jóns-
son skipstjóri, f. 21.
september 1911, d.
3. janúar 1995, og
Þuríður Jónasdóttir húsfreyja, f.
14. janúar 1922, d. 4. apríl 1967.
Kynforeldrar Guðrúnar voru
Gunnþór Pétursson, f. 20. febr-
úar 1938, d. 24. apríl 2005, og
Rannveig Hansína Jónasdóttir,
f. 26. september 1935. Systkini
Guðrúnar eru: Elsa Kolbrún
Gunnþórsdóttir, f. 1963, Hrafn-
hildur Þorleifsdóttir, f. 1955,
Hallgrímur Þór Gunnþórsson, f.
1960, Inga Jóna Gunnþórsdóttir,
f. 1966, Jónas Sigurður Gunn-
soninn Bjarna Berg. 3) Gunnar
Örn, f. 31. október 1984, maki
Pilar Olivares Villalonga, f. 22.
febrúar 1989. 4) Kolbrún Klara,
f. 13. maí 1992. Fyrir átti Gunn-
ar soninn Guðjón Leif, f. 28. júní
1973, maki Hulda Birna Eiríks-
dóttir, f. 12. október 1975. Börn
þeirra eru Linda Regína, Atli
Björn, Laufey María og Dagur
Þór.
Guðrún og Gunnar gengu í
hjónaband 27. desember 1980.
Þau bjuggu lengst af sinni sam-
búð í Laugarneshverfinu í
Reykjavík. Guðrún stundaði
nám við Alþýðuskólann að Eið-
um og minntist hún ætíð náms-
áranna þar af miklum hlýhug og
virðingu, enda hélt hún tryggð
við skólann og gömlu skóla-
félaganna á Eiðum alla tíð. Að
lokinni hefðbundinni skóla-
göngu vann Guðrún við ýmis
störf, lengst af hjá Ríkisend-
urskoðun, leikskólanum Lauga-
borg og Kaupási, en seinast
starfaði hún hjá ÁTVR. Hún
söng í tæp 20 ár í Léttsveit
Reykjavíkur
Útför Guðrúnar fer fram í
Fríkirkjunni í Reykjavík í dag,
7. febrúar 2014, kl. 13.
þórsson, f. 1969,
Torfi Gunnþórsson,
f. 1958, Soffía
Gunnþórsdóttir, f.
1961.
Árið 1977 kynn-
ist Guðrún eftirlif-
andi eiginmanni
sínum, Gunnari
Guðjónssyni tónlist-
armanni og prent-
smiði, f. 22. október
1950 á Nesvegi í
Reykjavík. Foreldrar hans eru
Dagrún Gunnarsdóttir, f. 29 maí
1923, og Guðjón Emilsson, f. 4.
nóvember 1917, d. 27. október
1995. Saman eignuðust Guðrún
og Gunnar fjögur börn, þau eru:
1) Þuríður Dagrún, f. 10. októ-
ber 1980, börn hennar eru Sól-
rún Ása og Hákon Fannar, maki
Eyjólfur Magnús Kristinsson, f.
1976. 2) Gísli Rúnar, f. 6. apríl
1983, maki Helga Bjarnadóttir,
f. 25. október 1987, þau eiga
Því fylgir mikil sorg og sökn-
uður að kveðja Guðrúnu mína,
kæra mágkonu, bestu vinkonu og
eiginlega systur. Þar sem við
tengdumst svo sterkum böndum
var hún eins og systirin sem ég
eignaðist aldrei og vorum við oft
spurðar hvort svo væri. Tengsl
okkar Guðrúnar urðu alltaf
sterkari eftir því sem við urðum
eldri og það leið nánast ekki sá
dagur að við hefðum ekki sam-
band, minnst einu sinni á dag.
Fyrir átján árum dró Guðrún
mig með sér í kór, Kvennakór
Léttsveitar Reykjavíkur. Eftir
það varð ekki aftur snúið. Þar
sungum við saman og urðum nær
alltaf samferða á kóræfingar.
Saman fórum við í fjölmörg
ferðalög með kórnum bæði inn-
anlands og utan.
Þegar erfið lög voru í æfingu
hittumst við stundum tvær og
æfðum okkur saman til þess að
ná þessu nú alveg. Guðrún var
metnaðarfull og tók ekki annað í
mál en að ná hlutunum fullkom-
lega. Í kórnum áttum við margar
góðar vinkonur, en Guðrúnar
verður sárt saknað þar og í litla
spilaklúbbnum okkar innan kórs-
ins.
Fyrir nokkrum árum byrjuð-
um við Guðrún að spila golf og
fórum eins oft og við gátum út á
völl að spila, bæði innanlands og
erlendis. Sérstaklega er mér of-
arlega í minningunni ferð okkar
austur á ættarmót á Seyðisfjörð
en þá spiluðum við golf á öllum
mögulegum og ómögulegum
stöðum á leiðinni. Það var ynd-
isleg ferð. Guðrún var metnaðar-
fullur og góður golffélagi og við
höfðum mikla ánægju af samver-
unni á vellinum. Með okkur Guð-
rúnu voru nokkrar vinkonur sem
spiluðu með okkur golf og var
fastur liður árlega að fara saman
í bústað í Skorradal. Þessar ferð-
ir voru okkur öllum afar kær-
komnar og nutum við þess að
vera saman og skemmta hver
annarri. Guðrúnar verður sárt
saknað í þeim vinkvennahópi.
Undanfarið ár reyndist Guð-
rúnu afar erfitt. Það var óend-
anlega þungbært fyrir okkur
sem stöndum Guðrúnu næst að
horfa á þessa fallegu, dásamlegu
og duglegu konu berjast auð-
mjúk við sinn sjúkdóm. Sjúkdóm
sem hún átti aldrei möguleika á
að sigra.
Þrátt fyrir vanmátt okkar var
okkur kært að geta verið henni
til halds og trausts á því tímabili.
Ég kveð Guðrúnu mína með
djúpum söknuði en þakklæti fyr-
ir að hafa átt hana og tryggan
vinskap hennar að.
Ljós og friður til ykkar elsku
Gunni, Þuríður, Gísli, Gunni,
Kolla og fjölskyldur, hugurinn er
hjá ykkur.
Kveðja
Anna Guðný.
Mín vina kær, ég kveð þig nú í anda,
með klökkum huga þakka ást og
tryggð.
Þú horfin ert til sælli sólarstranda
og sérð ei framar þjáning eða hryggð.
(GSÞ)
Nú er hinni löngu þrauta-
göngu elsku Guðrúnar okkar
lokið. Hún barðist hetjulega við
illvígan sjúkdóm. Með æðruleysi
og dugnaði tókst henni að kom-
ast í gegnum erfiða daga. Hún
sagði svo oft: „Svona er þetta
bara.“ Margar góðar minningar
koma í hugann á svona stundum.
Við minnumst allra þeirra gæða-
stunda sem við áttum með Guð-
rúnu og Gunnari bæði innan-
lands og erlendis. Við munum
sakna svo margs.
Elsku Gunnar, Þuríður, Gísli,
Gunni, Kolla og fjölskyldur.
Sendum ykkur okkar dýpstu
samúðarkveðjur og biðjum Guð
að vera með ykkur og styrkja.
Þín mildhlý minning lifir,
svo margt að þakka ber.
Þá bjart og blítt var yfir,
er brosið kom frá þér.
Þú sólargeisla sendir
og samúð vinarþel.
Með hlýrri vinarhendi
mér hjálpaðir svo vel.
(GSÞ)
Guðríður og Emil Theodór.
Það er erfitt að tjá með orðum
sáran söknuð og daprar tilfinn-
ingar þegar ástkær mágkona og
svilkona okkar, Guðrún Jóna
Gísladóttir, hefur nú kvatt þenn-
an heim eftir erfið veikindi. Hún
barðist hetjulegri baráttu við ill-
vígan sjúkdóm, sem gefur engan
grið, og varð að lokum að lúta í
lægra haldi, langt um aldur
fram. Eftir sitjum við, ástvinir
hennar, og drúpum höfði. Við
getum þó huggað okkur við ljúf-
ar minningar um yndislega
manneskju, sem hafði svo mikið
að gefa og lýsti upp tilveruna
með glaðværð sinni og hjálp-
semi. Guðrún var hrókur alls
fagnaðar hvar sem hún kom og
hún hélt skopskyninu allt fram í
andlátið og mætti örlögum sín-
um með reisn. Það er vissulega
höggvið stórt skarð í fjölskyldu
okkar og erfitt að þurfa að sætta
sig við napran veruleikann. En
eigi má sköpum renna. Minning-
in um allar skemmtilegu sam-
verustundirnar munu þó ylja
okkur um ókomin ár og hjálpa
okkur að sætta okkur við það
sem orðið er.
Með þessum fátæklegu orðum
kveðjum við Guðrúnu hinstu
kveðju í þeirri fullvissu, að við
munum hitta hana aftur á öðru
tilverusviði. Hugurinn er hjá
Gunna og börnunum og við biðj-
um almættið um að veita þeim
styrk á þessum erfiðu tímum.
Blessuð sé minning Guðrúnar
Jónu Gísladóttur.
Björg og Sveinn.
Þegar ég var barn og svo eftir
að ég varð eldri þótti mér alltaf
ákaflega þægilegt að vera nálægt
Guðrúnu. Hún gaf frá sér ein-
hverja hlýju og móðurlega til-
finningu sem ég fann ávallt fyrir.
Ég fann væntumþykju streyma
frá henni í minn garð. Þetta er
svona tilfinning sem maður talar
ekkert um því maður áttar sig
ekki á henni fyrr en maður sest
niður og hugsar til baka. Það
voru forréttindi að fá að verða
hluti af lífi hennar Guðrúnar og
fá að hafa hana í sínu lífi.
Ég man þegar ég var yngri,
svona í kringum 7-10 ára, þá
fannst mér Guðrún vera alveg
eins og mamma mín. Þær töluðu
eins, höguðu sér eins og litu líka
svipað út, fallegar, traustar og
lífsglaðar. Enn þann dag í dag
finnst mér þær svo líkar að svo
mörgu leyti. Það kannski skýrir
þá gífurlegu væntumþykju sem
ég bar til Guðrúnar og þá sorg
sem nú hvílir á hjarta mínu.
Því miður segir maður ekki
nægilega oft sínum nánustu hvað
manni þykir vænt um þá en Guð-
rún, mér þótti óskaplega vænt
um þig og ég á eftir að sakna þín.
Lífið er stundum svo ósann-
gjarnt og þú fékkst aldeilis að
finna fyrir því seinasta árið. Þú
varðst þó þeirrar gæfu aðnjót-
andi að hafa ástríkan og sterkan
hóp í kringum þig sem hjálpaði
þér að takast á við óvættinn af
hugrekki og æðruleysi. Hóp af
góðu fólki, vinum og vandamönn-
um, sem stóð þétt með þér í
gegnum þennan erfiða tíma og
þar ber auðvitað fyrst að nefna
þinn trausta og yndislega eigin-
mann. Hann hefur misst mikið en
þú, eins hugulsöm og þú ert,
skildir hann ekki eftir einan held-
ur gafst honum fjögur falleg og
vönduð börn, þau Þuríði, Gísla,
Gunna og Kollu. Allt frændsystk-
in sem mér þykir svo vænt um og
stoltur af að vera tengdur þeim
blóð- og vinaböndum.
Elsku Gunni, Þurí, Gísli,
Gunni og Kolla, ég sendi ykkur
öllum og ykkar fjölskyldum mín-
ar innilegustu samúðarkveðjur
og vona að þið finnið styrk hvert
hjá öðru á þessum erfiðu tímum.
Haukur Jóhann
Hálfdánarson.
Elsku Guðrún okkar, við sitj-
um hér Sagaklass-vinkonur og
rifjum upp skemmtilegar stundir
sem við höfum átt saman, útileg-
ur, utanlandsferðir og tölum nú
ekki um öll böllin sem við fórum á
með hljómsveitinni og ekki má
gleyma dekurdögunum okkar á
Hótel Sögu. Þar var mikið hlegið
og ýmsar óvæntar uppákomur og
alltaf skálað í rauðu og hvítu.
Þessi litli hópur var frábær og
náði mjög vel saman. Við þrjár
söknum þín og elsku Svanhvítar
okkar sem lést í maí 2009. Við er-
um afskaplega þakklátar fyrir að
hafa fengið að kynnast ykkur og
vera ykkur samferða. Við vitum
að Svanhvít hefur tekið á móti
þér með opnum örmum.
Elsku vinkona, þú varst falleg
að utan sem innan, alltaf jákvæð,
einnig í veikindum þínum. Minn-
ing þín mun ávallt lifa í hjörtum
okkar.
Við viljum kveðja þig með ljóð-
inu Vinkona kvödd, úr ljóðabók-
inni Bleikt eins og kærleikurinn.
Það birtir að vori, hvert blómstur nú
vaknar
og bráðum mun sólin reka myrkrið á
flótta
en hjarta mitt grætur og hugurinn
saknar
því hönd þín er köld og mín sál fyllist
ótta.
Þá man ég hlýju orðin þín, mildina þína
og mannkærleikann, sem fyllti þitt
hjarta.
Ég brosi gegnum tárin, brátt mun
sorgin dvína
og bjartar nætur vorsins lýsa myrkrið
svarta.
Við sjáumst ekki aftur, söngur þinn er
hljóður
en sálir okkar mætast í ljósi nú eins og
fyrrum.
Tíminn sem við áttum var tær og
hreinn og góður.
Tryggðarböndin ofin á ljúfum stundum
kyrrum.
(Rut Gunnarsdóttir)
Elsku Gunni og fjölskylda, við
systur þrjár sendum ykkur okk-
ar dýpstu samúðarkveðjur og
biðjum góðan Guð að vaka yfir
ykkur og vernda.
Bryndís, Edda og Sigrún.
Það eru þung skref að þurfa að
kveðja skólafélaga okkar og vin,
Guðrúnu Jónu Gísladóttur, þessa
fallegu, ljúfu, hjartahlýju og
blíðu konu.
Guðrúnu Jónu kynntist ég
haustið 1974 er ég hóf nám við
Alþýðuskólann á Eiðum. Okkur
varð strax vel til vina, hún var
hjálpleg og ráðagóð við ýmislegt
er viðkom félagslífinu og alltaf
tilbúin að taka til hendinni við
skipulag á hinum ýmsu uppá-
komum. Hún naut þeirra forrétt-
inda að þurfa ekki að búa á skóla-
vistinni eins og aðrir heldur bjó
hún hjá ættingjum sínum í End-
urvarpinu eins og það var kallað.
Hún tók þátt í flestu sem í boði
var á Eiðum, hvort heldur það
voru íþróttir, söngur eða leiklist.
Á Marsinum, árshátíð Eiðanema,
lék hún húsfrúna á Stað í leikrit-
inu Maður og kona með miklum
ágætum. Einlægur áhugi Guð-
rúnar Jónu á Eiðaskóla og skóla-
félögum sínum var mikill. Alltaf
var hún tilbúin til að finna upp á
tilefni til að hittast, finna tilefni
til að ná saman vinum sínum frá
Eiðum eða aðstoða skólafélagana
er þeir komu í höfuðstaðinn. Guð-
rún Jóna hafði marga góða kosti,
einn hennar stærsti kostur var
einlægni hennar, aldrei gerði hún
mannamun og sýndi öllum sama
viðmót. Hún var hvers mann
hugljúfi og með hennar góðu
lund laðaðist fólk að henni sem
naut þess að umgangast hana,
það var bæði gott og gaman að
vera í návist Guðrúnar Jónu.
Guðrún Jóna var sérlega fé-
lagslynd og átti ýmis áhugamál.
Hún hafði mikinn áhuga á tón-
list og söng, hún starfaði og söng
með Léttsveit Reykjavíkur um
árabil. Hún hóf að stunda golf
fyrir fáum árum, fór í golfferðir
til Spánar og var áhugasöm um
íþróttina sem hún stundaði með
sínum góða eiginmanni. Árið
2010 kom hún að máli við mig og
fannst vera kominn tími til að við
myndum hefja undirbúning að
endurfundum þeirra sem voru
með okkur á Eiðum veturinn ’74-
’75. Kraftur hennar og áhugi
smitaðist til okkar allra sem að
undirbúningnum stóðu og rúm-
lega 70 Eiðanemar og -kennarar
hittust í Reykjavík vorið 2011 og
kom meir en helmingur að aust-
an um langan veg. Við Guðrún
Jóna ætluðum sl. vor að fara
austur á Egilsstaði með mynd-
band af þessum endurfundi okk-
ar til að sýna skólafélögum okkar
fyrir austan og hefja undirbún-
ing að næsta endurfundi sem
ráðgerður er 2015. En örlögin
tóku fram fyrir hendur okkar og í
upphafi síðasta árs greindist
Guðrún Jóna með illvígan sjúk-
dóm sem nú hefur lagt hana að
velli langt um aldur fram. Þessi
fallega kona, jafnt að utan sem
innan, sýndi einstaka hetjulund
og æðruleysi í baráttu sinni við
sjúkdóminn en með Gunnar Guð-
jónsson, eiginmann sinn, sér við
hlið tókst hún á við baráttuna af
einurð og festu. Ég vil fyrir hönd
okkar sem urðum samferða Guð-
rúnu Jónu á Eiðum senda eig-
inmanni hennar, Gunnari, börn-
unum þeirra, Þuríði, Gísla,
Gunnari og Kolbrúnu, og fjöl-
skyldum þeirra, okkar innileg-
ustu samúðarkveðjur og von um
að Guð styrki ykkur og blessi í
ykkar miklu sorg um leið og við
biðjum góðan Guð að blessa og
varðveita minninguna um Guð-
rúnu Jónu Gísladóttur.
F.h. Eiðanema 1974-1975,
Pétur Georg Guðmundsson.
Kær frænka er látin langt fyr-
ir aldur fram. Guðrún Jóna varð
ung heimilisvinur hjá okkur á
Eiðum, þegar hún og pabbi henn-
ar komu til Birnu frænku og fjöl-
skyldu um stórhátíðir og í sól og
sumarblíðu á Héraði. Tengslin
styrktust síðan enn meir þegar
Guðrún Jóna ákvað að fara í Al-
þýðuskólann á Eiðum og var þá
langdvölum á heimilinu. Hélt hún
alltaf nánu sambandi við Birnu
frænku sína á meðan hún lifði.
Við geymum góðar minningar
um allar samverustundirnar með
Guðrúnu Jónu í huga okkar og
sendum Gunna, börnum og
barnabörnum okkar dýpstu sam-
úðarkveðjur. Fyrir hönd fjöl-
skyldunnar frá Endurvarpsstöð-
inni á Eiðum,
Magnfríður Júlíusdóttir
(Fríða).
Guðrún Jóna
Gísladóttir
HINSTA KVEÐJA
Með trega og sorg kveð
ég ljúfa og mæta konu.
Hver minning dýrmæt perla að
liðnum lífsins degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug
þakka hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf,
sem gleymist eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu
að kynnast þér.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Elsku Gunni, Þuríður,
Gísli, Gunni og Kolla, ég
veit þið syrgið sárt og ég
sendi ykkur hugheilar sam-
úðarkveðjur.
Dagrún Hálfdánardóttir.
„Pabbi er dáinn,
hann varð bráð-
kvaddur í gær.“
Þetta eru ein erfið-
ustu orð og setning
sem ég hef þurft að segja á minni
lífstíð. Pabbi var tekinn frá okkur
alltof snemma. En þetta er víst
það eina sem við vitum með vissu í
þessu lífi og þó svo við vitum að
þessi dagur muni einhvern tím-
ann koma hjá okkur öllum þá
kemur hann alltaf of snemma.
Sorgin í hjarta mínu er mikil. En
þessi sorg fer hratt til hliðar og
minnkar þegar ég minnist allra
þeirra samverustunda sem ég átti
með pabba mínum. Mér hlýnar
öllum þegar ég hugsa til veiðiferð-
ar okkar í sumar þar sem við
fengum báðir maríulaxinn okkar.
Þó svo pabbi hafi verið til sjós í
Ólafur Gunnarsson
✝ Ólafur Gunn-arsson fæddist
6. desember 1945.
Hann lést 2. janúar
2013. Útför Ólafs
fór fram 15. janúar
2014.
mörg ár á einum
þekktasta veiðidalli
Íslandssögunar,
gömlu Guggunni, þá
var hann ekki mikill
veiðimaður og þeg-
ar ég hugsa til baka
og sé hann fyrir mér
landa laxinum með
öllum þeim tilþrif-
um sem einn klaufa-
bárður getur gert í
allt of stórum láns-
vöðlum þá get ég ekki annað en
brosað og hlegið.
Pabbi einhvern veginn var allt
og gat allt. Hann var í senn mikill
smiður, handverksmaður og
klaufabárður, grínisti og grafal-
varlegur. Pabbi og mamma
byggðu sér sælukot í landi fyrir
austan og þótti pabba hvergi
betra að vera en þar. Þar dundaði
hann sér við að negla, líma og
skrúfa allar fjalir, rissa upp teikn-
ingar af skúrum, leiðslum, lögn-
um og geymslum. Mottóið hans
var: annaðhvort gerir maður
þetta almennilega eða sleppir
þessu.
Pabbi átti mjög auðvelt með að
hlæja og fannst ekkert skemmti-
legra en að horfa á þætti um fald-
ar myndavélar, Charlie Chaplin
og Laurel og Hardy og segja svo í
lokin: „Þetta er nú meiri vitleys-
an!“ Einnig átti pabbi mjög auð-
velt með að tala við alla og gat tal-
að vel og lengi við alla sem urðu á
vegi hans. Ég man í eitt skipti
þegar hann ætlaði að hringja í
Kristínu systur og talaði í símann
í rúman hálftíma. Svo þegar hann
lagði á þá spurði ég hvað væri að
frétta af systur minni, svar hans
var: „Ég veit það ekki, ég hringdi í
rangt númer.“ Þetta eru bara
nokkrar af þeim minningum sem
ég á um hann pabba minn og
geymi í hjarta mínu og gríp í þeg-
ar sorgin er og virðist mikil.
Ég er mjög stoltur af pabba
mínum og því sem hann áorkaði í
þessu lífi. Hann gerði mig að þeim
manni sem ég er í dag. Ég hef
reynt að fylgja þeim lífsreglum
sem hann lagði fyrir mig og mun
gera áfram. Ég sakna pabba mjög
mikið en ég veit að hann er ekki
langt undan standandi þétt við öxl
mína að leiðbeina mér í þeirri veg-
ferð sem ég á eftir ófarna eins og
hann hefur alltaf gert.
Árni Baldvin Ólafsson.
Morgunblaðið birtir minning-
argreinar endurgjaldslaust
alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins. Neðst á forsíðu mbl.is
má finna upplýsingar um innsend-
ingarmáta og skilafrest. Einnig
má smella á Morgunblaðslógóið
efst í hægra horninu og velja við-
eigandi lið.
Skilafrestur | Sé óskað eftir birt-
ingu á útfarardegi þarf greinin að
hafa borist á hádegi tveimur virk-
um dögum fyrr (á föstudegi ef út-
för er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur
birting dregist, jafnvel þótt grein
hafi borist innan skilafrests.
Minningargreinar