Morgunblaðið - 07.02.2014, Síða 35
maður viðskipta- og neytenda-
nefndar flokksins 1985-86 og í
flokksráði, var stjórnarformaður
Hvíta hússins hf. auglýsingastofu
1991-92 og 1994-2002; Athygli hf.,
almenningstengsla 1991-92 og
Verksmiðjunnar hf., kvikmynda-
gerðar 1991-92 og sat í sóknarnefnd
Hallgrímskirkju 1992-2001.
30 þúsund skákir á netinu
En hver eru áhugamálin? „Ég
tefldi mikið á unglingsárunum og
tók þátt í mótum hjá TR, hætti síð-
an í áratugi en byrjaði að tefla á
netinu fyrir 12 árum og hef síðan
teflt þar um 30 þúsund at- og hrað-
skákir. Ég spila brids við skóla-
bræður og vini frá því úr mennta-
skóla og ég les reiðinnar býsn, les
hratt og er nærri því alæta á bæk-
ur.
Þegar barnauppeldinu lauk rækt-
uðum við hjónin Bichon Frisé-
hunda og héldum fjóra slíka um
langt árabil. Loks var ég ætíð
vinnumaður hjá eiginkonunni í
hennar umfangsmiklu blómarækt
og garðyrkju. Hin síðari ár
skemmtum við okkur á golfvellinum
í góðu veðri.“
Fjölskylda
Eiginkona Páls Braga er Stefanía
Ingibjörg Pétursdóttir, f. 3.12. 1941,
snyrtifræðingur og fyrrv. fulltrúi
hjá HÍ. Hún er dóttir Péturs Jóns-
sonar, f. 19.9. 1895, d. 24.9. 1973,
bifreiðarstjóra, og Jórunnar
Björnsdóttur, f. 14.12. 1904, d. 2.2.
1966, húsfreyju. Stefanía og Páll
Bragi bjuggu lengst af í Litla-
Skerjafirði en í Garðabæ frá 2001.
Börn Páls Braga og Stefaníu eru
Jórunn Pálsdóttir, f. 3.3. 1964,
kennari í Reykjavík, sambýlismaður
Þórarinn Stefánsson verkfræðingur
og á hún þrjú börn; Þórður Pálsson,
f. 8.1. 1968, hagfræðingur búsettur
á Seltjarnarnesi, forstöðumaður hjá
vátryggingafélaginu Sjóvá, maki
Kristín Markúsdóttir þjónustu-
fulltrúi og eiga þau þrjú börn; Rak-
el Pálsdóttir, f. 4.6. 1970, þjóð- og
mannauðsfræðingur í Reykjavík,
forstöðumaður hjá Samtökum iðn-
aðarins, maki Óskar Sigurðsson
landfræðingur og eiga þau þrjú
börn; Kristján L. Loðmfjörð Páls-
son, f. 9.12. 1977, myndlistarmaður
á Seyðisfirði, sambýliskona Tinna
Guðmundsdóttir menningarstýra og
eiga þau þrjú börn.
Dóttir Páls Braga og Guðrúnar
Erlu Sigurðardóttur, f. 27.3. 1944,
hársnyrtis, er Ynja Sigrún Ísey
Pálsdóttir, f. 13.8. 1967, hársnyrtir í
Reykjavík og á hún fjögur börn með
Inga Pétri Ingimundarsyni.
Hálfbræður Páls Braga, sam-
mæðra, eru Stefán Þórðarson, f.
31.1. 1953, búsettur í Reykjavík og
Ágúst Þórðarson, f. 29.12. 1954,
rekstrarhagfræðingur í Garðabæ.
Hálfsystkini Páls Braga, sam-
feðra, eru Siguralda Kristín Krist-
jónsdóttir, f. 7.9. 1930, d. 2005, var
búsett í Bandaríkjunum; Steina
Kristín Kristjónsdóttir, f. 30.1.
1955, hársnyrtir í Reykjavík; Erla
Danfríður Kristjónsdóttir, f. 19.6.
1957, hjúkrunarfræðingur og ljós-
móðir, búsett í Reykjavík og Krist-
ján Brynjólfur Kristjónsson, f. 31.5.
1962, d. 14.1. 1981.
Foreldrar Páls Braga voru Krist-
jón Ingiberg Kristjánsson, f. 25.9.
1908, d. 18.10. 1981, forsetabílstjóri,
og Ólína Þórey Stefánsdóttir, f.
10.9. 1927, húsfreyja. Seinni maður
Ólínu: Þórður Ágústsson frá
Hvammi í Landsveit, og seinni kona
Kristjóns: Guðbjörg Þorsteinsdóttir
frá Vestmannaeyjum.
Úr frændgarði Páls Braga Kristjónssonar
Páll Bragi
Kristjónsson
Soffía Pálsdóttir
húsfr. á Helgafelli
Sigurður Guðmundsson
b. á Helgafelli í Svarfaðardal
Stefán Loðmfjörð Jónsson
verslunarm, langafi Thelmu
Tómasson fréttam. á Stöð 2
Ólína Þórey
Stefánsdóttir
húsfr. í Rvík
Anna Katrín Sveinsdóttir
húsfr. á Bárðarstöðum
Jón Ögmundsson
eldri b. á Bárðarstöðum
í Loðmundarfirði
Guðríður Þorsteinsdóttir
húsfr. í Gröf
Brynjólfur Daníelsson
hreppstj. í Gröf í Breiðuvík
Danfríður Brynjólfsdóttir
húsfr. í Hólslandi
Kristján Pálsson
b. á Hólslandi í Eyjahreppi
Kristjón I.
Kristjánsson
forsetabílstj. í Rvík
Kristín Hannesdóttir
húsfr. í Ólafsvík
Páll Kristjánsson
kennari í Ólafsvík
Ingólfur
Kristjánsson
rithöfundur
Danfríður
Skarphéðinsdóttir
kennari og fyrrv. alþm.
Kristján
Skarphéðinsson
hagfræðingur Skarphéðinn
Kristjánsson
verslunarm. í Rvík
Fanney Unnur
Kristjánsdóttir
húsfr. í Rvík
Kristján J.
Valdimarsson
forstöðum.
Árni Gunnarsson
verkfræðingur og
framkvæmdastj.
Rannveig
Gunnarsdóttir
forstj. Lyfjastofnunar
Lovísa Hafberg
Björnsson
húsfr. í Rvík
Halldóra
Sigurðardóttir
húsfr. í Rvík
ÍSLENDINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2014
Ragnar í Smára fæddist íMundakoti á Eyrarbakka7.2. 1904. Hann var sonur
Jóns Einarssonar hreppstjóra þar
og Guðrúnar Jóhannsdóttur.
Jón var sonur Einars Bjarnason-
ar, bónda á Heiði á Síðu, og Ragn-
hildar Jónsdóttur, systur Jóns, lang-
afa Jóns Helgasonar, fyrrv. ráð-
herra. Systir Ragnhildar var Guð-
laug, amma Ástu, ömmu Davíðs
Oddssonar, ritstjóra Morgunblaðs-
ins. Guðrún var dóttir Jóhanns Þor-
kelssonar, verslunarmanns í Munda-
koti, bróður Guðmundar, afa Guðna
Jónssonar prófessors. Móðir Guð-
rúnar var Elín Símonardóttir.
Ragnar flutti sextán ára til
Reykjavíkur, lauk verslunarprófi
1922, stundaði afurðasölu fyrir
bændur um skeið, varð forstjóri og,
ásamt Þorvaldi Thoroddsen, annar
aðaleigenda smjörlíkisgerðarinnar
Smára, Austurbæjarbíós og sápu-
gerðarinnar Mána (síðar Frigg).
Hann var stór eignaraðili í smjörlík-
isgerðinni Sól og starfrækti Víkings-
prent og Helgafell, sem varð eitt
stærsta bókaforlag landsins.
Ævistarf Ragnars fólst í því að
styrkja og hvetja unga rithöfunda og
listamenn. Hann kynntist Þórbergi
Þórðarsyni og Halldóri Laxness hjá
Erlendi í Unuhúsi og gaf út verk
þeirra, auk verka Gunnars Gunn-
arssonar, Tómasar Guðmundssonar,
Steins Steinarr og Davíðs Stef-
ánssonar. Þá var hann fyrsti útgef-
andi flestra þekktustu skálda af
næstu kynslóð, styrkti fjölda ís-
lenskra myndlistarmanna, var
hvatamaður að stofnun Tónlistar-
skólans og stofnaði, ásamt Þorvaldi
Thoroddsen, Ólafi Þorgrímssyni og
fleirum, Tónlistarfélagið, sem fékk
fjölda heimsþekktra tónlistarmanna
til að halda tónleika hér á landi.
Ragnar var upphaflega vinstri-
sinnaður en umpólaðist og var sjálf-
stæðismaður upp frá því. Hann
beitti sér gegn bandaríska herstöðv-
arsjónvarpinu og fyrir forsetakjöri
Kristjáns Eldjárns 1968.
Bókin Mynd af Ragnari í Smára,
eftir Jón Karl Helgason, kom út
2009. Ragnar lést 11.7. 1984.
Merkir Íslendingar
Ragnar
í Smára
90 ára
Guðrún Jónasdóttir
85 ára
Björn E. Pétursson
Jónína Ásgrímsdóttir
Liesel Sigríður Malmquist
Sigurbjörg Sigurðardóttir
80 ára
Gunnar Ingvarsson
Unnur Stefánsdóttir
Þórunn Melsteð
75 ára
Ásbjörg Forberg
Birna Ólafsdóttir
Björn Jónsson
Björn Magnús Egilsson
Gunnar Þór Gunnarsson
Ingibjörg Sigurðardóttir
Sigrún Elíasdóttir
70 ára
Margrét Guðlaugsdóttir
Óskar M. Alfreðsson
Óskar Ólafsson
60 ára
Egill Ómar Grettisson
Einar Þorsteinn Loftsson
Guðjón Ólafur Magnússon
Guðjón Sigurðsson
Guðmundur Heimisson
Gyða Þórðardóttir
Jenný Ásmundsdóttir
Jónbjörg Kjartansdóttir
Jón Þór Einarsson
Kristján S. Guðmundsson
Sigríður Brynja
Sigurðardóttir
Sigurbjörn Árnason
Sæmundur Auðunsson
Þórarinn Benedikz
50 ára
Björgvin Þ.
Kristmundsson
Helgi Bogason
Lucinda Maria dos Santos
Gomes
Ríkharður Mýrdal
Harðarson
Rúnar Garðarsson
Valmundur S. Gíslason
40 ára
Anders Möller Nielsen
Anna H. Ragnarsdóttir
Árni Árnason
Brynhildur Bjarnadóttir
Greta Kristín Hilmarsdóttir
Guðmundur Þengill
Vilhelmsson
Hildur Kjartansdóttir
Ingvaldur Þór Einarsson
Kristín Björk Jónsdóttir
Kristín Sigurjónsdóttir
María Sjöfn Dupuis
Davíðsdóttir
Pálmi Reyr Þorsteinsson
Sylwia Matusiak Henrysson
Sylwia Szalasek
30 ára
Aron Arnbjörnsson
Ágúst Þór Weaber
Benedikt Hreinn
Einarsson
Berglind Eva
Björgvinsdóttir
Bylgja Árnadóttir
Edgars Feldmans
Eðvarð Jón Sveinsson
Ellen Kristjánsdóttir
Emir Cogic
Eyjólfur Kári Friðþjófsson
Fjóla María Helgadóttir
Kristján Helgi Jónsson
Lilja Ósk Kristbjarnardóttir
Margrét Þorgeirsdóttir
Ragnhildur Gyða
Magnúsdóttir
Sigurbjörn M.
Valdimarsson
Zhilin Huang
Til hamingju með daginn
30 ára Tinna býr í Hafn-
arfirði, lauk prófi í við-
skiptafræði og stundar
MS-nám í skattarétti og
reikningsskilum við HÍ.
Maki: Jóhann Fannar Sig-
urðsson, f. 1981, lögfræð-
ingur.
Börn: Gunnar Mikael Jó-
hannsson, f. 2003, og
Andrea Gyða Jóhanns-
dóttir, f. 2011.
Foreldrar: Gunnar Svav-
arsson, f. 1962, og Gyða
D. Tryggvadóttir, f. 1963.
Tinna
Gunnarsdóttir
30 ára Reynir ólst upp á
Akureyri, lauk sveinsprófi
í húsasmíði og er véla-
maður hjá Ístaki í Noregi.
Maki: Signa Hrönn Stef-
ánsdóttir, f. 1987, versl-
unarmaður.
Dóttir: Rakel Sara Reyn-
isdóttir, f. 2011.
Foreldrar: Sveinbjörn
Hjörleifsson, f. 1956,
hrosabóndi á Dalvík, og
Eva Jónína Ásmunds-
dóttir, f. 1961, starfs-
maður við FSA.
Reynir Svan
Sveinbjörnsson
30 ára Telma er búsett í
Reykjavík og er að ljúka
MS-prófi í matvælafræði.
Börn: Brynhildur Hafdís,
f. 2006, og Jökull Jóhann,
f. 2010.
Foreldrar: Kristinn Jó-
hann Níelsson, f. 1960,
MA-nemi í hagnýtri menn-
ingarmiðlun við HÍ, og
Guðrún Auður Skúladótt-
ir, f. 1959, fótaaðgerð-
arfræðingur. Stjúpmóðir:
Harpa Jónsdóttir, f. 1965,
rithöfundur og listakona.
Telma Björg
Kristinsdóttir
15% kynningar
afsláttur
Verð aðeins
kr. 49.467 m. vsk.
Fullt verð kr. 58.197
Framleiðir 15kg. á sólarhring
Stuttur framleiðslutími á klökum
Alvöru klakavél
fyrir heimilið
Rauðagerði 25 · 108 Reykjavík · Sími 440 1800 · www.kaelitaekni.is