Morgunblaðið - 07.02.2014, Page 36
36 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2014
Smiðjuvegi 34 |Rauð gata | www.bilko.is | Sími 557-9110
Tökum Olískort.
Einn aðal þáttur í reglulegu
viðhaldi bíls er að passa að
vélin sé smurð á réttum tíma.
Láttu okkur um að smyrja
bílinn, -notum aðeins hágæða
olíu frá Olís.
Kom
du n
úna
og fá
ðu fr
ía
vetr
arsk
oðun
í lei
ðinn
i!
Í vetr
arsko
ðun p
össum
við
að fro
stlög
ur sé
í lagi
, peru
r
og rú
ðuþu
rrkur
í
topp
stand
i. Að
auki
álags
prófu
m við
rafge
yma.
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Loksins virðist þér óhætt að fara af
stað með mál, sem þú hefur lengi þurft að
sitja á. Með því gefst þér kostur á að kynnast
þér sjálfri/sjálfum betur.
20. apríl - 20. maí
Naut Láttu það ekki slá þig út af laginu þótt
þú kynnist ýmsu ógeðfelldu í fari annarra. En
slíkar stundir mega þó ekki verða of margar.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú þarft að búa þig undir breyt-
ingar á vinnustað þínum og þarft að tileinka
þér ný vinnubrögð. Seinni partinn færðu ein-
stakt tækifæri, gefðu ást af öllu hjarta og
þiggðu hana á sama hátt.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú hefur á tilfinningunni að fólk efist
um hæfileika þína. Hver dagur ýtir undir
keppnisskapið og þú ert full/ur af krafti.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Það er að mörgu að hyggja bæði innan
heimilis og utan. Hættu að hafa áhyggjur af
því hvað öðrum finnst um þig, spurðu bara.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú gætir lent í erfiðum deilum við ein-
hvern í fjölskyldunni í dag. Mundu að aðstoð
getur borist úr ólíklegustu áttum. Tæmdu
vasana áður en þú stingur í þvottavélina.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það er alltaf ánægjulegt þegar góðir vinir
reka inn nefið. Einhver vill vita hversu mikið
hann á og hvað hann skuldar. Mundu bara að
græddur er geymdur eyrir.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þér finnst erfitt að átta þig á
framkomu vinafólks þíns. Það ráðgast við þig
um innkaup, ákvarðanir og verkefni, en þú
hefur reyndar líka nóg að gera svo ekki
sökkva þér í þeirra mál.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það er nauðsynlegt að hafa sög-
una á hreinu þegar menn meta nútímann og
reyna að spá um framtíðina. Breytingar
standa fyrir dyrum og samræður við fjöl-
skyldumeðlimi fái aukið vægi.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Það þýðir ekkert að halda áfram
að hugsa eins og hugmyndasnauður sápu-
óperuhöfundur. Allir sem þú talar við auka við
þekkingu þína og visku.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú átt gott með að tjá þig við aðra
hvort heldur það er í gamni eða alvöru. Gerðu
nauðsynlegar ráðstafanir og láttu allar öfund-
arraddir sem vind um eyru þjóta.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú lætur tilfinningarnar ráða í sam-
skiptum við aðra. Sýndu að þú vitir um alvar-
leika málsins. Fólk virðist hreinlega vera
ósammála um alla hluti.
Sigmundur Benediktsson setti af-mælisklömbru á vefinn 3. febr-
úar og sendi Hólmfríði Bjartmars-
dóttur á Sandi með þessum orðum:
„Áttaði mig á því að virðulega yrði
ég að kveða um lögvarið gamal-
menni, þó gleraugu nægi ekki til að
greina það ástand. Því ein afmælis-
klambra.“
Faldar skáldskap á foldu
Fía með anda hlýjum.
Græðir oft Leirsins gróða,
gáska býður án háska.
Þakka skal huga þekkum
þáðar stökurnar ljáðar.
Viðaðar stuðlavoðum,
varðaður rímsins kvarða.
Sigrún Haraldsdóttir segir sög-
una eins og hún lagði sig:
Fyrst var hann Sammi með Sollu
síðan með Jónu og Kollu
þarnæst með Stínu,
Þuru og Línu
og giftist svo Gauju ‘ennar Ollu.
Kristbjörg Steingrímsdóttir orti
um „skvísu“ á Leirnum:
Örugg með einlífsins gildi
Anna við manninn sinn skildi.
Ljóshærð í Levis
labbar hún sí-nice.
Þetta var það sem hún vildi.
Sem gaf Hómfríði Bjartmars-
dóttur á Sandi tilefni til að bæta
við:
Nú er karlinn með Nönnu
sem naggrísi steikir á pönnu
en maðurinn hennar
hefur nú tvennar
kærustur, aðrar en Önnu.
Kristbjörg lætur ekki standa á
svari:
Örugg með frægð sína og frama
þessi fallega, ljóshærða dama
þó karl sé með Nönnum
og konum í hrönnum
þá er henni öldungis sama.
Kristján Karlsson orti:
Furðu lævís er losti.
Og logn er úti með frosti.
Gáið þess mær
að telja yðar tær
tvisvar að minnsta kosti.
Loks er gömul limra eftrir Gísla
Jónsson:
Mælti Hannes í Hlésvíkurporti,
þegar hagmælska verður að sporti
margra ágætra manna
þá er erfitt að sanna
hverja limruna hver maður orti.
Halldór Blöndal.
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Afmælisklambra og
limrur héðan og þaðan
Í klípu
„ÞETTA ER NÝR LYFJAFLOKKUR
GEGN ÞUNGLYNDI. HANN ER
KALLAÐUR „ÓLÖGLEG EITURLYF“.
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„VIÐ ÁTTUM EKKI KLAKA, SVO
ÉG SETTI SMÁ BÚT AF FROSINNI
PITSU ÚT Í DRYKKINN.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að komast að því að
hún er með hjarta úr
skíragulli.
STOPPAÐU MIG
EF ÞÚ HEYRT
ÞENNAN ÁÐUR ...
ÞÚ ÁTT AÐ BÍÐA ÞANGAÐ
TIL ÉG ER BYRJAÐUR AÐ
SEGJA HANN!
LÍSA, ÉG LAUG UM
FORTÍÐ MÍNA.
ÉG HEF NEFNILEGA
ÁTT MÖRG ÞÚSUND
KÆRUSTUR.
JÁ, ÉG ER
AÐ LJÚGA!
OG GRÖFIN
VERÐUR
DÝPRI.Íslendingar virðast oft vera bestir íöllu og eftir fréttir á dögunum um
bílastæði skilur Víkverji betur hvers
vegna Háskóli Íslands er einn af bestu
háskólum heims.
x x x
Nemandi í umhverfis- og auðlinda-fræði komst að ýmsu um bíla-
stæði eftir að hafa vaktað fjögur bíla-
plön í margar klukkustundir og
skrifaði mastersritgerð um bílastæði
og hegðun á bílastæðum. Eftir að Vík-
verji las um helstu niðurstöður hans
furðaði hann sig á að ekki hefðu verið
skrifaðar lærðar greinar um málefnið
fyrr.
x x x
Það sem vakti fyrst athygli Víkverjavar sú stórmerka uppgötvun að
mörg bílastæði væru vel hönnuð en
önnur væru aðeins stór malbikaður
flötur. Víkverji hefur oft lagt bíl sínum
á bílastæði en aldrei tekið sérstaklega
eftir því að þau væru malbikuð fyrr en
eftir lestur fréttanna um málið.
x x x
Annað sem Víkverji rak augun í varsú meginfirra og rótgróna hugsun
að hérlendis væru næg og ókeypis
bílastæði. Víkverji hefur aldrei heyrt
aðra eins vitleysu. Tankurinn nægir
ekki þegar hann hringsólar í mið-
bænum í leit að bílastæði og það er
langt því frá ókeypis að leggja í þau
fáu stæði sem eftir eru. Fimmtudags-
kvöld fyrir skömmu sá Víkverji enda
tvo borgarstarfsmenn önnum kafna
við að setja sektarmiða á bíla sem lagt
hafði verið ólöglega við Tjarnargötu.
x x x
Víkverji var ekki fyrr búinn að takaundir með háskólanemanum þeg-
ar hann tók eftir að ekki var verið að
tala um stöðuna eins og hún er nú
heldur skoðun fólks á því herrans ári
1950. Víkverji var reyndar ekki fædd-
ur þá en hvernig datt fólki í hug að
þegar telja mátti bíla landsmanna á
fingrum annarrar handar væru hér
næg og ókeypis bílastæði?
x x x
Lokaniðurstaðan er sú að á Íslandi ertiltölulega auðvelt að fá bílastæði.
Það er ekki ofsögum sagt að Ísland er
stórasta land í heimi. víkverji@mbl.is
Víkverji
Játið að Drottinn er Guð, hann hefur
skapað oss og hans erum vér, lýður
hans og gæsluhjörð. (Sálmarnir 100:3)