Morgunblaðið - 07.02.2014, Qupperneq 38
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2014
enda kallaði frásagnarmáti leikrits-
ins á það. Við erum því mjög með-
vitað að brjóta og beygja mjög
margar reglur,“ segir Vignir Rafn
og nefnir sem dæmi að sjónlínur séu
skrýtnar þar sem áhorfendur sitji í
hálfhring kringum sviðið og ekki sjá-
ist því alltaf framan í leikarana. „Ég
er auðvitað ekkert að finna upp hjól-
ið, enda hefur þetta allt verið gert
áður, en ég er að prófa þessa hluti í
fyrsta sinn í eigin sviðsetningu og
læra af því,“ segir Vignir Rafn.
Auli úr Kópavogi má skrifa
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
leiðir Vignis Rafns og Tyrfings
liggja saman í leikhúsinu, því Vignir
Rafn leikstýrði Tyrfingi, í eina skipt-
ið sem hann hefur stígið á svið, í
verkinu Beðið á vegum Götuleikhúss
Kópavogs árið 2002. „Þá opinber-
aðist fyrir mér að þó ég sé bara ein-
hver auli úr Kópavogi þá má ég
skrifa um það sem ég vil og það
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Mér leiðist sem áhorfandi að sjá
fegurð á sviði og leiðist einnig eyrna-
konfekt. Ég vil þurfa að leita að feg-
urðinni og þetta verk krefst þess að
áhorfandinn finni sjálfur sína feg-
urð, sama hver hún er. Og kannski
er hún ekki til. En það er allt í lagi,
því hlutir mega líka alveg vera ljót-
ir,“ segir Tyrfingur Tyrfingsson,
höfundur Bláskjás, sem leikhóp-
urinn Óskabörn ógæfunnar frum-
sýnir í samstarfi við Borgarleikhúsið
á Litla sviðinu annað kvöld kl. 20.
Tyrfingur var í ágúst sl. valinn
leikskáld leikritunarsjóðs Borg-
arleikhússins fyrir yfirstandandi
leikár. Bláskjár er fyrsta leikritið
sem hann skrifar í fullri lengd, en
áður hafði hann vakið athygli fyrir
einleikinn Grande og einþáttunginn
Skúrinn á sléttunni enda tilnefndur
til Grímuverðlaunanna 2013 fyrir
hvoru tveggja.
Bláskjár fjallar um systkinin Val-
ter (sem Hjörtur Jóhann Jónsson
leikur) og Ellu (Arndís Hrönn Egils-
dóttir) sem árum saman hafa kúldr-
ast í kjallaranum hjá föður sínum,
sem sjálfur bjó á efri hæðinni ásamt
uppáhaldsbarninu sínu, Eiríki (Arn-
mundur Ernst B. Björnsson). Þegar
leikritið hefst er faðirinn nýlátinn og
systkinin tvö binda vonir við að geta
byrjað nýtt líf utan kjallarans, en
fyrst þurfa þau að koma föður sínum
í gröfina og losa sig við uppáhalds-
barnið, helst fyrir fullt og allt.
Hrista upp í hlutunum
„Þegar ég las fyrsta uppkastið að
verkinu sá ég strax að þarna væri
margt sem fólki gæti þótt erfitt, en
ég vissi um leið hvernig mætti út-
færa það þannig að allir gætu skilið.
Við Tyrfingur vorum sammála um
að okkur langaði til að hrista aðeins
upp í hlutunum,“ segir Vignir Rafn
Valþórsson, leikstjóri verksins.
„Þær sýningar sem ég hef leik-
stýrt hingað til hafa allar verið frem-
ur hefðbundnar. Með þessu verkefni
er ég að stíga út fyrir þann ramma,
stoppar það enginn,“ segir Tyrf-
ingur og bætir kíminn við: „Það
kemur kannski bara enginn að sjá
það.“
Samstarf Óskabarna ógæfunnar
og Borgarleikhússins um uppsetn-
ingu Bláskjás var hafið þegar Tyrf-
ingur var valinn leikskáld hússins.
Aðspurður segir hann það hafa verið
ómetanlegt við vinnslu leikritsins að
hafa vinnuaðstöðu í Borgarleikhús-
inu. „Ég er búinn að endurskrifa
verkið margsinnis og þróa það
áfram, sem ég hefði ekki getað gert
ef ég hefði samhliða þurft að vinna
annars staðar til að sjá fyrir mér.
Samstarfið við Borgarleikhúsið hef-
ur verið mjög vel heppnað. Við höf-
um fengið góða hvatningu og list-
rænt aðhald, en samtímis gott næði
til að vinna,“ segir Tyrfingur og upp-
lýsir að hann sé um þessar mundir
að skrifa gamanleikrit fyrir Borg-
arleikhúsið sem vonandi rati á svið á
næsta leikári. Spurður hvort hann sé
meðvitað að vinna með ólíka stíla
þegar kemur að leikritum sínum
svarar Tyrfingur því neitandi. „Nei,
og nú kem ég til með að hljóma eins
og kristniboði. Ég fæ yfirleitt bara
einhverja hugmynd og reyni svo
bara að þjónusta hana,“ segir Tyrf-
ingur.
Ég elska áhorfandann
Aðspurðir hvort líta beri á Bláskjá
sem samfélagsádeilu verður Vignir
Rafn fyrri til að svara: „Það er hægt
að lesa ýmislegt inn í verkið, hvort
heldur er fjölskyldudrama í Kópa-
voginum eða allegoríu fyrir íslensku
þjóðina. Partur af snilldinni við þetta
verk er að það er hægt að skoða það
með ýmsum gleraugum, en áhorf-
endur verða að rýna,“ segir Vignir
Rafn.
„Við erum ekkert að predika,
enda er hvers kyns predikun fasísk í
eðli sínu. Og þetta verk getur, um-
fjöllunarefnis síns vegna, ekki verið
fasískt,“ segir Tyrfingur og bætir
við: „Ég elska áhorfandann svo mik-
ið. Hann er miklu klárari en ég,
miklu læsari og snjallari en ég,
þannig að það er miklu áhugaverð-
ara að hlusta á hvað honum finnst og
hvað hann fær út úr verkinu heldur
en hvað mér finnst. Og þegar á
hólminn er komið þá felst galdurinn
í samspilinu milli leikarans og áhorf-
andans. Ég er búinn að stimpla mig
út fyrir löngu, því ég gaf verkið leik-
stjóranum sem gaf það leikurunum
sem gefa það áhorfendum. Þannig
að ég stíg bara út og læt mig hverfa
og þá kemur þetta mér ekki lengur
við,“ segir Tyrfingur að lokum.
„Við erum meðvitað að brjóta reglur“
Óskabörn ógæfunnar frumsýna Bláskjá eftir Tyrfing Tyrfingsson á Litla sviði Borgarleikhússins
Vignir Rafn Valþórsson leikstjóri segist með uppsetningunni vera að stíga út fyrir eigin ramma
Ljósmynd/Íris Dögg Einarsdóttir
Bið Hjörtur Jóhann Jónsson og Arndís Hrönn Egilsdóttir í hlutverkum sínum sem systkinin í kjallaranum.
Morgunblaðið/Kristinn
Samhentir Tyrfingur Tyrfingsson og Vignir Rafn Valþórsson hafa þekkst
lengi, en Vignir Rafn leikstýrði Tyrfingi hjá Götuleikhúsi Kópavogs 2002.
Tvær sýningar á ljósmyndaverkum
verða opnaðar í dag og eru báðar á
dagskrá Ljósmyndadaga. Klukkan
18 verður opnuð í SÍM-húsinu,
Hafnarstræti 16, samsýningin
Innra myrkur. Verkin eru eftir sjö
félaga í Félagi íslenskra samtíma-
ljósmyndara sem takast á við hug-
myndina um myrkur, hver með sín-
um hætti.
Klukkan 18.30 verður síðan opn-
uð í Artóteki Borgarbókasafnsins,
Tryggvagötu 15, sýning Kristínar
Hauksdóttur, Var. Verkin á sýning-
unni fjalla um hverfulleika lífsins
og umhverfisins; að allt sé breyt-
ingum háð og ekkert eilíft. Mynd-
irnar eru teknar á síðustu 7 árum.
Innra myrkur og Var opnaðar
Auðn Hluti verks Friðgeirs Helgasonar á
sýningunni Innra myrkur í SÍM-salnum.
Listrænt verkefni er kallast Twin
City hefst á Seyðisfirði í dag, föstu-
dag, klukkan 17, á horninu við Öld-
una. Þetta er sýning sem er sögð
sameina tímabundið kaupstaðina
Seyðisfjörð og Melbu í Noregi, en
þeir eru aðskildir með 1500 kíló-
metrum af hafi.
Verkefnið er unnið að frumkvæði
fyrrverandi gestalistamanna Skaft-
fells, Asle Lauvland Pettersen og
Ditte Knus Tönnesen, ásamt Pétri
Kristjánssyni sem er prófessor við
Dieter Roth-akademíuna og safn-
stjóri á Tækniminjasafni Austur-
lands.
Twin City fer fram á almennings-
svæðum beggja bæjanna; á götunni,
á húsunum og í
búðunum, og seg-
ir samtímis sögu
beggja bæjanna.
Verkin byggjast
á stórum vídeó-
vörpunum og þrí-
víðum verkum,
með beinu gagn-
virku streymi um
alnetið.
Asle Lauvland
Pettersen er norskur listamaður,
leikstjóri og sviðshönnuður, en Ditte
Knus Tønnesen er dönsk listakona
sem nam í Skotlandi og Japan og
hafa verk hennar vakið umtalsverða
athygli undanfarið.
Twin City á Seyðisfirði
Pétur
Kristjánsson