Morgunblaðið - 07.02.2014, Side 40
40 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2014
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
Íslenski dansflokkurinn frumsýnir
uppfærsluna Þríleik annað kvöld kl.
20 á Stóra sviði Borgarleikhússins.
Uppfærslan samanstendur af þrem-
ur nýjum dansverkum, þ.e. Tilbrigði
eftir Láru Stefánsdóttur þar sem
Bryndís Halla Gylfadóttir leikur
tónverkið Stef og tilbrigði í d-moll
fyrir einleiksselló frá árinu 1887 eft-
ir finnska tónskáldið Jean Sibelius,
F A R A N G U R eftir Valgerði
Rúnarsdóttur en innblástur að sköp-
unarferlinu er sóttur í minnið og
stöðuga mótun þess og Berserkir
eftir danska danshöfundinn Lene
Boel, en verkið er óhefðbundin
blanda af break- og nútímadansi
með akróbatísku ívafi.
„Ég er mjög stolt af því að við
séum að bjóða upp á kvöldstund með
verkum eftir þrjá kvenkyns dans-
höfunda,“ segir Lára Stefánsdóttir,
listrænn stjórnandi Íd. Spurð um
eigið verk segir hún Tilbrigði vera
lítið og látlaust sóló sem hugsað sé
sem upphitun fyrir kvöldið.
„Ég hef alltaf verið mjög hrifin af
Bryndísi Höllu sem sellóleikara, en
hreyfingar hennar eru eins og dans í
sjálfu sér,“ segir Lára og tekur fram
að sér finnist mjög spennandi að
vera með lifandi tónlistarflutning í
verki sínu þar sem það bjóði upp á
meiri nánd og fyllingu. Aðspurð seg-
ir hún verk sitt innblásið af tónlist-
inni sem slíkri, en ekki síður hreyf-
ingum sellóleikarans. „Segja má að
dansarinn virki eins og endurómur
af hljóðfærinu,“ segir Lára, en í
verki hennar skiptast þær Ellen
Margrét Bæhrenz og Melkorka Sig-
ríður Magnúsdóttir á að dansa.
Þarf ekki að taka nein spor
„Þetta er alveg nýtt fyrir mér, því
ég hef aldrei áður tekið þátt í flutn-
ingi dansverks með þessum hætti.
Sem betur fer þarf ég ekki að taka
nein spor,“ segir Bryndís Halla. Að-
spurð segir hún mjög skemmtilegt
og spennandi að taka þátt í dans-
verki Láru. „Í raun má segja að
samband mitt við dansarann á svið-
inu sé einhliða, því hún þarf að
bregðast við minni spilamennsku.
Ég er að túlka tónverkið og hún að
túlka þessa túlkun mína á verkinu
eftir forskrift Láru,“ segir Bryndís
Halla og bendir á að tónskáldið sé í
verki sínu að leika sér með brotna
hljóma, trillur og tvígrip og nýti sér
breitt tónsvið hljóðfærisins. Að sögn
Láru er dansarinn eins og endurkast
af tónlistinni, leikur með tilbrigði,
endurtekin form og blæbrigði.
Sellóið, minnið og „break“
Þríleikur Íslenska dansflokksins frumsýndur á Stóra sviði Borgarleikhússins
Listrænn stjórnandi er stoltur af því að tefla fram kvenkyns danshöfundum
F A R A N G U R Valgerður Rúnarsdóttir sækir innblástur að verki sínu í minnið og stöðuga mótun þess. „Ætli verk-
ið sé ekki eins og lífið sjálft, þarna er bæði léttleiki og alvara,“ sagði hún í viðtali við Morgunblaðið í janúar sl.
Morgunblaðið/Golli
Berserkir Lene Boel segir spennandi að skapa andstæður og stillir því
keppnisandanum og baráttuþrekinu upp andspænis hinu ljóðræna.
Bryndíds Halla
Gylfadóttir
Lára
Stefánsdóttir
Leikarinn Pilou
Asbæk verður
einn þriggja
kynna á Evró-
visjón-keppninni
sem fram fer í
Kaupmannahöfn
dagana 6-10.
maí. Flestir
kannast vafalítið
við Asbæk sem
spunameistarann Kasper Juul úr
sjónvarpsþáttaröðinni Höllinni
(Borgen). Meðkynnar Asbæks
verða sjónvarpsfólkið Nikolaj Kop-
pel og Lise Rønne, sem hafa bæði
mikla reynslu af beinum sjónvarps-
útsendingum. „Þegar mér bauðst
starfið hikaði ég ekki í eina sek-
úndu,“ segir Asbæk og tekur fram
að hann hlakki til verkefnisins.
Pilou Asbæk Evró-
visjón-kynnir í maí
Pilou Asbæk
–– Meira fyrir lesendur
.
PÖNTUNARTÍMI
AUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 16,
þriðjudaginn
18. febrúar.
Morgunblaðið gefur út sérblað
tileinkað Food and Fun matarhátíðinni
laugardaginn 22. febrúar
NÁNARI UPPLÝSINGAR
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
Food and Fun
verður haldin í
Reykjavík
27. febrúar
- 3. mars.
Friðrik Örn Hjaltested ljósmyndari
opnar í kvöld, föstudag kl. 19, sýn-
ingu í Eiðisskeri - Bókasafni Sel-
tjarnarness. Sýninguna kallar hann
„Slab City“ og verður Friðrik Örn á
staðnum um helgina, milli kl. 13 og
18, og ræðir við gesti um verkin.
Viðfangsefni sýningarinnar er Slab
City, einskinsmannsland í eyðimörk
Suður-Kaliforníu, þar sem engar
reglur gilda og allt er leyfilegt. Í
þessu villta vestri safnast fólk sam-
an í leit að frelsi frá skipulagi nú-
tímans.
Friðrik Örn sýnir
verk frá Slab City
Morgunblaðið/Einar Falur
Ljósmyndarinn Friðrik veitir innsýn í
heim hippa, listamanna og utangarðsfólks.