Morgunblaðið - 18.02.2014, Blaðsíða 23
MINNINGAR 23
Elsku besta
amma mín. Ég á erf-
itt með að trúa að þú
sért fallin frá, þetta
hafa verið erfiðir
dagar en það hefur hjálpað mér
að hugsa um allar dásamlegu
minningarnar sem við áttum sam-
an. Þú hefur reynst mér ótrúlega
vel og verður alltaf fyrirmyndin
mín. Elsku amma, þú varst alltaf
svo vel tilhöfð, listræn, góðhjört-
uð og hjálpsöm. Það er ekki hægt
að hugsa sér glæsilegri konu en
þig, þú varst og verður alltaf flott-
ust í mínum augum. Ég fór aldrei
tómhent heim frá þér. Þú varst
alltaf að gefa mér fallega hluti
sem ég mun alltaf passa upp á
vegna þess að þeir eru mér svo
kærir.
Elsku amma, ég gleymi aldrei
þegar við saumuðum saman á
saumavélina, okkur fannst svo
gaman að sauma saman og þú
elskaðir að fylgjast með hvað ég
var að sauma í skólanum. Ég
hlakkaði alltaf til að koma í heim-
sókn til ykkar afa, þú varst uppá-
haldskokkurinn minn enda talað-
ir þú alltaf um að það væri
skemmtilegast að gefa mér að
borða af því að ég borðaði svo vel
og snyrtilega. Þú varst líka algjör
húmoristi. Ég og bestu vinkonur
mínar höfðum svo gaman af þér
þegar þú komst og sagðir okkur
brandara og spjallaðir við okkur.
Ég er svo montin af þér elsku
amma. Amma mín, við höfum gert
svo mikið saman, við fórum til
Noregs og Flórída þar sem við
höfðum það æðislegt. Allar sum-
arbústaðarferðirnar þar sem við
nutum þess að hafa það notalegt
og borða góðan mat. Mér finnst
líka alltaf svo gaman að segja vin-
konum mínum frá því að ég ætti
sko langömmu sem færi í fótbolta
með mér í sveitinni.
Mér þykir svo dásamlegt hvað
þér fannst gaman að hlusta á mig
spila á píanóið og þið afi mættuð
alltaf á alla píanótónleika hjá mér,
sem mér þykir ótrúlega vænt um.
Mér þykir líka ómetanlega vænt
um að þú skulir hafa hringt á
hverju kvöldi, bara til að tala við
mig og spyrja hvernig dagurinn
hafi verið, hvernig mér gengi og
hrósa mér, svo sagðir þú alltaf við
mig í símann að ég væri svo upp-
lífgandi og þessa setningu þykir
mér ofboðslega vænt um. Þú
sagðir líka oft við mig að ég væri
besta vinkona þín og þú verður
líka alltaf besta vinkona mín.
Elsku amma mín, ég er svo þakk-
lát fyrir að hafa átt dásamlega
tíma með þér og hafa fengið að
eyða síðustu sólarhringunum með
þér þótt ég vildi geta eytt ennþá
meiri tíma með þér ef ég gæti. En
ég er ólýsanlega stolt af þér og ég
veit að þú fylgist vel með mér og
passar upp á mig og alla fjölskyld-
una þína því þú varst algjör fjöl-
skyldukona. Ég ætla að halda
áfram að gera þig stolta.
Ég elska þig, elsku amma mín,
og þín er sárt saknað en ég hitti
Sjöfn
Hjörleifsdóttir
✝ Sjöfn Hjörleifs-dóttir fæddist
7. nóvember 1934.
Hún lést hinn 6.
febrúar 2014. Útför
Sjafnar var gerð
17. febrúar 2014.
þig aftur seinna
amma mín. Ástar-
kveðjur.
Besta vinkona
þín,
Elín Helga.
Elsku besta
amma mín, fráfall
þitt er mikill missir
fyrir okkur öll, fjöl-
skylduna og alla þá
sem hafa fengið að njóta nærveru
þinnar. Glæsilegri manneskju get
ég ekki ímyndað mér, þú varst
alltaf svo vel tilhöfð, glaðlynd og
sú allra heiðarlegasta. Það sem
einkenndi sambandið milli okkar
var allra helst það hvað við vorum
náin og góðir vinir, sérstaklega
ég, þú og afi. Stundirnar sem við
þrjú eyddum saman voru ófáar og
ómetanlegar og það skipti ekki
máli hvort við sátum fyrir framan
sjónvarpið eða vorum stödd úti á
landi, allar stundir voru jafn
skemmtilegar og dýrmætar. Mér
finnst líka mikilvægt að taka það
fram hvað þið afi eigið stóran
hluta í okkur fjölskyldunni, þið
tengduð okkur öll svo vel saman
og hélduð utan um fjölskylduna í
heild sinni og þar af leiðandi á ég
erfitt með að ímynda mér þá tíma
sem framundan eru, að fá ekki að
hitta þig reglulega, að fá ekki að
eyða fleiri góðum stundum með
þér og halda áfram að þakka þér
fyrir allt það góða sem þú hefur
fært mér.
Ég á einungis góðar og litríkar
minningar í bankanum amma
mín. Ég byrjaði snemma að lita
og mála og þjálfa sköpunarhæfi-
leikana, þökk sé þér þar sem þú
útvegaðir mér öll tæki og tól,
enda skilur þú eftir þig ófá lista-
verkin og prýða tvö þeirra her-
bergið mitt. Ég man sérstaklega
vel eftir því að reglulega gerði ég
mér ferð með þér í lagningu sem
ungur drengur, þar sem við átt-
um gott og uppbyggilegt spjall
við hárgreiðsludömurnar og ég
vildi helst fá að skipta mér af öllu
því sem fór fram á staðnum. Eins
og þú varst nú glæsileg kona þá
var það alls engin tilviljun að þú
vannst í Glæsibæ, þangað tókstu
mig oft með í vinnuleiðangur og
skemmtum við okkur konunglega
og ræddum allt milli himins og
jarðar.
Elsku amma mín, við eigum
saman frábærar minningar, frá
Blikanesinu, Guðnabakka,
Haukalindinni, Noregi og Flór-
ída, og verð ég ævinlega þakklát-
ur fyrir allt það sem þú hefur
kennt mér í gegnum tíðina;
mannasiðina, góðu viskumolana,
framkomuna og þau góðu lífsgildi
sem þú hefur gefið mér. Ég hefði
óskað þess að fá lengri tíma með
þér og geri það ennþá. Ég mun
ávallt halda uppi heiðri þínum og
ef það sem við trúum á stenst
munum við hittast seinna og ég
veit að þú tekur vel á móti mér
elsku amma mín. Ég elska þig og
sakna þín sárt. Með kærri kveðju,
besti þinn,
Aron Freyr Lárusson.
Elsku amma mín, af hverju þú?
Þú fórst alltof fljótt frá okkur,
missir okkar er mikill og ég sakna
þín afar mikið. Við ætluðum að
gera svo margt saman. Það er svo
tómlegt án þín, annan máttar-
stólpann vantar í stórfjölskyld-
una. Minningarnar streyma fram,
allar yndislegu stundirnar sem ég
átti með ykkur afa.
Ég hugsa með söknuði til upp-
vaxtaráranna í Ólafsvík, fyrstu
skref mín í sambúð á Blikanesinu
og svona mætti lengi telja. Þegar
ég hugsa til bernskuáranna er
mér efst í huga þakklæti. Þú varst
einstök, glaðlynd, falleg innan
sem utan, ástrík, heiðarleg, traust
og ávallt vel til höfð, glæsilegri
konu hef ég ekki kynnst. Þú barst
með þér mikinn þokka og glæsi-
leika. Þú hefur verið mín fyrir-
mynd í öllu sem ég hef tekið mér
fyrir hendur í lífinu. Ég hef ávallt
verið stolt af þér. Vinir mínir og
samferðafólk hefur oft haft á orði
hve glæsileg þú værir og hversu
einstaka persónutöfra þú hafðir.
Þér var svo margt til lista lagt,
listræn varstu og fagurkeri.
Ég man hvað ég var ánægð
þegar þú leyfðir mér ungri að að-
stoða þig við að pakka inn jóla-
gjöfum, nostrað var við hvern
pakka og hann skreyttur af hjart-
ans list. Handbragð þitt er um allt
og heimili mitt ber þess vel merki.
Listaverkin eftir þig eru mörg og
sú ást og umhyggja sem þú færðir
okkur býr í hjarta mér. Hefðirnar
þínar lifa áfram, fjölskylduhefð-
irnar og lífsgildin sem þú kenndir
mér. Jólin voru uppáhaldstíminn
okkar og hafa ávallt skipað stóran
sess í lífi stórfjölskyldunnar, þökk
sé þér og afa. Fjölskyldan var þitt
hjartans mál, þér var mjög um-
hugað um að okkur öllum gengi
vel, þú tókst virkan þátt í öllu því
sem barnabörnin og barnabarna-
börnin tóku sér fyrir hendur. Þú
varst mikilvæg í lífi barnanna
minna. Þú gafst þeim svo mikið af
þér og þú varst kletturinn þeirra.
Ég er innilega þakklát fyrir þann
tíma sem þau áttu með þér og
nutu visku þinnar og umhyggju.
Þú verður áfram leiðarljós í okkar
lífi. Þú hafðir yndi af ferðalögum,
þú og afi eruð okkar uppáhalds-
ferðafélagar og þær eru ófáar bú-
staðarferðirnar sem við fórum í
saman, hlógum, lékum okkur og
borðuðum góðan mat. Bústaðar-
ferðir með ykkur afa og utan-
landsferðirnar eru dýrmætar
minningar sem við geymum í
hjarta okkar. Mikið skemmtum
við okkur vel, amma mín. Þú varst
mikill gleðigjafi og fékkst okkur
iðulega til að hlæja og njóta augn-
bliksins. Ég heyri hlátur þinn og
ég sé fallegt bros þitt og ljóma í
augunum.
Við lögðum áherslu á að vera
með glæsilegt veisluborð á mat-
málstímum. Bestu samveru-
stundir okkar voru við matar-
borðið, við nutum þess að snæða
saman í fallegu umhverfi og
spjalla um alla heima og geima.
Þetta voru gæðastundirnar okk-
ar. Elsku amma, ég hélt í höndina
á þér þegar þú hvarfst á braut úr
þessum heimi, ég get ekki lýst
með orðum hversu sorgmædd ég
er, tárin streyma en ég er þakklát
fyrir allt það sem við áttum sam-
an og fyrir að hafa fengið að vera
hjá þér eins lengi og hægt var. Á
kvöldin bíð ég eftir að þú hringir
eins og þú varst vön að gera, ég
sakna þessara símtala meira en
orð fá lýst. Þú varst mér heimsins
besta amma, við vorum nánar. Ég
lofa þér, elsku amma, að við mun-
um passa elsku afa og ég mun
halda áfram utan um stórfjöl-
skylduna eins og þú hefðir viljað.
Fjölskyldan var þér allt, þú varst
svo stolt af fjölskyldunni, öll börn-
in voru sólargeislarnir í lífi ykkar
afa. Ég elska þig, amma mín, þú
varst mér svo miklu meira en
amma. Hafðu þökk fyrir allt og
allt. Þín,
Sjöfn.
Í dag kveð ég hana ömmu
mína, Sjöfn. Ég vissi það fyrir víst
að þessi dagur kæmi einhvern
tíma en ekkert hefði getað und-
irbúið mig undir þá miklu sorg
sem því fylgir. Ég sakna hennar
alveg óskaplega sárt og sú til-
hugsun að ég eigi aldrei aftur eft-
ir að sjá hana og taka utan um
hana er mér á þessari stundu
óskiljanleg því hún er mér svo
ljóslifandi í minningunni. Alla
mína ævi hefur hún verið til stað-
ar og það er erfitt að ímynda sér
það sem koma skal án hennar.
Amma Sjöfn var alveg sérstök
kona og minningar eru margar en
ég man sérstaklega eftir því sem
barn þegar ég fylgdist með henni
hafa sig til, setja í sig rúllur og
varalita sig. Fyrir mér var þetta
alveg toppurinn á tilverunni þá, fá
að vera með ömmu, velja mér há-
hælaða skó, hanska og slæðu og
þramma síðan um Engihlíðina
eins og amma. Elsku amma mín,
ég mun aldrei gleyma þér og eins
og þú passaðir upp á okkur öll
hvort sem við vorum nær eða fjær
á meðan þú lifðir, þá veit ég að þú
verður alltaf hjá okkur og heldur
áfram að passa okkur. Hvað sem
ég geri og hvert sem ég fer þá
ertu alltaf hjá mér elsku amma.
Hvíl í friði elsku amma mín.
Sif.
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 2014
Ég man þegar
ég kom til þín og
afa þegar ég var
lítil og horfði á
teiknimyndir, þú nenntir alltaf
að horfa á þær með mér. Svo
var auðvitað alltaf til fullt af
nammi í nammiskúffunni ykkar,
nammi sem ég hakkaði í mig.
Þú varst alltaf svo rosalega góð
við mig, já bara við alla. Ég
man ekki eftir að þú hafir verið
leiðinleg við einhvern eða
skammað einhvern, nema
kannski kettina sem komu í
garðinn ykkar og þú rakst í
burtu af því að þú vildir ekki að
þeir myndu meiða fuglana sem
voru að éta fuglamatinn sem þú
hafðir gefið þeim. Ég man líka
þegar ég kom til þín á meðan
afi var í vinnunni og litaði ófáar
myndirnar í litabækur á meðan
þú horfðir á Leiðarljós.
Allar ferðirnar í Sléttuhlíðina
voru líka svo yndislegar. Við
sátum á pallinum eða vorum
inni að spila og svo kom afi allt-
af með eitthvert gotterí úr bak-
aríinu þegar hann var búinn að
vinna. Ég fór líka oft með ykk-
ur mömmu í Smáralindina eða í
bæinn og við settumst á kaffi-
hús og höfðum það notalegt.
Oftar en ekki fór ég svo með
eitthvað skemmtilegt heim sem
þú hafðir keypt fyrir mig. Þú
gafst mér til dæmis mína fyrstu
takkaskó í einni af Smáralind-
arferðunum okkar.
Þú spurðir alltaf hvernig mér
gengi í fótboltanum og skólan-
um og þú vildir alltaf passa upp
á að okkur krökkunum gengi
vel og liði vel. Svo varstu líka
svo flink í höndunum og prjón-
aðir, saumaðir og heklaðir svo
flott. Ég man til dæmis að þú
prjónaðir alla vettlinga og
sokka á mig í mörg ár og svo
varstu alltaf að gefa okkur flott
jólaskraut sem þú bjóst til.
Takk fyrir allt elsku besta
amma mín. Þú varst alltaf svo
yndisleg, elsku amma mín.
Melkorka Katrín Flygenr-
ing Pétursdóttir.
Elsku hjartans amma mín.
Ég sit hér og hugsa um allar
minningarnar sem ég á um þig.
Ég get ekki gert upp á milli
stundanna sem við áttum sam-
an, þær eru allar jafndýrmætar.
Þú varst snillingur í að segja
sögur. Ég man ófáar stundirnar
þar sem ég lá við hliðina á þér
uppi í rúmi og fékk að velja æv-
intýri. Það skipti ekki máli hvað
ég valdi, þú kunnir þau öll. Í
hvert skipti barðist ég við að
halda mér vakandi til að heyra
meira. Stundum þegar þú varst
alveg að sofna varstu farin að
blanda saman fjórum ævintýr-
um í einni setningu og rankaðir
við þér þegar ég pikkaði í þig. Í
staðinn fyrir að bjóða góða nótt
hélstu áfram þangað til ég sofn-
aði. Ég man alla handbolta-
landsleikina sem við horfðum
saman á. Þú, þessi fallega og
flotta frú, sast límd við skjáinn
og útskýrðir leikinn fyrir mér
og kenndir mér nöfnin á öllum
leikmönnunum.
Þú varst svo blíð og góð. Ég
man ekki eftir að þú hafir
skammað mig né æst þig við
mig og það er ekki mér að
þakka. Þú máttir ekkert aumt
sjá og varst góð við alla, stóra
sem smáa, menn sem dýr. Þú
sást til þess að hver einasti fugl
Hafnarfjarðar fengi nóg að éta
Margrét Dagbjört
Bjarnadóttir
✝ Margrét Dag-björt Bjarna-
dóttir fæddist 2.
október 1931. Hún
andaðist 6. febrúar
2014. Útför Mar-
grétar fór fram 17.
febrúar 2014.
yfir vetrartímann.
Þú laumaðir mat
undir borð til
Timmu í hvert ein-
asta skipti sem þú
komst í mat og
hélst að við tækj-
um ekki eftir því.
Þér fannst þú
aldrei yfir aðra
hafin og sýndir það
í framkomu og
verki. Þrátt fyrir
að vera góðmennskan uppmáluð
varstu aldrei nein gufa og þú
hafðir húmorinn í lagi fram á
síðustu stundu. Ég dáist að því
hvað þú varst fjölhæf og list-
ræn. Þú hafðir alltaf nóg að
gera og í frítímanum varstu iðin
við handavinnu, leystir kross-
gátur og lagðir kapla á meðan
þú hlustaðir á óperur.
Það var svo yndislegt að
heimsækja þig um jólin elsku
amma, setjast hjá þér á rúmið
og spjalla. Mér þykir svo leið-
inlegt að hafa ekki verið á land-
inu til að kveðja þig.
Ég er þér svo þakklát fyrir
allt sem þú hefur kennt mér,
heimurinn væri svo miklu betri
ef fleiri væru eins og þú.
Hún amma mín er mamma hennar
mömmu
og mamma er það besta sem ég á.
En gaman væri að gleðja hana ömmu
og gleðibros á vanga hennar sjá.
Í rökkrinu hún segir mér oft sögur
og svæfir mig er dimma tekur nótt.
Syngur við mig sálmakvæðin fögur
sofna ég þá bæði blítt og rótt.
(Guðrún Jóhannsdóttir frá Braut-
arholti)
Berglind Drífa Flygenring
Pétursdóttir.
Elsku amma mín. Mikið
sakna ég þín. Þú varst svo
sannarlega vel af Guði gerð og
gafst mikið af þér. Þú hafðir svo
góða nærveru, hlýjan faðm og
styrka hönd. Við áttum svo
margar góðar stundir saman
síðastliðin 23 ár og fyrir þær er
ég ævinlega þakklát. Það var
gott að eiga sér skjól hjá þér og
varð ég þeirrar gæfu aðnjótandi
að fá að annast þig þín síðustu
ár. Ég er þér svo þakklát fyrir
allt sem þú gafst mér. Í dag
kveð ég þig í hinsta sinn með
miklum söknuði, elsku amma
mín. Þú átt sérstakan stað í
hjarta mínu.
Hvernig er hægt að þakka,
það sem verður aldrei nægjanlega
þakkað.
Hvers vegna að kveðja,
þann sem aldrei fer.
Við grátum af sorg og söknuði
en í rauninni ertu alltaf hér.
Höndin sem leiddi mig í æsku
mun gæta mín áfram minn veg.
Ég veit þó að víddin sé önnur
er nærveran nálægt mér.
Og sólin hún lýsir lífið
eins og sólin sem lýsti frá þér.
Þegar stjörnurnar blika á himnum
finn ég bænirnar, sem þú baðst fyrir
mér.
Þegar morgunbirtan kyssir daginn,
finn ég kossana líka frá þér.
Þegar æskan spyr mig ráða,
man ég orðin sem þú sagðir mér.
Vegna alls þessa þerra ég tárin
því í hjarta mínu finn ég það,
að Guð hann þig amma mín geymir
á alheimsins besta stað.
Ótti minn er því enginn
er ég geng áfram lífsins leið.
Því með nestið sem amma mín gaf
mér,
veit ég að gatan hún verður greið.
Og þegar sú stundin hún líður
að verki mínu er lokið hér.
Þá veit ég að amma mín bíður
og með Guði tekur við mér.
(SD)
Stefanía Á. Albertsdóttir
(Steffý).
Önnumst alla þætti útfararinnar
ÚTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA
Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is
Þegar andlát ber að höndum
REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
JÓHANNA S. GUÐJÓNSDÓTTIR,
Njarðvíkurbraut 24,
Reykjanesbæ,
sem andaðist á Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja miðvikudaginn 5. febrúar,
verður jarðsungin frá Grafarvogskirkju fimmtudaginn
20. febrúar kl. 13.00.
Sigríður Sigurðardóttir,
Guðjón L. Sigurðsson, Louisa Aradóttir,
Hólmfríður Sigurðardóttir, Eggert Ólafsson,
Kolbrún A. Sigurðardóttir,
Gunnar Sigurðsson, Halldóra M. Svavarsdóttir,
Kristín S. Sigurðardóttir,
barnabörn og langömmubörn.
✝
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
HALLFRÍÐUR STEINUNN
ÁSMUNDSDÓTTIR,
Dista,
Skúlagötu 20,
Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni laugardaginn 15. febrúar.
Útför hennar fer fram frá Seljakirkju föstudaginn 21. febrúar
kl. 13.00.
Tryggvi Gunnarsson, Ragnhildur Ragnarsdóttir,
Halldór Gunnarsson, Selma Björk Grétarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.