Morgunblaðið - 18.02.2014, Side 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 2014
Íslenska ullin
er einstök
Sjá sölustaði á istex.is
FERMINGAR
:
–– Meira fyrir lesendur
PÖNTUNARFRESTUR AUGLÝSINGA:
fyrir kl. 16 mánudaginn 3. mars.
SÉRBLAÐ
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
Fermingarblaðið er eitt af
vinsælustu sérblöðum
Morgunblaðsins og
verður blaðið í ár
sérstaklega
glæsilegt.
Fjallað verður um
allt sem tengist
fermingunni.
Fermingarblað
Morgunblaðsins
kemur út föstudaginn
7. mars.
María Margrét Jóhannsdóttir
mariamargret@mbl.is
Mennta- og menningarmálaráðu-
neytið hefur undirritað þriggja ára
styrktarsamning við Reykjarvík-
urAkademíuna. Meginmarkmið
samningsins er að efla formlegan
vettvang fyrir sjálfstæðar rann-
sóknir og nýsköpun með rekstri á
rannsóknarstofnun og virkja og
tengja þann mannafla sem stundar
sjálfstæðar rannsóknir og hvetja til
faglegs samstarfs milli einstaklinga
og annarra stofnana innanlands sem
utan. ReykjarvíkurAkademían er
rannsóknar og nýsköpunarstofnun í
menningar-, hug- og félagsvísindum
sem stofnað var fyrir sextán árum.
Með þessum samningi er búið að
tryggja starfsgrundvöll stofnunar-
innar.
Reksturinn tryggður
„Akademían er í upphafi grasrót-
arhreyfing þar sem fræðimenn sem
stunduðu sjálfstæðar rannsóknir og
stóðu fyrir utan háskólana tóku
höndum saman og stofnuðu ákveðið
samfélag,“ segir Sólveig Ólafsdóttir,
framkvæmdastjóri Reykjavík-
urAkademíunnar, en samkvæmt
fjárlögum 2014 fær Reykjavík-
urAkademían 18 milljónir króna.
„Með þessum samningi er rekst-
urinn tryggður og markmið og hlut-
verk stofnunarinnar gagnvart ráðu-
neytinu er skýrara en áður. Við
veitum rannsóknarþjónustu og höf-
um líka eigið frumkvæði að rann-
sóknar- og þróunarverkefnum líkt
og aðrar rannsóknarstofnanir. Þessi
umgjörð utan um þá þjónustu sem
rannsakendur fá bæði handleiðslu í
gegnum umsóknarferlin og það að
reka rannsóknarverkefnin. Innan
stofnunarinnar hefur byggst upp
mikil reynsla á hvernig staðið skuli
að rannsóknarverkefnum bæði inn-
lendum sem og erlendum sem mun
koma til með að nýtast mörgum sem
huga að rannsóknum. Þá er yfir-
byggingin mjög lítil þannig að við er-
um vel í stakk búin til þess að veita
skjólstæðingum okkar betri og per-
sónulegri þjónustu.“
Ávinningurinn ótvíræður
Sólveig segir að ávinningurinn af
starfsemi sem þessari sé ótvíræður.
„Þær rannsóknir sem falla fyrir utan
háskólasamfélagið eru mjög verð-
mætar vegna þess að þetta eru oft á
tíðum fjárhagslega hagkvæmari
rannsóknir þar sem fleiri krónur
fara í rannsóknina sjálfa en ekki
bara í umsýslu auk þess sem störf
innan háskólanna eru ekki það
mörg. Við erum því að gera fræði-
mönnum betur kleift að vinna við sitt
fag.“
Sólveig segir mikla þörf á þjón-
ustu sem þessari.
„Síðustu ár hefur umhverfið verið
þannig að innlent rannsóknarfé hef-
ur leitað í auknum mæli inn í há-
skólana sjálfa en það er sem betur
fer að verða breyting á því og á
þessu ári eru fleiri fleiri styrkir að
fara til fræðimanna í sjálfstæðum
rannsóknum.
Þá má geta þess að á síðasta ári
tók til starfa starfslaunasjóður sjálf-
stætt starfandi fræðimanna og hefur
mjög jákvæð áhrif á starfsumhverfi
þessara fræðimanna.“
Stór hópur fræðimanna
Alls hafa 144 einstaklingar haft
aðsetur í ReykjavíkurAkademíunni
um lengri eða skemmri tíma. Athug-
un Elsu Eiríksdóttur leiddi í ljós að
hátt á fjórða hundrað manns hefur
lokið eða stundar nú doktorsnám í
menningar-, hug- og félagsvísindum
það sem af er 21. öldinni.
„Þessar tölur eru sláandi og sýna
glögglega hvað þessi hópur sem við
komum til með að hlúa að er í raun
og veru stór.“
Fer í rekstur stofnunarinnar
Fjármunirnir munu fyrst og
fremst fara í rekstur stofnunarinnar
og umsýslu rannsókna.
„Hér er fyrirkomulagið þannig að
þú borgar leigu og þjónustugjald
fyrir aðstöðuna og því fer fjár-
magnið frá ríkinu eingöngu í það að
reka stofnunina og skrifstofuna og
drífa þetta kerfi áfram. Um leið og
þú færð aðstöðu hér þá borgarðu
með þér. Styrktarupphæðin skiptir
þó sköpum. Hún gerir það að verk-
um að við getum tekið þátt í rann-
sóknarverkefnum og fengið erlent
rannsóknarfé bæði til rannsókna og
ekki síður í umsýsluna,“ segir Sól-
veig.
ReykjavíkurAkademían leggur
sérstaka áherslu á að veita ungum
vísindamönnum í rannsóknartengdu
framhaldsnámi innanlands sem utan
aðstoð og aðstöðu eftir föngum.
Við undirritun samningsins 5.
febrúar bundust aðilar fastmælum
um að standa að sameiginlegu mál-
þingi í haust um stöðu sjálfstæðra
rannsókna á Íslandi.
18 milljónir til Reykja-
víkurAkademíunnar
Fræðimönnum gert kleift að vinna við sitt fag
Morgunblaðið/Kristinn
Fræði Sólveig Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri ReykjavíkurAkademíunnar, telur samninginn styrkja fræðastarf og
rannsóknir til mikilla muna. Mennta- og menningarmálaráðherra undirritaði þriggja ára samning við RA nýverið.
Leikritið Sek eftir Hrafnhildi
Hagalín hefur verið valið af val-
nefnd Leiklistarsambands Íslands
og Félags leikskálda og handrits-
höfunda til þátttöku fyrir Íslands
hönd í Leikskáldalest Norrænu
sviðslistadaganna sem fram fara í
júní nk. Leikskáldalestin sviðsetur
leiklestur á völdum verkum frá
Norðurlöndunum í Noregi, Dan-
mörku, Svíþjóð, Finnlandi og Ís-
landi.
Sek var frumsýnt hjá Leikfélagi
Akureyrar í október sl. undir leik-
stjórn Ingibjargar Huldar Haralds-
dóttur og byggist á dómsmáli frá
19. öld. „Lífsþræðir ábúenda og
vinnumanns í Rifshæðarseli á Mel-
rakkasléttu fléttast saman í örlaga-
ríkum ástarþríhyrningi. Með því að
styðjast við texta og tilsvör úr dóm-
skjölum frá þessum tíma byggir
höfundurinn, Hrafnhildur Hagalín,
upp spennandi atburðarás sem
kemur áhorfandanum sífellt á
óvart,“ segir m.a. í tilkynningu.
Hrafnhildur hlaut leikskálda-
verðlaun Norðurlanda 1992 fyrir
leikrit sitt Ég er meistarinn ásamt
því að hljóta Norrænu útvarpsleik-
húsverðlaunin og Grímuna 2013
fyrir útvarpsverkið Opið hús.
Sek í Leikskáldalest
Norrænna sviðlistadaga
Sek Aðalbjörg Árnadóttir og Þráinn
Karlsson í hlutverkum sínum hjá LA.
Ljósmynd/Þórhallur Jónsson