Morgunblaðið - 20.02.2014, Síða 4

Morgunblaðið - 20.02.2014, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 2014 flottir í flísum Stórhöfða 21 | sími 545 5500 | flis.is BAKSVIÐ Rúnar Pálmason runarp@mbl.is Ef ráðist yrði í allar þær framkvæmdir sem stjórnendur Vatnajökulsþjóðgarðs telja nauðsyn- legar í þjóðgarðinum mun kostnaður við þær hlaupa á einhverjum milljörðum, að sögn fram- kvæmdastjóra Vatnajökulsþjóðgarðs. Á þessu ári fær sjóðurinn á hinn bóginn aðeins um 90 millj- ónir á fjárlögum til fram- kvæmda og gerir lítið annað en að klára það sem byrjað var á í fyrra. „Þetta verður dálítið dapurt í ár,“ segir Þórður H. Ólafsson, fram- kvæmdastjóri þjóðgarðsins. Dýrasta framkvæmdin árið 2014 er bygging skála við Drekagil. Skálinn var boðinn út í fyrra og var lægsta boð um 50 milljónir. Hann er um 130 fermetrar, látlaus, með risi. Í honum er eng- inn íburður en kostnaður við orkuöflun og frá- rennsli vegur þungt, að sögn Þórðar. Skálinn verður líka að vera stöndugur. „Þarna getur gert vetrarveður á miðju sumri. Þetta er alvöruhús á alvörustað og við ætlum að standa almennilega að umbúnaði um okkar fólk,“ segir hann. Þórður bendir á að Drekagil sé lykilstaður á hálendinu og þaðan sinni landverðir mjög um- fangsmiklu svæði. Ferðamennska fari þar vax- andi og í framtíðinni sé gert ráð fyrir að allt að fimm starfsmenn þjóðgarðsins geti haft aðsetur í Drekagilsskálanum. Í sumar verða þeir þrír. Hluti af kostnaði við skálann verður greiddur af fjárveitingu síðasta árs. Í uppnámi vegna áforma um gjaldtöku Í sumar á einnig að reisa útsýnispall við Ófærufoss í Eldgjá auk snyrtiaðstöðu. Í Skafta- felli á að ljúka hitaveituframkvæmdum, bæta merkingar, lagfæra göngustíga auk þess sem skoða á möguleika á reiðhjólaleiðum á völdum stöðum o.fl. Einnig er stefnt á að gera göngubrú á Kolgrímu við Skálafell. Þá er á áætlun að reisa ný salerni við Dettifoss vestanverðan í stað gam- alla salerna. Deilur um eignarhald á svæðinu valda því að sú fyrirætlan er í uppnámi. Eins og kunnugt er hyggja landeigendur á gjaldtöku við fossinn og hafa lýst því yfir að hún hefjist strax í vor. Þórð- ur bendir á að Dettifoss sé að verða mjög vinsæll áfangastaður að vetri til, m.a. í kjölfar þess að vegurinn þangað frá hringveginum hafi verið byggður upp. Frekari vegbætur eru fyrirhug- aðar. Nauðsynlegt sé að bæta aðkomu að foss- inum, ekki síst til að tryggja öryggi ferðamanna. Við Langasjó stendur til að gera bílastæði nokkru vestan við veiðihús sem þar stendur, og reisa þar einnig salerni. Þar með eru framkvæmdir Vatnajökuls- þjóðgarðs sumarið 2014 að mestu upptaldar. Þórður segir að framkvæmdalistinn taki mið af því að fjárráðin séu alltof lítil, m.a. í ljósi þess að þjóðgarðurinn teygi sig yfir um 14.000 ferkíló- metra og innan hans séu margar af helstu nátt- úruperlum landsins. Mjög víða þurfi að bæta sal- ernisaðstöðu. Enn sé ferðamönnum víða boðið upp á gamaldags kamra og fólk verði hreinlega að halda fyrir nefið og skjótast síðan inn og út. Þannig sé til dæmis staðan við Öskju; tveir kamrar og engin aðstaða fyrir hreyfihamlaða, og brýnt að bæta úr. „Þetta þótti bara vera ágætis aðstaða fyrir svona tíu árum,“ segir hann. Leggja þvers og kruss á mel við Öskju Við Vikraborgir í Öskju sé frumstætt bílastæði fyrir þá sem vilja ganga að Öskjuvatni, sem er bara melur þar sem er lagt þvers og kruss. „Og það eru margir svona staðir í þjóðgarðinum þar sem þyrfti að gera betri göngustíga og slíkt.“ Sem stendur er enginn peningur til fyrir slíku. Þórður vonast til að fjármunir fáist til uppbygg- ingar á ferðamannastöðum. Hvaða kerfi sem verði fyrir valinu sé ljóst að þörf á uppbyggingu sé mikil – hálfur til einn milljarður á ári sé engin ofgnótt. Vatnajökulsþjóðgarður/Tölvumynd Fært Tölvuteiknuð mynd af fyrirhuguðum útsýnispalli við Ófærufoss í Eldgjá. Hann á að rísa í sumar. Verða að klípa um nefið  Telja þörf á milljörðum til að byggja upp aðstöðu í Vatnajökulsþjóðgarði  Fá um 90 milljónir á fjárlögum 2014  Vaxandi ferðamennska í Drekagili Þórður H. Ólafsson Gildistöku nýrra náttúruverndar- laga verður frest- að frá 1. apríl á þessu ári til 1. júlí árið 2015 sam- kvæmt sameig- inlegu áliti full- trúa allra flokka í umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis. Sigurður Ingi Jóhannsson um- hverfisráðherra hafði áður lýst því yfir að hann hygðist fella lögin úr gildi og hefja endurskoðun á nátt- úruverndarlögum. Þess í stað leggur nefndin til að gildistökunni sé frest- að og hafa fulltrúar hennar tekið saman helstu álitaefni sem þarf að fara yfir, að sögn Höskuldar Þór- hallsonar, formanns hennar. Landvernd fagnar tillögu nefnd- arinnar en samtökin höfðu lagt til að slík sáttaleið yrði farin. Hvetja sam- tökin Alþingi til að fá sem flesta að vinnu við að leysa úr ágreinings- efnum sem tengjast lögum um nátt- úruvernd, þar á meðal sérfræðinga á sviði náttúruvísinda, fulltrúa nátt- úruverndar- og útivistarfélaga og aðra hagsmunaaðila. Sátt um náttúru- verndarlög  Ekki felld úr gildi en frestað til 2015 Höskuldur Þórhallson „Maður frelsar ekki heiminn á fáum dögum. Getur þó vakið máls á ýmsu og ég tók sam- göngur við Eyjar fyrir í jómfrú- ræðu,“ segir Geir Jón Þórisson, fv. yfirlögregluþjónn á höfuðborg- arsvæðinu. Hann tók í gær sæti á Al- þingi sem varamaður Ásmundar Friðrikssonar. Geir Jón býr nú í Eyjum og skipaði 5. sætið í lista Sjálfstæðisflokks í kosningunum í fyrra. Hann er 2,05 m. á hæð. „Þingsalurinn er lítill og þar er þröngt fyrir stóra menn. Og það er nýtt fyrir mig að vera í sal eftir að hafa verið svo oft á vakt fyrir utan húsið,“ segir Geir Jón. sbs@mbl.is Þröng á þingi fyrir stóra menn Geir Jón Þórisson „Núna er aðeins orðið skýjað og frostið hefur alveg hrap- að niður síðustu klukkutíma. En þegar svona viðrar för- um við ekki meira úr húsi en við nauðsynlega þurfum. Eðlilega er allt sauðfé á húsi þegar svona stendur á. Raunar hefur það ekki farið út síðan í október því hér er þykkur snjór yfir öllu. Og eftir svona frost marrar auð- vitað í hverju spori þegar fólk gengur á snjónum,“ segir Elín Baldursdóttir í Svartárkoti í Bárðardal. Þar nyrðra hefur verið brunagaddur síðustu daga og klukkan fjögur fyrrinótt fór gaddurinn þar niður í -26,7 gráður. Nokkur ár eru síðan orðið hefur svona kalt í Bárðardalnum. Þetta er þó alls ekki fordæmalaust og í því sambandi bendir Elín á að Svartárkot er sé langt inni í landi og nánast við hálendisbrúnina í um 400 metra hæð. „Ég rak upp stór augu“ Í kuldanum í Mývatnsveit bar annars helst til tíðinda að í fyrrinótt, þegar gaddurinn fór í tæpar 23 gráður, voru þar fyrstu tjaldferðamenn ársins. „Þau voru þrjú saman. Eru útlendingar, vel útbúin og sennilega mikil hraustmenni. Sjálfur hefði ég ekki lagt í svona útivist og rak raunar upp stór augu þegar ég sá tjaldið þarna fyrir utan verslunina hér í Reykjahlíð,“ segir Mývetningurinn Einar Jónsson við Morgunblaðið. sbs@mbl.is „Við förum ekki úr húsi nema nauðsynlegt sé“  26,7 stiga frost í Bárðardal  Tjaldferðamenn við Mývatn Ljósmynd/Einar Jónsson Mývatn Tjölduðu og létu kuldann ekki neitt á sig fá. Fjölmörg verkefni eru framundan á næstu 2-3 árum og flest eru þau sett fram í stjórnunar- og verndaráætlun þjóðgarðsins. Setja á upp snyrtingar og lagfæra göngu- stíga á fjölda staða. Setja á upp göngubrýr á a.m.k. níu stöðum, reisa upplýsingahús á fimm stöðum, bæta aðstöðu fyrir hreyfi- hamlaða víða. Einnig á að reisa landvarða- hús á tveimur stöðum; við Gjallanda á Gæsavatnaleið og í Hólaskjóli á leiðinni um Fjallabak og hugsanlega víðar. Þá er þess vænst að hafist verði handa við byggingu þekkingarseturs á Kirkjubæjarklaustri á næstu árum. Mikið á áætlun GÖNGUBRÝR OG SNYRTINGAR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.