Morgunblaðið - 20.02.2014, Síða 6

Morgunblaðið - 20.02.2014, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 2014 Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Forsvarsmenn ASÍ-félaga sem felldu kjarasamningana hafa að und- anförnu leitað leiða á óformlegum fundum með fulltrúum Samtaka at- vinnulífsins til að leysa úr þeirri stöðu sem upp er komin og hvort unnt er að ná samkomulagi sem fé- lögin telja verjandi að bera undir at- kvæði félagsmanna. Fjórar vikur eru liðnar frá því að í ljós kom að um helmingur ASÍ-félaga felldi kjara- samningana. Ekki hefur verið boðað til sátta- funda og eru þessi samtöl á óform- legum nótum en þau eru sögð hafa gengið þokkalega þó að engin nið- urstaða sé enn í sjónmáli. Samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins hefur ýmsum hug- myndum verið stillt upp, m.a. um að lengja samningstímann en kjara- samningarnir sem gerðir voru í des- ember gilda til næstu áramóta og að lægstu launataxtar hækki meira en um var samið í desember. Þá er rætt um að sett verði verðlagsmarkmið með rauðu striki í samningana í haust. Jafnframt verði að koma skilaboð frá stjórnvöldum varðandi frekari skattalækkanir fyrir lág- tekjuhópana. Heimildarmaður innan launþegahreyfingarinnar segir þó að ekkert hafi komið út úr því sem máli skiptir. Auk þess hafi fulltrúar SA verið lítt viljugir til að ljá máls á frekari launahækkunum enda telji þeir sig skuldbundna af því sem þeir hafa áður sagt um að ekki sé svig- rúm til frekari launabreytinga og eins gagnvart þeim stéttarfélögum sem samþykktu samningana. Haldið verði aftur af verðbólgu Önnur útgáfa sem einnig hefur verið rædd gengur út á að samið yrði til styttri tíma en næstu áramóta til að draga úr óvissu, ekki síst vegna yfirstandandi viðræðna ríkis og sveitarfélaga við kennara og aðra opinbera starfsmenn. Þá hefur þeirri spurningu ekki verið svarað hvort þær launahækkn- ir sem samið yrði um eigi að vera afturvirkar og gilda frá 1. janúar sl. Í öllu falli sé þó nokkuð víst að þær launabreytingar sem hugsanlega næðist samkomulag um gengju líka til launþega í félögum sem sam- þykktu kjarasamningana. Mikill áhugi er enn sagður vera á því bæði innan verkalýðshreyfing- arinnar og í SA að hugmyndin um aðfararsamninga fari ekki í vaskinn. Þær leiðir sem rætt er um byggjast á því markmiði að haldið verði aftur af verðbólgu og séð til þess að kaup- mátturinn á þessu ári rýrni ekki. Morgunblaðið/Kristinn Blikur á lofti Óvissan í samfélaginu vex vegna kjaradeilna. ASÍ-félög sem felldu kjarasamninga leita lausna í sam- tölum við SA. Framhaldsskólakennarar kjósa um boðun verkfalls. Á fjórða tug deilna er á borði ríkissáttasemjara. Skoða lengri samning og rautt strik í haust  ASÍ-félög og SA leita lausna í óformlegum samtölum Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Framleiðslan eykst býsna skart. Ég held að hún sé orðin í ágætum takti við væntingar,“ segir Sigurður Loftsson, formaður Landssambands kúabænda, um aukningu mjólkur- framleiðslunnar í byrjun árs. Sala á mjólkurafurðum var góð í janúar, að því er fram kemur á vef LK, og heldur því áfram sú mikla söluaukning sem varð á síðasta ári. Sem fyrr eru það fituríkari afurðir sem seljast best. Aukning undan- farna tólf mánuði er 6,5% ef miðað er við fitugrunn og 1,9% á prótein- grunni. Sigurður segir mikilvægt að kúa- bændum takist að auka framleiðslu til að halda í við söluaukningu. Framleiða þurfi meira en það til þess að koma birgðastöðunni í betra lag en birgðir voru sem kunnugt er það litlar undir lok síðasta árs að flytja þurfti inn smjör frá Írlandi til að bjarga málum fyrir jólin. „Öruggari með mig“ Mjólkuriðnaðurinn og forystu- menn bænda hafa hvatt bændur til að auka framleiðsluna eins og þeir geta. Í þeim tilgangi var kvótinn aukinn, auk þess sem því var lýst yf- ir að greitt yrði fullt afurðastöðva- verð fyrir alla mjólk umfram kvóta. „Það hefur verið dálítil spenna í okkur gagnvart byrjun ársins, hvernig framleiðslan færi af stað. Við höfum haft vonir en það hefur einnig verið uggur í okkur,“ segir Sigurður. Bendir hann á að á sama tíma og aukning sé í sölu séu bændur að fóðra gripi sína með fóðri frá tiltölu- lega erfiðu heyskaparsumri. Bændur virðast hafa tekið vel við sér. Þannig var innvigtun í síðustu viku 100 þúsund lítrum meiri en í sömu viku á síðasta ári, að því er fram kemur á vef kúabænda. Er það tvöfalt meiri aukning en var fyrstu vikur janúar. Framleiðslan þarf að aukast enn meira ef hún á að anna eftirspurn mjólkuriðnaðarins sem spáir því að salan í ár verði 125 þús- und lítrar á fitugrunni. „Ég er miklu öruggari með mig en í byrjun ársins. Vonandi heldur þetta áfram,“ segir Sigurður. Aðgerðahópur að störfum Fulltrúar LK, Bændasamtaka Ís- lands, Ráðgjafarmiðstöðvar land- búnaðarins og Samtaka afurðastöðva í mjólkuriðnaði hittast reglulega í svonefndum aðgerðahópi til að fara yfir málin. „Við erum að hvetja bændur og aðstoða við að auka fram- leiðslu með hagkvæmum hætti. Við munum ekkert slaka á í því.“ Framleiðsla á mjólk eykst  Helst í hendur við aukna sölu Búist er við að ráðast muni á næstu dögum hvort ASÍ-félögin sem felldu samningana verða samferða þegar formlegar við- ræður fara í gang við atvinnu- rekendur um endurnýjun kjara- samninga eða hvert í sínu lagi. Fulltrúar SGS-félaga sem felldu samningana, að frátöld- um Verkalýðsfélagi Akraness og Framsýn, auk fulltrúa Flóafélag- anna, Rafiðnaðarsambandsins, VM o.fl. hafa tekið þátt í þess- um samtölum við SA. Staðan er sögð mjög flókin, ekki síst þar sem um helmingur launþega í ASÍ er með endurnýjaða kjara- samninga og fengu launahækk- anir frá 1. janúar. Dæmi eru sögð vera um að fyrirtæki hafi ákveðið að greiða öllu starfs- fólki sínu umsamdar launa- hækkanir óháð því hvort það er í félögum sem samþykktu eða felldu kjarasamningana. Stilla saman strengi? FÉLÖGIN SEM FELLDU „Við þurfum að auka framleiðsl- una um 25-30 þúsund lítra og náum því alveg,“ segir Guðrún Lár- usdóttir sem rekur kúabú í Keldu- dal í Skagafirði með Þórarni Leifs- syni, manni sínum. Kvótinn var aukinn um 7% og þurfa þau að auka framleiðsluna í samræmi við það. „Þetta hefur gengið vel hjá okkur. Við stefnum að því að fara aðeins umfram greiðslumarkið. Aðstæður eru einstakar á markaðnum og þær nýtast best þeim bændum sem hafa van- nýtta framleiðsluaðstöðu. „Við getum ekki aukið endalaust, við höfum ekki gripi í það. Það er erfitt að fá keyptar kvígur, engar á lausu þótt mað- ur vildi bæta við,“ seg- ir Guðrún. Þá hafa bændur orðið varir við að verð fyr- ir þær kvígur sem enn eru boðnar til sölu hefur hækkað stórlega. Hún segir að aukningin náist mest með því að seinka slátrun á kúm. Aðeins hafi verið bætt við kjarnfóðri en töluvert kjarnfóður hafi verið gefið í Keldudal svo ekki sé hægt að auka það mikið. Guðrún og Þórarinn hafa þre- faldað mjólkurframleiðsluna frá 1996. Þau stefna að því að framleiða 360 þúsund lítra í ár. Fara þarf í framkvæmdir ef framleiða á meira. „Það er hjá okkur eins og öllum bændum, við erum allt- af að hugsa um það hvort við eigum að fara út í framkvæmdir.“ Seinka slátrun á mjólkurkúm HÆGT AÐ AUKA FRAMLEIÐSLUNA AÐ VISSU MARKI Guðrún Lárusdóttir Mælingar Hafrannsóknastofnunar á veiðistofni loðnu í fyrrahaust og til- lögur leiddu til þess að gefið var út 160 þúsund tonna aflamark fyrir yfirstandandi vertíð. Nýafstaðnar mælingar gefa ekki tilefni til að breyta þeirri ákvörðun, segir í frétt frá stofnuninni. Í síðustu viku huguðu rannsókna- skip að vesturgöngu loðnu en ekki varð vart við loðnu við Vestfirði. Árni Friðriksson hélt því suður fyrir land og mætti hrygningargöngunni sem þar var skammt vestan við Selvog 15. febrúar. Megingangan var með ströndinni á svæði frá Selvogi austur undir Kötlutanga og í kringum Vest- mannaeyjar. Haldið var austur undir miðja Meðallandsbugt, en lítið fannst austast á leitarsvæðinu. Að lokinni þessari mælingu á hrygningargöngunni var ætlunin að endurtaka mælingu, en veður kom í veg fyrir að úr því yrði. Bræla á miðunum Fjögur norsk skip fengu loðnu í nót á Skjálfandaflóa í gær, en um miðjan dag hafði Landhelgisgæslan ekki fengið upplýsingar um hversu mikið þau veiddu. Norðmenn hafa heimild til loðnuveiða í íslenskri lög- sögu til miðnættis annað kvöld. Síðustu daga hafa íslensku skipin verið við veiðar við Reykjanes, en eftir því sem leið á gærdaginn fækk- aði skipum á miðunum vegna veðurs. Fremsti hluti göngunnar er kominn vestur fyrir Reykjanes og inn á Faxaflóa. aij@mbl.is Ekki tilefni til að auka loðnukvótann  Norsk skip fengu loðnu á Skjálfanda er ódýrara! 15% AFSLÁTT UR Gildir fyrir allar pakkningastærðir og styrkleika af Nicotinell Fruit

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.