Morgunblaðið - 20.02.2014, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 20.02.2014, Qupperneq 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 2014 Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Ég veit af eigin reynsluhversu mikilvægt það erað halda móðurmálinu.Það var dýrmætt fyrir mig að vera ekki búin að týna ís- lenskunni alveg þegar ég flutti hing- að aftur, eftir að hafa ekki átt heima á Íslandi öll þessi ár. Mér var sagt þegar ég flutti til Íslands að ég væri svokallaður snúbúi, eða sá sem snýr aftur heim. Mér finnst þetta mjög skemmtilegt orð,“ segir Kristín R. Vilhjálmsdóttir, verkefnastjóri fjöl- menningar í Borgarbókasafninu, sem flutti aftur til Íslands fyrir sex árum eftir að hafa alist upp í Dan- mörku og búið þar í þrjátíu ár. „Ég er því tvítyngd og mér finnst mikil gjöf að eiga tvö tungumál. Vissulega fylgdi því þó nokkur krísa að skil- greina mig þegar ég flutti til Íslands, hvort ég væri dönsk eða íslensk. Ég talaði ekki móðurmálið mitt íslensk- una dags dagslega í þessi þrjátíu ár, en frá því ég flutti heim hefur ís- lenskan mín batnað mikið og það skiptir miklu máli. Mitt hjartans tungumál er danska, ég tel og ég blóta á dönsku. Danskan er sterkur hluti af minni sjálfsmynd.“ Til að skapa forvitni Í tilefni af móðurmálsvikunni stendur Borgarbókasafn fyrir sögu- stund á morgun í Gerðubergi fyrir börn á tíu tungumálum. „Þetta er op- ið fyrir alla en við hvetjum leik- skólana í hverfinu til að koma og njóta þess að hlusta á öll þessi tungu- mál. Og þar sem margir grunnskólar eru í vetrarfríi núna þá er tilvalið fyr- ir fjölskyldur að koma og njóta. Sum- ar sögurnar verða lesnar upp í hinum ævintýralega sögubíl Æringja og þeir sem lesa upp eru kennarar úr samtökunum Móðurmál, en þar fer fram móðurmálskennsla í fjölþjóða- starfi. Þar eru kennd fimmtán tungumál. Sögurnar verða á víet- nömsku, frönsku, tékknesku, spænsku, portúgölsku, pólsku, lithá- ísku, lettnesku, ensku og íslensku. Tilgangurinn með sögustundinni er að leyfa börnum að hlusta á sitt ann- að heimamál, en það er ekki síður gaman að börn almennt fái að heyra á margbreytileika tungumála. Við viljum skapa forvitni barna í tengslum við tungumál og vekja áhuga þeirra á að læra tungumál.“ Sannkölluð tungumála- herferð Cafe Lingua Kristín hefur nóg á sinni könnu sem verkefnastjóri fjölmenningar, því hún stendur líka fyrir Café Ling- ua einu sinni í viku, sem hún segir vera vettvang fyrir þá sem vilja efla tungumálakunnáttu sína. „Þetta er staður fyrir orð, spjall og samskipti á hinum ýmsu tungumálum, sem og gátt inn í mismunandi tungumála- og menningarheima. Við virkjum bæði félög og einstaklinga til að sjá um dagskrána, sem er síbreytileg. Ég hef fundið fyrir áhuga meðal hins al- menna borgara, að láta tungumálin sameina okkur. Tungumál geta verið ótrúlega sterk lína til að tengja sam- an fólk. Café Lingua var fyrst aðeins á Borgarbókasafni, en við erum kom- in í samstarf við stofnanir sem vinna á hverjum degi með tungumál og menningu. Café Lingua er því líka í Bíó Paradís, í Háskóli Íslands og í Menningarmiðstöðinni í Gerðubergi. Ég er það sem kallað er snúbúi Á Íslandi eru töluð yfir hundrað tungumál og á morgun hefst Móðurmálsvikan. Þá verður ýmislegt skemmtilegt í boði. Kristín R. Vilhjálmsdóttir, verkefnastjóri fjölmenningar í Borgarbókasafni, stendur fyrir sögustund í Gerðubergi fyrir börn á tíu tungumálum. Kristín ólst upp í Danmörku og bjó þar í þrjátíu ár og er því tvítyngd. Hún telur og blótar á dönsku, sínu hjartans máli. Gaman Börnin njóta þess að taka þátt í menningarmótinu. Café Lingua Kristín á góðri stund að spjalla við gesti Café Lingua. Á Minjasafni Reykjavíkur í Aðalstræti 16 er skemmtileg Landnámssýning sem býður alla krakka í vetrarfríi vel- komna í heimsókn. Fullorðnir í fylgd með börnum fá frítt dagana 20. og 21. febrúar (en þess má geta að það er alltaf frítt fyrir börn yngri en 18 ára). Í vetrarfríinu verður einnig boð- ið upp á skemmtilegan ratleik og leiksvæði Freyju fornleifafræðings er alltaf opið. Ratleikurinn er tilvalinn fyrir alla fjölskylduna, unga jafnt sem aldna, þar sem ráða þarf í fornar rún- ir og bera kennsl á aldargamla gripi. Ratleikurinn tekur um það bil tuttugu mínútur. Þegar búið er skoða sýn- inguna og leysa ráðgátuna er tilvalið að setjast niður og reyna sig við að rita rúnir. Á Landnámssýningunni er skorað á alla gesti að reyna að rita nafn sitt með rúnum. Skemmtilegt. Vefsíðan www.minjasafnreykjavikur.is Morgunblaðið/Golli Rúnir Það er skemmtileg áskorun að reyna að lesa í fornar rúnir. Lesið í rúnir í vetrarfríinu Alla fimmtudaga fram að dymbilviku verður boðið upp á ljóðadagskrá í hádeginu kl. 12-13 á Borg- arbókasafninu við Tryggvagötu, í umsjá Jakobs S. Jónssonar. Yf- irskriftin er SKÁL AF LJÓÐUM en gestum gefst kostur á að snæða súpu á meðan dagskráin fer fram. Næstu fimmtudagar verða með svipuðu sniði; lesin verða ljóð eftir einstök skáld, ljóð af ákveðnu þema eða dæmi um tiltekna anga ís- lenskrar ljóðlistar, í bland við fróð- leik og umfjöllun. Jakobi til full- tingis eru leikarar, ljóðunnendur og jafnvel óvæntir gestir. Fastir lesarar verða þær Birna Pétursdóttir, Halla Margrét Jóhannsdóttir og Tinna Þorvalds Önnudóttir. Í dag verður dagskráin helguð ljóðsáttamann- inum Þorgeiri Sveinbjarnarsyni. Kryddlegin hjörtu bjóða upp á tvennskonar súpu, heimabakað brauð með hummus og hvítlauks- smjöri, og kaffi á eftir, á kr. 1.290. Aðgangur að dagskránni sjálfri er hins vegar frjáls og öllum opinn. Endilega … … súpið á ljóða- skál í hádeginu Morgunblaðið/Golli Gott Að fá sér súpu með ljóði. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. BL ehf / Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 / www.bl.isGE bílar, Reykjanesbæ, 420 0400 – Bílasalan Bílás, Akranesi, 431 2622 – Bílasala Akureyrar, Akureyri, 461 2533 – Bílaverkst. Austurlands, Egilsst., 470 5070 – IB ehf., Selfossi, 480 8080 E N N E M M / S ÍA / N M 6 13 4 1 Ný LINEARTRONIC stiglaus sjálfskipting með þrepastillingum í stýri og leðurklædd rafdrifin sæti. SUBARU OUTBACK Subaru Outback 2.0l BOXER dísil, sjálfskiptur Verð: 6.890.000 kr. 6,3 l/100 km í blönduðum akstri SUBARU ER EINN ÖRUGGASTI BÍLL SEM ÞÚ GETUR KEYPT Rekstraröryggi og gott endursöluverð er það sem allir þekkja og kemur fyrst upp í hugann. Lágur þyngdarpunktur, þverliggjandi BOXER vél og sítengt fjórhjóladrif með tölvustýrðri stöðugleikastýringu er lykillinn að akstursöryggi. Allir Subaru eru með 5 stjörnur í árekstrarprófunum EuroNCAP. GERÐU ÖRUGG BÍLAKAUP – KAUPTU SUBARU!
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.